Leita í fréttum mbl.is

Eigi leið þú oss í freistni

Fyrir mörgum árum hætti ég að biðja Faðir vorið með þeim hefðbundna hætti að segja "eigi leið þú oss í freistni" Mér fannst það rökleysa að algóður Guð leiddi fólk í freistni.  Eðlilegra væri að segja í staðinn: "Forða oss frá að falla í freistni." Í sjálfu sér gat þetta fallið undir meðfæddan þvergirðingshátt minn. En nú telja fleiri að hefðbundin þýðing Faðir vorsins sé röng af sömu ástæðum.

Frá því er sagt í dag að Rómversk kaþólska kirkjan hafi leiðrétt frönsku þýðinguna á Faðir vorinu þar sem segir "og leið oss eigi í freistni" og fallist á að það gæti skilist með þeim hætti að Guð geti valdið því að fólk ánetjaðist freistingum eða yrðu þeim að bráð, í stað þess að hjálpa okkur að þræða þrönga veginn dyggðarinnar.  

Á enskri tungu er breytingin þessi:  Í staðinn fyrir að segja "And don´t submit us to temptation"  skal segja "And don´t let us enter into temptation."  Þessi breyting verður sett í nýja franska þýðingu Biblíunnar sem Vatíkanið hefur samþykkt. Páfadómurinn hefur því ákveðið að taka undir ofangreindan þvergirðingshátt hvað varðar Faðir vorið.

Skyldi hin evangelíska Lútherska kirkja á Íslandi samþykkja þessa sjálfsögðu breytingu á Faðir vorinu?

 Þannig breytt yrði sagt. "Forða oss frá að falla í freistni og forða oss frá illu."  Er það ekki rökrétt ákall eða bæn til hins algóða Guðs sem allt hið góða er komið frá?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er ekki líka skortur á auðmýkt í bæninni? Jafnvel eilítið af mannlegu stærilæti. Allavega þérum við okkur sjálf og þúum almættið. Hefur þér aldrei fundist það skrýtið?

Jón Steinar Ragnarsson, 17.10.2013 kl. 04:28

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Annars er biblían uppfull af því að guð leggur snörur fyrir fólk og vekur því freistingar. Hann meira að segja herti huga Faraós gegn gyðingum svo hann hefði afsökun til að hella tiu plágum yfir egypta. Sú sagar er raunar einkennileg að mörgu öðru leyti og stenst illa skoðun eins og flest annað í bókinni. ;)

Jón Steinar Ragnarsson, 17.10.2013 kl. 04:31

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Jón

Ég get tekið undir með þér að algóður Guð leiðir okkur ekki í freistni, þarna ætti heldur að standa "forða okkur frá því að falla í freistni", þó svo ég hafi ekki skoðað frumtextann hvað þetta varðar.

En það var annað sem kom mér í hug við lestur pistils þíns, en það er texti úr Davíðssálmi 23 þar sem segir "bikar minn er barma fullur".  Í erlendum textum segir "það flæðir yfir úr bikar mínum".  Þá er verið að tala um að blessanir Drottins eru yfirfljótandi, þær eru án takmarkana, en þegar við segjum að bikar okkar sé barmafullur, gefum við til kynna að flæði blessana Drottins stoppi þar þ.e. á brúninni.

Mátti til með að koma með þessar vangaveltur fyrst tilefni var til staðar hjá þér í pistli þínum.

Kærar þakkir og bestu kveðjur,

Tómas Ibsen Halldórsson, 17.10.2013 kl. 11:14

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sæll. Heyrði þetta fyrir allmörgum árum og hef undrast að rétt þýðing sé ekki innleidd.

Ómar Ragnarsson, 17.10.2013 kl. 12:34

5 identicon

Sæll Jón.

Hér kennir grundvallarmisskilnings.
Stílafbrigði velþekkt frá þeim tíma
er þú gerir að umtalsefni fólst í því
að lesa saman línurnar til þess að merking
mætti verða ljós.

"...fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og
fyrirgefum..."

Þú hlýtur að sjá hvers lags reginvitleysa
þessi texti er ef þú lest þessar línur aðskildar.
Þær ber að lesa saman og þá liggur merkingin
morgunljós fyrir!

Af þessu mætti þér vera ljóst að enginn kraftur
af hæðum mun nokkru sinni gera tilraun til að
leiða þig í freistni heldur og miklu frekar að gera
þér grein fyrir eigin ábyrgð semog að virða þann kraft
sem er æðri allri tilveru og skilningi og leiðast ekki
í þá villu, svima og þoku að þykjast sjálfur ofar
því öllu. Megi hin Drottinlega bæn verða
ljós á vegi þínum!

Húsari. (IP-tala skráð) 17.10.2013 kl. 14:39

6 Smámynd: Jón Magnússon

Jón Steinar það verður að gera greinarmun á Nýja og Gamla testamenntinu. Nýja testamenntið er trúarrit kristins fólks og það er að mínu mati eingöngu skírskotun í Gamla testamenntið.

Jón Magnússon, 18.10.2013 kl. 10:31

7 Smámynd: Jón Magnússon

Góð athugasemd Tómas hafði ekki hugleitt þetta.

Jón Magnússon, 18.10.2013 kl. 10:31

8 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Ómar enn á ný erum við algerlega sammála.

Jón Magnússon, 18.10.2013 kl. 10:31

9 identicon

Jón,  "Forða oss frá að falla í freistni og forða oss frá illu" er heldur stirt. En  "Forða oss frá freistni og forða oss frá illu" hefur sömu meiningu (svo að við notum nú dönsku).

EINAR S. HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 18.10.2013 kl. 10:43

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Á Wikipedia er sagt að gríska orðið sem er þýtt sem freisting, geti þýtt þetta fernt:  temptation, testing, trial, experiment. Set ensku orðin inn, svo mín íslenska þýðing rugli ekki málin enn frekar.

https://en.wikipedia.org/wiki/Lord%27s_Prayer#Sixth_Petition

Það er rétt sem Jón Steinar bendir á, að í 2. Mósebók er sagt að Guð hafi hert hjarta Faraós. Merkilegt hvað yfirlýstir trúleysingjar, eru duglegir að benda á að Guð sem er ekki til (að þeirra mati) sé mikill óþverri, þó hann sé ekki til. Hvernig það gengur upp, er önnur saga.

Reyndar er líka sagt að Faraó hafi hert hjarta sitt sjálfur og í Jakobsbréfinu er fullyrt að Guð freistar einskis manns, heldur er það hans eigin girnd sem dregur hann og tælir.

Þetta er ekki mótsögn þó það líti út fyrir að vera það. Ef syndin fær að ráða nógu lengi í lífi okkar, hefur hún áhrif á dómgreindina og Guð leyfir því að gerast af virðingu við frjálst val mannsins.

Ef við förum að kenna Guði um ef við föllum í freistni einhvern tímann þegar það gerist, hvar endar það? Hverfur þá ekki allt sem heitir ábyrgð hvers og eins á sjálfum sér og því sem hann gerir?

Theódór Norðkvist, 18.10.2013 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 29
  • Sl. sólarhring: 106
  • Sl. viku: 2514
  • Frá upphafi: 2291497

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 2287
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband