Leita í fréttum mbl.is

RÚV okkar allra

Ný skýrsla um RÚV sýnir það sem margir sáu skýrslulausir að RÚV er illa stjórnað, rekstur þess er allt of dýr og of margir eru að gera það sem færri gætu gert. Samkór menningarvita hefur þá upp sinn árlega kórsöng um aðför að RÚV. En hver er að gera aðför að RÚV? Er það aðför að fyrirtæki ef því er stýrt lóðbeint til andskotans?

Svo byrjar síbyljan um vonda íhaldsmenn sem vilja RÚV feigt. Þannig er það ekki. Það eru hinir eiginlegu íhaldsmenn sem mynda hollvinasamtök RÚV. Frjálslynt fólk vill að borgararnir fái sjálfir að ráða því hvort það borgar til RÚV eða ekki. Staða RÚV er að mörgu leiti lík stöðu einræðisríkis þar sem þegnarnir geta bara kosið með fótunum þ.e. flýja.

Stóra spurningin er, af hverju má - þess vegna meiri hluti þóðarinnar, kúga okkur hin til að borga fyrir fjölmiðlafyrirtæki sem við höfum engan áhuga á? Hvað með frelsi borgaranna?

Síðast þegar RÚV hafði verið siglt í strand og frjálsir borgarar töldu að nú yrði stjórnendur RÚV að axla ábyrgð og gera nauðsynlegar breytingar í rekstrinum þá var það ekki þannig. Þá kom nefnilega íhaldsráðherrann Illugi Gunnarsson færandi hendi meða fullan poka af peningum og sagði gjafir eru ykkur gefnar til viðbótar við þvingunarrgreiðslurnar. Hvað skyldi Illugi færa RÚV nú til að gleðileikur óstjórnarinnar geti haldið áfram. 

Það er auðvelt Illugi Gunnarsson að vera gjafmildur þegar maður tekur gæði sín út á öðrum.

Þannig er það ekki RÚV okkar allra heldur RÚV á kostnað okkar allra. Áfram fáum við vondar og hlutdrægar fréttir og þætti sem nutu vinsælda fólks sem löngu er fallið frá. Áfram verða allt of margir það sem færri gætu gert og RÚV mun ekki bregðast við og taka upp nýungar. Það hafa samkeppnisaðilarnir nefnilega nánast alltaf gert. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mjög góður pistill hjá þér, nafni minn.

Fréttir berast af fjölda milljarða tapi á þessum miðli, sem biður um framlög fyir því úr ríkissjóði!

Geta þeir ekki farið að koma sér að því að hagræða í rekstri sínum? Þurfa þeir þetta BÁKN með á fjórða hundrað starfsmanna?

OK, ef þeir vilja stefna beint í hrun, í gjaldþrot, þá er þetta kannski leiðin. Það er nefnilega að verða afar óvinsælt meðal almennings að ausið sé milljörðum í þetta fyrirbæri í þess allt of mörgu birtingarmyndum, og þá rekur að því, að stjórnmálamenn vilja ekki lengur axla þá ábyrgð að halda þessu gangandi í öndunarvél ríkisins, heldur láta það gossa. En það væri viss söknuður þar að ýmsu og vel hægt að reyna með eitilhörðum niðurskurði og stífu aðhaldi að koma í veg fyrir, að fyrirtækið leggist alveg niður. En sem fréttamiðill má það missa sig, enda misnotað sem slíkt nánast daglega til hlutdrægrar umfjöllunar með áberandi slagsíðu á bakborða! Og ekki er hún skárri Gyðingaandúðin þar!

Jón Valur Jensson, 30.10.2015 kl. 17:47

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

mig grunar Jón að margir ef ekki flest allir starfsmenn þessa fyrirtækis séu bæði á launaskrá sem og verktakar þe verktakarnir sem skaffa inn efni til fyrirtækisins sem ekki verktaki vinnur hjá ?

Jón Snæbjörnsson, 30.10.2015 kl. 21:35

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hér skal tekið undir hvert orð kæri Jón.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 31.10.2015 kl. 00:59

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka fyrir ykkar innlegg. Ég er ansi hræddur um mínir ágætu nafnar að það sé heldur betur margir pottar brotnir í rekstri fyrirtækisins. Skil ekki hvernig hægt er að klúðra rekstri fyrirtækis sem fær marga milljarða í foskot umfram frjálsu miðlana á hverju ári og hefur auk þess yfirburða markaðsstöðu. Svo er óstjórnin alltaf afsökuð af öskurkór vinstri menningarelítunar með því að þarna sé hornsteinn íslenskrar menningar. Væri hornsteinninn ekki sterkari ef þetta væri raunverulega þannig?

Jón Magnússon, 31.10.2015 kl. 09:28

5 identicon

Þetta er rétt hjá þér. Það, sem verra er, er, að þetta þjóðarútvarp okkar er ekki lengur það gamla, góða Ríkisútvarp, sem við þekktum og ólumst upp við, hlutlaust þjóðarútvarp, þar sem hægt var að hlusta á hlutlausa fréttatíma og umræðuþætti, jafnvel þótt þeim væri stjórnað af yfirlýstum vinstri mönnum, enda efast ég um, að Jóni Múla, Stefáni Jónssyni, núverandi forseta landsins og öllum hinum vinstri mönnunum, sem voru þar innandyra, svo að ég tali nú ekki um fréttastjórana sjálfa, eins og t.d. Margréti Indriðadóttur, hefði dottið í hug að brjóta hlutleysið svo freklega með pólitískum áróðri, eins og núverandi fréttamenn gera í tíma og ótíma, og hafa varla aðra í umræðuþáttunum nema já-systkini sín, en Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn aðeins upp á punt, að heita má, og þeir megi helst segja sem minnst, ef þeir eru ekki sammála skoðunum þáttastjórnenda. Aðeins stefna Samfylkingar, BF og VG megi heyrast, svo að ekki sé minnst á eilífan ESB og evru-áróður, svo menni ofbýður. Það er varla, að maður nenni orðið að hlusta á fréttatímana og fréttatengda þætti þessa vegna, og það á bæði við um útvarp og sjónvarp. Það er líka vegið svoleiðis að Sjálfstæðisflokknum og Framsókn, að það er engu líkt, og tíðkaðist ekki hérna áður fyrr.Fréttastofa Ríkisútvarpsins, eins og hún er í dag, er þess vegna alger hörmung, vægast sagt. Illugi þyrfti að taka til hendinni og sópa út úr fréttastofunni öllum þessum hlutdrægu fréttamönnum, og endurskipuleggja hana algerlega í ljósi hlutleysisreglunnar, sem ég vona líka, að Illugi láti halda sér í sínu útvarpsfrumvarpi, þar sem sú gullvæga regla er bráðnauðsynleg í öllum fjölmiðlum, sem vilja vera trúverðugir fréttamiðlar. Hvað varðar tónlistarþætti og aðra menningarþætti, þá er gaman að hlusta á þá, enda ber lítið á hlutdrægni þar. Ég er líka sammála því, að þurfi að minnka umfangið hjá þjóðarútvarpinu og koma því úr Efstaleitinu, því a þetta er alltof dýrt húsnæði og peningafrekt fyrir starfsemina. Við skulum bara vona, að komi eitthvað gott út úr þessu á endanum. Ekki veitir af.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2015 kl. 11:42

6 identicon

 Sæll Jón og takk fyrir athyglisverða grein. Það fyrsta sem maður hnaut um við lestur Skýrslu nefndarinnar er hvað illa hún var unnin. Hvergi var getið heimilda, einungis talið upp við hverja var talað. Í öðru lagi er eins og nefndarmenn séu ekki með það á hreinu hvernig dreifkerfi RÚV er uppbyggt, geta sér það til og tala um að fara út í ljósleiðaravæðingu (eins og við séum ekki búin að sjá þá vitleysu hjá OR).              Að endingu bendi ég þér á athyglisverða grein eftir Atla Þór Fanndal á vefnum Kvennablaðið http://kvennabladid.is/2015/10/31/ruv-leitt-til-slatrunar/

thin (IP-tala skráð) 1.11.2015 kl. 01:24

7 identicon

sæll jón skemmtilegt innlegg. Það má bæta því við að það er ekki til fyrirmyndar að neyða okkur smælingjana til að borga útvarpsgjaldið og síðan fylgjast með pólitískum áróðri vinstri flokkana, getur RÚV ekki bara verið hlutlaust? þurfum við að kosta þessa misbeitingu, sumir hafa lélegt minni en við munum mörg að t.d. RÚV var notað linnulaust í Icesave umræðuna, hefði ekki verið heiðarlegra að fjalla um efnið hlutlaust og vega saman ókosti og kosti? 

bjarni (IP-tala skráð) 1.11.2015 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 720
  • Sl. sólarhring: 743
  • Sl. viku: 1134
  • Frá upphafi: 2292510

Annað

  • Innlit í dag: 648
  • Innlit sl. viku: 1020
  • Gestir í dag: 618
  • IP-tölur í dag: 608

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband