Leita í fréttum mbl.is

Formaður Framsóknarflokksins og þjóðkirkjan

Formaður Framsóknarflokksins skrifar góða og athygliverða grein í Morgunblaðið í dag um þá storma sem geisað hafa um þjóðkirkjuna undanfarnar þrjár vikur. Þar vekur hann m.a. athygli á því með hvaða hætti og ómaklega hafi verið vegið að sr. Geir Waage vegna tímabærrar umfjöllunar hans um trúnaðarskylduna og ómaklega hafi verið vegið að kirkjunni og einstökum forustumönnum hennar í umræðunni undanfarið.

Formaður Framsóknarflokksins varar við upplausninni í þjóðfélaginu og bendir á mikilvægi kirkjunnar sem þjóðfélagsstofnunar.

Búast hefði mátt við því að forsætisráðherra tæki til máls með þeim hætti sem formaður Framsóknarflokksins gerir nú, en hún kaus að vega að kirkjunni þegar harðast var sótt að henni. Sú framganga forsætisráðherra var henni jafnmikið til skammar og skrif formanns Framsóknarflokksins um málefni kirkjunnar eru honum til sóma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Atti sem sagt forsætisradherra ekki ad segja sina skodun af tvi ad hun er forsætisradherra.

Þorvaldur Guðmundsson, 4.9.2010 kl. 11:07

2 identicon

Ég og öll mín fjölskylda fór í Þjóðskrá og við sögðum okkur úr þessu sérhagsmunabatteríi sem þjóðkirkjan er. Þú ert kannski hrifin af því sem Ólafur gerði og allri þögguninni sem fram fór innan kirkjunnar? Þú ert kannski sammála því að trúnaðarskylda við skjólstæðing sé framar tilkynningarskyldu til barnaverndarnefnda? Alveg með ólíkindum hvað hægrimenn hafa siðlítið hjarta og eiga í miklum erfiðleikum með að gera mun á réttu og rögnu.

Valsól (IP-tala skráð) 4.9.2010 kl. 11:09

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sammála!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 4.9.2010 kl. 11:53

4 identicon

Málið er einfalt; Kirkjan braut MJÖG alvarlega af sér.. gegn þegnum þessa lands.
Hver sá sem reynir að tala kirjuna upp... sá maður er ekki þess verður að vera í stjórnmálum eða stjórnunarstöðu.

Minni líka á að framsókn telur ~2000 ára draugasögu það mikilvægasta fyrir ísland, sama gerir sjálfstæðisflokkur...
Allir sem lifa í nútímanum og hafa eitthvað á milli eyrnana.. þeir geta ekki kosið flokka sem fela sig undir dogma biblíu... biblían hreinlega mælir með þessu öllu.

Stop it already, or look silly

DoctorE (IP-tala skráð) 4.9.2010 kl. 12:11

5 identicon

Sammála þér Jón grein Sigmundar davíðs er mjög góð og tímabær enda sjaldgæft að sjá svona ballanseruð skrif og efnisleg rök nú til dags

Heiða (IP-tala skráð) 4.9.2010 kl. 12:18

6 Smámynd: Jón Magnússon

Jú Þorvaldur það var gott að fá það fram hvers konar forsætisráðhera við höfum sérstaklega fyrir marga sem hafa ekki áttað sig á því.

Jón Magnússon, 4.9.2010 kl. 14:00

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þarna ert þú sem nefnir þig Valsól að rugla hlutum þó málefnalegri umræðu sé hrósað þá þýðir það ekki að verið sé að taka afstöðu með afbrotum eða lágkúru þvert á móti. Þá er afstaða til kirkjunnar sem betur fer ekki bundin við pólitískar skoðanir fólks þannig að hægri vinstri skiptir ekki máli hvað það varðar.

Jón Magnússon, 4.9.2010 kl. 14:03

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Guðbjörn.

Jón Magnússon, 4.9.2010 kl. 14:03

9 Smámynd: Jón Magnússon

Þú sem kallar þig Doctor E ættir að koma fram undir nafni. Þú tekur alltaf til máls til að ófrægja kirkju og kristni. Athygliverð þessi fasíska framsetning þín að þú einn hafir rétt til að hafa skoðun og þú einn sért dómbær um hverjir hafi vitsmuni og hverjir ekki. Að sjálfsögðu skiptir máli að virða trúarskoðanir fólks jafnvel þó maður hafi aðra skoðun

Jón Magnússon, 4.9.2010 kl. 14:07

10 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Heiða ég er líka sammála þér.

Jón Magnússon, 4.9.2010 kl. 14:07

11 identicon

Ekki setur þú sömu kröfur á þá sem skrifuðu biblíu Jón; Biblían er að mestu nafnlaus skrif... hvers vegna gagnrýnir þú það ekki... æi ég gleymdi, þú telur þig fá mútur fyrir að trúa biblíu... Sorry ég get ekki boðið upp á mútur... En ég get sagt þér að þær mútur og ógnir sem biblía setur fram; Það er lygi.

Fólk sem er alið upp við að trúa á galdrakarl X... það fólk hefur ekki skoðun, það fólk er forritað í að virða ruglið.

Framsóknarflokkur getur ekki átt heima á íslandi árið 2010... kristni eða önnur trú getur aldrei orðið sameiningarafl þjóða... enda eru trúarbrögð byggð á tribalisma, byggð til að stjórna littlum hópum af fólki...
Þess vegna getur þú séð að kristni er skipt niður í yfir 30 þúsund mismunandi túlkanir á bókinni.

Trúarbrögð og ríki er tímaskekkja, það er móðgun við alla landsmenn, hvort sem þeir eru kristnir eða ekki.... því þetta er misrétti... en ég veit að framsókn og sjálfstæðisflokkur byggja á misrétti... þess vegna halla þeir sér að biblíu

doctore (IP-tala skráð) 4.9.2010 kl. 14:31

12 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Jú Þorvaldur það var gott að fá það fram hvers konar forsætisráðhera við höfum sérstaklega fyrir marga sem hafa ekki áttað sig á því.

Biddu nu adeins Jon virkar tetta bara i adra attina. Af tvi ad tu ert ekki sammala Johønnu ta er hennar skodun omøgleg. Mer finnst satt ad segja ekki mikill munur a ter og doctornum.

Þorvaldur Guðmundsson, 4.9.2010 kl. 15:52

13 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Takk fyrir þetta Jón. Tek undir með þér. Doctore er einn af þeim sem kerfisbundið reynir að grafa undan kirkju og kristni og er hann ekki sá eini hér á blogginu í þeim ljótu erindagjörðum.

Guðmundur St Ragnarsson, 4.9.2010 kl. 16:50

14 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Doktor E mælir alveg rétt og því ber að festa fingur á röksemdum hans en ekki dreifa málunum á dreif.

Vandamálið stóra með þessar draugasögur úr himninum er að enginn hefur sannanlega orðið var við þessa drauga, menn hafa bara orð hvers annars fyrir því og þetta er því bara eins og hver önnur órökstudd kjaftasaga. Í tímans rás hefur þessi kjaftagangur síðan verið svikinn inn á skattgreiðendur af pólitískum hálfvitum og er mesta fjársvikastarfsemi allra tíma. Væri þessi ruglandi tekinn af fjárlögum myndi hann vafalaust geispa golunni tafarlaust. Amen og kúmen.

Baldur Fjölnisson, 4.9.2010 kl. 17:07

15 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Jón - ég held að biskup eigi að víkja tímabundið.

Enginn einstaklingur má líta svo á eða hegða sér eins og, hann sé mikilvægari en það embætti er hann gegnir eða sú stofnun er hann er hluti af.

Það má hið minnsta ekki líta þannig út, að slíkar hugmyndir búi undir niðri.

Þjóðkirkjan hefur nú verið til síðan um siðaskipti, og margir biskupar munu vondandi gegna embættum sínum næstu aldirnar.

En, á þessari stundu, held ég að heppilegra væri fyrir kirkjuna að biskup víki tímabundið - þ.s. málið virðist vera farið að skaða sjálfa stofnunina.

Hvaða skoðanir sem menn hafa um það moldviðri sem er uppi eða sanngyrni þess að biskup víkji, þá dugar það eitt að þeir sömu séu sammála þeirri greiningu að málið sé farið að skaða sjálfa stofnunina alveg burtséð frá slíkum sjónarmiðum, til að rökrétt sé að hafa þá afstöðu að rétt sé til lágmörkunar frekari skaða, að biskup víkji tímabundið.

Ég held að það myndi slá mjög á moldviðrið sem uppi er, síðan þegar rannsókn sýnir fram á, að biskup hafi ekki haft neitt rangt við - ef það verður niðurstaðan, óþarfi að gefa sér að sú niðurstaða sé fullkomlega örugg; þá einfaldlega snýr hann til baka til síns embættis og málið smám saman víkur fyrir öðrum málum í þjóðfélaginu.

Það má ekki gleyma því, að síðan hrun, hefur tortryggni úti í þjóðfélaginu magnast út yfir allan þjófabálk, þ.e. hlutir sem áður fólk myndi leiða hjá sér, verða að meiriháttar málum.

Þ.e. m.a. vegna þess tíðaranda, sem biskup verður að víkja tímabundið, að mínu mati.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 4.9.2010 kl. 19:38

16 Smámynd: K.H.S.

Þssi grein Sigmundar var þörf og eins og út úr mínu kveri. Hann hafði þor og dug til að segja það sem máli skipti í þessari umræðu allri.

Bábyljan hefur ekki riðið við einteiming í þessu fjölmiðlasvalli. Það er eins og við eigum enga alvöru blaðamenn lengur, sem skrifa af viti og fylgja málum eftir af hugsjón. Eingöngu Roðhænsni með upphrópanir um öll mál, en skammtímaminnið á ónýtum batteríum.

K.H.S., 5.9.2010 kl. 10:56

17 identicon

Jón þú kallar framsetningu þessa DoctorE fasíska og ræðir um vitsmuni og að virða trúarskoðanir fólks, jafnvel þó maður hafi aðrar skoðanir.

En í sömu umræðu ert þú að skammast út í forsætisráðherra fyrir að hafa aðrar skoðanir á málefnum kirkjunnar en þú og formaður Framsóknarflokksins!

Hver er nú með fasíska framsetningu og óvirðingu í garð skoðana annarra?

Þetta snýst einmitt um það hvernig núverandi biskup tók á máli forvera síns. Hann hefur tekið smánarlega á þessu máli og það útskýrir vel afstöðu fólks, bæði hins óbreytta borgara sem og forstætisráðherra og ef þú og aðrir getið ekki skilið það og virt skoðanir annarra, þá lítur málið einmitt út eins og Valsól leggur það upp - þið viljið vernda og halda hlífskyldi yfir barnaníðinga, nauðgar og þá sem þögguðu niður glæpi þeirra.

Trúin getur svo sannarlega birst í þeirri mynd að haltur leiði blindan.

Baldur (IP-tala skráð) 5.9.2010 kl. 11:50

18 Smámynd: Jón Magnússon

Þú verður að meta það Þorvaldur. Það sem ég var að gagnrýna forsætisráðherra fyrir var að beita sér með þeim hætti sem hún gerði þegar verst stóð á. Ég var ekki að tala um skoðanir hennar sem slíkar. Hún má vera kristin eða trúleysingi og það hefur ekkert með álit mitt á henni að gera ekki frekar en á Doktor E svo kölluðum og öðrum trúleysingjum sem eru iðnir við að rugla umræðuna.  Ég var að tala um grein formanns Framsóknarflokksins og hæla honum fyrir að vera málefnalegur ummæli mín varðandi forsætisráðherra eru vegna þess að hún var síður en svo málefnaleg í umrætt sinn.

Jón Magnússon, 5.9.2010 kl. 18:22

19 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er tímabær athugasemdi Guðmundur. En eðlilegt væri að þetta fólk gerði það undir fullu nafni. Það hefur allan rétt á að hafa sínar skoðanir en ætti að láta skoðanir annarra í friði og virða þær.

Jón Magnússon, 5.9.2010 kl. 18:24

20 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er sammála þér Einar Björn að eftri hrun hefur tortryggni í þjóðfélaginu magnast út yfir allan þjófabálk.  Skynsamt fólk má ekki láta það rugla sig í ríminu. Það er eðlilegt að þeir sem bera ábyrgð verði látnir axla hana (raunar sýnist mér það ekki vera í gangi í þjóðfélaginu en það er annað mál) Ég er hins vegar ósammála þér að biskup eigi að víkja hvort heldur tímabundið eða alveg. Hann hefur ekkert til saka unnið og þau mál sem hafa orðið tilefni umræðu um neikvæða umræðu um kirkjuna eru í eðlilegum farvegi.  Þá sé ég ekki að þjóðkirkjan yrði betur á vegi stödd ef biskup færi frá. Mér sýnist hins vegar að sumir prestar m.a. tveir sem telja sig eiga harma að hefna hafi farið fram í umræðunni m.a. gegn biskupi og kirkjunni með mjög svo óviðeigandi hætti. Karl er farsæll forustumaður allt of sundurleits hóps kennimanna.

Jón Magnússon, 5.9.2010 kl. 18:30

21 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir þetta málefnalega innlegg Kári.

Jón Magnússon, 5.9.2010 kl. 18:31

22 Smámynd: Jón Magnússon

Baldur það er með öllu óskiljanlegt hvernig þú færð það út að biskup hafi farið rangt að í þessum málum. Hann hefur einmitt beitt sér fyrir að kirkjan tæki á þessum málum. Síðan bendi ég þér á svar mitt við hinn nafnlausa Doktor E varðandi gagnrýni á forsætisráðherra.  Hún var ekki að lýsa skoðun með athæfi sínu heldur fyrirlitningu sinni á þjóðkirkjunni. Annað var ekki hægt að lesa út úr því sem hún sagði. Það sæmir henni ekki af því að henni ber að virða trúarskoðanir fólks.

Jón Magnússon, 5.9.2010 kl. 18:33

23 Smámynd: Gústaf Níelsson

Maður hugleiðir stundum Jón: Kann hnignun kirkjunnar að standa í réttu hlutfalli við fjölda þeirra kvenna sem vígjast til prests? Þetta er auðvitað mjög ögrandi spurning, en þarf ekki að leita svara? Og hefst þá fjörið, ef að líkum lætur.

Gústaf Níelsson, 5.9.2010 kl. 23:03

24 Smámynd: Óli Jón

Lausnin er afar einföld:

  • Aðskiljum ríkiskirkju og ríki þannig að hún fái jafna stöðu á við önnur trúfélög með breytingu á lögum og stjórnarskrá
  • Afnemum réttindi ríkiskirkjunnar til þess að stunda trúboð í leik- og grunnskólum
  • Hættum að skrá hvítvoðunga í trúfélag móður
  • Látum ríkið hætta innheimtu á félagsgjöldum í trúfélög

Þetta eru allt málefnalegar og sanngjarnar kröfur. Ef einhverjir telja að það þurfi að gera sérstaklega upp þessa margtuggða jarðasamnings, þá verður bara að gera það eftir að sanngjarnt og óháð mat hefur verið lagt á verðmæti þessa samnings.

Verði þetta gert, losnar kirkjan undan ríkisokinu og getur beitt sér á þann hátt sem best hentar henni. Þannig verður hún raunverulega frjáls og sem slík ætti hún að geta þjónað sauðum sínum enn betur en áður.

Ef einhverjir telja þessar kröfur ósanngjarnar þá væri gaman að heyra rökfærslu viðkomandi fyrir því af hverju kirkjan getur ekki þrifist án þess að vera undir pilsfaldi ríkisins.

Óli Jón, 6.9.2010 kl. 03:00

25 Smámynd: Jón Magnússon

Ég held að það sé óréttmætt að kyngreina það sem þú nefnir hnignun kirkjunnar.

Jón Magnússon, 6.9.2010 kl. 13:11

26 Smámynd: Jón Magnússon

Þú hefur fullan rétt á því að halda fram þessari skoðun Óli Jón það eru margir þeirrar skoðunar að það væri gott bæði fyrir ríki og kirkju að skilja. Ég er að vísu ekki þeirrar skoðunar en það er annað mál.

Jón Magnússon, 6.9.2010 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 78
  • Sl. sólarhring: 83
  • Sl. viku: 2563
  • Frá upphafi: 2291546

Annað

  • Innlit í dag: 67
  • Innlit sl. viku: 2329
  • Gestir í dag: 55
  • IP-tölur í dag: 48

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband