Leita í fréttum mbl.is

Hvað er íslensk gestrisni?

Hópur fólks sem telur til eignarráða yfir Kerinu í Grímsnesi meinaði forsætisráðherra Kína að skoða þetta sérstaka náttúrufyrirbrigði.  Ástæðuna segir fólkið vera að þeim líki hvorki við stefnu stjórnvalda í Kína eða á Íslandi.

Ég get tekið undir athugasemdir landeiganda við Kerið í Grímsnesi varðandi þessi stjórnvöld. Það að úthýsa gestum er hins vegar annað. Það finnst mér vera argasti dónaskapur.

Í minni sveit var alltaf talað um að taka vel á móti gestum óháð því hvort manni líkaði við þá eða ekki. Um árabil fóru frambjóðendur til Alþingis um héruð og ræddu við kjósendur og fengu fæði og húsaskjól jafnvel hjá pólitískum andstæðingum. Það var eitt af því sem gerði Ísland og íslendinga svo sjarmerandi svo notuð sé alkunn sletta.

Það gengur ekki að fólk fari að eins og hópurinn sem meinar forsætisráðherra Kína að skoða landið. Þessi merkilegi stjórnmálamaður, hvort heldur landeigendum í Grímsnesi líkar betur eða verr, er gestur íslensku þjóðarinnar og við eigum að sýna honum helstu náttúruminjar og fræða hann um land og þjóð eins vel og við getum. Það er íslensk gestrisni.

Þessu uppákoma leiðir til þess að taka verður aðgengi að helstu ferðamannastöðum til umræðu. Það gengur ekki að hópur fólks geti meinað sumum aðgang en leyft öðrum þegar um náttúruminjar er að ræða sem með réttu eru eign íslensku þjóðarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Sæll Jón.

Ég held að nú sé komið að ákveðum kúvendingum í gestrisni Íslendinga, ekki það að þeir vilji ekki taka á móti erlendum gestum, held að það sé síður en svo, heldur vilja þeir ekki taka á móti þeim gestgjöfum sem þeim fylgja.

Sindri Karl Sigurðsson, 21.4.2012 kl. 21:06

2 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Þetta er góður pistill og sannur nafni.

Að sjálfsögðu eigum við að sýna öllum gestum kurteisi, eins og þú bendir réttilega á.

Reyndar eigum við að sýna öllum kurteisi, þótt þeir séu ekki á sömu skoðun og við. Það heita góðir mannasiðir, en íslendingar mættu huga oftar að þeim.

Jón Ríkharðsson, 21.4.2012 kl. 21:24

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Nú er ég algerlega sammála þér, Jón, hvað varðar það að gera óvild í garð stjórnvalda ríkjanna að atriði í þessu máli eins og eigendur Kersins gera, þótt hitt hafi líka verið klaufalegt, úr því að einkaréttarlegt eignarhald er á Kerinu, að leita ekki samráðs og samþykkis eigendanna í upphafi.

Þegar forystumenn Sovétríkjanna komu í heimsókn til Bandaríkjanna var komið fram við þá sem gesti og þeim sýndir markverðustu staðir þótt vitað væri að mannréttindabrot og harðstjórn í Sovétríkjunum sálugu væri enn verri en nú er í Kína.

Ef halda á áfram á þeirri mörkuðu braut Kerfélagsins að fólk sem boðið er í heimsókn til landsins megi eiga von á því að vera neitað um þjónustu, ef það er ekki þóknanlegt okkur, er búið að snúa ímynd Íslands við á þann hátt, að í stað þess að gestir væru alltaf gestir og nytu frægrar gestrisni, yrði farið að tíðka algerlega gagnstætt og gera landið frægt fyrir þær sakir.

Þeir sem vilja mótmæla erlendri eða innlendri ríkisstjórn Íslands hafa til þess næg tækifæri, og framkoman við Falun Gong hér um árið er vonandi undantekning frá því.  

Hitt er svo annað mál í hvílíkum ólestri málefni sérstæðra náttúrufyrirbæra á Íslandi eru í. Um það blogga ég á bloggsíðu minni.

Ómar Ragnarsson, 21.4.2012 kl. 21:59

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Alveg sammála þessum pistli þínum, Jón. Raunar er þetta atvik þess eðlis að ef svona framkoma á að verða að almennt einkenni fyrir móttöku Íslendinga á erlendum gestum verða íslensk ógestrisni og dónaskapur jafnfræg og gestrisni okkar var áður.

Ég bendi á að þegar leiðtogar Sovrétríkjanna og annarra ríkja, þar sem enn verri mannréttindabrot og kúgun ríktu en nú eru í Kína, komu í heimsókn til Vesturlanda, var þeim ævinlega sýnd fyllsta gestrisni og þeim sýnt það markverðasta sem var að sjá.

Það var að vísu klaufalegt, úr því að eignarhaldið yfir Kerinu er í höndum einkaaðila, að leita ekki samráðs og samþykkis þeirra fyrirfram. En það réttlætir það ekki að vegna óvildar í garð einstakra ráðamanna erlendis og hérlendis sé réttlætanlegt að gera þeim lífið leitt þegar um gestakomur er að ræða.

Hitt er svo annað mál að málefni margra náttúruverðmæta á borð við Kerið eru í miklum ólestri hér á landi. Um það blogga ég á bloggsíðu miinn.  

Ómar Ragnarsson, 21.4.2012 kl. 22:07

5 identicon

Eins og talað út úr mínu hjarta Jón svona er hreinræktaður dónaskapur burtséð frá pólitiskum sjónarmiðum ef við látum svona sjónarmið ráða ferð okkar verður okkur lítið ágengt, einstrengingur hefur aldrei kunnað góðri lukku að stýra.

brynjólfur sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 21.4.2012 kl. 23:41

6 Smámynd: Andrés Magnússon

Það er ekki argasti dónaskapur að úthýsa óboðnum gestum. Það er ekki nóg að þeir hafi boðið sér sjálfir eins og á við um ríkisvaldið í þessu tilviki.

Andrés Magnússon, 22.4.2012 kl. 09:07

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ég þakka fyrir innleggin frá ykkur og við erum greinilega algjörlega sammála að undanskildum Andrési Magnússyni.  Það var greinilega klaufaskapur þeirra sem skipulögðu ferð kínverska forsætisráðherrans að hafa ekki gengið frá málum varðandi heimsókn í Kerið fyrirfram. Það mál kláraði Jóhanna greinilega ekki enda búin með eina málið sem hún klárar á kjörtímabilinu.

Jón Magnússon, 22.4.2012 kl. 09:39

8 Smámynd: Jón Magnússon

Það er nokkuð til í því sem þú segir Andrés. Þetta var hin versta handvömm Jóhönnu Sigurðardóttur og félaga. Að sjálfsögðu átti að ganga frá þessum málum með viðunandi hætti fyrirfram.  Óboðnir gestir eru hins vegar með mismunandi hætti. Þeir sem koma og fara um með friðsamlegum hætti eingöngu til að fræðast um og skoða íslenskar náttúruperlur eiga að vera alls staðar velkomnir- ekki skemmir þegar þeir hinir sömu óboðnu gestir eru líklegir til að gera grein fyrir landinu með jákvæðum hætti.

Jón Magnússon, 22.4.2012 kl. 09:42

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með Andrési. Ef ferðin hefði verið skipulögð fyrirfram og leyfi fengin er nokkuð ljóst að til þessa hefði ekki þurft að koma.  Ég hef skipulagt ferðir fólks, og aldrei myndi mér detta í hug að bjóða þeim heim til einhvers annars án þess að fá til þess leyfi.   Þetta sýnir bara að mínu mati hroðaskap þessarar ríkisstjórnar, hvert klúðrið á fætur öðru, allt sem þau koma nálægt klúðrast vegna þess að þau vinna ekki heimavinnuna sína. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2012 kl. 16:48

10 Smámynd: Jón Magnússon

Allt saman satt og rétt hjá þér Ásthildur.

Jón Magnússon, 22.4.2012 kl. 22:55

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jón, þetta er bara þannig, ég er að hugsa hvort þau hafi ekki ráðgjafa sem forða þeim frá svona endemis klúðri sínkt og heilagt, þetta eru orðin langur klúðurlisti hjá þeim. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2012 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1212
  • Sl. sólarhring: 1217
  • Sl. viku: 6857
  • Frá upphafi: 2277495

Annað

  • Innlit í dag: 1127
  • Innlit sl. viku: 6365
  • Gestir í dag: 1055
  • IP-tölur í dag: 1021

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband