Leita í fréttum mbl.is

Af hverju vann Halldór?

Flestir töldu að Halldór Halldórsson ætti lítinn möguleika á að ná kosningu í fyrsta sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar hann tilkynnti um framboð sitt og búsetuskipti skömmu fyrir kosningar.  Júlíus Vífill Ingvarsson hafði staðið sig vel sem oddviti flokksins í Reykjavík þann skamma tíma sem hann hafði skipað þá stöðu. En svo fór að Halldór kom sá og sigraði.

Halldór stóð sig vel í kosningabaráttunni m.a. á flokksfundum fyrir prófkjörið og að því leyti sem það skiptir máli þá naut hann þess. 

Júlíus Vífill geldur fyrir það að mörgum finnst borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hafa verið helst til aðgerðarlítill og stefnulaus á kjörtímabilinu þar sem næg tilefni hafa verið til að reka kröftuga stjórnarandstöðu. Júlíusi verður þó ekki kennt um það, en krafa um breytingar vegna óánægju með frammistöðuna á kjörtímabilinu bitnuðu greinilega á honum.

Margir hafa gagnrýnt að hlutur kvenna sé rýr í prófkjörinu en það er rangt. Af þeim sem kosin voru í 10 efstu sætin skipa konur 5 og karlar 5 þó að þrír efstu hafi verið karlar, en við því mátti búast fyrirfram. Það er frekar ungt fólk í Sjálfstæðisflokknum sem ber skarðan hlut frá borði, en engin af yngri frambjóðendum náðu fylgi og sú sterka krafa um endurnýjun sem heyrðist úr röðum flokksmanna virðist ekki hafa skilað sér með mikilli endurnýjun þegar litið er á úrslit prófkjörsins.

Á flokksskrá Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru um 22 þúsund einstaklingar. Í þessu prófkjöri kusu rúmlega 5.000 eða tæp 25% flokksbundins Sjálfstæðisfólks og undir 10% af kjósendum í Reykjavík. Spurning er hvaða gildi prófkjör eins og þessi hafa til að velja góðan framboðslista fyrir kosningar og hvort lýðræðinu er best þjónað með því að hafa prófkjör í þessari mynd? Kosningaþáttakan bendir tæpast til þess.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Jón, þetta er hárrétt greining hjá þér. Hefði samt viljað sjá a.m.k. eina konu í efstu þremur sætunum. Þetta lítur ekki vel út svona, en samt vilji flokksmanna.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 17.11.2013 kl. 12:07

2 Smámynd: Jón Magnússon

Af hverju ekki Guðbjörn. Er ekki frekar spurning hvort hæfasta fólkið skipar efstu sætin en kynferði. Það á ekki að skipta neinu máli í pólitík hvort það eru fleiri karlar eða konur. Aðalatriðið er að þeir sem kosnir eru standi við það sem þeir segja og séu hæfir til að fara með almannavald.

Jón Magnússon, 17.11.2013 kl. 14:34

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Pistilshöfundur er greinilega haldinn sama heilkenni og virst vera með hægri menn, þeir átta sig ekki á mikilvægi jafnar kynjadreifingar, sem er bara gott fyrir andstæðingana sem fá alltaf meira fylgi kvenna.

Jón Ingi Cæsarsson, 17.11.2013 kl. 19:38

4 Smámynd: Jón Magnússon

Óttalegt þvaður er þetta nafni minn Cæsarsson. Það er ekkert einkenni á hægri mönnum að átta sig ekki á mikilvægi kyndreifingar. Hitt er annað mál að einstaklingshyggjufólk lítur fyrst og fremst á einstaklinginn og hæfi hans hvort heldur er karl eða kona, ungur eða gamall og metur viðkomandi á grundvelli hæfileika en ekki annars. Það er hin rétta viðmiðun.

Jón Magnússon, 17.11.2013 kl. 19:49

5 identicon

Að sjálfsögðu á að fara eftir hæfileikum en ekki kynferði. Mín vegna mættu fyrstu 10 sætin vera skipuð konum ef þær hafa unnið til þess vegna augljósra hæfileika. Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að feta í fótspor vinstri aflanna og taka upp þá ólýðræðislegu kynjaskiptareglu að vera með fléttulista, held ég að margir , og það verulega margir myndu yfirgefa flokkin. Þar á meðal lýðræðissinninn ég, sem tel mig þó með glerhörðustu Sjálfstæðismönnum.

Aðalbjörn Þór Kjartansson (IP-tala skráð) 17.11.2013 kl. 20:54

6 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála þér Aðalbjörn. Það skiptir fyrst og fremst máli að fá hæfa fulltúra.

Jón Magnússon, 17.11.2013 kl. 21:53

7 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Staða tveggja stjórnenda er auglýst laus til umsóknar,2 konur og 2 karlar sækja um. konurnar eru hæfari en karlarnir, konurnar eru ráðnar, góð stjórnun. 1 kona og 1 karl eru ráðin, verri stjórnun. Þetta er ekki flóknara!

Eyjólfur G Svavarsson, 18.11.2013 kl. 07:44

8 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Það er svolítið grunn hugsun að telja að sjálfstæðismenn eigi að láta frekar kynferði frambjóðenda en hvað þeir standa fyrir ráða atkvæði.  Mér finnst mjög sennilegt að afstaða frambjóðenda til flugvallarins hafi miklu ráðið um hvernig raðaðist í efstu sætin.  Það er ekki vænlegt til árangurs í prófkjöri að lýsa sig á öndverðri skoðun við meirihluta kjósenda, en þeir vilja halda flugvellinum í Reykjavík.

Kjartan Sigurgeirsson, 18.11.2013 kl. 16:26

9 Smámynd: Jón Magnússon

Alveg rétt Eyjólfur.

Jón Magnússon, 18.11.2013 kl. 23:45

10 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála Kjartan.

Jón Magnússon, 18.11.2013 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1022
  • Sl. sólarhring: 1036
  • Sl. viku: 1436
  • Frá upphafi: 2292812

Annað

  • Innlit í dag: 924
  • Innlit sl. viku: 1296
  • Gestir í dag: 880
  • IP-tölur í dag: 861

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband