Leita í fréttum mbl.is

Hlýnun í Norðurhöfum- Hvaða hlýnun?

Í dag tóku nokkrir íslenskir vísindamenn bakföll yfir hlýnun hafsins á Norðurslóðum og fræddu okkur um þá miklu vá sem okkur stafar af hlýnun af mannavöldum.

Árið 2016 var mælt sem heitasta árið frá því að mælingar hófust og í fyrravetur var okkur sagt að ísinn í norðurhöfum væri minni en nokkru sinni fyrr og BBC fréttastofan sagði að vegna þess að ísinn í Norðurhöfum væri að hverfa hefði orðið versta loftmengun í Peking höfuðborg Kína.

Í upphafi maí mánaðar á þessu ári kom annað í ljós. Danska veðurfræðistofnunin upplýsti að frá því í desember s.l.hafi hitinn í Norðurhöfum verið mínus 20 gráður og ísinn jafn þykkur og fyrir 13 árum. Íshella Grænlandi óx hraðar að ummáli en gerst hefur í mörg undanfarin ár. Þessar staðreyndir virðast alveg hafa farið framhjá hinu íslenska vísindateymi hlýindafólks.

Árið 2016 var heitasta árið vegna þess að veðurfyrirbrigðið El Nino var sérstaklega sterkt en gervitunglamælingar sýna nú að hitinn hefur lækkað verulega alveg eins og gerðist fyrir 17 árum síðan eftir álíka sterkan El Nino árið 1998 sem þá var heitasta árið sem mælst hafði og álíka heitt og árið 2016.

Þetta þýðir að hitastig jarðar hefur ekki hækkað neitt í 19 ár. En vísindamennirnir sem belgja sig út í fjölmiðlum og krefjast meiri peninga frá skattgreiðendum vegna þeirrar hættu sem steðji að okkur segja ekki frá þessu og fjölmiðlamennirnir gleypa frekar við helvítis- og ógnarspám en raunveruleikanum og forðast að kynna sér málið til hlítar.

(Heimildir: Daily Telegraph- frétt 7.5.2017 "Another Arctic ice panic over as world temperatures plummet:Daily Telegraph reporters;

Paul Homewood blogg: Notalotofpeopleknowthat.)

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka góða grein. Það er skrítið á þessu litla landi að ekki sé hægt að hafa vitrænar umræður um veðurfar og við sem höfum bæði söguna (annálar) okkar og ískjarna frá Vatnajökli og til viðbótar Grænlandsjökul. Nú er að koma ný mynd frá AlGor þar sem hann ætlar að viðhalda lygi sinni enda mikill peningur í húfi. 

Valdimar Samúelsson, 16.5.2017 kl. 22:50

2 identicon

Sæll Jón.
Kíktu á þessa síðu og líttu á athugasemdir við grein Daily Telegraph, þar á meðal höfunda dönsku rannsóknarinnar sem blaðið vísar í.

http://climatefeedback.org/evaluation/another-arctic-ice-panic-world-temperatures-plummet-the-telegraph-christopher-booker/

Guðjón Torfi Sigurðsson (IP-tala skráð) 17.5.2017 kl. 08:55

3 identicon

Þsð má finna gögn sem styðja það sem þú segir Jón.  Yfirgnæfandi meirihluti vísindamanna er þér þó ósammála.  Þú þarft bara að kíkja aðeins í kringum þig til að sjá að jöklar hafa minnkað, það er orðið íslaust við norðurskautið á sumrin og ég fimmtugur karl man það alveg að það var mun meiri snjór á veturna í Reykjavík þegar ég var ungur.

Sjá t.d. þetta : https://www.youtube.com/watch?v=WX7aWsxe9yw

Í þessu video eru menn einmitt að bera til baka það sem þú segir með hitastigið undanfarin ár og þeir Dönsku vísindamenn sem framkvæmdu þá rannsókn sem Daily Telegraph vitnar í segja að í þessari grein sé mjög frjálslega farið með tölur og staðreyndir.

Brynjar (IP-tala skráð) 17.5.2017 kl. 13:24

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Valdimar.

Jón Magnússon, 17.5.2017 kl. 17:49

5 Smámynd: Jón Magnússon

Já Guðjón ég skal gera það. En þú segir ekki til hvers?

Jón Magnússon, 17.5.2017 kl. 17:49

6 Smámynd: Jón Magnússon

Yfirgnæfandi meirihluti vísindamanna var á móti niðurstöðum Galileos u að jörðin væri hnöttur og snérist í kring um sólu Brynjar. Yfirgnæfandi meirihluti vísindamanna segir ekkert um sannleiksgildi. Einn vísindamaður getur þess vegna haft yfirburðaþekkingu. Síðan er þessi meirihluti nokkuð sérstakur þar sem vísindamenn koma saman og greiða atkvæði um niðurstöðu. Minnihlutinn er síðan talinn með meirihlutanum. Einstaklega vísindaslegt ekki satt Brynjar?

Jón Magnússon, 17.5.2017 kl. 17:52

7 Smámynd: Jón Magnússon

Brynjar ég er sjötugur karl og kíki vel í kring um mig á íslenska náttúru þegar ég er úti í henni og það er ég daglega og hef verið síðustu 30 árin þegar ég er á landinu sem er raunar oftast. Ég hef sérstaklega fylgst með snjóalögum í fjöllum í nágrenni Reykjavíkur, sem ég geng iðulega á. Ég merki ekki neinar meiri háttar breytingar í náttúrunni hvað varðar snjóalög o.fl.

Ég merki hins vegar breytingu á veðráttu í Reykjavík t.d. meira logn undanfarin ár og það vorar um það bil hálfum mánuði fyrr en þegar ég var strákur. Á því hefur þó ekki orðið breyting til batnaðar á þessari öld.

Ég er ekki að mótmæla því að hlýnun hafi orðið, en hún hefur ekki tekið neinum breytingum síðustu 20 árin. Hún var komin fram um 1998.

Því miður held ég Brynjar að hlýnunin sé að stöðvast og held að hún sé eðlilegt náttúrulegt fyrirbrigði og okkur óviðkomandi. Það yrði hins vegar mun skemmtilegra ef meðalhiti hér á landi mundi vera um 2 til 3 gráðum hærri en hann er nú.

Jón Magnússon, 17.5.2017 kl. 17:58

9 identicon

Sæll Jón.
Ég taldi ekki þörf á að segja þér til hvers þú ættir að lesa athugasemdirnar og vildi frekar að þú læsir þær með opnum huga. En láttu mig vita ef þú vilt endilega fá ástæðu fyrir því af hverju þú ættir að lesa þær! ;)

En það er nú hæpið að tala um að á tímum Galileo hafi verið til vísindamenn, a.m.k. ekki í þeim skilningi sem við höfum á hugtakinu í dag. Vísindaleg vinnubrögð voru í það minnsta ekki notuð á þeim tíma og því erfitt að leggja þá að jöfnu við vísindamenn nútímans.

Guðjón Torfi Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.5.2017 kl. 09:52

10 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir innleggið Jónas.

Jón Magnússon, 18.5.2017 kl. 18:47

11 Smámynd: Jón Magnússon

Takk Guðjón ég les allt með opnum huga. Ég er mjög hugsi yfir niðurstöðum vísindamanna um hnattræna hlýnun, sem rímar ekki við það sem maður sér vera að gerast í náttúrunni. Ég hef verið í mikilli útivist í meir en 30 ár og gengið á fjöll út og suður um land og skráð hjá mér t.d. snjóalög í Esjunni, Bláfjöllum og víðar í gegn um árin. Ég get ekki séð að nokkrar teljandi breytinar séu á þessu nær umhverfi Guðjón. Af hverju ekki ef þessi hlýindi eru að rugla og rústa öllu í umhverfi okkar eins og ýmsir fræðingar halda fram.

Jón Magnússon, 18.5.2017 kl. 18:50

12 Smámynd: Jón Magnússon

En svo eru aðrir Guðjón sem ekki er hægt að taka minna mark á en hinum vísindamönnunum, sem segja að þetta sé allt saman tómt bull hjá þeim sem trúa á hnattræna hlýnun af mannavöldum og gagnrýna hvernig þeir komast að sínum óvísindalegum niðurstöðum.

Comon með atkvæðagreiðslum. Hvaða vísindi eru það??? Það gera stjórnmálamenn og fólk sem kýs stjórnmálamenn. En þú kýst ekki um hvort staðreynd sé þessi eða hin.

Jón Magnússon, 18.5.2017 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 2488
  • Frá upphafi: 2291471

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2264
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband