Leita í fréttum mbl.is

Ég lofa fleiri sólardögum.

Einu sinni var stjórnmálaflokkur í Danmörku sem lofađi fleiri sólardögum, styttri vinnuviku, hćrra kaupi og mörgu öđru. Öllum var ljóst líka flokksmönnum ađ ţetta var bara grín. Ég gat ekki varist ađ hugsa til ţessa flokks ţegar ég las áramótagrein Guđmundar Steingrímssonar formanns Bjartrar framtíđar í Morgunblađinu 31. desember s.l. og raunar nokkurra fleiri formanna.

Formađur Samfylkingarinnar virđist horfinn frá vitrćnni stefnu í landbúnađarmálum. Hann virđist horfa framhjá ţví ađ í meira en hálfa öld höfum viđ keppst viđ međ ćrnum tilkostnađi ađ auka útflutning á landbúnađarvörum til annarra landa og selt kindakjöt svo áratugum skiptir til útlanda undir kostnađarverđi. Dýr stefna ţađ fyrir skattgreiđendur og landsins gćđi. Synd ađ Samfylkingin skuli hafa horfiđ frá einu af ţví fáa skynsamlega í stefnu flokksins.

Stefna Katrínar Jakobsdóttur er ađ halda áfram hallarekstri á ríkissjóđi. Áramótagrein hennar er samfelld tala um aukin ríkisumsvif ţó engin innistćđa sé fyrir auknum ríkisútgjöldum. 

Áramótagrein Jóns Ţórs Ólafssonar ţingmanns Pírata kom nokkuđ á óvart. Hún er vel skrifuđ og vísađ til mála sem eru mikilvćg, neytendamála, réttarstöđu lántakenda auk ýmis annars. Ţá er kćrkomiđ ađ loksins skuli stjórnmálamađur vísa til Peter Drucker, en hann var tvímćlalaust einn besti samfélagsrýnandi međan hans naut viđ. 

Af áramótagreinum formanna stjórnmálaflokkanna bar grein Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstćđisflokksins af sem vönduđ og vel skrifuđ. Ég hefđi ađ vísu kosiđ ađ hann hefđi fjallađ um framtíđarsýn til nokkurra ára í grein sinni, en ţađ gerir ţví miđur enginn af formönnunum.

Enginn formannanna tekur undir hatursyrđi Jóhönnu Sigurđardóttur og Steingríms J. Sigfússonar gegn frjálsu markađshagkerfi. Allir formennirnir byggja framtíđarsýn sína á virku markađshagkerfi. Sumir tala um nauđsyn ákveđinna breytinga og aukins ađhalds en sú gamla sósalíska sýn ţeirra Jóhönnu og Steingríms sem kostuđu okkur sviđ mikiđ á síđustu fjórum árum er horfin úr stjórnmálaumrćđunni. Ţađ er í sjálfu sér fagnađarefni og e.t.v. ţađ eina sem mátti greina í áramótagreinunum.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţórđarson

Ég er ekki svona duglegur ađ lesa blöđin međan ég grúska í jólabókum. En kannski ég ćtti ađ lesa Jón Ţór vegna ábendingar ţinnar. Varđandi bjartsýnisflokkinn danska sem reyndar kom manni á ţing, ţá minnist ég ţess ađ hann lofađi hjólreiđamönnum međvind. Guđmundur Steingrímsson tekur sig of alvarlega eđa hefur ekki kjark og húmor í ţannig galsa.

Sigurđur Ţórđarson, 2.1.2014 kl. 18:04

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Selja langt yfir [raun] kostnađarverđi er kennt ómögulegt, á langtíma frjálsum grunn mörkuđum, Vandratađur er hinn gullni Međalvegur. Gera út á sitt eigiđ gengi er betra á langtíma forsendu grunni , en út á nágranna [elítu] gengi.  Hér er efnislegt PPP- raunvirđi heildar ţjóđarframleiđu um 475 milljarđar PPP-krónur á móti 1650 milljarđa PPP-krónum alls á hverju ári.  Service ţćttir í heildar raunvirđi Ţjóđar framleiđslu PPP, fást međ ţví ađ draga veđhćfu efnislegu ţćttina frá.   EES ađild tryggir Svíţjóđ  lámarka service innkomu.  Vandamáliđ hér er selja efnilegt raunvirđi sem nćgri fyrir bráđnauđsynlegum efnislegum innflutningi á raunvirđi.  Vöxtur ţjónustugeira innlands  minnkar ekki ţörf á innflutning efnislegs raunvirđis.   Góđ almenn heilsa, er í samhengi viđ gott almennt húsnćđi og fćđi og klćđi og kvíđaleysi.   Sérfrćđikenningar sem kenna annađ má rekja til ASPER og Tossa Heila.   Hiđ almenna [Ríkiđ og sveitarfélög] hafa nóg međ tryggja  Góđa almenn heilsu, ef hér ríkir frjál markađur sem  mismunar ekki innlendum  kennitölum. Endurveita skatta í bćta bćđi líkamlega og andlega heilsu sem flesta  skattaskilagreiđanda.   Ţví fleiri sem skila sköttum ţví minni verđa skattar í prósentum á hvern skilanda.

Enginn einstaklingur á skila meira  18% af heildar reiđfjár innkomu í samtryggingar velferđakerfi.  ţar sem ţađ sýnir sig ađ slíkt eykur heildar Laun allra hinna tryggđu ef allir skila hlutfall jafnt : sér lagi ţeir međ innkomu.         Ţađ er hámark tekiđ af launveltum atvinnu rekenda er ţá 31%,sama tekiđ af öllu laun veltum.  Ađilar vinnumarkađa geta svo samiđ um annađ án afskipta skattmann.   Ísland ţarf ađ taka af 42 % af heildar raunvirđisframleiđslu PPP í Dag. 

Taka 31% af öllum Launaveltum  minnkar ţörf á svokölluđum sköttum á eldri eignir [viđhaldsfrekum] og líka á hćkkun Ríkislaunaveltu [sem skilar engum nýjum eignum].

Egyptar gerđu út 7 mögur og 7 feit ár miđađ viđ topp greind ţá. Viđ gerum ráđ fyrir öllum árum í Međalagi í 80% framreiđslu ţađ er í grunni. Ţađ er ekki hćgt tryggja allt.  10% innkomu mestu ţarf ekki ađ tryggja.       Sjálfvirkni í skattaskilum er best.

Júlíus Björnsson, 3.1.2014 kl. 23:21

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 178
  • Sl. sólarhring: 1199
  • Sl. viku: 5922
  • Frá upphafi: 2277673

Annađ

  • Innlit í dag: 173
  • Innlit sl. viku: 5479
  • Gestir í dag: 171
  • IP-tölur í dag: 168

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband