Leita í fréttum mbl.is

Breska veðurstofan endurskoðar spár um hnattræna hlýnun.

Frá því er sagt í dag að breska veðurstofan hafi breytt um spá um hnattræna hlýnun og geri ráð fyrir að árið 2017 þá hafi meðalhitinn verið nánast sá sami  í 20 ár. Nýar vísindaspár gera jafnvel ráð fyrir kólnun næstu 5 árin. En þeir segja í leiðinni að þrátt fyrir að þeir spái kólnun næstu 5 árin þá segi það ekki söguna um hvernig hnattræn hlýnun verði til lengri tíma litið. Heyr fyrir þeim. Loksins er hægt að fara að tala vitrænt um þessi mál.

Hlýjasta árið í Bretlandi í 160 ár var árið 1998. Svo virðist því sem eitthvað hafi komið í veg fyrir hnattræna hlýnun af mannavöldum í þau 14 ár sem liðin eru frá þeim tíma. Dr. Peter Stott yfirmaður lotslagsbreytingarannsókna á bresku veðurstofunni segir að hægt hafi á hlýnun frá árinu 2000 í samanburði við hlýnunina sem varð milli 1990 og 2000. 

Þetta þýðir að öll tölvumódel og spár vísindamannanna sem hafa spáð óafturkallanlegri hlýnun af mannavöldum og óbætanlegar skemmdir á jörðinni og vistkerfinu vegna útblásturs koltvíoxýðs hafa sem betur fer reynst rangar.

Fróðlegt verður að heyra hvað trúboði hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum Al Gore fyrrum varaforseti Bandaríkjanna segir um málið. Hann var raunar svo vinsamlegur að bjóða Forseta lýðveldisins með sér á Suðurskautið fyrir skömmu og þar komust þeir að því að ísinn á Suðurskautinu væri að minnka meðan aðrir vísindamenn og mælingar segja að hann sé að aukast.

Ævintýrið um hnattræna hlýnun af mannavöldum er dýrasta ævintýrið sem mannkynið hefur nokkurn tíma látið sér detta í hug að trúa á.  Það breytir hins vegar ekki því að okkur ber að ganga vel um náttúruna en það er annað mál og kemur ævintýrinu um  hnattrænu hlýnuninni ekkert við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ja Jón, þetta voru fréttir heldur betur. Ekki verður aftur snúið með öll lög og bönn sem sett hafa verið síðustu árin, en hver, raunverulega hver eða hverjir settu þetta í gang. Og þessir "einhverjir" hafa hugsanlega grætt á öllu saman gætum við trúað eins og með að fiskurinn,hvalirnir og selurinn væru að hverfa.Hvað er satt?

Eyjólfur Jónsson, 9.1.2013 kl. 22:27

2 Smámynd: Jón Magnússon

Það er oft erfitt að átta sig á því Eyjólfur hvað er satt. En kvótakerfi hvort sem er varðandi veiðar á fiski, útblástur frá verksmiðjum eða flugvélum býr til óefnisleg verðmæti sem sumir njóta en allir aðrir tapa á því. Á sama tíma og Karli Bretaprins finnst eðlilegt að fljúga á einkaþotum þá finnst honum líka að það eigi að skattleggja flugferðir almennings svo að það verði bara hann og hans líkar sem geti ferðast.

Jón Magnússon, 9.1.2013 kl. 23:48

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Ertu með "link" á þessa breyttu spá um hnattræna hlýnun, Jón.

Ferðast ekki Al Gore á einkaþotum líka? Varla ferðast hann með almennu flugi?

Ómar Bjarki Smárason, 10.1.2013 kl. 00:06

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón. Ég tek undir allt sem þú segir í þessum pistli. Það flækist um í hausnum á mér, að áróðurinn um hlýnun jarðar sé um það bil hreinræktuð lygi heims-stjórnendanna.

Og ekki hefur forseta lýðveldisins þótt það neitt vandamál, að flækjast á suðurpólinn, samtímis sem hann tekur þátt í heimsmafíu-lyga-blekkingar-bullinu. Ég vona að hann geri þetta allt vegna skólaheilaþvotta-heimsku, en ekki illgirni og eigingirni.

Hann hefur enn vald til að verja almenning fyrir spillingarkerfinu, ef hann vill og þorir! Honum ber skylda til að verja börn þessa lands fyrir sálarmorðingjunum vel launuðu og kerfisstýrðu!!!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.1.2013 kl. 00:13

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hvernig passar það nú saman við stanslausa minnkun hafíssins í Íshafinu og minnkun jökla um allan heim, líka hér á landi, að engin hlýnun hafi orðið eða verði á næstu árum eins og sagt er frá hér að ofan.

Og þar með slegið föstu að hlýnunin sé tómt bull?

Ómar Ragnarsson, 10.1.2013 kl. 00:41

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Maðurinnn hefur umbreytt náttúrunni með atferli sínu þar með talið veðurfari, þar hefur verið okkur sýnilegt í nokkurn tíma, hvort sem okkur líkar betur eða ver.

Það hjálpar ekkert að afneita slíku.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.1.2013 kl. 01:32

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Það var vitað að BBC svindlaði á fréttum um hnattræna hlýnun þegar metta mál bar sem hæst. Þetta er hápólítíst mál og vísindin eru nýtt þeim í hag sem vilja kalla þetta hnattræna hlýnun. Ef ég man rétt þá hættu Ástralir að eiða pening í þetta mál fyrir nokkrum árum svo ekki hafa þeir mikla trú á þessu rugli.

Valdimar Samúelsson, 10.1.2013 kl. 06:59

8 Smámynd: Jón Magnússon

Nei þetta var frétt í Daily Telegraph í gær, miðvikudag Ómar. Eðlilega ferðast hann með einkaflugvélum með fríðu föruneyti og Ólafi Ragnari.

Jón Magnússon, 10.1.2013 kl. 23:34

9 Smámynd: Jón Magnússon

Já nú er heldur betur tekið stórt upp í sig Anna Sigríður.

Jón Magnússon, 10.1.2013 kl. 23:35

10 Smámynd: Jón Magnússon

Er minnkun á ís um allan heim Ómar. Mínar heimildir segja að það sé aukning á sumum stöðum m.a. á Suðurskautslandinu.  Er það rangt. Veðurfar hefur verið óvenju stöðugt á jörðinni í meir en 2000 ár. En það hafa skipst á hlýskeið og kuldaskeið. Við getum bara skoðað Íslandssöguna t.d. árið 890 og 1300 það urðu heldur betur hitabreytingar á því tímabili. Það má færa sig nær í sögunni og benda á Litlu Ísöldina sem kölluð var um 1970 sem breyttist síðan í hnattræna hlýnun af mannavöldum um 2000. Hvað skyldi taka við síðan?

Jón Magnússon, 10.1.2013 kl. 23:37

11 Smámynd: Jón Magnússon

Sem betur fer erum við óburðugar skepnum miðað við þau ægiöfl sem búa í sjálfri náttúrunni. Hitta er annað mál að okkur ber að ganga sem allra best um náttúruna og gæta þess eftir föngu að spilla henni ekki. En vandamál heimsins er ekki fyrst og fremst hnattræn hlýnun heldur gríðarleg fólksfjölgun. 

Jón Magnússon, 10.1.2013 kl. 23:39

12 Smámynd: Jón Magnússon

Ég held að það sé mikið til í því Valdimar.

Jón Magnússon, 10.1.2013 kl. 23:39

13 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Flestir af okkar færustu vísindamönnum eru nú á því að losun koldíoxíðs og grisjun skóga (minni binding) eigi hlut að máli varðandi aukið koldíoxíð í andrúmsloftinu og eigi þannig þátt í hækkun á meðalhita jarðar. Þó getur verið fasaseinkun í þessu ferli sem aðrir þekkja betur en ég. Ég hef í minni kolefnisfávisku reiknað með því að við það að hitna losi leysist kóralrif og kalkmyndanir í hafinu upp og losi þannig koldíoxíð og hvort það geti að hluta skýrt hækkuð gildi koldíoxíðs. Víst mál til komið að lesa sér betur til um þessi mál.

Jörðin hefur vissulega gengið í gegnum miklu meiri hitabreytingar en við erum að horfa á nú í gegnum jarðsöguna, án brennslu á kolefni og skógarhöggs.

En það er áhugavert að þeir sem reka mestan áróðurinn fyrir því að við þurfum að bæta okkur skuli leyfa sér að ferðast um heiminn í einkaþotum og segja öðrum að draga úr mengun!

Ég set spurningamerki við þá framsetningu gagna þar sem núverandi toppur er dreginn út úr línurit sem spannar t.d. um 1 milljóna ára og velti fyrir mér hvort einhverjir 200 ára toppar týnast ekki hugsanlega í mælingum einhver hundruð þúsundir ára aftur í tímann?

Ómar Bjarki Smárason, 10.1.2013 kl. 23:52

14 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Jón - Litla ísöldin var 1870 eða þar um bil, þannig að þú ferð einum aldamótum of stutt aftur!

Ómar Bjarki Smárason, 10.1.2013 kl. 23:54

15 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón ef ég má ávarpa guðrúnu Maríu. Þú þarft ekki annað en að lesa Íslendingasögurnar og spá aðeins í málin sjálf þá sérð þú þetta er bull að halda að hnattræn hlýnun sé af mannavöldum.

Þú getur þá alveg eins sagt að skógarbrunarnir í Ástralíu núna þessa stundina séu að mannavöldum. Þú getur líka sagt að eldgos hér og þar í heiminum yfir ár hundruðin séu af mannavöldum. Ef þú reynir aðeins að hugsa lengra þá er æði mikið að orku jarðar frá vatnsföllum sem kom áður frá kolum. Reyndu í huganum að sjá að koltvísýringurinn hefir minnkað af manna völdum en hitt. Ég veit að það er erfitt að lýsa blindum því þeir sjá ekki.

Valdimar Samúelsson, 11.1.2013 kl. 07:24

16 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir innleggið Ómar. Það er sennilega rétt hjá þér varðandi árið 1870 en þá minnir mig að það hafi ekki sumrað á Vopnafirði í 3 ár í röð.  En það var líka talað um kólnun upp úr 1970 og þegar komu harðindavetrar og kuldaár nokkru síðar þá man ég ekki betur en talað hafi verið aftur um lítlu ísöldina.

Jón Magnússon, 11.1.2013 kl. 22:46

17 Smámynd: Jón Magnússon

Já en við þekkjum það úr sögunni líka Valdimar að blindir fá sýn. Guðrún María vill alltaf hafa það sem sannara reynist ég ég er ekki í vafa um að hún muni skoða málið upp á nýtt á grundvelli betri upplýsinga.

Jón Magnússon, 11.1.2013 kl. 22:47

18 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Betra seint en aldrei, sjá um mistúlkanir á spá Met Office
http://www.loftslag.is/?p=13876

Höskuldur Búi Jónsson, 13.1.2013 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 1230
  • Sl. viku: 1552
  • Frá upphafi: 2293020

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 1411
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband