Leita í fréttum mbl.is

Markaður og neytendur

Þar sem markaðsstarfsemin er fullkomin er samkeppnin virk og upplýsingamiðlun til neytenda með þeim hætti að þeir vita hvar er hægt að gera hagkvæmustu kaupin. Þannig er það ekki hér á landi. Fákeppni, takmörkuð samkeppni eða jafnvel engin er víða á íslensum markaði.

Þegar ríkisvaldið gerir viðamiklar skattabreytingar sem eiga að leiða til verulegra breytinga á vöruverði er mikilvægt í landi fákeppninnar að vel sé fylgst með því að verðbreytingarnar leiði ekki til verulega hærra vöruverðs. Þegar tvö núll voru tekin aftan af krónunni á sínum tíma var þess ekki gætt sem skyldi sem leiddi til þess að verð hækkaði mikið á ákveðnum vöruflokkum.

Þegar ráðherra neytendamála segir að það eigi ekkert að gera vegna skattabreytinganna og markaðurinn muni sjá um þetta þá vantar stærðir í dæmið svo að þetta virki eins og neytendamálaráðherra segir að það muni gera. Í fyrsta lagi þarf að vera virk samkeppni á markaðnum og í öðru lagi þurfa neytendur að hafa greiðan aðgang að upplýsingum um vöruverð.

Þegar hvorugu er til að dreifa þ.e. þær vörur sem eru að taka verðbreytingum eru flestar á fákeppnismarkaði og neytendur hafa ekki nægjanlega góðar upplýsingar um vöruverð og gæði þá er nauðsynlegt til að markaðsstarfsemin virki betur að greið og góð upplýsingamiðlun sé til neytenda.

Þess vegna ætti ráðherra neytendamála að endurskoða afstöðu sína í þessu máli og standa fyrir því að ríkisstjórnin feli þeim aðilum á markaðnum sem hafa haft virkast eftirlit með verðlagningu til neytenda, Neytendasamtökunum, ASÍ og aðilum sem halda úti upplýsingum á eigin vegum, að fylgjast vel með verðbreytingum næstu mánuði þannig að verðbreytingar skili sér með eðlilegum hætti til neytenda. 

Tímabundið átak til að fylgjast með verðlagi og miðla upplýsingum til neytenda er nauðsynlegt nú og næstu mánuði til að tryggja eðlilega samkeppni og láta þá sem standa sig í verslun njóta afraksturs erfiðis síns.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef aldrei skilið afhverju það er ekki hægt að hafa einhvera síðu, verdsamanburdur.is eða eitthvað þar sem væri hægt að bera saman sömu vöru t.d. í bónus, krónunni, kosti , fjarðarkaupum, víði og nettó ?

Er ekki 2015 ? eru ekki allir með tölvukerfi ?

Væri eflaust hægt að hafa þetta sjálfvirkt út úr kerfum verslunanna þegar verðin breytast.

Fyrir mig sem neitanda væri mjög gott að geta borið þetta saman og fundið út hvar innkaupalistinn minn er hagstæðastur.

Emil Emilsson (IP-tala skráð) 4.1.2015 kl. 11:52

2 Smámynd: Jón Magnússon

Góð ábending Emil. Þakka þér fyrir hana.

Jón Magnússon, 4.1.2015 kl. 20:18

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ég held að verðlagseftirlit dugi ekki í vissum greinum sama hversu gott það eftirlit sé. Innalandsmarkaðurinn er bara alltof lítill til þess að samkeppnin virki. Þetta á við t.d með bankana. Til þess að nægilegt aðhald sé til staðar verður að koma til banki í eigu almennings eða ríkisbanki. Olíufélögin eru annað dæmi. En ég horfi til rafbílavæðingar eftir 2-3 ár sem sennilega mun gefa almenningi val hvað þetta varðar. 

Jósef Smári Ásmundsson, 4.1.2015 kl. 22:03

4 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Það er frjáls álagning á flestar ef ekki allar vörur á Íslandi, því er óþarfi að endurvekja opinbert verðlagseftirlit.

Persónulega lít ég ekki á það sem hlutverk hins opinbera að fara í "name and shame" herferðir gegn einstökum fyrirtækjum.

Það þýðir hins vegar ekki að ég sé að móti virku verðlagseftirliti.

Ég sé samt t.d. ekki þörfina á því að ríkið leggi ASÍ til fé til að hafa eftirlit með fyrirtækjum, sem mörg hver eru í eigu lífeyrisjóðanna.  Er ASÍ fjárvana?

Er ASÍ það ofviða að standa að verðlageftirliti til hagsbóta fyrir félagsmenn sína? 

Það gæti einnig verið sameiginlegt verkefni allra verkalýðssamaka á landinu.

Það sem ég er einfaldlega að benda á að það er skrýtið að horfa alltaf til hins oinbera.

Að því leyti er ég sammála Ólöfu Nordal, að afskipti hins opinbera eru óþörf.

Það er rétt að hafa í huga að það eru fleiri öfl á markaði en kaupmenn.

G. Tómas Gunnarsson, 5.1.2015 kl. 05:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 884
  • Sl. sólarhring: 964
  • Sl. viku: 2414
  • Frá upphafi: 2293882

Annað

  • Innlit í dag: 796
  • Innlit sl. viku: 2187
  • Gestir í dag: 754
  • IP-tölur í dag: 736

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband