Leita í fréttum mbl.is

Stefna fyrirfinnst engin.

Forstjóri Útlendingastofunar greinir frá ýmsum athygliverðum hlutum í viðtali í Frétablaðinu í dag.

Í fyrsta lagi segir hún frá því að stefna ríkisstjórnarinnar í málefnum hælisleitenda fyrirfinnist engin. Hún segir að bæði hún og forverar hennar hafi kallað eftir stefnu stjórnvalda en án árangurs.

Í öðru lagi bendir hún á að Útlendingastofnun sé einnig útvörður íslenska velferðarkerfisins. Eitthvað sem almennt gleymist að ræða um af hálfu þeirra sem vilja galopna landamærin á grundvelli fjölmenningarlegra viðhorfa.

Í þriðja lagi upplýsir hún að vinnan sé oft mjög óþægileg fyrir starfsfólkið og það hafi sumt fengið áfallahjálp og sálfræðiaðstoð.

Í fjórða lagi segir hún að dæmi séu um að starfsmenn Útlendingastofnunar hafi verið eltir og staðið hafi verið fyrir utan heimili þeirra lengi.

Í fimmta lagi  gerir hún grein fyrir því að Útlendingastofnun sé að afgreiða 3.500 dvalarleyfi og sinna 89 hælisleitendum.  Þetta er athyglivert í atvinnuleysinu.

Í sjötta lagi segir hún að hælisleitendum hafi fjölgað um 80% frá sama tíma fyrir ári.

Í sjöunda lagi upplýsir hún að engin úrræði séu til og engin stefna hafi verið mörkuð um það hvernig bregðast skuli við fjölgi hælisleitendum mikið.

Í áttunda lagi þá segir hún að nú fái  um 60% af þeim sem leita eftir hæli í landinu landvist en fyrir nokkrum árum voru það um 10%.

Þetta eru þær staðreyndir sem blasa við og liggja fyrir. Það er athyglivert að fá þessar upplýsingar í kjölfar þess hamagangs og illyrða sem ýmsir vinstri sinnaðir fjölmenningarsinnar hafa haft uppi gagnvart mér vegna réttmætra ummæla minna í blogfærslu fyrir tæpri viku um hælisleitendur sem eru  ekkert annað en ólöglegir innflytjendur.

Fangelsiskerfið í Bandaríkjunum er eitt vitlausasta kerfi sem til er í heiminum og fleiri Bandaríkjamenn eru í fangelsum en fólk víðast hvar í heiminum. Samt sem áður á kerfið öfluga formælendur sem atyrða og hatast við þá sem leyfa sér að benda á réttmæta ágalla á kerfinu. Með sama hætti leggur fjöldi sem á fjárhagslegra hagsmuna að gæta vegna komu hælisleitenda til landsins til hatrammrar og persónulegrar atlögu gegn hverjum þeim sem leyfir sér að fjalla um þessi mál málefnalega.

Þessi háværi og öfgafulli hópur sem hefur jafnan merkimiða um rasisma og mannfyrirlitningu á lofti er að  ákveðnum hluta að gæta eigin atvinnulegra og peningalegra hagsmuna. Væri ekki svo af hverju bjóða þeir ekki svokölluðum hælisleitendum að búa hjá sér eins og Tamimi gerði.

Eftir að ég skrifaði færslu um þessi mál fyrir nokkrum dögum hefur fjöldi fólks komið að máli við mig og þakkað mér fyrir að fjalla um þessi mál, en margir taka fram að þeir þori ekki að tjá sig um málið af ótta við aðsókn af fjölmenningarsinnum og fylgifiskum þeirra.

Fyrir nokkrum árum kvaddi ungur maður sér hljóðs og ræddi á málefnalegan hátt um málefni innflytjenda og hælisleitanda. Hann varð fyrir hótunum og dreifibréfum var dreift í hverfið hans þar sem hann var borinn þeim sökum að vera rasisti auk ýmissa annara miður skemmtilegra hluta sem áttu engin við rök að styðjast.

Þessi ógn girðir fyrir málefnalega umræðu um málefni innflytjenda og hælisleitenda sem er þeim mun verra þar sem stefna stjórnvalda í málinu fyrirfinnst engin.  En ógn fjölmenningarsinnanna er einmitt ætlað að koma í veg fyrir málefnalega umræðu um þessi mál og þeim hefur tekist það býsna vel.

Það var einkar athyglivert að meir en 2000 skráðu að þeim líkaði færslan sem ég skrifaði fyrir nokkrum dögum um þessi mál, en um 16 manna harðsnúinn hópur hefur hins vegar allt á hornum sér og þar fara fremst í flokki lögmaðurinn sem hefur aðalatvinnu af þjónustu við hælisleitendur og maður hennar. Líklega af sömu hvötum og þeir sem í Bandaríkjunum þola enga umræðu um fangelsismál þar í landi.

Sem betur fer eigum við vandaða opinbera starfsmenn sem gefa sig í að sinna þessu mikilvæga vanþakkláta verkefni eins og forstjórar Útlendingastofnunar hafa jafnan fundið fyrir. Þeim hefur ítrekað verið gert lífið leitt af fjölmenningarsinnunum sem hafa m.a. tekið sér ógnandi mótmælastöðu fyrir utan heimili þeirra.

Er ekki betra að ræða þessi mál með málefnalegum hætti. Þetta er jú spurning um velferð eins og forstjóri Útlendingastofnunar bendir á. Mér er ekki síður annt um fólk en þeim sem sveipa um sig manngæskustimplinum á annarra kostnað stundum hempuklæddir. 

Mér finnst gaman að umgangast útlendinga sem hingað eru komnir og búa í landinu og reyna að fóta sig og byggja upp framtíð sína hér í landi af heiðarleika og dugnaði. Ég á marga kunningja í þeim hópi. Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd að meðferð þessara mála er spurning um velferð. Velferð þeirra sem búa í þessu landi hvort heldur þeir eru aðfluttir eða innfæddir. 

Þess vegna varaði ég við því haustið 2006 að hingað væri að koma allt of mikill straumur útlendinga á of skömmum tíma. Ekki vegna þess að ég hefði á móti þessu fólki heldur vegna þess að ég spáði því að þetta mundi leiða til áður óþekkts atvinnuleysis hér á landi. Sú varð og raunin.

En talsmenn bankanna á þeim tíma, sem féllu haustið 2008, hagfræðingar og aðrir pótintátar sögðu þetta tóma vitleysu og aukinn innflutningur útlendinga til landsins mundi bara bæta lífskjörin. Hver skyldi hafa haft rétt fyrir sér?  Dæmi hver sem vill.

Það er slæmt þegar fólk veigrar sér við að nýta sér málfrelsið eins og algengt er í þessum málaflokki vegna aðsóknar og öfga fámenns hóps sem hikar ekki við að ráðast persónulega á þá sem nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt til að taka til máls um mikilvæg þjóðmál. Ég hef hingað til ekki látið það hindra  mig í að ræða mikilvæg mál jafnvel þó það hafi leitt til presónulegra óþæginda á köflum og í þessu máli finnst mér mikilvægt að reyna að halda umræðunni öfgalausri á eðlilegum forsendum.

Forsendur fjölmenningarsinnana hafa allstaðar reynst rangar eins og t.d. David Cameron forsætisráðherra Bretlands og Angela Merkel kanslari Þýskalands hafa réttilega bent á. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jón. Svo þú getir unað þér hvíldar, þá vil ég segja þér frá því að ég hef frá því ég hóf lögmannsferil minn líklega helgað hælisleitendum 1/50 af störfum mínum. Hef ég ekki enn fengið greitt fyrir verkið, enda hefur ekki enn komið til viðtals hjá útlendingastofnun. Á reyndar ekki von á að þú látir þessa staðreynd þvælast fyrir þér í skrifum þínum, en þætti vænt um að þú hættir að birta þessa vitleysu á opinberum vettvangi um mig og mína afkomu varðandi hælisleitendur. Hins vegar hef ég eytt miklu af mínum frítíma í þetta, rétt eins og þú eyðir þínum frítíma... en það kemur nú varla málinu við.

Helga Vala Helgadóttir (IP-tala skráð) 21.5.2012 kl. 22:45

2 Smámynd: Jón Magnússon

Hafa skal það sem sannara reynist Helga Vala og álit mitt á þér eykst mikið við að sjá að fjárhagslegu hagsmunirnir eru litlir og bið ég þig velvirðingar á því að hafa talið svo vera og tjáð mig um það með þeim hætti. Það er meira mark takandi á því sem þú hefur fram að færa í þessari umræðu þegar þú ert ekki í fjárhagslegum tengslum við málið. En þú hefur verið það áberandi í málsvari fyrir ýmsa að ég taldi það af sjálfu leiða. En eins og áður- Hafa skal það sem sannara reynist.

Jón Magnússon, 21.5.2012 kl. 23:14

3 identicon

Stefnan heitir Múltí Kúltí og nýtur andstöðu ca 80% þjóðarinnar.

GB (IP-tala skráð) 22.5.2012 kl. 09:48

4 Smámynd: Jón Magnússon

Ekki veit ég það svo gjörla GB hvort hún kallast það einhversstaðar en miðað við síðustu könnun sem ég sá fyrir að vísu nokkru síðan þá voru það 84% á móti en 16% með.

Jón Magnússon, 22.5.2012 kl. 14:58

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Fangelsiskerfið í Bandaríkjunum er gott kerfi að því leyti að það helur glæpamönnum frá fólkinu. Fjöldinn sem hlutfall af fólkinu endurspeglar bara bandarískan veruleika, heimilsupplausn,ómenningu, . Fangelsiskerfið er bara afleiðingin af þessu. Hversvegna er ástandið svona allt annað í Canada, hinum megin við ána, þar sem eru fleiri byssur en í USA,og fólk læsir ekki einu sinni húsunum sinum. ég held að þú ættir að spá í það áður en þú fellir sleggjudóma yfir bandarískum fangelsum

Glæpamenn eiga að vera í fangelsum ekki þeirra vegna heldur hinna.

Halldór Jónsson, 23.5.2012 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 32
  • Sl. sólarhring: 896
  • Sl. viku: 2418
  • Frá upphafi: 2293969

Annað

  • Innlit í dag: 31
  • Innlit sl. viku: 2198
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband