Leita í fréttum mbl.is

Stríðsglæpamenn

Skýrsla opinberu bresku rannsóknarnefndarinnar um innrásina í Írak árið 2003 staðfestir það sem öllum átti að vera ljóst. Í fyrsta lagi voru brotin alþjóðalög. Í annan stað voru röksemdir fyrir nauðsyn innrásar rangar. Í þriðja lagi var beitt fölsunum og blekkingum, af æðstu yfirmönnum Breta og Bandaríkjanna. Í fjórða lagi þá var Saddam Hussein tilbúinn til samninga. Í fimmta lagi þá gættu hvorki Bandaríkjamenn né Bretar að öryggi hinnar hernumdu þjóðar í Írak svo sem þeim bar skylda til.

Innrásin í Írak 2003 á fölskum forsendum með lygum, í trássi við alþjóðalög ætti að duga til að draga þá sem stóðu að innrásinni fyrir alþjóðlegan stríðsglæpadómstól. Af hverju gerðu Bretar og Bandaríkjamenn þessa glórulausu vitleysu. Það er erfitt að finna svar við því. Blair og Bush var það alltaf ljóst að þeir voru að ljúga þjóðir sínar í stríð. Þáverandi utanríkisráðherra Breta sagði af sér og flutti eina af bestu ræðum sem haldnar hafa verið í breska þinginu við það tækifæri.  

Ég gagnrýndi þessa innrás strax og íslensk stjórnvöld fyrir að setja okkur í hóp viljugra ríkja. Það var brot á utanríkisstefnu Íslands. Því miður fylgdum við þessari ólöglegu innrás þó það væri bara í orði.

Verða einhverjir í Bretlandi og Bandaríkjunum látnir sæta ábyrgð fyrir að hafa átt þátt í morðum og dauða tuga þúsunda einstaklinga. Það væri e.t.v. ekki úr vegi að miða þá við sömu sönnunarreglur og ábyrgðarkröfur eins og fyrrum hermenn nasista hafa þurft að sæta vegna ábyrgðar á Gyðingamorðum.

Vesturlönd geta ekki sótt einræðisherra í Afríku eina til saka og þáttakendur í upplausnarstríði Júgóslavíu, en sleppt sínum eigin mönnum sem bera ábyrgð á dauða mun fleiri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Því má heldur ekki gleyma hver þáttur þessarar innrásar var í eflingu hryðjuverkasamtaka íslamista.

En eflaust verður enginn sóttur til saka. Hafa sigurvegarar nokkurn tíma framið stríðsglæpi?

Þorsteinn Siglaugsson, 6.7.2016 kl. 23:22

2 Smámynd: Sigurður Antonsson

Góð áminning. Þið Ástþór Magnússon hafið verið á undan í að mótmæla stríðinu sem var hafið á röngum forsendum. 

Mbl.is í dag birtir nokkra fréttir um málið. Sjónvarpið ekkert en útvarpið lítillega. Á bresku sjónvarpstöðinni ITV voru mörg viðtöl við foreldra hermannanna sem létust. BBC aftur á móti fór meira vestur um haf til að finna viðmælendur og gerendur.

Stríð við Araba og Múslima eða í löndum þeirra eru að verða stæstu mistök 21. aldar. Uppgjörið er rétt hafið enda öldin ung.

Sigurður Antonsson, 7.7.2016 kl. 00:27

3 identicon

Frábær færsla Jon Magnússon sammala öllu her ástæðan firrir innrasini var olía og dollarinn engin ma selja olíu i annarri mynt en bandarískum dollar.þetta glæpahyski þyrfti að endurfæðast mörgum sinnum til að afplana sanngjörnum dómi 

A Brief History of Government False Flag Terrorism

https://www.youtube.com/watch?v=LEMulb2C420

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 7.7.2016 kl. 01:25

4 identicon

‘Military action was not a last resort’: Chilcot finally releases Iraq War report (FULL SPEECH)

https://www.youtube.com/watch?v=iXNP443IWGA  

og her talar stríðs glæpamaður leikari og lygari

https://www.youtube.com/watch?v=cFMTK-8kbMs

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 7.7.2016 kl. 03:16

5 Smámynd: Jón Magnússon

Þorsteinn það er alveg rétt. Bush hampaði því mjög að þetta væri barátta gegn Al Kaída, en það var engin starfsemi Al Kaída í Írak árið 2003 og Saddam var raunar harður andstæðingur þeirra samtaka. Allt sem sagt var og notað til að koma Bandaríkjunum og Bretlandi í innrás í Írak 2003 var lygi. Svo augljós lygi að öllum átti að vera það ljóst. Alla vega gerði þáverandi utanríkisráðherra Breta sér það ljóst.

Jón Magnússon, 7.7.2016 kl. 08:43

6 Smámynd: Jón Magnússon

Ég fylgist ekki með því Sigurður hverju Ástþór mótmælir, en mig minnir að það sé rétt hjá þér að hann hafi líka mótmælt þessu í upphafi. Enda var full ástæða til.

Jón Magnússon, 7.7.2016 kl. 08:44

7 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Helgi.

Jón Magnússon, 7.7.2016 kl. 08:44

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Nú erum við hjartanlega sammála.  Góð grein og takk! 

Jóhanna Magnúsdóttir, 7.7.2016 kl. 10:52

9 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Sæll Jón

Já, þarna voru margir blekkti og lýstu yfir stuðningi, þ.m.t. undirritaður. Það er líklegt að Blair og Bush hafi trúað "sönnunum". Sé málið íhugað er ekki óliklegt að Dick Cheney hafi átt mikinn hlut að máli. Hagsmunatengsl hans vor með þeim hætti.

Hitt er svo annað mál að upplausnin í Arabalöndunum tengist Írak litið eða ekkert né heldur uppgangur öfgamúslima. Pakistan, Indónesia, Tyrkland og Filippseyjar eru augljós dæmi.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 7.7.2016 kl. 21:43

10 identicon

"Af hverju gerðu Bretar og Bandaríkjamenn þessa glórulausu vitleysu. Það er erfitt að finna svar við því. Blair og Bush var það alltaf ljóst að þeir voru að ljúga þjóðir sínar í stríð." - Jón Magnússon

Er erfitt að finna svar eða er erfitt að viðurkenna svarið sem blasir við? Getur verið að æðstu embættismenn Vesturlanda ljúgi okkur í stríð til þess að viðhalda hagsmunum "herveldisins" þ.e. "military-industrial complex"? Hvaða afl er það sem hefur styrk til þess að þrýsta á Bush og Blair til að ljúga að okkur öllum til þess að koma eigin þegnum í stríð?

Símon (IP-tala skráð) 7.7.2016 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 796
  • Sl. sólarhring: 1353
  • Sl. viku: 6441
  • Frá upphafi: 2277079

Annað

  • Innlit í dag: 748
  • Innlit sl. viku: 5986
  • Gestir í dag: 722
  • IP-tölur í dag: 706

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband