Leita í fréttum mbl.is

Burt með sérfræðinga

Lýður Árnason læknir, sem sat í stjórnlagaráði birtir grein í Fréttablaðinu. Meginniðurstaðan er sú að Alþingi verði að samþykkja tillögur stjórnlagaráðs og megi ekki láta sérfræðinga koma að málinu.

Orðrétt segir: "Ruglumbull er að láta sérfræðinga tefja för þess frekar." Síðar segir læknirinn "Þinginu ber því  skylda til að standa við sinn hlut og samþykkja nýja stjórnarskrá óbreytta fyrir þinglok."´

Lýður telur ranglega að stjórnlagaráð hafi fengið umboð til að taka stjórnarskrármálið í eigin hendur og þeir sem þvælist fyrir séu óvinir þjóðarinnar. Sérstaklega á það við sérfræðinga að mati læknisins, sem geti sullumbullast við að ruglumbullast gegn heilögum tillögum stjórnlagaráðs.  

Stjórnlagaráðsliðar voru hvorki alvitrir né óskeikulir. Einn sérfræðingur bendir  t.d. á,  að yrðu tillögur stjórnlagaráðs samþykktar þá mundu útlendingar fá aðgang að auðlindum þjóðarinnar til jafns við Íslendinga. Heldur læknirinn að það sé þjóðarvilji að framselja auðlindirnar til útlendinga eins og stjórnlagaráð leggur til?

Af grein læknisins má ætla, að hann telji að komist grasalæknir sem hluti fólks treystir, að þeirri niðurstöðu að maður sé með hjartasjúkdóm, þá beri að fara að öllum ráðum grasalæknisins. Ekki megi kalla til hjartasérfræðinga eða sérhæft hjúkrunarfólk til sjúkdómsgreiningar eða aðgerða.

Læknirinn og frambjóðandi Dögunar vill vísa sérfræði á bug og láta kukl, vangetu og vanþekkingu ráða ferð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott blogg hjá þér Jón, það er spurning með hann Lýð hann hefur látið að sér kveða með góðum árangri sem leikari í sinni heimabyggð, það vekur mann til umhugsunar hvort læknistörfin hans séu meira leikaraskapur en sérfræðivinna? 

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 10:48

2 identicon

Sæll Jón

Þú hittir naglann á höfuðið. Lýður Árnason, læknir, virðist vera lýðskrumari. Gerð grundvallarlaganna í landinu með því að hunsa alla lögfræðiráðgjöf er óhugsandi nema Mugabe og slíkir séu við stjórnartaumana; en kannski er það bara þannig.

EINAR S. HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 14:34

3 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Jón! Þetta er með ólíkindum. Þetta vinstrisinnaða lið, hunsar alla sérfræðinga og prófessora, ef þeir eru ekki á sama máli og þeir. Og þeir hlusta ekki einu sinni á vilja þjóðarinnar gagnvart  ESB.

Eyjólfur G Svavarsson, 18.12.2012 kl. 15:13

4 identicon

Sæll Jón,

Það kemur fram í tillögunum að náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu séu í eigu þjóðarinnar. Þannig hvernig færðu það út að útlendingar geti komið hér í stórum stíl og fengið það allt á slikk?

Það er ekki hægt að bera saman raunvísindi og hugvísindi (lögfræði eða stjórnmálafræði) saman. Í raunvísindum eru tilgátur sannaðar eða afsannaðar með tilraunum. Þegar lögfræðingar sem túlka eiga sömu lög, koma saman, fæst ekki endilega alltaf sama niðurstaða. Þetta átt þú nú að vita.

Góðar stundir.

Jóhann Grétar Kröyer Gizurarson (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 18:08

5 identicon

sérkennilegur pistill í ljósi þess að tillögurnar voru(og þá sérstaklega auðlindaspurningin)voru samþykktar af auknum meirihluta.Lýðræði gengur nefnilega ekki útá óskeikulleika eða gáfumennsku heldur að vilji meirihluta nái fram að ganga.Einfaldlega eru þá þeir sérfræðingar eða ekki sérfræðingar sem vinna gegn ferlinu að vinna gegn lýðræðinu

Páll Heiðar (IP-tala skráð) 18.12.2012 kl. 18:11

6 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Þú ert greinilega að reyna að tala niður lækninn....ég hef ekki heyrt Lýð eitthvað vera bulla um þau málefni sem hann hefur verið að fara með...það sem vantar í þessa umræðu, er fagleg umræða....og fólk með skynsamar tillögur...Lýður eins og margir Íslendingar..hafa margt til stjórnaskráinnar að segja....maðurinn má hafa sína skoðun.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 18.12.2012 kl. 22:06

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Eignarréttarákvæði nýju stjórnarskrárinnar heimilar hömlur á eignarétt, þar með á eignarrétt útlendinga.

Í núverandi EES samningi hafa íbúar á EES svæðinu eignarrétt hér á við útlendinga. Það hefur að vísu ekki enn komið að sök, en gæti breyst og þess vegna hefðum við átt að fá undanþágu frá þessu til öryggis þegar við samþykktum EES.

Danir hafa slík lög og Ungverjar eru að vinna í slíkri lagasetningu.

Slíkt eigum við líka að gera, hvort sem gamla eða nýja stjórnarskráin verða í gildi.

Ómar Ragnarsson, 18.12.2012 kl. 23:00

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Kristján en er hann ekki líka góður læknir. Margír búa yfir víðtækum hæfileikum.

Jón Magnússon, 18.12.2012 kl. 23:18

9 Smámynd: Jón Magnússon

Það getru verið Einar. En mér hefur fundist ákveðinn hópur sem sat í stjórnlagaráðinu líta á sig eins og hafið yfir aðra. Eins og þeir telji sig vera einhverskonar "Founding Fathers" sem hafi verið að gera eitthvað stórmerkilegt. En sú sjálfsupphafning sýnir e.t.v. best vanþekkinguna. Síðan er það dæmalaust að amast við því að annað fólk komi að málinu og segi sína skoðun. Þar eru þessir sjálfsupphöfnu farnir að setja sig í spor einvaldskonunga sem sögðu "vér einir vitum." Grein Lýðs er því miður með þeim formerkjum.

Jón Magnússon, 18.12.2012 kl. 23:21

10 Smámynd: Jón Magnússon

Það er alveg rétt Eyjólfur. Merkilegt að vandaður maður eins og Lýður skuli taka þátt í þessu með Þorvaldi Gylfasyni, sem hefur farið hamförum í rugli og sjálfsupphafningu vegna tillagna stjórnlagaráðs.  En þessi hópur vill enga sérfræði að málinu vegna þess að allir sérfræðingar sem koma að málinu með óbundnar hendur gefa tillögum stjórnlagaráðsins falleinkun. Enda hvernig átti annað að vera með fólk sem hefur takmarkaða og flestir enga reynslu í löggjafarstarfi, að það geti sett saman merkilegar og gallalausar tillögur á stuttum tíma.  Aðferðarfræðin var öll röng eins og Gunnar Helgi prófessor hefur svo réttilega bent á.

Jón Magnússon, 18.12.2012 kl. 23:25

11 Smámynd: Jón Magnússon

Þess vegna Jóhann skiptir svo miklu að vanda til verka svo ekki fari á milli mála hvað um er að ræða. Ég veit ekki hvort þú hefur lesið hugleiðinar lögfræðingsins í sjávarútvegsráðuneytinu í Morgunblaðinu í dag varðandi þetta atriði. En ég gat ekki séð annað en þetta væru allt saman réttmætar athugasemdir hjá honum.  Lestu það sem um þetta mál er fjallað í Mogganum í dag.

Jón Magnússon, 18.12.2012 kl. 23:27

12 Smámynd: Jón Magnússon

Það er rétt Páll Heiðar lýðræðið gengur ekki endilega út á gáfur, en ég gef lítið fyrir niðurstöðu úr gallaðri þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem einhliða áróður var búinn að dynja á þjóðinni óslítið árum saman. Samt sem áður var það óverulegur hluti kjósenda sem mætti á kjörstað. Segir það enga sögu Páll Heiðar.  Svo er það einnig í lýðræðinu sem má ekki gleyma að þeir sem eru í minni hluta hafa rétt til að halda sínum skoðunum og berjast áfram fyrir þeim. Þess vegna má ég segja og ber lýðræðisleg skylda til að láta vita af því að mér finnast þessar tillögur stjórnlagaráðs hræðileg afglöp og ekkert í þeim sem máli skiptir sem ekki var komið samkomulag um vorið 2009 þegar Samfylkingunni og Vinstri grænum lá á að búa til kosningamál til að reyna að klekkja á Sjálfstæðisflokknum.

Jón Magnússon, 18.12.2012 kl. 23:31

13 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er alls ekki að tala Lýð niður Ægir. Ég hef kunnað einna best við hans málflutning af þeim stjórnlagaráðsliðum sem hafa kvatt sér hljóðs. En þessar skoðanir sem hann setur fram í tilvísaðri grein eru út um holt og móa. Því miður.

Jón Magnússon, 18.12.2012 kl. 23:32

14 Smámynd: Jón Magnússon

Ég lít þá svo á miðað við þetta Ómar að þú sért sammála niðurstöðu lögfræðingsins í sjávarútvegsráðuneytinu sem fjallar um þetta mál í Mogganum í dag. Er það ekki rétt?

Jón Magnússon, 18.12.2012 kl. 23:33

15 identicon

það er nú ein reglan í lýðræði að þeir sem ekki taka þátt í kosningum hafa ekkert að segja um niðurstöðuna.Hvernig ætti það öðruvísi að vera?Jú þinn rétt til að halda þínum skoðunum fram ætla ég ekki að vefengja en samt sem áður gengur það þvert á meirihluta og þar af leiðandi vinnur það á móti lýðræðinu.Gallana sem þú nefnir skil ég engan veginn,þar sem boðið var uppá að svara spurningum já/nei eða autt og sé ég ekki fjórða möguleika.Þú mátt líka halda því fram að áróðurinn hafi verið einhliða en veist jafnvel og ég að það á ekki við nein rök að styðjast.Alla vega fór ekki framhjá mér hvers formaður sjálfstæðisflokksins óskaði af kjósendum og ég man eftir mörgum greinum og umfjöllunum hjá lögmanni sem vildi svo til að bauð sig fram fyrir flokkinn skömmu seinna.

Páll Heiðar (IP-tala skráð) 19.12.2012 kl. 00:15

16 Smámynd: Jón Magnússon

Páll Heiðar valkostirnir í þjóðaratkvæðagreiðslunni voru settir upp með ákveðnum hætti sem ég tel ranga ef þú ætlar að reyna að fá raunverulegt álit fólksins. Skefjalaus áróður var rekinn fyrir stjórnlagaþingstillögunum m.a. ein útvarpsstöð sem útilokaði frjálsa og hlutlæga umræðu um málið en kaus að vera einhliða áróðursstöð fyrir stjórnlagaþingstillögunum. Kynningar útvarps og sjónvarps voru einhliða og það má leggja það háskólasamfélaginu, lögmannafélaginu og fjölmörgum öðrum til lasts að hafa ekki hvatt sér hljóðs fyrr til að benda á augljósa vankanta og rugl í þessum tillögum auk þess sem veldur verulegri réttaróvissu. Það er fyrst núna sem vitræna hlutlæg umræða er að verða um þessar tillögur og þá snúast fleiri og fleiri á móti þeim. Það er t.d. athyglisvert að betra og góðgjarnara fólk í Samfylkingunni eins og t.d. Kristrún Heimisdóttir og Lúðvík Bergvinsson fyrrum þingflokksformaður Samfylkingarinnar hafa opinberlega lýst þeirri skoðun að það verði að fara að með gát í sambandi við stjórnarskrárbreytingar og gera þær í sem víðtækastri sátt. 

Jón Magnússon, 19.12.2012 kl. 08:39

17 identicon

og hverjar af þessum spurningum áttu ekki rétt á sér.Var það spurningin um að ætti að halda áfram á sömu braut.Mér þykir hún mjög eðlileg.Var það spurningin um auðlindir í þjóðareign.Ég man ekki betur en þú hafir verið í flokki sem lagði höfuðáherslu á það.Var það jafnt vægi atkvæða. Var það aukið persónukjör og þar með virkara lýðræði.Varla er hægt að stjórna hvernig einkarekinn fjölmiðill kýs að reka sig og ég fékk öll tækifæri til að kynna mér málið til hlítar og allir aðrir höfðu sama tækifæri.Bæklingur sem skýrði þetta ýtarlega var borinn inn á hvert heimili,Og ert þú ekki að gera frekar lítið úr kjósendum þessa lands þegar þú berð uppá þá að láta fjölmiðlafólk mynda skoðanir fyrir þá og þeirra atkvæði sé rugl.Sem kjósandi í þessu landi afþakka ég þitt forræði í skoðanamyndun

Páll Heiðar (IP-tala skráð) 19.12.2012 kl. 18:45

18 Smámynd: Jón Magnússon

Það var hægt að afgreiða auðlindaákvæðið vorið 2009 Páll Heiðar ef Samfylkingunni og aftaníossum hennar hefði ekki legið á að slá pólitískar keilur með sérstöku stjórnlagaþingi. Einnig varðandi þjóðaratkvæði. Það er ekkert vandamál fyrir Alþingi að afgreiða þau mál. En það er allt annað en sá óskapnaður sem stjórnlagaþingið setti frá sér og einu ákvæðinu eru réttilega gerð skil á spaugilegan hátt af grínteinara Morgunblaðsins í dag. Ekki að búa þér til óvini Páll Heiðar að nauðsynjalausu. Ég vil stjórnarskrárbreytingar en ekki það heildarsamsull sem frá stjórnlagaþinginu kemur.

Jón Magnússon, 20.12.2012 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 853
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 752
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband