Leita í fréttum mbl.is

Ég var rekin af því að ég er kristin.

Kristinn starfsmaður á Heathrow flugvelli var rekin vegna þess að hún er kristin og gerði athugasemdir við kynþáttahatur öfgafullra Múslíma.

Nohad Halawi  vann á Heathrow flugvelli en var rekinn vegna kæru 5 Múslima. Þeir báru hana þeim sökum, að vera á móti Múslimatrú.  Halawi hefur höfðað mál á hendur vinnuveitendum sínum vegna brottrekstursins. Stofnandi og forstjóri "The Christian Legal Centre." segir að þetta sé eitt af alvarlegustu málum sem stofnun hennar hafi fengist við og hefur ákveðið að kosta málalferli Halawi

Halawi segir að Múslimarnir hafi  sagt að hún mundi fara til helvítis. Gyðingar bæru ábyrgð á árásinni á tvíburaturnana. Þá hafi þeir gert grín af þeim sem báru krossa og hæðst að kristinni trú. 

Halawi kom til Bretlands frá Líbanon árið 1977. Hún er tveggja barna móðir og  kristin Maroníti. Hún segir að mál hennar varði spurninguna um það hvort Múslimar hafi annan og betri rétt samkvæmt lögunum en kristnir eða Gyðingar. Hún segir að margt samstarfsfólk hennar sé óttaslegið eftir að hún var rekin vegna þess eins að láta ekki undan öfgafullum Múslimum sem vinna á flugvellinum.

Um 30 vinnufélagar Halawi sumir þeirra Múslimar hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem þeir segja að Halawi hafi verið rekin vegna hatursfullra lyga. Samt sem áður gildir uppsögnin.

Það eru fleiri en Halawi sem hafa höfðað mál  eða hyggjast gera það vegna yfirgangs öfgafullra Múslima á Heathreow. Meðal þeirra er kaupmaður af Gyðingaættum sem heldur því fram að múslímskir tollverðir taki hann jafnan í líkamsskoðun þegar hann fer um völlinn  og það gjörsamlega að ástæðulausu og eingöngu til að niðurlægja hann.

Þeir sem vilja þjóðfélag umburðarlyndis og mannréttinda verða að gæta þess að andstæðingarnir nái ekki að eyðileggja þá hugmyndafræði mannréttinda og einstaklingsfrelsis sem vestræn ríki byggja á.

Stefna Samfylkingarinnar og Besta flokksins að banna kristin trúartákn og kristilega umfjöllun í skólum í Reykjavík er því í raun fjandsamleg þeim lífsgildum sem við þurfum að standa vörð og vörn um til að láta aðsteðjandi ofstæki ekki ná tökum í samfélaginu.

Nú mega börnin í skólum í Reykjavík ekki biðja lengur  bænina Faðir vor á jólahátíðinni.

Til hvers eru annars jólin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er sammála því að frelsi og umburðarlyndi getur ekki verið bara á aðra hliðina, vandinn er oft sá, hvernig á að mæta öfgum með öðru en öfgum. Hitler fékk t.d. Chamberlain þegar hann þurfti Churchill!

Ég er til dæmis mjög efins um eitt helsta inntak kristinnar trúar, þ.e. að bjóða hina kinnina. Að launa illt með góðu.  Þetta er allavega mjög vandmeðfarið og ekki alltaf að sjá að þeir sem telja sig fylgendur Krists séu mikið að reyna þetta. Þó held ég að það sé almennt farsællt í mannlegum samskiftum að draga heldur úr en bæta í, þegar deilt er.

Varðandi trúmál og skólahald í Reykjavík, þá held ég að fólk sem aðhyllist frelsi, umburðarlyndi og mannréttindi hljóti að sjá í megin atriðum 2 kosti.

A. Leyfa öllum trúfélögum og trúleysisfélögum (a.m.k. þeim hverra meðlimir eiga börn í viðkomandi skóla) að kynna sín sjónarmið og jafnvel helstu trúarhátíðir eða

B. Að þeir sem vilja Goðin blóta, geri það í laumi! Þ.e. engan trúaráróður í skólana.                                                                           

Persónulega lýst mér mun betur á seinni kostinn.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 13:59

2 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Já hversvegna eru jólinn..

Jólin er náttúrulega í upphafi heiðin hátið, tengd sólstöðum, sem kristnir notuðu til að innleiða fæðingarhátíð frelsarans..Eða var það ekki.. ??

Ekki misskilja mig, ég er ekki á því að boð og bönn séu sú leið sem hér á að fara og skil ekki þessa maníu gagnvart bæn eða krossi á vegg.. Væri ekki nær að opna á það að aðrir trúarhópar kynni og sýni sínar hliðat á sama máli og þá kæmust menn kanski að því að þetta er ekki svo ólíkt...

Fordómalaus umfjöllun og virðing fyrir skoðunum annara er það sem við þurfum ekki boð  og bönn.. 

Og jafnvel þátttaka í athöfnum annara trúfélaga til að fá innsýn og skilning á því sem fram fer.. 

Eiður Ragnarsson, 29.11.2011 kl. 15:38

3 identicon

Þetta er svo rétt hjá þér og því miður er það svo að bendi einhver á þessa öfga, þá er hinn sami úthrópaður rasisti eða múslimahatari. Umburðarlyndið gagnvart þessum hópum hefur ná þeim mörkum að engin má segja neitt og má eiga það að hættu að vera ofsóttur af svona hópum. Þetta er að ske í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Hvað eigum við að bíða legni...??????

Kveðja

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 16:49

4 identicon

Það er ákaflega ljótt að heyra að manneskja skuli þurfa að líða þess háttar hatur kúgun af öfgafullum trúarhópi. Því hlýtur þú að fagna því að Alþingi Íslendinga skuli hafa viðurkennt ríki Palestínu fyrr í dag.

En þegar maður les þennan pistil kemur tvennt upp í hugan: Múslimahatur og ósmekklegheit. Hér er talað af einskærri fyrirlitningu um múslima. Og ég skil ekki með nokkru móti hvernig ákvörðun mannréttindaráðs að banna lífsskoðunarfélögum óheftan aðgang að óhörnuðum börnum og unglingum og innræta þau, oft gegn vilja foreldra, tengist þessari frásögn. Ertu með þessu að segja að mannréttindaráð og þau sem styðja ákvörðun þess séu upp til hópa oftækisfullur hópur sem verði að sporna við svo þau nái ekki tökum á samfélaginu? Þér er ekki sjálfrátt.

Ég held einfaldlega að þú skiljir ekki (vilt ekki skilja) út á hvað þessi ákvörðun mannréttindaráðs gengur. Það er ekki hlutverk skólanna að sjá um trúarlegt uppeldi heldur foreldranna og ef þau kjósa það þá geta þau farið með börnin sín í kirkju. Nóg er nú plássið þar. Og svo er það einfaldlega lygi að verið sé að banna kristilega umfjöllun í skólum Reykjavíkur.  Kanntu ekki níunda boðorðið?

Kristján Kristinsson (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 18:21

5 identicon

Áttunda boðorðið átti það að vera. Kanntu ekki áttunda boðorðið?

Kristján Kristinsson (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 18:25

6 identicon

Þegar ég vann í útlöndum, þá vann ég meðal annar með múslimum. Aldrei minntust þeir á, hvorki ramadan eða bænir og skiluðu sinni vinnu eins og hver annar frá 8 - 16. En nú hef ég fengið nasaþef af því að múslimar á Íslandi notfæri sér heimsku krata og vinstrisinna og eru farnir að færa sig upp á skaftið með kröfur um bænahald í vinnu og sérkröfur á ramadan. Allir hafa sama réttinn og líka þeir sem traðka á réttindum annarra, samber þetta atvik á Heathrow. Nú leggja þeir undir sig heilu göturnar í borgum Bretlands undir bænaböl og engin þorir orðið að mótmæla vegna terrorhótana af þeirra hálfu. Þar sem Samfylkingin og Besta samanstendur af illa upplýtum idiotum er ekki von á góðu í framtíðinni fyrir þessa litlu þjóð. Eitt sinn talaði ég við kúrda í Svíþjóð og hann sagði " Ef svíar vissu hvernig múslimar tala um þá, þá fengju þeir martröð á hverri nóttu, en því miður eru svíar fífl og ekki langt í það að múslimar yfirtaki hér".

Í sænska þinginu situr múslimi frá Sómalíu fyrir Modiratana (sossar til hægri)og hann segir í sjónvarpsviðtali "Karlmenn taka ekki í hönd á konum, dóttir erfir helming á við son, samkvæamt sharia, konur eiga að vera heima og ekki vinna úti, Sharialög eiga að vera í Svíþjóð" og viti menn - engin athugasemd af hálfu heimamanna - ekki eitt orð í fjölmiðlum. Þetta er Svíþjóð í dag og Ísland á morgun.

ps. Þessi sami múslimi situr í varnarmálanefnd hjá sænska hernum og í ofanálag skólastjóri fyrir tvo kóranskóla sem eru á fullum styrk frá hinu opinbera.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 19:17

7 identicon

Jólin hafa ekkert með kristni að gera.

http://www.youtube.com/watch?v=MSm7YPMQOSo

Arnar (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 19:25

8 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Sæll Jón og þakka þér fyrir að vekja athygli á þessu. Ég hef heyrt af nokkrum hliðstæðum málum í Bretlandi, athyglisvert að það skuli vera þörf fyrir " Christian Legal Center í landi sem fram að þessu var talið hallast undir kristin gildi.

Spurning hvort við þurfum ekki svipaða miðstöð hér á landi ? Það er athyglisvert að hlusta á rök þeirra sem vilja kristni, og kristin gildi burt. Þeir segja: Kristnir eiga ekki að móðga innflytjendur sem hafa aðra trú og eiga því að leggja af sína sannfæringu eða fela hana.

Ég spyr, þarf ég að hætta að borða kjöt , vegna þess að vinnufélagi minn er grænmetisæta ?

Ég get ekki skilið að það sé umburðarlyndi við náungan að ég hætti að hafa mína sannfæringu. Eigum við ekki að hætta að kalla okkur íslendinga , svo við móðgum nú enga innflytjendur ?  Og er ég þó ekki á móti þeim.

Kristinn Ásgrímsson, 29.11.2011 kl. 22:43

9 identicon

Þetta tiltæki meirihlutans í borgarstjórn er vissulega gremjulegt, hve lengi sem það fær að standa. En foreldrar og kirkjufélög gera sér nú vonandi betri grein fyrir, að uppeldi barna í trúarlegum og þar með siðferðilegum efnum hvílir alfarið á þeim, og í bezta falli væri happdrætti að reiða sig á opinberar stofnanir. Þessum grundvelli farsæls lífs þarf sömuleiðis að sinna þeim mun betur sem umhverfið er erfiðara. Loks eru hinar nýju aðstæður hvatning til að láta ekki trúfrelsi og málfrelsi trúaðs fólks hverfa í skuggann af langsóttum túlkunum á öðrum réttindum.

Sigurður Ragnarsson (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 23:31

10 Smámynd: Jón Magnússon

Bjarni Gunnlaugur ég er að mestu leyti sammála þér nema með skólana. Það er allt í lagi þó að kristin boðun fái aðgang að skólum á kristnum trúarhátíðum. Annað finnst mér yfirgangur minnihlutans.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:00

11 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er alveg sammála þér Eiður.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:01

12 Smámynd: Jón Magnússon

Sigurður við eigum ekki að bíða. Vondu hlutirnir gera þegar góða fólkið lætur vaða yfir sig án þess að gera athugasemdir. Þess vegna eru hvorki Danmörk né Holland lengur lönd umburðarlyndis.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:02

13 Smámynd: Jón Magnússon

Kristján ég kann bæði áttunda og níunda boðorðið. Svo skal ég segja þér það og taka af öll tvímæli með það að ég tel rétt að Palestínumenn eigi sitt eigið ríki. Ég hef komið á þessu svæði og séð hvernig réttindi þeirra eru fótum troðin. Ég hef mótmælt því og krafist mannréttinda fyrir Palestínumenn ekki einu sinni heldur oft. Þannig að þú skalt ekki vera að gera mér upp skoðanir

Ég hef  kynnt mér Íslam og hef ekkert við iðkendur þeirrar trúar að athuga meðan þeir láta annað fólk í friði. Ég virði líka lífsskoðanir þeirra sem játa þá trú, en ég virði ekki öfgar, yfirgang og hatur.  

Mannréttindanefnd Reykjavíkur er á algjörum villigötum enda ekki furða þar sem Margrét Sverrisdóttir er formaður nefndarinnar sem hefur alla tíð frá því að hún hóf afskipti af stjórnmálum fjandskapast út í kirkju og kristni. Það er gott fyrir kjósendur að muna það í næstu kosningum að það voru Samfylkingin og Besti flokkurinn sem stóðu saman að því að úthýsa kristnum siðum  og tjáningu úr skólum landsins.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:09

14 Smámynd: Jón Magnússon

Já V. Jóhannsson því miður þá lætur gott fólk á Norðurlöndunum þagga niður í sér af því að það vill ekki leiða vesen yfir sig. En þá er leiðin greið fyrir öfgarnar eins og þú lýsir. Ég hef fengið morðhótanir vegna þess að ég geri athugasemd við öfgafulla boðun Íslam og yfirgang þó ég hafi annars ekkert á móti þeim trúarbrögðum.  Eðlilega vill fólk almennt vera laus við slíkt. Það vildi ég líka, en ég læt ekki hræða mig frá því að segja mína skoðun.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:12

15 Smámynd: Jón Magnússon

Jólin hafa með kristni að gera að því leyti að helgisagan og boðun kirkjunnar segir að Jesús hafi fæðst á jólunum og það er skírskotunin. Ég er hinsvegar alveg sammála því að jólin voru upphaflega heiðin sólstöðuhátíð sem kristnir menn tóku í raun yfir og hafa gert að helstu trúarhátíð sinni.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:14

16 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála þessum athugasemdum Kristinn þetta er gott innlegg.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:15

17 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta þýðir Sigurður að kirkjan þarf að standa sig betur og vinna betur í trúarlegri boðun. Vonandi erum við sammála um það.

Jón Magnússon, 30.11.2011 kl. 00:16

18 identicon

Jólin eru heiðin hátíð, menn héldu upp á sólstöðu árþúsndum áður en meintur messías átti að vera til.

Kaþólska kirkjan setti meintan fæðingardag Sússa á þessar hátíðir til að kæfa þær niður; Svo önnur sólstöðuhátið um páska, kristnir sögðu að jesu hefði dáið þá.. sama mál; Kæfa niður aðrar hátíðir.

Já Jón, kristnin er svo fölsk að það er varla til meira fals; Og þú kaupir þetta fals vegna þess að þú varðst forritaður sem barn til að virða þetta, og svo viltu ekki vera dauður þegar þú ert dauður, en þú verður það samt.. alveg eins og ég og allir aðrir

DoctorE (IP-tala skráð) 30.11.2011 kl. 11:36

19 Smámynd: Jón Magnússon

Mér eru kunnar skoðanir þínar D.E. En ég var að skrifa um konu sem varð fyrir óréttmætri árás sem kostaði hana starfið. Þú hefur greinilega ekkert við það að athuga. 

Jón Magnússon, 1.12.2011 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 905
  • Sl. sólarhring: 1336
  • Sl. viku: 6550
  • Frá upphafi: 2277188

Annað

  • Innlit í dag: 848
  • Innlit sl. viku: 6086
  • Gestir í dag: 807
  • IP-tölur í dag: 788

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband