Leita í fréttum mbl.is

Klósett og kyn

Sú var tíðin að konur háðu harða baráttu fyrir að hafa sérstök klósett eða salerni sérmerkt og sérgreind bara fyrir sig.  Konurnar sögðu að þær vildu ekki hafa klósettsetur útbíaðar eftir að karlar hefðu staðið og pissað út um allt. Þetta var á þeim tíma sem karlar pissuðu standandi.

Nú hefur hópur kynfræddra kvenna upp á nýjan móð ásamt öðrum álíka þenkjandi einstaklingum komist að þeirri niðurstöðu að ekki megi merkja eða sérgreina klósett til að hópur 0.007% þjóðarinnar sem á við kynáttunarvanda að stríða verði ekki niðurlægður. Niðurlægingin fellst í því að kynáttuvandar þurfi að fara inn á sérmerkt klósett.

Þessi þanki er fullkomnaður með því að halda því fram og boða skv. SS  (stjórnmálaleg málfarssamkvæmni) að hver einstaklingur sé þess kyns sem hann telur sig vera þá stundina.

Gulli vinur minn sagði af því tilefni að hann hefði fæðst allt of snemma. Hann vildi hverfa 50 ár aftur í tímann, en þá hefði hann, er hann gekk í gagnfræðaskóla, eins og það hét þá, talið sér líða eins og konu þegar stelpurnar fóru í leikfimi og sturtu. Hefði þá ekki komið að sök sagði Gulli, þó að ákveðinn líkamshluti hefði ekki fylgt þessari ætlun hans, en hefði við þessar aðstæður sýnt af sér fulla og óskoraða reisn. Gulli sagði að þá hefi hann bara horfið á braut þar sem honum hafi verið farið að líða eins og karlmanni þá stundina- Líðan hans sem konu hefði síðan komið í byrjun næsta leikfimitíma stelpnanna.

Við andstæðingar orðræðu SS(stjórnmálalegrar samkvæmni) eigum í vök að verjast og megum horfa á SS liðana brjóta niður hvert vígi kyngreiningar á fætur öðru og hefðbundinna samskipta kynjanna þegar gagnkynhneigðir eiga í hlut. Venjulegt fólk verður líka að sætta sig við að Hæstiréttur og Evrópusambandið hafa nánast svipt aðra æruvernd en svonefnda þolendur hatursorðræðu og eru þar múslimar og samkynhneigðir nánast þeir einu sem njóta þeirrar æruverndar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Ef þú villt sigra einhverja þjóð, þá byrjar þú á því að reyna að rugla og stöðva, fjölgun, endurnýjun þjóðarinnar.

Þessi ruglun, stöðvun fjölgunar, hefur sýkt vestrænar þjóðir.

Eitthvað sem kallað er kvenvænt,svo sem feminismi, er haldið að fólkinu.

Nú er svo komið að þessar þjóðir eru hættar að fjölga sér.

Þjóðirnar eiga 1,1 barn á fjölskyldu, en það þarf 2,2 börn til að þjóðin, mannfjöldinn verði sá sami.

Hjá þessum þjóðum eru aðeins nokkrar konur á barneigna aldri.

Stór hluti af konunum er komin úr barneign.

Til að snúa þessu við þarf mjög róttækar aðgerðir.

Þegar svona er komið, byrjar þú að flytja þitt fólk til landana, og gætir að því að þitt fólk eigi 8 börn á fjölskyldu.

Nú er svo komið að í ýmsum löndum, og borgum átt þú flest börnin í barnaskólanum.

Já þú ert sniðugur.

En hvað er ég?

Við látum nægja að segja að ég sé fáfróður.

Hver stjórnar námsefninu í skólunum?

000

Átt þú líka 80% í seðlabanka heimsins, dollarabankanum, Federal Reserve, og átt þú þá líka stórfyrirtækin, og stórfyrirtækin eiga NWO, New World Order, og New World Order á þá flesta embættismennina og járáðherrastjórana.

Aumingja USA, Bandaríkin eiga ekkert í seðlabankanum sínum.

Egilsstaðir, 08.03.2017  Jónas Gunnlaugsson

.insider with House of Saud connections, wrote ..that information he acquired from Saudi bankers cited 80% ownership of the New York Federal Reserve Bank- by far the most powerful Fed branch- by just eight families, four of which reside in the US.

3.3.2017 | 06:59

Jónas Gunnlaugsson, 8.3.2017 kl. 12:29

2 identicon

Þetta kynvandamál hlýtur að vera föttlun en ég hélt einmitt  að ákveðin vc fyrir fattlaða væru til þess að leysa öll óvenjuleg persónuleg vandamál þegar kemur að klósettferðum, hvað er í gangi Jón ???

Hekla Smith (IP-tala skráð) 8.3.2017 kl. 12:41

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Allt kvenfólk sem ég hef spurt um thetta mál, vill ekki sjá thessa helvítis dellu. Var gerd einhver konnun eda almenningur spurdur um thetta...??? Verdum vid semsagt ad sitja framvegis thegar vid létttum á okkur..??

Held ekki.  Thessu skal bara trodid ofan í okkur, og alltaf skal thad vara minnihluti sem raedur fram fyrir meirihluta.

Annars gaeti ég alveg tekid undir med honum Gulla vini thínum. Algjor snilld...coolcoolcool

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.3.2017 kl. 14:53

4 Smámynd: Elle_

Hahaha. En í alvöru, hafa menn í alvöru hætt að pissa standandi?? Talandi um að missa æruna. 

Elle_, 8.3.2017 kl. 23:10

5 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er nú ekki viss um að kynjafræðingarnir samþykki þetta Hekla.

Jón Magnússon, 8.3.2017 kl. 23:31

6 Smámynd: Jón Magnússon

Sama hér ég þekki enga konu sem vill láta brengla merkingunum. Gulli er nefnilega mjög séður í þessum málum og hefur komið ár sinni vel fyrir borð í lífinu með einfaldri gjörhygli.

Jón Magnússon, 8.3.2017 kl. 23:32

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þeir sem vilja vera vistvænir og tæma betur gera það Elle. Held að það hafi ekkert með karlmennsku að gera þegar menn eru í einrúmi. Það er annað ef menn stunda það að vera í pissukeppni.

Jón Magnússon, 8.3.2017 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 855
  • Frá upphafi: 2291621

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 754
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband