Leita í fréttum mbl.is

Vér skítseyði borgarinnar

Við Margrét mín erum ekki þurftarfrekustu eða subbulegustu kvikindi borgarinnar, og þá sérstaklega ekki hún. Þar fyrir utan er mér skipað að gæta vel að því að taka dagblöð, pappa og aðrar umbúðir út fyrir sviga og koma þvílíku skarni á gámastöð Sorpu.

Samt sem áður lendum við ítrekað í því að sorptunnan fyllist. Þá verður að fara aukaferðir á gámastöðina.

Þeir sem annast um sorphirðu hjá Reykjavíkurborg sýnist mér gera það af samvisku- og eljusemi, en það dugar ekki til. Reykjavíkurborg er að spara og enn skal dregið úr þjónustu við öll skítseyði þessarar borgar hverju nafni sem nefnast.

Sú var tíðin að Reykjavíkurborg sótti allt sorp. Svo kom Sorpa í þágu vistvænnar sorphirðu og þá þurftu borgararnir að sjá sjálfir um að henda sumu sem áður var sett í sorptunnur.

Nú má ekki tæma ruslatunnur nema þrisvar í mánuði samkvæmt sérstakri ákvörðun borgarstjóra, sem segir það öldungis nóg fyrir hvert venjulegt skítseyði í borginni. 

Vinur minn sagði mér að hann hefði ekki komið frá sér sorpi í sorplúgu fjölbýlishússins síns, en hann býr á fyrstu hæð hússins. Sorp hefði flætt upp að lúgunni. Vinur minn sem er bæði ráðagóður og eðalsnjall brá á það ráð að fara í sorpgeymsluna, en varð þaðan að hverfa þar sem út úr flóði þegar hann opnaði dyrnar og mátti hann hafa sig allan við að geta lokað þeim aftur.

Dagur borgarstjóri og hjörð hans segir að stjórnmál snúist um að forgangsraða og það sé sýnu mikilvægara að þrengja götur í Reykjavík og gera þær illar yfirferðar, en hreinsa almúgasorp. Þau sé auk heldur mikilvægara að reka mannréttindaskrifstofu og kosta ráðgjöf fyrir innflytjendur en hreinsa skítinn frá bornu og barnfæddu almúgafólki.

Á sama tíma auglýsir Reykjavíkurborg: "Borgarbúar fagna grænni tunnu úr plasti." Þessi fagnaðarbylgja fór framhjá mér. Hélt Dagur og félagar fagnaðarsamkomu í tilefni grænu tunnunar. Hverjir fögnuði, hvar og hvenær?

Vinur minn í fjölbýlishúsinu,  sem kemst ekki einu sinni að grænu tunnunni er hins vegar ekki mikill fögnuður í huga þegar ólyktin frá sorpgeymslunni gerir íbúð hans lítt vistvæna þrátt fyrir að Dagur og félagar sjái ástæðu til þess á sama tíma, að fagna grænu tunnunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alsiða í sveitarfélögum landsins að losa almennt sorp á tveggja vikna fresti og víða sjaldnar. Ef þessar lýsingar þínar eiga við rök að styðjast þá er eitthvað að hjá viðkomandi (húsfélagi eða einstaklingum). Í mínum stigagangi höfum við sparað hellings pening á þessu brölti öllu saman og aldrei neitt vandamál með sorpið.

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 18.1.2016 kl. 20:30

2 identicon

Íhaldið í Kópavogi tæmir tunnurnar aðra hverja viku og þá bláu á fjögurra vikna fresti. Fréttablaðið og tilheyrandi sjá til þess að sú bláa fyllist en sú svarta oftast hálffull, í mesta lagi að þrem fjórðu eða svo.

Ekkert skrefagjald í Kópavogi þó. 

ls (IP-tala skráð) 19.1.2016 kl. 08:28

3 identicon

Góðan daginn.

Á Akureyri þar sem ég bý er sorptunnan tæmd tvisvar í mánuði.Í tunnunni er laust hliðarhólf fyrir lífrænan úrgang. Sorphirðumennirnir eru eins og vel þjálfaður herflokkur.Mæta alltaf á sama tíma og ekkert vesen á þeim. Grenndargámar eru víða við stórverslanir og stór móttökustöð innan seilingar. Auðvitað eru vegalengdir styttri hér en í Reykjavík en þetta kerfi virkar mjög vel.Pappírstunna kostar 1000 kall á mánuði ef menn vilja.

Kveðja að norðan.

Skarfurinn.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 19.1.2016 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 868
  • Frá upphafi: 2291634

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 767
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband