Leita í fréttum mbl.is

Brennivínsmeingenið fundið

Enn eitt meingen hefur verið uppgötvað af forstjóra íslenskrar erfðagreiningar. Nú er það áfengismeingenið. Þetta meingen hefst illa við í nágrenni við áfengisútsölur að sögn forstjórans.

Þetta með áfengismeingenið er raunar ansi skondin uppfinning hjá Kára Stefánssyni og fróðlegt verður að lesa um það í virtum vísindaritum ef uppfindingin skyldi einhvern tíma rata þangað.

En þetta þráláta deilumál með áfengi í verslanir tekur á sig endalausar furðumyndir. Neysla á áfengi og öðrum neysluvörum fer eftir verði og aðgengi. Nú er aðgengi meginhluta almennings að áfengi svo mikið, að ekki verður séð að brýna nauðsyn beri til að troða því einnig í hillur matvörubúða. Á hinn bóginn verður ekki séð að aðgengið aukist til neinna muna þó að áfenegi fari í matvörubúðir miðað við ástandið eins og það er. Þannig að vesenast með það er dæmigert upphlaup sem þessari þjóð er svo tamt varðandi minni háttar atriði.

En svo er það spurning um frelsið. Mér finnst þjóðfélagslega óæskilegt að fólk reyki, drekki áfengi,  borði óhollan mat, teikni særandi myndir af Jesús eða Múhameð og svo mætti lengi telja, en ég vil ekki fórna frelsi borgarana og láta meingenafræðinga, stjórnmálamenn eða hryðjuverkamenn eyðileggja frelsið til að  passa fólk fyrir sjálfu sér eða ákveða hvar mörk tjáningafrelsisins liggja.

Eða eins og einn góður maður sagði forðum prentfrelsið og sorinn ganga hönd í hönd við verðum að þola sorann t.d. klámið ef við ætlum ekki að vinna tjáningafreslinu óbætanlegt tjón.

Ef kaupmaðurinn á horninu vill selja áfengi og Kári Stefánsson vill kaupa það af honum á þá að banna báðum að eiga þau viðskipti? Hvaða vitræna glóra er það í frjálsu landi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Góður punktur hjá þér Jón í síðustu málsgreininni, "Ef kaupmaðurinn á horninu vill selja áfengi", er búið að spyrja hann hvort hann sé tilbúinn í allan þann kostnað sem því fylgir gegn mjög takmarkaðri álagningu? Eða mun þetta hleypa áfengisverði upp til að kaupmaðurinn geti rekið hallalaust  þennan hluta verslunarinnar?

Ég trúi ekki að það komi andstæðingum áfengis í verulega vont skap.

En hvað er hægt að gera við öll meingenin sem Kári er að finna, þarf ekki að gera eitthvað í því máli? Er leiðin ef til vill að gera könnun á meðan á meðgöngu stendur og foreldrum gefinn kostur á að "setja á" aðeins villulaus fóstur?

Þetta er eflaust örlítið dökkur "húmor" en maður veltir fyrir sér til hvers er leikurinn gerður.

Kjartan Sigurgeirsson, 10.3.2015 kl. 11:15

2 Smámynd: Svanur Guðmundsson

Með sömu rökum getum við sagt að lyf og fíkniefni megi selja í dagvörubúðum. Vissulega er það gróf samlíking en sönn. Reyndar er ég á báðum áttum með áfengi í búðum og ég efast um að þjónustan batni við það. Ég hef hvergi fundið sundurliðaðan kostnað á áfengi og á ég við hversu mikið er lagt á það eftir að tappagjald, vínandaskatt ofl. hvað sem skattarnir heita nú allir saman. Vissulega aðhyllist ég frelsið en áfengið er vissulega lýðheilsumál.

Svanur Guðmundsson, 10.3.2015 kl. 11:42

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón. Væri ekki réttast að hafa bara eina vínbúð á landinu. Og svo eru það bara letingjarnir hans Kára, sem ekki keyra landið þvert og endilangt, til að sækja sér löglega leyfilega neysluvöru?

Kári og co gætu til dæmis keyrt austur á Egilsstaði til að sækja sér þessa lögleyfðu neysluvöru? Ekki er Kári og co svo latir einstaklingar, að þeir nenni ekki slíku smáræði?

Þetta er að sjálfsögðu afskaplega ýkt dæmi hjá mér, en um þetta snýst í raun aðgengi að löglegra söluleyfðri vöru á Íslandi. Eða banna annars bara áfengi á Íslandi? Hvað segja Kári og co um það?

Verst með blessuð börnin sem veidd eru í net sölumanna dauðans, við grunnskóla/framhaldsskólahornin. Þau liggja vel við höggi, sem glíma við erfiðleika innan veggja skólanna vegna m.a lesblindu og einbeitingarskorts. Og vegna skaðlegrar heilaþvottakúgandi skylduskólapólitíkur opinbera kerfisins.

Við skólahornin bíða sölumenn eiturbrasandi ólöglegra hvítflibbastýrðu okursalanna! Þar er aðgengið að ólöglegri eitursöluvöru undirheimanna svörtu og rán-dýru, meira en vel aðgengilegt. Hreinlega bara fyrstskammtagefið og söluklækjablekkt inná blessuð varnarlaus börnin!

Hvar er umræðan um það hættulegasta eftirlitslausa og stærsta "leyfða/aðgengilega", en þó ólöglega spillingarfíkniefna-undirheima-okursölumál?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.3.2015 kl. 14:01

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það er alltaf dýrmætara að vísa veginn inn í framtíðina og hugsa í lausnum frekar að flagga vandamálum: 

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1415089/

Jón Þórhallsson, 10.3.2015 kl. 14:15

5 Smámynd: Jón Magnússon

Meingenin hans Kára hafa aldrei orðið annað en meingen í hans munni Kjartan. Ég veit ekki til að nákvæm staðsetning eða lækning hafi nokkru sinni verið til staðar af einu hvað þá fleiru af þeim ósköpum sem Kári og félagar hafa uppgötvað. En fjölmiðlar skýra ekki frá því.  Ég er sammála þér í því með fóstur og meingen og á þetta hefur verið bent og spurt siðfræðilegra spurninga og þar situr málið. Stundum er gott að vita ekki of mikið fyrirfram.

Jón Magnússon, 10.3.2015 kl. 17:26

6 Smámynd: Jón Magnússon

Í sjálfu sér gætum við það Svanur ef aðgengi að lyfjum og öðrum fíkniefnum en áfengi væri jafn almennt til staðar og aðgengið að áfengi. Raunar tel ég að við eigum að taka upp miklu frjálsari löggjöf varðandi lyf og láta lyfsalana í auknum mæli geta ávísað lyfjum til fólks sem hefur fengið fyrri tilvísanir.

Jón Magnússon, 10.3.2015 kl. 17:28

7 Smámynd: Jón Magnússon

Sölumenn dauðans eru frekar þeir sem selja ólögleg fíkniefni frekar en hin löglegu Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Magnússon, 10.3.2015 kl. 17:29

8 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála því Jón

Jón Magnússon, 10.3.2015 kl. 17:29

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég sel það ekki með álagningu en mér er sagt að ef fólk vilji kaupa gras þá sé heimsendingarþjónusta í boði ef um vikuskammt er að ræða.

Sigurður Þórðarson, 10.3.2015 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 54
  • Sl. sólarhring: 1262
  • Sl. viku: 1584
  • Frá upphafi: 2293052

Annað

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 1438
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 47

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband