Leita í fréttum mbl.is

Kam Kam Kam- Hann er upprisinn.

Hann er upprisinn. Kristnir arabar segja Kam Kam Kam - Upprisinn-Upprisinn-Upprisinn. Á vesturlöndum segjum við þetta sjaldnast nema á upprisuhátíðinni. Andrew White sem hefur þjónustað kristna í Mið-Austurlöndum um árabil segir að meðal kristinna araba þá hljómi þessi orð -inntak fagnaðarerindis kristins fólks- oft sem herhvöt og huggun til kristins fólks í þessum heimshluta og þýðir í þeirra huga. Að jafnvel þó að heimurinn telji að endalok þeirra séu skammt undan og þeir séu fullir ótta um hvað framtíðin ber í skauti sér, þá eigi þeir samt sanna von.

Í værðarvoðum þeirrar velmegunar sem við búum við er fátt sem raskar ró okkar. Helst þó þegar voðaverk Íslamista eru framin í næsta nágrenni við okkur eins og í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, París eða London. Fjarlægari hryllingur, morð og nauðganir vekja ekki eins mikil hughrif.

Eftir innrásina í Írak flúðu margir Kristnir frá Bagdad og öðrum helstu borgum landsins af því að þeir töldu sig öruggari annarsstaðar í landinu þar sem kristnir væru fjölmennari. Þremur árum síðar breyttist allt. Ísil tók völdin í þeim hluta landsins og aðförin að kristnum og fleiri trúarbragðahópum hófst fyrir alvöru og af mikilli hörku.

Heimili kristins fólks vour sérstaklega merkt með arabíska stafnum Nun til að merkja þá sem Nasarea þ.e. áhangendur Jesús frá Nasaret. Þeir sem gátu flýðu til Jórdaníu, Líbanon, svæði undir stjórn Kúrda og jafnvel til Sýrlands. Til þessa dags segir White að þeir búi í flóttamannabúðum við sára fátækt eftir að hafa misst allt sem þeir eiga. Kristið flóttafólk í Mið-Austurlöndum hefur það verra en aðrir flóttamenn á svæðinu.

Við lifum á tímum píslarvættis fjölda kristinna sem eru drepnir, nauðgað, missa eigur og eru hrakin frá heimilum sínum vegna ofsa og haturs Íslamista. Þannig er það jafnan þegar trúarbrögð missa samhengi við almenna skynsemi og sjá djöfulinn í hópi þeirra sem eru annarrar skoðunar en þeir sem hafa höndlað hinn eina sannleika.

Það er hægt að tala um stríð gegn kristnum, þó að kristni heimurinn láti sem ekkert sé. Á pálmasunnudaginn voru um 50 manns drepin í kirkjum Kopta í Egyptalandi. Samkvæmt heimildum hjálparsamtakanna "Open Doors" Þá eru að jafnaði 322 kristnir ofsóttir vegna trúar sinnar á hverjum degi. 214 kirkjur og/eða helgistaðir eyðilagðir og yfir 700 ofbeldisbrot gegn kristnum framin. Þetta er ekkert annað en herferð- stríð gegn kristnu fólki. Í Mið-Austurlöndum og Nígeríu er þetta stríð í fullum gangi.

Francis páfi sem ætlar sér að heimsækja Kopta í Egyptalandi seinna í þessum mánuði. Beðið verður eftir því hvað hann segir. Hvað segir páfinn æðsti maður fjölmennustu deildar kristinna á jörðinni. Þorir hann að nefna hlutina réttu nafni - að það geisi stríð í þessum heimshluta gegn kristnum?

Í þessu stríði gegn kristninni ber kristið fólk ábyrgð á því að taka sinn kross og bera sinn hluta byrðanna. Ég skora á íslenska presta, kirkjudeildir og biskupinn já og ríkisstjórnina að láta af pópúlísku rétttrúnaðarhyggjunni og standa með trúarsystkinum okkar og leggja okkar að mörkum.

Það er skylda okkar. Okkar heimur með sínu öryggi, velferð og mannréttindum væri ekki fyrir hendi nema vegna þeirrar kristnu arfleifðar sem við höfum þróað með okkur til umburðarlyndis og viðurkenningar á rétti minnihluta. Þau kristilegu gildi verðum við að verja.     

 


Bloggfærslur 16. apríl 2017

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 57
  • Sl. sólarhring: 63
  • Sl. viku: 1718
  • Frá upphafi: 2291608

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 1543
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 46

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband