Leita í fréttum mbl.is

Drengskaparbragð Árna Johnsen

Árni Johnsen alþingismaður vekur réttilega athygli á því í góðri grein í Morgunblaðinu í dag, að ómaklega sé ráðist að fyrrum viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðssyni.

Það er sjaldgæft að stjórnmálamenn taki til varna fyrir stjórnmálamenn úr öðrum flokkum en Árni Johnsen tekur til réttmætra varna fyrir alþingismann Samfylkingarinnar. Flokkssystkin Björgvins hafa sýnt honum dæmafáa lítilsvirðingu að ástæðulausu, það sýnir eðli fólksins sem þar fer með völd.

Björgvin G. Sigurðsson var sem viðskiptaráðherra besti neytendamálaráðherra sem við höfum átt. Það var slæmt fyrir neytendavitund og neytendastarf í landinu að hann skyldi vera viðskiptaráðherra lengur.

Árni Johnsen bendir réttilega á að Björgvin G. Sigurðsson hefur ekkert til saka unnið. Hann er með óverðskulduðum hætti gerður að fórnarlambi.

Samfylkingarfólk mætti skoða það að núverandi forsætisráðherra er mun meiri gerandi og orsakavaldur í hruninu en nokkru sinni Björgvin G. Sigurðsson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ætli það sé ekki einmitt þessi eiginleiki Árna sem gerir að verkum að hann hefur óumdeilt persónufylgi.

Ragnhildur Kolka, 26.5.2010 kl. 12:32

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

las þessa grein Árna í morgun - ég er ekki alveg sammála því að Björgvin sé al-saklaus, er bara ekki viss um að slíkt hafi verið hægt á þeim tíma - hitt er fallega gert af Árna að benda á andfélagslegt viðhorf Samfylkingafólks í garð fyrrum ráðherra

Jón Snæbjörnsson, 26.5.2010 kl. 16:53

3 Smámynd: Jón Pétur Líndal

Á Indlandi eru kýrnar heilagar, hér er það Jóhanna sem er alveg heilög hjá Samfylkingunni. Ég er sammála því að það væri gaman að fá upp á yfirborðið þátt Jóhönnu í aðdraganda hrunsins. En það verður ekki hróflað við heilagri kú Samfylkingarinnar, því í þeim flokki er engin önnur kýr til að setja í hennar bás. Leiðtogi Samfylkingarinnar og forsætisráðherra Íslands er flugfreyja á ellilaunum! Svo er talað um grínframboð í pólitík, Besti flokkurinn eitthvað og Jón Gnarr grínari sem á ekki erindi í pólitík segja sumir. Ég er bara að djóka, Jóka. Skipti um skoðun ef hún verður ennþá forsætisráðherra þegar hún verður níræð.

Jón Pétur Líndal, 26.5.2010 kl. 21:39

4 Smámynd: Jón Magnússon

Ég reikna með því að þetta sé einn af þeim eiginleikum sem gera það að verkum Ragnhildur.

Jón Magnússon, 26.5.2010 kl. 21:53

5 Smámynd: Jón Magnússon

Ágæti nafni minn ég get ekki séð af lestri skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis eða öðru sem ég þekki til að hann hafi gerst sekur um annað en leggja trúnað á það eins og nánast allir í þessu þjóðfélagi að helstu stjórnendur fjármála- og viðskiptalífsins hér á landi væri gott og heiðarlegt fólk.

Jón Magnússon, 26.5.2010 kl. 21:56

6 Smámynd: Jón Magnússon

Já Jón Pétur þetta er sennilega rétt hjá þér að Jóhanna er heilög kýr Samfylkingarfólks. En ég var að velta fyrir mér afskiptum Jóhönnu af húsnæðislánamarkaðnum í gegn um tíðina og hvort þau afskipti hafi verið til góðs og þegar alls er gætt þá held ég að svo hafi ekki verið. Jóhanna má þó eiga það að hún er vel meinandi. En því miður er það oft þannig að vel meinandi góðhjartaðir stjórnmálamenn geta leitt fátækt og örbirgð yfir þjóðir sínar eins og dæmin sanna. Aðgerðarleysisstjórn þeirra Jóhönnu og Steingríms er að verða okkur ansi dýr.

Jón Magnússon, 26.5.2010 kl. 21:59

7 Smámynd: Jón Pétur Líndal

Sæll. Já, ég man vel eftir því þegar hún tók upp húsbréfakerfið á sínum tíma hún Jóhanna. Það voru ljótu mistökin. Þá voru bréfin seld með afföllum sem bankarnir hirtu. Með þessu innleiddi Jóhanna nýja aðferð fyrir bankana til að ná fólki í skuldaþrældóm, að taka stóran hluta af lánunum af fólki, upp í 24-5% þegar mest var minnir mig, og færa bönkunum sem fyrirframgreitt vaxtaálag áður en lánin voru greidd út. Þetta var hennar uppfinning í samstarfi við bankana. Ég hef aldrei verið ánægður með hana síðan. Hafi hún gert þetta í góðri meiningu, þá er hún ekki nógu klár til að vera forsætisráðherra núna. Hafi hún gert þetta vitandi um afleiðingarnar á sínum tíma þá er hún ekki nógu heiðarleg til að vera forsætisráðherra. Hvort heldur sem er þá vildi hún aldrei laga þetta kerfi aftur, það er kannski það versta við hana í þessu máli. Það voru aðrir en hún sem breyttu þessu kerfi aftur.

Jón Pétur Líndal, 26.5.2010 kl. 22:32

8 Smámynd: Geir Guðjónsson

Bíðum nú aðeins við, sat þá maðurinn bara í sínu viðskiptaráðuneyti, horfði í kringum sig, e.t.v. trommað á borðplötuma með fingrunum og hugsað með sér, Hummmm....lítið að gera í viðskiptaráðuneytinu...eins og í gær og alla hina dagana...ææi, á tali hjá Sollu enn og aftur, hvað ætli hún sé alltaf að gera ?  Bíddu nú við, saklaus leiddur sem lamb til slátrunar....ég segi nú bara upp á góða íslensku, KOMMON, HVAÐA RUGL ER ÞETTA... og allveg eftir Árna að koma þessum góða dreng til varnar. Nei ætli tilgangurinn hafi ekki verið að skjóta á samfylkinguna, HALLÓ,VAKNA........

Kveðja,  Geir

Geir Guðjónsson, 29.5.2010 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 615
  • Sl. sólarhring: 643
  • Sl. viku: 1029
  • Frá upphafi: 2292405

Annað

  • Innlit í dag: 553
  • Innlit sl. viku: 925
  • Gestir í dag: 529
  • IP-tölur í dag: 522

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband