Leita í fréttum mbl.is

Jólagjafir utanríkisráðherra

Kænasti ráðherra ríkisstjórnarinnar Össur Skarphéðinsson hefur nýtt sér þá hæfileika sína með þeim hætti undanfarin misseri að fólk hefur nánast gleymt því að hann ætti sæti í ríkisstjórninni enda vill hann sem minnst vera við hana kenndur. Með sama hætti stóð hann að skipun þriggja nýrra sendiherra mitt í jólaösinni, þegar þjóðin var upptekin við að syngja Heims um ból og huga að jólasteikinni og jólagjöfum.

Íslenska þjóðin eyðir hlutfallslega meiri peningum en nokkur önnur þjóð í utanríkisþjónustu sína. Á niðurskurðartímum telur ríkisstjórnin samt rétt að fjölga enn sendiherrum.

Óljóst er hvar Össur ætlar að koma nýju sendiherrunum fyrir þar sem þegar er búið að sjá fyrir þesskonar tengslum Íslands og Færeyja og margir íslenskir sendirherrar starfa nú á Rauðarárstígnum í Reykjavík.

Norræna vinstri velferðarstjórnin hlítur að líta á það sem þakkarvert þegar ráðherrar reyna að leysa atvinnuvanda yfirstéttarinnar á kreppu- og niðurskurðartímum.

Hvaða skattar skyldu verða hækkaðir næst á hinum vinnandi stéttum til að halda uppi störfum, launum og styrkjum fyrir vildarvini og afkvæmi ráðherra ríkisstjórnarinnar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Gunnarsson

Gott hjá þér Jón að vekja athygli á þessu.

Haukur Gunnarsson, 27.12.2010 kl. 13:42

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir það Haukur.

Jón Magnússon, 27.12.2010 kl. 23:57

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég hefi ekki trú á að 2041 verði mikið af niðjum Jóns Arasonar til að  skattleggja. Ekki er betri músin sem læðist.

Júlíus Björnsson, 28.12.2010 kl. 03:41

4 Smámynd: Jón Magnússon

Eru ekki allir Íslendingar sem eiga foreldra af íslensku bergi brotna niðjar Jóns Arasonar, Júlíus? Einhverntíma var mér sagt að allur ættstofnin hvað hann varðar hefði komið saman á 19.öldinni og þá hefðu allir Íslendingar verið komnir af síðasta kaþólska biskupnum yfir Íslandi.

Jón Magnússon, 29.12.2010 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 30
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 1691
  • Frá upphafi: 2291581

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 1518
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband