Leita í fréttum mbl.is

Árni Páll ber stjórnskipulega ábyrgð

Jafnvel þó  fjármálaráðherra hafi beitt sér með ótilhlýðilegum hætti til að færa fjármuni frá skattgreiðendum til kjósenda sinna í Árbót í Aðaldal og einhverjir þingmenn kjördæmisins hafi verið áfram um að misfarið yrði með ríkisins fé, þá ber Árni Páll Árnason þáverandi félagsmálaráðherra stjórnskipulega og pólitíska ábyrgð á málinu.

Árni Páll Árnason heldur því fram að eðlilega hafi verið að málum staðíð af sinni hálfu og það hafi verið ráðlegging sinna embættismanna að ganga frá málinu með þeim hætti sem gert var þ.e. greiða 30 milljónir umfram skyldu.  Eðlilegt er að Árni Páll verði krafinn svara um það hvaða embættismenn ráðlögðu honum þetta og á hvaða forsendu.  Raunar er hæpið að ráðherra sé að segja satt, vegna þess að framkvæmdin er andstæð góðri stjórnsýslu.

Árni Páll sagði einnig að óþarfi hafi verið að leita eftir áliti Ríkislögmanns þar sem hann væri sjálfur lögfræðingur og gæti því dæmt um það hvort greiða ætti bætur í svona máli eða ekki, en bætir svo við að hann hafi ekki tekið neinar ákvarðanir í málinu og einungis gert það sem sínir embættismenn hafi lagt til. Hvað kom menntun hans sem lögfræðings þá málinu við?

Fyrir liggur að fjármálaráðherra skrifaði þáverandi félagsmálaráðherra Árna Páli nánast hótunarbréf vegna málsins. Í einu orðinu segist Árni Páll hafa dæmt um málið sjálfur út frá lögfræðiþekkingu sinni.  Í hinu orðinu að hann hafi í raun ekki gert það heldur það sem embættismenn hans lögðu til.

Hvaða rökræna samhengi er í svona málflutningi ?

Alla vega þegar öllu er á botninn hvolft þá var ekki leitað til rétts aðila í ríkiskerfinu, Ríkislögmanns, til að fjalla um málið. Fram hjá því komast hvorki Árni Páll Árnason né Steingrímur J. Sígfússon

Nú verður ekki hjá því komist miðað við ummæli Árna Páls að þeir embættismenn komi fram eða verði nafngreindir sem Árni Páll segir að hafi í raun afgreitt málið. Verði ekki vísað á neinn eða nokkur gefi sig fram þá eru líkur fyrir því að ráðherra sé ekki að segja satt. Það er raunar ekki einsdæmi með viðskiptaráðherra að þeir geri það.

Eftir stendur hvað sem hótunarbréfi Steingríms J. líður og áliti embættismanna að Árni Páll Árnason ber stjórnskipulega ábyrgð á þessari vafasömu bótagreiðslu.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Annað mjög furðulegt kom fram hjá Árna Páli var að þarna hafi komið gott dæmi um hvers vegna hann vill að landið sé eitt kjördæmi.  Maður spyr sig hverju það hefði breytt fyrst hann segist hafa afgreitt málið á fullkomlega eðlilegan hátt.

Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 13:34

2 Smámynd: Jón Magnússon

Góður púnktur Gunnar.

Annars brosti ógeðfelldt andlit þess tíma þegar þingmenn litu á sig sem pakkaflutningamenn kjósenda í kjördæmi, í Kastljósi í kvöld.

Jón Magnússon, 24.11.2010 kl. 21:40

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Eðlilegt er að með nýrri stjórnarskrá verði landinu skipt upp í fylki með tryggðan þingmanna fjölda á Alþingi án tillits til íbúafjölda,svo fólk sem býr fyrir utan krummaskuðina Seltjarnarnes og hrunbyggðirnar þar í kring, þurfi ekki stöðugt að búa við afskiptasemi þess fólks sem þar býr og kann ekki fótum sínum forráð.Að öðrum kost taki sveitarfélög á landsbyggðinni sig til og láti höfuðborgasvæðisliðið sjá um sig sjálft í framtíðinni og sett verði ný höfuðborg fyrir Ísland og þá getur hrunliðið haft sitt þing fyrir sig og þessar þúfur í kringum Nesið og verði girt þar af.Raddir í þessa veru eru nú þegar farnar að heyrast af landsbyggðinni.

Sigurgeir Jónsson, 24.11.2010 kl. 22:49

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

leggið fram vantraustillögu - verður vissulega feld af meirihlutanum,  leyfum þjóðinni allri að  sjá óþverrann sem þarna þrífst

kalla svo eftir einstaklingi sem er til í að leggjast í átak og taka á þessu "ábyrgðarleysi" svo margra á alþingi

Jón Snæbjörnsson, 25.11.2010 kl. 09:18

5 Smámynd: Jón Magnússon

Sigurgeir búum við ekki sem ein þjóð í þessu landi? Búa ekki tveir af hverjum þremur Íslendingum á stór Selfoss/Borgarnessvæðinu? Er stjórnsýslan ekki nógu rugluð og flókin fyrir. Er ekki frekar rétt að einfalda hana og byggja á því að við búum öll við sömu afgreiðslu opinberra aðila.  Fólk er fólk og Reykvíkingurinn í dag getur flutt til Húsavíkur eða Ísafjarðar á morgun eða öfugt. Þannig á það líka að vera.

Jón Magnússon, 25.11.2010 kl. 22:46

6 Smámynd: Jón Magnússon

Er ekki rétt Jón að krefjast þess að sannleikurinn fái að koma í jós í málinu. Ég fer ekki fram á annað. Síðan skulum við kveða upp dóma. En eins og er þá er ekki góð lykt af málinu.

Jón Magnússon, 25.11.2010 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 116
  • Sl. sólarhring: 1095
  • Sl. viku: 5761
  • Frá upphafi: 2276399

Annað

  • Innlit í dag: 109
  • Innlit sl. viku: 5347
  • Gestir í dag: 109
  • IP-tölur í dag: 108

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband