Leita í fréttum mbl.is

Í skugga hommahaturs

Hópur fólks berst fyrir því að þjóðir sniðgangi vetrarolympíuleikana sem eiga að vera í Rússlandi eftir 6 mánuði vegna afstöðu þarlendra til samkynhneigðra. Í fylkingarbrjóst hefur skipað sér frábær leikari Stehpen Fry.  Sniðgöngutillögurnar fá dræmar undirtektir og bæði Obama Bandaríkjaforseti og Cameron forsætisráðherra Breta hafa hafnað þeim með öllu.

Það hefur komið fyrir að þjóðir hafa sniðgengið Olympíuleika vegna stjórnarfars í viðkomandi löndum. Þá kom upp krafa um að sniðganga Evrópusöngvakeppnina í Aserbadjan s.l. vetur vegna harðýðgi, en af því varð ekki. Í þeim tilvikum þar sem þjóðir hafa sniðgengið Olympíuleika hefur það fyrst og fremst bitnað á þeim sem sniðgengu og íþróttamönnum þeirra.

Hætt er við að fljótt taki fyrir alþjóðleg samskipti ef fólk vill beita þeim reglum út í hörgul að koma hvergi þar sem því mislíkar eitthvað í stjórnarfari, siðum eða trúarbrögðum þjóða.  Samkynhneigðir mundu þannig berjast gegn því að nokkur alþjóðleg mót eða samskipti færu fram í Íslamska heiminum þar sem afstaðan til samkynhneigðra er mun harðari en í Rússlandi auk margra annarra landa.

Barátta samkynhneigðra fyrir eigin mannréttindum verður ekki aðskilinn frá mannréttindabaráttu almennt. Þess vegna er spurningin hvaða þjóðir uppfylla ekki þau skilyrði sem menn  vilja setja varðandi mannréttindi. Þar koma til skoðunar þjóðir sem virða ekki réttindi þjóðfélagshópa í eigin landi og réttindi minnihlutahópa.  

Svo má velta því fyrir sér hvort það er til þess fallið að koma á umbótum í mannréttindamálum að útiloka þá sem okkur finnst ekki þóknanlegir í þeim efnum. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það horfi frekar til bóta til að koma á mannréttindum að hafa sem mest samskipti við þá sem brotlegir eru og láta þá heyra það sem okkur mislíkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Ekki má gleyma því að nýleg lagasetning gegn áróðri homma í Rússlandi hefur stuðning yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar, trúlega yfir 90% Rússa styðja hana. Þetta ætti að vera umhugsunarefni þeim, sem sífellt eru að tala um „beint lýðræði“.

Vilhjálmur Eyþórsson, 10.8.2013 kl. 16:17

2 Smámynd: Einar Karl

Það er hins vegar ekki hægt að horfa fram hjá því að það var skammarlegt að þjóðir heims skyldu allar sem ein mæta á skrautsýningu Hitlers, á Ólympíuleikunum 1936. Það vissu allir sem vildu þá að Hitler var byrjaður að innleiða meiriháttar mannréttindabrot og fasíska stjórnarhætti. Ólympíleikarnir 1936 eru og verða sögulegur smánarblettur og íþróttaafrek sem þar urðu falla alveg í skuggan af þeim bitra veruleika.

Við eigum að mótmæla harðlega því sem er að gerast í Rússlandi, því þar er ekki bara um að ræða íhaldssemi og kreddufull aldagömul viðhorf, heldur er beinlínis verið að ala á hatri og umburðarleysi, og gera stöðu homma og lesbía VERRI en hún hefur verið.

Einar Karl, 10.8.2013 kl. 18:39

3 Smámynd: Jón Magnússon

Það er einmitt málið Vilhjálmur. Meiri hlutinn hefur ekki alltaf rétt fyrir sér og það eru ákveðin réttindi sem verða að vera til staðar og má ekki breyta.  þess vegna skipta stjórnarskrár svo miklu máli svo fremi að farið sé eftir þeim og það má ekki breyta þeim nema að vandlega yfirveguðu ráði í góðri sátt.

Jón Magnússon, 10.8.2013 kl. 23:05

4 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er ekki sammála þessari sagnfræði Einar Karl. Heimurinn vissi minna um Þýskaland nasismans á þeim tíma en Kína kommúnismans þegar Olympíuleikarnir voru haldnir þar og Ólafur Ragnar og Dorrit reyndu að leika aðalhlutverkið í handboltanum. Það er athyglisvert þegar skoðaðar eru myndir frá setningarathöfn Olympíuleikanna í Berlín 1936 að meiri hluti þjóðanna heilsuðu með nasistakveðjunni þar á meðal Frakkar.

Jón Magnússon, 10.8.2013 kl. 23:14

5 Smámynd: Einar Karl

Nei jón, ég er þér ekki sammála. Heimurinn ÁTTI að vita þetta. Hvernig gat hann ekki vitað þetta? Það var búið a ðreka gyðinga úr prófessorsstöðum og farið að betia þá alls konar kúgun.

Ef heimurinn þóttist ekki vita þetta segir það líklega eitthvað um að heimurinn var þá því miður allur svolítið hallur undir anit-semitisma.

Annars skil ég ekki alveg tenginguna við Kína. Varst þú á þeirri skoðun að við hefðum átt að sniðganga Ólympíuleikana þar?

Lestu allt bréf Stephen Fry, sem þú vísar til. Hann segir m.a.

"I write in the earnest hope that all those with a love of sport and the Olympic spirit will consider the stain on the Five Rings that occurred when the 1936 Berlin Olympics proceeded under the exultant aegis of a tyrant who had passed into law, two years earlier, an act which singled out for special persecution a minority whose only crime was the accident of their birth. In his case he banned Jews from academic tenure or public office, he made sure that the police turned a blind eye to any beatings, thefts or humiliations afflicted on them, he burned and banned books written by them. He claimed they “polluted” the purity and tradition of what it was to be German, that they were a threat to the state, to the children and the future of the Reich. He blamed them simultaneously for the mutually exclusive crimes of Communism and for the controlling of international capital and banks. He blamed them for ruining the culture with their liberalism and difference. The Olympic movement at that time paid precisely no attention to this evil and proceeded with the notorious Berlin Olympiad, which provided a stage for a gleeful Führer and only increased his status at home and abroad. It gave him confidence. All historians are agreed on that. What he did with that confidence we all know. "

http://www.stephenfry.com/2013/08/07/an-open-letter-to-david-cameron-and-the-ioc/#sthash.V9mqUTLY.dpuf

Einar Karl, 10.8.2013 kl. 23:33

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ég er ekki hlynntur þráðbeinu lýðræði Vilhjálmur en vil hafa það sem mest.En um sum málefni gildir vilji meirihlutans ekki.Til dæmis mætti hugsa sér að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um hvort banna ætti Vinstri Græn.

Jósef Smári Ásmundsson, 11.8.2013 kl. 05:51

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ég benti á það í bloggfærslu sem hét ekki staðurinn ekki tíminn og tengdi það umræðunni um Olympíuleikana í Berlín þar sem allir voru sammála um að það væri hvorki staður né stund til að mótmæla nasismanum með vþí að sniðganga Olympíuleikana þar. Þú getur lesið það ef þú færir þig aftur til þess tíma á blogginu mínu. Ég er ekki viss að Stehepn Fry jafn flottur leikari og hann er sé jafn pottþéttur sagnfræðingur. Svo verða menn að skoða viðhorf annarsstaðar í álfunni líka og víðar.  Andstaðan gegn Gyðingum var mikil í Eystrasalstsríkjunum, Póllandi, Ungverjalandi og jafnvel Frakklandi. Staðreyndir sem margir vilja gleyma.

Jón Magnússon, 11.8.2013 kl. 12:20

8 Smámynd: Jón Magnússon

Beint lýðræði getur aldrei náð til þess að eyðileggja grundvallarmannréttindi.

Jón Magnússon, 11.8.2013 kl. 12:21

9 Smámynd: Einar Karl

Jón,

bara svo við höfum hugtakanotkun á hreinu, "andstaða" gegn gyðingum var ekkert an fordómar og hatur.

En við verðum að vera ósammála um þátttöku þjóða á Ólymðíuleikunum 1936. Ég tel þá leika vera sögulegan skammarblett og að það hefði AUÐVITAÐ átt að mótmæla nasismanum þar. En þú telur svo ekki vera.

Annars finnst mér þú svolítið ósamkvæmur sjálfum þér. Þú segir að það hafi EKKI átt að sniðganga Ólympíuleikana í Munchen, en svo varstu að hneykslast á því að Ólafur Ragnar skyldi ekki sniðganga Ólympíuleikana í Bejing.

Einar Karl, 11.8.2013 kl. 14:30

10 Smámynd: Jón Magnússon

Ég var að vísa í það Einar Karl og hvernig fjölmiðlar og stjórnmálamenn töluðu árið 1936 um Olympíuleikana þegar talað var um að sniðganga þá. En þá var notað ekki rétti staðurinn, ekki rétti tíminn og ég notaði það líka í bloggfærslunni minni varðandi Dorrit, Ólaf Ragnar o.fl.  Þannig að þetta er útúrsnúningur hjá þér eða misskilningur.

Jón Magnússon, 11.8.2013 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 62
  • Sl. viku: 1682
  • Frá upphafi: 2291572

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 1510
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband