Leita í fréttum mbl.is

Ásókn upplausnaraflanna verður að hrinda

Óneitanlega kom á óvart þegar formaður Sjálfstæðisflokksins sagðist í beinni útsendingu íhuga afsögn vegna gengisleysis flokksins í skoðanakönnunum.  Afsögn formanns Sjálfstæðisflokksins kom að sjálfsögðu ekki til greina við þessar aðstæður enda fékk hann nýlega skýrt umboð Landsfundar til að leiða kosningabaráttuna.Því miður hefur umræða fjölmiðla, skólaspekinga og stjórnmálamanna snúist í síauknum mæli um niðurstöður mismarktækra skoðanakannanna en minna er fjallað um það sem máli skiptir.; Hvað ætlar þú og þinn flokkur að gera og hvernig?Dæmi um þessa umræðuhefð mátti sjá í viðtalsþætti við formann Sjálfstæðisflokksins í ríkissjónvarpinu, um 80% þáttarins fór í að fjalla um skoðanakannanir og slakt gengi flokksins í þeim. Í blálokin var vikið að örfáum atriðum sem greina Sjálfstæðisflokkinn frá hinum 14 flokkunum sem bjóða fram við þessar alþingiskosningar. Slík umræða og umfjöllun er ómarkviss og slæm fyrir lýðræðið þar sem hún dregur úr möguleikum kjósenda til að kynna sér stefnumál flokkanna.Í minningarorðum sem ég las um Margaret Thatcher var sérstaklega vikið að því að hún hafi ekki látið það á sig fá hvernig Íhaldsflokkurinn mældist í skoðanakönnunum heldur haldið ótrauð áfram við að berjast fyrir og framkvæma þau mál sem hún var kjörin til að koma áfram.Sjálfstæðisflokkurinn hefur þá sérstöðu meðal íslenskra stjórnmálaflokka að standa vörð um einstaklingsfrelsið og athafnafrelsið, gegn ofurvaldi ríkisins og skattheimtustefnu annarra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur reglu, aga og virðingar fyrir einstaklingnum og mannréttindum. Hann gætir þess að mikilvægustu stjórnarstofnanir ríkisins geti gegnt hlutverki sínu með markvissum og eðlilegum hætti. Þegar vinstri  upplausnaröflin sóttu að Alþingi og stjórnskipun landsins í ársbyrjun 2009 taldi ég, að nauðsynlegt væri, að allir sem vilja standa vörð um lýðræði í landinu og koma í veg fyrir upplausn og öngþveiti mynduðu breiðfylkingu gegn stjórnleysinu. Þess vegna var nauðsynlegt að leggja Sjálfstæðisflokknum lið að nýju til að ná því markmiði. Þessi staða er enn fyrir hendi.  Upplausnaröflum sósíalista var komið til valda með árásum á Alþingi og stjórnvöld í ársbyrjun 2009 og ístöðuleysi Framsóknarflokksins. Á þeim tíma bar brýna nauðsyn til að þjóðin sýndi samstöðu til að vinna sig út úr aðsteðjandi vanda. Mikilvægustu skrefin að endurreisninni höfðu þegar verið stigin. Hins vegar brást Framsóknarflokkurinn borgaralegum gildum og vinstri armur Samfylkingarinnar sá sér leik á borði. Afleiðingin varð fjögurra ára óstjórn, kyrrstöðu og svika.  Samkvæmt nýrri könnun er helsta afrek sósíalistastjórnarinnar að gera alla fátækari. Þannig sagði að tæpur helmingur landsmanna  vart geta náð endum saman eftir fjögurra ára norræna velferðarstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Sjálfstæðisfólk sem hefur íhugað að kjósa aðra flokka eða sitja heima verður að gera sér grein fyrir hvað er í húfi í þessum kosningum. Sótt er að stjórnskipun landsins og borgaralegum gildum. Þeirri ásókn verður að hrinda. Lækka verður skatta og draga úr umsvifum ríkisins. Athafnafrelsi, stórvirkjanir, atvinnusköpun og hagsæld verða að taka við af doða og kyrrstöðu þessa kjörtímabils. Neytendavitund, neytandastefna og sambærileg lánakjör og í nágrannalöndunum verða að taka við af okri á matvörum og lánum. Með þeim hætti bætum við lífskjörin.Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem fylgir grundvallarstefnu frelsis og markaðshyggju. Hvort sem okkur líkar vel eða illa við einhvern í forustu flokksins þá býður þjóðarheill að vinstri upplausnaröflin eða yfirboðsloddurunum í  Framsóknarflokknum takist ekki að koma í veg fyrir framfarasókn þjóðarinnar. 

Svarið við því er X við D á kjördag. 

(Grein birtist í Morgunblaðinu 22. 4.2013)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það hefur þá verið misskilningur hjá mér og fleirum að það hafi verið afrekað á árinu 2008 "að gera alla fátækari" svo nam þúsundum milljóna samtals. En kannski er þetta misminni hjá mér.

Ómar Ragnarsson, 22.4.2013 kl. 09:26

2 identicon

Fín grein en hvað varð um greinaskilin hjá þér, minn kæri.

Sigurður Sigurðarson (IP-tala skráð) 22.4.2013 kl. 11:08

3 Smámynd: Jón Magnússon

Á árinu 2008 var alþjóðlegt bankahrun þannig að giskað er á að um 3 trilljónir dollara hafi farið út úr hagkerfum heimsins Ómar. Það voru raunar verðmæti sem aldrei voru til í raun. Það var ekkert annað sem gerðist hér hvað það varðar en t.d. í Bretlandi eða Írlandi nema hvað bankakerfið hér var hlutfallslega miklu stærra. Við fórum betur út úr bankahruninu en bæði Bretar og Írar þökk sé neyðarlögunum og staðfestunni gagnvart Icesave. En við áttum líka að sækja skaðabætur til Breta vegna hryðjuverkalaganna Ómar. Þeir sem höfðu veðjað á hlutabréfamarkaðinn og bankabóluna urðu fátækari í bankahruninu en það hafði ekki áhrif á okkur hina mig og þig Ómar sem höfðum ekki gert það heldur horft með vantrú á þennan falska gleðileik.

Jón Magnússon, 22.4.2013 kl. 22:57

4 Smámynd: Jón Magnússon

Takk Sigurður. Þetta gerðist bara þegar ég peistaði þessu inn. Svo reyndi ég að betrumbæta en þegar þetta skrapp alltaf saman aftur þá hætti ég að reyna eftir þrjár tilraunir þannig að greinaskilalaust verður þetta að vera. Því miður. Það eru greinaskil í Mogganum.

Jón Magnússon, 22.4.2013 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 916
  • Sl. viku: 2393
  • Frá upphafi: 2293944

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 2174
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband