Leita í fréttum mbl.is

Svo verður sungið og spilað á sítar og mandólín tvö

Morgunblaðið hefur í vetur verið pólitísk öndunarvél Margrétar Sverrisdóttur. Allt var það gert til að fá Margréti til að koma deilum af stað innan Frjálslynda flokksins og koma henni í pólitíska eyðimerkurgöngu. Það tókst, en nú hefur flokkurinn náð vopnum sínum. Óskaframboðið sem átti að sundra Frjálslynda flokknum, draga fylgi frá Vinstri grænum til að ríkisstjórnarflokkarnir héldu meirihluta sínum - hefur ekki náð að gera sig svo sem Morgunblaðsmenn og aðrir Sjálfstæðismenn ætluðust til.

Vonbrigðin leyna sér ekki.

Staksteinar í dag segja að það sé svo sem í lagi að syngja fyrir kjósendur og er þá vísað til Ómars Ragnarssonar en það sé ekki nóg. Þá segir að það dugi ekki fyrir Íslandshreyfinguna að lofa því að gera lífið skemmtilegra og staksteinahöfundur spyr. Hvernig ætlar fylkingin að standa við þetta?

Þetta minnti mig á sólskinsflokk í Danmörku sem fór fram með þau kosningaloforð að lofa betra veðri, styttri vetrum og hamingjusamara þjóðlífi og fallegra fólki. Allir vissu að þetta var í gamni. 

Staksteinahöfundur telur að framboð Ómars og meðreiðarfólks hans í Íslandsfylkingunni sé þannig að ekki sé hægt að taka það alvarlega. "Geir kann líka að syngja"; - segir Staksteinahöfundur.  En í lokin kemst Staksteinahöfundur að kjarna málsins. Pólitík er alvörumál. Talibanísk viðhorf varðandi Kárahnjúkavirkjun eiga ekki erindi í umræðuna í dag. Baráttan um það stóð fyrir 4 árum. Þá tók Ómar Ragnarsson ákvörðun um að sitja hjá. Nú vill hann berjast um fallið vígi með söng og dansi.

Og svo verður sungið og spilað á sítar og mandólín tvö og komdu og höndlaðu Ómar það hefst klukkan rúmlega sjö - eða hvað? 

Hefst það ef til vill ekki?


mbl.is Margrét: Stjórnmál 21. aldar snúast um mannauð, hugvit og nýsköpun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er kannske rétt að minna dálítið meira á "kollega"Ómars Ragnarssonar sem m.a.lofaði meðvindi á öllum hjólabrautum auk þess sem þú nefndir:

Jacob Haugaard har i mange år været indbegrebet af speciel dansk humor, vor han så langsomt begyndte at gøre sig bemærket, da han stod frem med foreningen af "Bevidst Arbejdssky Elementer" med sloganet ...Hvis det er så sundt at arbejde, så sæt de syge til det ! Og sådan fortsatte Jacob Haugaard med mærkværdige forslag i sin valgkamp på vejen mod Folketinget.+

Kveðja

Solir

Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 21:18

2 identicon

Það stóð nú ekki á áhuga fjölmiðla þegar fréttist að Íslandshreyfingin hefði rétt slefað yfir 5% mörkin. Sjónvarpið og netMoggi ráða sér ekki fyrir kæti. Meira að segja vitnað í sýn Margrétar fyrir 21 öldina. Sýnin er hins vegar um gömul og þekkt sannindi frá fyrri tíð.

Gústaf Níelsson (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 21:43

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér þykir furðulegt að flokkur sem hefur ekki gefið út neina stefnuskrá, og enga frambjóðendur skulu fá þó þetta mörg atkvæði.  Það er eitthvað að grassera í þjóðarsálinni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2007 kl. 01:45

4 Smámynd: Einar Ben

Jacob Haugaard hafði einnig á stefnuskránni að það skyldi alltaf vera meðvindur á  dönskum hjólastígum....

þegar hann svo náði kjöri var þetta loforð hermt uppá hann....

Svaraði hann þá til, að ef við fáum vindinn í andlitið þegar við erum úti að hjóla, þá snúum við bara hjólinu í hina áttina og hjólum með vindinn í bakið....málið dautt.....

kv. af skaga

Einar Ben, 31.3.2007 kl. 11:15

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins og nýjustu könnun Capacent Gallup kemur fram að framboð Íslandshreyfingarinnar er forsenda þess að koma í veg fyrir að stóriðjuflokkarnir að viðbættum þriðja stóriðjuflokknum, Frjálslynda flokknum, fái meirihluta.

Hvernig er hægt að finna það út að 46 prósenta samanlagt fylgi núverandi stjórnarflokka sé meirihluti eins og gefið er í skyn?

Fundir Íslandshreyfingarinnar hafa flestir staðið í hátt á annan klukktíma vegna áhuga gestanna. Sunginn hefur verið einn hugsjónaþrunginn baráttusöngur í miðri dagskrá og einn kveðjusöngur, "Sjáumst á ný" (We´ll meet again) í lokin.

Það eru nú allir tónleikarnir. Á einum stað í stefnuskránni kemur orðið "skemmtilegt" fyrir og hefur þar svipað hlutverk og orð eins og "betra og innihaldsríkara líf" eða "bætt kjör" hafa gegnt í stefnuskrám flokka. Ég sé enga samsvörun með svona orðalagi og því að lofa meðvindi á hjólastígum.

Ómar Ragnarsson, 31.3.2007 kl. 14:33

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ómar ég skil ekki af hverju þú kallar Frjálslynda flokkinn stóriðjuflokk. Ef það er svo að okkar stefnuskrá þýðir stóriðju, þá er í þínum ranni Margrét Sverrisdóttir sem er einn af höfundum málefnahandbókar F.  Og hún er þá þar með stóriðjusinni.  Fólk sem fullyrðir svona missir trúverðugleika sinn.  Stefna frjálslyndra hefur ekki breyst um stafkrók. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2007 kl. 15:50

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Í komandi kosningum er nær öruggt að Sjálfstæðisfokkurinn mun vera í aðstöðu til að velja sér samstarfsflokk nema eitthvað algerlega nýtt komi til sögunnar.

Þetta karp um keisarans skegg sem maður sér á milli litlu flokkanna og núna nýrra framboða er akkúrat það sem hjálpar Sjálfstæðisflokknum þannig að ef fólk vill það þá er um að gera að halda áfram þessu karpi. 

Samfylkingin er/var fólk sem var búið að ganga í gegnum öll þessi þroskastig gagnvart íhaldinu og eftir áratuga meðgöngu þá var ákveðið hjá þeim að sameinast í einn flokk, sameina 3 litla flokka. Einungis það mundi geta komið þeim eitthvað áfram í pólitíkinni.

Það var ekki fyrr en Samfylkingin skilgreindi sig sem "stjórnarflokk" sem hún missti flugið en að vera "stjórnarflokkur" þýðir að hætta að skjóta á Sjálfstæðisflokkinn til að auka líkurnar á að hann muni velja "Stjórnarflokk" sem meðspilara.  Framsóknarflokkurinn er líklega að falla svo saman eftir langa þæfingu og misnotkun Sjálfstæðisflokksins að líklega þarf Sjálfstæðsflokkurinn nú að skipta um og hella sér á annan flokk  eftir kosningar.

Íslandshreyfingin hefur einmitt með leyfi Frjálslyndaflokksins komið Frjálslyndum í þá stöðu að þeir verða alls ekki fyrir valinu og líkur Samfylkingarinnar á stjórnarþáttöku aukast eftir því sem Frjálslindir og Íslandshreifingin karpa meira. 

VG blandast ekki inn í þetta þar sem þeir eru hvorki "stjórnarflokkur" né í karpinu við Frjálslinda. Þeir eru hinsvegar sniðugir og geta tekið hvaða stefnu sem er fyrirvaralaust.

Sigurður Sigurðsson, 8.4.2007 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 416
  • Sl. sólarhring: 995
  • Sl. viku: 6160
  • Frá upphafi: 2277911

Annað

  • Innlit í dag: 389
  • Innlit sl. viku: 5695
  • Gestir í dag: 380
  • IP-tölur í dag: 371

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband