Leita í fréttum mbl.is

Að vilja veitist mér auðvelt, en ekki að framkvæma hið góða

Samfylkingin gleymdi strax í febrúar 2009 að flokkurinn hafði verið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum í október 2008.  Hrunmálaráðherrann Jóhanna Sigurðardóttir, sem kom í veg fyrir að verðtryggingin væri tekin úr sambandi við Hrun talar jafnan eins og hún hafi ekki setið í ríkisstjórn Geirs H. Haarde 2007-2009.

Margir héldu að þetta væru elliglöp hjá Jóhönnu sem byrjuðu langt fyrir aldur fram, en nú hefur komið í ljós að svo er ekki. Þetta er Samfylkingarheilkennið. Með sama hætti og Jóhanna Sigurðardóttir var búin að gleyma því mánuði eftir að hún hætti í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum að hún hefði verið þar eða hvað gerðist á stjórnartímabilinu þá gleymdu aðrir forustumenn flokksins þessu líka. Nú hefur ný forusta Samfylkingarinnar gleymt því hvað þau og Samfylkingin hafa verið að gera síðustu 4 ár í ríkisstjórninni.

Nýja forustan leggur til að húsnæðislánakerfið verði eins og á hinum Norðurlöndunum en hefur verið á móti því í ríkisstjórn síðustu 4 ár.

Nýja forustan er á móti verðtryggingunni en engir hafa staðið dyggari vörð um verðtrygginguna síðustu 4 árin en Jóhanna Sigurðardóttir, Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir.

Nýja forustan segir mikilvægt að eyða ekki meiru en aflað er. Ríkissjóður undir stjórn Katrínar Júlíusdóttur varaformanns Samfylkingarinnar og annarra fjármálaráðherra í ríkisstjórninni hefur eytt tæpum hundrað milljörðum árlega meir en aflað hefur verið. Fjárlagahallinnn á Íslandi undir stjórn Katrínar Júlíusdóttur er einna mestur í Evrópu.

Fleiri dæmi af Samfylkingarheilkenninu mætti nefna, en vísa má á vefinn xs.is fólki til skemmtunar. Þar eru margar lýsingar á því hvað Samfylkingin vill gera þert á það sem Samfylkingin gerði í ríkisstjórninni.  Eða eins og það er orðað í Rómverjabréfinu 7. kapítula 18. og 19. versi af Páli postula:

"Að vilja veitist mér auðvelt, en ekki að framkvæma hið góða. Hið góða, sem ég vil, gjöri ég ekki, en hið vonda, sem ég vil ekki, það gjöri ég.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Maður óskar sér þess sem maður á ekki.  Hinsvegar vil ég að 80% langtíma veðskuldar veðsafna hér fá einkunn Prime AAA+++ óháð verðbólgu á öllu tímum og hverju ári.  Þeir sem vilja það ekki, eiga ekki vera í stjórnmálum.  "Real yielding intrest rate is over average rate: IRR".  Tryggja raunvirði meðallauna PPP í OCED samanburði er verðugt verkefni stjórnsýslu.  Spyrja hvervegna og til hvers.

Júlíus Björnsson, 23.4.2013 kl. 19:29

2 Smámynd: Jón Magnússon

Vil geta þess af því að ég var of seinn að svara fyrir nokkru að ég samþykki allar athugasemdir sem koma nema þær séu úr hófi langar, fjalli um annað en efni pistilsins eða feli í sér persónulegar árásir á utanaðkomandi einstaklinga.

Jón Magnússon, 23.4.2013 kl. 23:32

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hef velt þessu fyrir mér.

Hvort er um að ræða gullfiskaminni fólks, eða sannfæringarkraftur vilhallra fjölmiðla eins og RUV og Fréttablaðsins. Eða er fólk ekkert sérstaklega að spá í pólitík, það horfir bara á naflann á sér í staðinn?

Allt þetta sem okkur tveimur finnst skipta máli er léttvægt í augum hins venjulega Jóns og Gunnu?. Nema þegar við tölum um að senda þeim peninga, þeim sé svo mikil vorkunn. Þá kviknar á þeim augnablik sem skoðanakannanir taka svo til?

Halldór Jónsson, 24.4.2013 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 428
  • Sl. sólarhring: 688
  • Sl. viku: 2814
  • Frá upphafi: 2294365

Annað

  • Innlit í dag: 399
  • Innlit sl. viku: 2566
  • Gestir í dag: 386
  • IP-tölur í dag: 376

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband