Leita í fréttum mbl.is

Af hverju ekki hvalkjöt?

Nokkrir eigendur veitingastaða telja það sér til tekna að lýsa því yfir að þeir bjóði neytendum ekki upp á hvalkjöt. Ég veit ekki til að nokkur af þessum stöðum hafi nokkru sinni boðið viðskiptavinum sínum upp á hvalkjöt þannig að hér er þá ekki neitt nýtt á ferðinni nema yfirlýsingin.

Óneitanlega hefði viðskiptavinum nokkurra af þeim kaffistöðum sem auglýsa hvalkjötsskort brugðið í brún ef hvalkjöt hefði allt í einu birst á matseðlinum auk kaffibrauðs og Hnallþóra sem þar eru jafnan í boði. Sama er að segja um veitingastaði fyrir grænkera sem eru ekki með  kjöt á boðstólum.

Undirtónninn í yfirlýsingunni er þó alvarlegur. Talsmaður hvalkjötsyfirlýsingarinnar lætur í veðri vaka að það sé siðferðilega ámælisvert að bjóða upp á hvalkjöt eða borða það.  Af hverju? Dýrin eru ekki í útrýmingarhættu. Ekki er um verri meðferð á dýrum að ræða en gengur og gerist við kjötframleiðslu.

Barátta gegn loðdýrarækt og selveiðum er jafnundarleg. Einhver háskólaspekingur kom með gjörsamlega rakalaus andmæli gegn loðdýrarækt í fyrradag. Slík andmæli eru raunar ekki ný af nálinni. Brigitte Bardot sem einu sinni var fræg fyrir fríðleika fór í tildurklæðnaði sínum á norðurslóðir til að mótmæla veiðum og vinnslu selaafurða og það hafa ýmsir aðrir gert án nokkurra skynsamlegra raka. 

Rómantískir sveimhugar víða um heim virðast telja að nauðsyn beri til að koma í veg fyrir að fólk á norðurslóðum nýti með sjálfbærum hætti þau gæði sem náttúran býður upp á. Rökin eru alltaf tilfinningaþrungin, en án hagrænnar eða vistræðilegrar skírskotunar.

Það er slæmt að veitingahúsaeigendur skuli taka þátt í svona auglýsingaherferð. Með sömu rökum og sjónarmiðum mætti mótmæla ansi mörgu sem finnst á matseðli sumra þeirra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Menn eru komnir út á hálan ís þegar ein atvinnugrein er farinn að vinna gegn annari sem er lögleg og með meirihluta þjóðarinnar með sér að auki. Spurning hvort þetta sé lögleg yfir höfuð.

Gunnar Þórarinsson (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 00:55

2 identicon

"Talsmaður hvalkjötsyfirlýsingarinnar lætur í veðri vaka að það sé siðferðilega ámælisvert að bjóða upp á hvalkjöt eða borða það.  Af hverju? Dýrin eru ekki í útrýmingarhættu."

Jú, þessi spendýr eru talin á válista. Þess vegna eru viðskipti með þau almennt talin siðferðislega ámælisverð. 

Hefur það farið fram hjá þér að Kristján Loftsson á í mestu vandræðum með að koma hvalkjötinu í lóg sem hundamat?

Og hér gjabba landarnir um hvað hvalkjöt sé æðislega gott, ekki

 "Ekki er um verri meðferð á dýrum að ræða en gengur og gerist við kjötframleiðslu."

Jú, miklu verri. Nefndu mér eitt dæmi um hvernig menn elta uppi spendýr með því að skjóta sprengiskutlum í þau.

Nægir þér ekki að grilla nautalundir?

Ertu að kvarta yfir úrvali?

Jóhann (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 02:17

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Spurningin snýst um hvort að ferðaþjónustan/hvalaskoðunarferðir/

ÍMYND landsins út á við; vegi þyngra en veiðarnar/kjöt sem enginn vill kaupa?

Jón Þórhallsson, 8.8.2013 kl. 08:28

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er hárrétt ábending Gunnar.

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 10:44

5 Smámynd: Jón Magnússon

Hvalveiðar okkar eru sjálfbærar og vistvænar Jóhann. Þó einhver samtök úti í hinum stóra heimi telji annað þá er það rangt hjá þeim. Eru hreindýraveiðar mannúðlegri slátrun en slátrun hvala Jóhann? Ég held ekki.  Svo er þetta ekki spurning um það hvort verið er að kvarta yfir úrvali. Á sínum tíma var þetta líka haft uppi af andstæðingum bjórsins sem spurðu er ekki nóg áfengi á boðstólum. Ef ég vil borða hvalkjöt og þú nautasteik þá er það okkar mál en ekki annarra Jóhann.

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 10:47

6 Smámynd: Jón Magnússon

Það er eðlileg umræða Jón en þessi undirskriftarherferð er að mínu viti ekki til það hjálpa til.

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 10:48

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Þessi dýr éta víst 30-50 kg. af fiski á dag, enda engin smádýr. Það er mikill munur á því að útrýma hvölum, eða að veiða eðllega, til að halda eðlilegu jafnvægi í lífríkinu.

Getur verið að sumir sem láta sig kvótaskiptingu útgerðanna miklu varða, vilji á sama tíma heimila hvölum allan þann kvóta sem þeir þurfa til að lifa?

Getur verið að hvalafriðunarfólk fái sér susi á veitingastöðum, eftir mótmælin? Er susi ekki fiskur? Á ekki bara að friða fiskinn sem susi er matreitt af?

Hvalkjöt er líklega með hollustu kjötvörum í heimi vegna hreinleikans  (pensillín-ómengað). Japanir hafa borðað mikið hvalkjöt, ásamt öðrum fisktegundum, upp í gegnum tíðina. Krabbamein er nánast óþekktur sjúkdómur í Japan.

Eftir situr spurningin um hverjir það eru, sem standa fyrir áróðrinum af algjörri hvalafriðun/selafriðun, og nýjum bull-áróðri um að omega 3 fitusýrur séu óhollar? Eru það kannski lyfjafyrirtækin sem selja krabbameinslyf? Það er margt sem bendir til þess. Það er samhengi í þessu öllu. Best að vera gagnrýnin í hugsun.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.8.2013 kl. 12:01

8 identicon

Hvalkjöt, vel verkað, lítilega marinerað og grillað í stuttan tíma er hreint lostæti og vel til þess fallið að bjóða öllum. Sama á við um hrefnukjöt. Menn tala um mannúðlega slátrun, en hvernig er með "mannúðlega ræktun" er hún til staðar með t.d. svínaræktun, kjúkklinga ræktun og ræktun annara fugla? Margir af þeim sem vilja friða hvali gera sér grillur vegna þess að einhver tilfinningavæmni hefur verið gerð um þá, þetta eru oft einstaklingar sem nánast aldrei hugsað hvernig matvælaframleiðsla er. Sjá einungis matinn í fallegum neytendapakkningum. Mér er minnisstætt að fyrir nokkrum árum að hafa boðið Svisslendingi uppá kjúkkling, fékk þau svör að það væri mjög góður matur. Svo þegar heilgrillaður kjúkklingur kom á borðið folnaði hann upp og spurði ; Hvað er þetta?, hann hafði aldrei séð heilan kjúkkling matreyddan, eingöngu úr neytendapakkningum og þé oftast bara beinlausar bryngur. Þetta á við alltof marga sem mynda sér þröngar skoðanir út frá fákunnáttu.

Kjartan (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 12:33

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hef tekið þá ákvörðun að fara ekki inn á veitingastað sem auglýsir að þar sé ekki selt hvalkjöt.  Það er prinsipp hjá mér að þola ekki ofbeldi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.8.2013 kl. 12:39

10 Smámynd: Jón Magnússon

Það er spurning hvort maður á að slá á móti Ásthildur. En annars er ég sammála ykkur Anna, Kjartan og Ásthildur.

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 12:54

11 identicon

Því miður, þá hafa þessir umhverfis-terroristar gegnumsneitt lágt IQ.

BF sagði: Gáfað fólk þarf ekki ráðleggingar, heimskingjar taka ekki við þeim.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 13:11

12 Smámynd: Jón Þórhallsson

Af hverju borðum við ekki svani?

Eru þeir nokkuð í útrýmingarhættu?

Jón Þórhallsson, 8.8.2013 kl. 14:29

13 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Anna Sigríður Guðmundsdóttir; "Þessi dýr éta víst 30-50 kg. af fiski á dag,"

Anna mín, það eru bara litlir hvalir sem borða 3-50 kg á dag, hjá flestum hvaltegundum er talað um tonnum á dag

Brynjar Þór Guðmundsson, 8.8.2013 kl. 14:54

14 identicon

"Hvalveiðar okkar eru sjálfbærar og vistvænar Jóhann"

Nei, það eru þær ekki. Það er varla að Kristján Loftsson nái að koma kjötinu í lúxus-hundafóður.

 "Eru hreindýraveiðar mannúðlegri slátrun en slátrun hvala Jóhann? Ég held ekki."

Það að skjóta sprengiskutli í kú eða tarf er viðurstyggilegt.

Athugasemd þín um bjórdrykkju er útúrsnúningur í því samhengi.

Ef Kristján Loftsson vill vera "umhverfisvænn og sjálfbær", þá ætti hann að stofna safn utan um deyjandi atvinnugrein.

Íslendingar ættu jafnframt að lýsa yfir algeru banni á hvalveiðum og munu uppskera ríkulega í kjölfarið.

Það er hlægilegur þjóðrembingur þegar landarnir mæra hvalkjötsát.

Jóhann (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 20:42

15 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég sný við ef ég sé svona límmiða á veitingastað

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.8.2013 kl. 23:06

16 Smámynd: Jón Magnússon

Ekki veit ég það nú svo gjörla Valdimar og held að það fari ekki eftir IQ inu en hver er BF

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 23:57

17 Smámynd: Jón Magnússon

Góð spurning Jón. Langar þig í einn. Ekki mig.

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 23:58

18 Smámynd: Jón Magnússon

Já Jóhann þarna erum við ekki sammála eins og fram er komið og ég hef engu við að bæta. Þú hefur þína skoðun og ég mína.

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 23:59

19 Smámynd: Jón Magnússon

Það ætla ég ekki að gera Gunnar. Öllum getur orðið á.

Jón Magnússon, 8.8.2013 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 899
  • Sl. viku: 2407
  • Frá upphafi: 2293958

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 2188
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband