Leita í fréttum mbl.is

Gyðingahatur?

Vinstri meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur samþykkt að sniðganga vörur framleiddar í Ísrael svo lengi sem "hernám" Ísraelsmanna á landssvæði Palestínu varir".  Miðað við orðalag samþykktarinnar þá er sá skýringarkostur tækur að  vinstri menn við stjórn Reykjavíkurborgar vilji ekki hafa viðskiptaleg samskipti við Ísrael fyrr en landamærin frá 1967 hafa orðið til að nýju. Öllum er ljóst að þau landamæri verða aldrei virk aftur þannig að samþykktin tekur þá til viðskiptabanns á Ísrael um aldur og ævi miðað við orðalag tillögunnar.

Annar skýringarkostur á tillögu vinstri meiri hlutans í Reykjavík er þó e.t.v. nærtækari, þar sem þeir tala um hernám Ísraels á Palestínu.

Hvað er Palestína? Paelestína eða Filistaland, er allt það landssvæði sem núverandi Ísrelsríki tekur yfir og gott betur. Ber þá að skilja það svo að vinstri meiri hluti borgarstjórnar Reykjavikur hafi þá stefnu að Ísraelsríki hverfi af landakortinu og Gyðingar verði flæmdir burtu af því svæði sem nú heitir Ísrael. Miðað við orðalag tillögunar þá er nærtækast að skilja samþykkt meirihluta borgarstjórnar með þeim hætti.  

Vera kann að meiri hluti borgarstjórnar Reykjavíkur hafi ekki ætlað sér að samþykkja rasíska tillögu sem felur í sér megnt Gyðingahatur. Ég ætla þeim sem skipa meirihlutann það ekki, en orð geta verið dýr og samþykktin felur einmitt það sem að ofan greinir í sér.

Þó mörgum finnist framferði Ísraelsmanna ámælisvert t.d. varðandi Gasasvæðið, landnemabyggir, aðskilnaðarmúrin, hernám Vesturbakkans og ekki skuli hafa verið samið um sjálfstætt ríki Palestínumanna sem ég styð eindregið, þá er ekki hægt að horfa á Ísrael og Gyðinga með annarri mælistiku en aðrar þjóðir. Hvað t.d. með Katar og Saudi-Arabíu sem styðja hryðjuverkasamtök og eiga stóran hluta af stórverslunum Lundúnaborgar og ýmislegt fleira. Hvað með Kína eru þeir betri gagnvart Tíbet?

Vonandi hefur meiri hlutinn samþykkt þessa vitlausu tillögu í athugunarleysi, en þá má fella hana úr gildi á næsta borgarstjórnarfundi. Verði það ekki gert þá er ekki hægt að líta á það með öðrum hætti en þeim að vinstri meiri hlutinn í Reykjavík sé á móti sjálfstæðri tilvist Ísraelsríkis og hafi sérstaka andúð á Gyðingum. Þess vegna er óskandi að einhverjir í þessum meiri hluta sjái að sér og afturkalli þessa vitleysu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Jón þú ætlast til mikils frá meirihlutanum ef þú heldur að þau komi til með að vera með yfirvegaða hugsun.

Því miður þá verð eg að verða þér fyrir vonbrigðum, þetta fólk í meirihlutanum er með pólitískan sérvitringa hugsunarhátt og spáir ekkert í hvað þetta er vitlaus tillaga.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 16.9.2015 kl. 15:11

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Gyðingahatur ? Það finnst mér nú ekki alveg rétt? Þó Írael sé að meirihluta byggt gyðingum þá eru samt cirka 20% múslimar í landinu og voru ekki öfgagyðingar að brenna kirkju til grunna á dögunum. Þá hljóta þá að vera einhverjir kristnir líka. Er þetta ekki bara sambærilegt við rússana sem fengu viðskiptabann vegna þess að þeir réðust inn í Úkraínu ? En þetta eru að sjálfsögðu ekki einu ríkin sem ætti að beina spjótum að. Hvað með Kína t.d.?

Jósef Smári Ásmundsson, 16.9.2015 kl. 21:01

3 Smámynd: Jón Magnússon

Rétt athugað Jóhann.

Jón Magnússon, 16.9.2015 kl. 23:04

4 Smámynd: Jón Magnússon

Skoðaðu tillöguna og röksemdirnar Jósef. Þá sérðu að þessu er beint gegn Gyðingum einum.

Jón Magnússon, 16.9.2015 kl. 23:04

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ég hélt að þú sem háksólagengin maður ættir að þekkja munin á því að fordæma glæpaverk Ísraelsstjórnar og gyðingahatri. Það sama á við um viljan til að refsa ísraelum fyrir glæpaverk sín og þvinga þá til að láta af þeirri  hegðun, Það á ekkert skylt við gyðingahatur. Þessi aðgerð beinist gegn Ísrael en ekki gyðingum.

 

Það er því ekkert gyðingahatur fólgið í samþykkt borgarstjórnar Reikjavíkur og þaðan af síður einhvers konar rasismi.

 

Ástæða þess að hér er nefnd vopnahléslínan frá 1967 er sú að öll lönd í heiminum þar með talið Bandaríkin og Sameinuðu þjóirnar líta á allt hernám Ísraela utan hennar sem ólöglegt hernám. Þau líta einnig á landránsbyggðir þeirra á herteknu svæðunum sem brot á alþjóðalögum sem þær eru svo sannarlega. Það er meira að segja svo hernám Ísraela í stríðinu sem fór fram á árunum 1948 til 1949 hefur ekki enn verið formlega samþykkt sam ísraelst land af neinni þjóð og er það ástæða þess að ekkert land, ekki einu sinni Bandaríkin, eru með sendiráð sitt í Jerúsalem því ekkert land hefur formlega viðurkennt Jerúsalem sem löglegan hluta Ísraels, ekki einu sinni vesturhlutan. En þar sem Palestínumenn sjálfir hafa gefið út að þeir séu tilbúnir til að samþykkja Ísrael innan vopnahlélsínunar frá árinu 1967 þá er sú lína nefnd. Það er ekkert sem réttlætir það að Ísraelar fái að halda svo mikið sem fermillimeter utan þeirrar línu og það er ekkert annað en tregða Ísraela til sanngarnra friðarsamininga sem kemur í veg fyir að hún myndi landamæir ríkjanna.

 

Hér er því aðeins verið að senda grimmu hernámsveldi skilaboð um að frekara landarán og kúgun á Palestínumönnum verði ekki liðið og geti haft slæmar afleiðingar. 

 

Þessi samþykkt borgastjórnar Reykjavíkur er því hluti mannréttindabaráttu þar sem verið er að freista þess að leggja sitt lóð á vogaskálarnar til að lina og helst afnema grimmilega kúgun á milljónum manna. Að kalla það "gyðingahatur" segir meira um þá sem láta slíkt frá sér en þá sem því orði er beint að.

Sigurður M Grétarsson, 17.9.2015 kl. 07:29

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er sammála þér, nafni, hér býr undir gömul og rótgróin Gyðingaandúð þessa fólks. Það er að misnota borgarstjórn til að koma í gegn enn einni jaðar-áherzlunni, enn einni róttækninni, sem þau draga upp úr Pandóruboxi sínu, sjálfum sér til skammar, og skeyta því engu, að engin lagaheimild er til þessa verknaðar, eins og kollega þinn, Einar Gautur Kristjánsson hrl., benti á með frábærlega skýrum hætti.

Þar fyrir utan er líklega ómögulegt að fylgja viðskiptabanninu eftir.

Mjög vel upplýstur maður, Kristinn Eysteinsson, ritar á Facebók:

"Ég starfa hjá Reykjavíkurborg, en ég veit ekki hvað ég get gert það mikið lengur eftir að Borgin er búin að ganga í lið með gyðingahöturum og lýsa yfir viðskiptabanni á eina lýðræðisríkið í Miðausturlöndum. Sagt er að þetta sé vegna mannréttindabrota sem Ísrael fremur, en það er ekkert ríki í Miðausturlöndum sem hefur betri mannréttindi en einmitt Ísrael.

Einnig er minnst á hernám, en þarna er ekkert hernám til staðar. Menn myndu sjá það ef þeir höfðu fyrir því að fletta upp á því hvað hernám í raun er. Enginn Ísraeli, hvorki hermaður né óbreyttur borgari, hefur búið á Gaza síðan 2005. Það er Hamas, en ekki Ísrael sem stjórnar Gaza. Þar sem engir hermenn eru á staðnum og engin herstjórn, er ekki um hernám að ræða.

Vera Ísraels í hluta af Júdeu og Samaríu (sem vestrænir fjölmiðlar kalla "Vesturbakkann") er í samræmi við Óslóarsamkomulagið, sem s.k. "Palestínumenn" skrifuðu undir. Þar sem Ísrael er þarna með samþykki stjórnvalda, þá er það ekki hernám heldur.

Rökin sem gefin eru fyrir þessu viðskiptabanni standast ekki. Það eina sem er þarna á bak við í raun er Gyðingahatur (nema menn vilji halda fram að stjórnmálamenn hafi ekki hundsvit á því sem þeir eru að gera og hafi bara látið glepjast af áróðri og lygum frá Hamas og öðrum hryðjuverkasamtökum, sem gæti svosem verið).

Ég vil ekki vinna fyrir gyðingahatara, en það gæti vel verið að sú ákvörðun yrði tekin fyrir mig, ef menn ætla að standa við þessa mjög svo vanhugsuðu ákvörðun. Ég vinn hjá tölvudeildinni, og það er ekki hægt að reka hana án ísraelsks tæknis. Verið er að spjaldtölvuvæða grunnskólana, mest með iPad-tölvum, en örgjörvarnir í þeim eru framleiddir í Ísrael. Þjöppunar-algoriþminn sem notaður er í .JPG, .PDF, .GIF, .TIF, .ZIP og fleiri skrár er fundinn upp af Ísraelum. Hluti af Windows-stýrikerfinu, sem er á næstum því öllum tölvum Borgarinnar, er þróðaður í Ísrael. USB-lykillinn var fundinn upp í Ísrael. Þannig væri lengi hægt að telja. Ef menn ætla að gera alvöru úr þessu, þá verða þeir að leggja tölvudeildina niður, henda öllum tölvum og fara aftur að nota eingöngu blað og blýant." --Tilvitnun lýkur.

Og það þarf, Jón, að knýja fram svör þessara vinstri manna í borgarstjórn, hvað þau eigi nákvæmlega við með því að "sniðganga vörur framleiddar í Ísrael" svo lengi sem "hernám" Ísraelsmanna á landsvæði Palestínu varir". Hvað meina þau með "hernámi"? og hvaða svæða? (Nánar seinna!)

Margt gott er ritað á málin á Facebók, hér er eitt:

Daníel Þorsteinsson ritar: "Þessi ákvörðun borgastjórnarinnar hefur náð til fólks erlendis og ég hef séð fólk, sem er annt um Ísrael, tala um að boycott-a Ísland, þ.e. það ætlar ekki að ferðast hingað til lands. Ef það gerist og með einhverjum þunga, þá munu menn hér á landi væntanlega reka upp ramakvein og ekkert skilja í ósvífninni. Heimskan í þessu borgarstjórnarliði ríður ekki við einteyming ..."

Jón Valur Jensson, 17.9.2015 kl. 12:47

7 Smámynd: Jón Magnússon

Hefur háskólamenntun eitthvað með þetta að gera Sigurður. Mín rök koma fram í því sem ég hef skrifað þú getur haft þína skoðun og rök mín liggja fyrir og þín sjónarmið breyta engu um afstöðu mína þarna er því miður hreint Gyðingahatur á ferðinni.

Jón Magnússon, 17.9.2015 kl. 13:01

8 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir þessa góða úttekt Jón Valur.

Jón Magnússon, 17.9.2015 kl. 13:01

9 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þessi fullyrðing þín um gyðingahatur þegar verið er að beita grimmilegt hernámsveldi þrýstingi til að láta af framferði sínu er í takti við það sem stuðningsmenn Ísraela eru alls staðar að gera. Þeir gera mikið af því að ásaka menn ranglega um gyðingahatur eins og þú gerir hér. 

þetta er ekkert annað en aumt skítkast og persónuníð sett fram með það að markmiði að gera gagnrýnendur ísraelsríkis ótrúverðuga. Þetta er herbragð rökþrota manna.

Enég hélt bara að þeir sem hafi lokið háskólanámi hafi næga þjálfun í rökhugsun til að sjá munin á því að geita stríðsglæpamenn þrýstingi og refsiaðerðum og því að hata alla sem eru sömu trúar og stríðsglæpamennirnir.

Reyndar eru engin rök fyrir því í greininni hvernig þetta getur talist gyðingahatur. Eru þeir sem styðja viðskiptabanna á Rússa vegna framferðis þeirra í Úkraínu einhverjir sérstakir hatursmenn fmeðlina í rússneesku réttrúnaðarkirkjunni?

Það er svo fráleitt að tala um aðgerðir borgarstjórnar Reykjavíkur sem gyðingahatur að það segir ansi mikið um þá sem láta sér slíkt um munn fara.

Sigurður M Grétarsson, 17.9.2015 kl. 14:21

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kristjón Benediktsson ritar áhugaverðan texta á Facebók: 

"Félagi minn einn, mikill stuðningsmaður Pírata og einlægur Mac-notandi, verður nú að hætta að nota tölvur.

-Jú mikið af framleiðsluvörum frá Ísrael eru í tölvunni hans.

Hann er á leið útí búð til að kaupa sér góðan penna og skrifblokk. Síðan ætlar hann í pósthúsið til að kaupa sér frímerki.

-,,Ég stend með mínum mönnum í gegnum þykkt og þunnt. Dagur B. Eggertsson er minn maður. Við píratar styðjum hann" ...segir hann mæðulega þá er hann hendir tölvunni í ruslið!"

Jón Valur Jensson, 17.9.2015 kl. 14:28

11 Smámynd: Axel Pétur Axelsson

hvort er ísræl trú eða ríki ? . . varla er bæði . . . ef einhver mótmælir stríðsglæpum ríkisins ísræl er hann þá að hata einhverja trú ? . .

Axel Pétur Axelsson, 17.9.2015 kl. 20:28

12 Smámynd: Jón Magnússon

Sigurður Nasistarnir byrjuðu a viðskiptabanni a Gyðinga. Það sama er borgarstjorn Reykjavikur að gera.

Jón Magnússon, 17.9.2015 kl. 23:25

13 Smámynd: Jón Magnússon

Goð abending Jon Valur.

Jón Magnússon, 17.9.2015 kl. 23:26

14 Smámynd: Jón Magnússon

Israel er riki. Gyðingdomur er tru

Jón Magnússon, 17.9.2015 kl. 23:26

15 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Jón. Þetta er auma athugasemdin hjá þér kl. 23:25. 

Í fyrsta lagi er borgastjórn Reykjavíkur ekki að setja viðskipabann á gyðinga heldur Ísrael. Eins og þú sjálfur bendir á í athugasemd kl. 23:26 þá er þetta ekki sami hluturinn.

Í öðru lagi þá er munur á því þegar ríkisvald setur viðskiptabann á ákveðin minnihlutahóp í sínu landi og því þegar verið er að beita refsiaðgerðum gegn ríki sem þverbrítur alþjóðalög og hefur gert í áratugi til að freista þess að þrýsta á viðkomandi ríki að fara að lögum. Það er eðlismunur þarna á.

Það er því svo fráleitt að bendla þessar aðgerðir borgarinnar við gyðinahatur að það gjalfellur allt sem þeir segja sem láta slíkt dómsdagsbull út úr sér. Og að líkja þessum aðgerðum borgarinnar við ofsóknir Nasista gegn Gyðingum er ekkert annað en lítilsvirðing við fórnarlömb Nasista. Svo fáránleg er sú samlíking.

Ég bara spyr. Hefur þú betri hugmyndir um það hvernig hægt er að þvinga Ísraela til að fara að alþjóðalögum. Það er komin nokkurra áratuga reynsla á það að diplómatísk samskipti gagnast ekkert í því efni. Ísraelar munu halda áfram sínu landráni og kyþáttahreinsunum þangað til þeir verða stoppaðir af með valdi eða ná að klára að sölsa undir sig allt land Palestínumanna nema kannski smá horn til að setja þá þeirra á sem þeri eru ekki búnir að slátra.

Sigurður M Grétarsson, 18.9.2015 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 1682
  • Frá upphafi: 2291572

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 1510
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband