Leita í fréttum mbl.is

Formannsskipti í Framsókn

Formannsskipti í Framsókn falla nánast í skuggann yfir gleđileik stjórnarfjölmiđlanna yfir kyrrstöđustjórninni.

Formannsskipti í gamalgrónum flokki eins og Framsóknarflokknum eru ţó mikil tíđindi. Jón Sigurđsson fráfarandi formađur er einstaklega traustur, góđur og heiđarlegur mađur eins og ég hef ítrekađ bent á frá ţví ađ hann tók viđ formennsku. Hans vandi var ađ taka viđ skelfilegri arfleifđ forvera síns. Jóni tókst ekki ađ marka sér sérstöđu á ţeim stutta tíma sem hann hafđi enda svigrúm hans ţröngt. Ađ mörgu leyti eru hlutskipti Jóns sem tók viđ af Halldóri og Gerald Ford sem tók viđ ađ Richard M. Nixon svipuđ hvorugum tókst ađ vinna sig frá forverum sínum.

Mér finnst miđur ađ missa Jón Sigurđsson úr íslenskri pólitík. Jón er víđlesinn frćđimađur, heiđarlegur og traustur. Ţađ hefđi veriđ gott ađ njóta krafta Jóns áfram.

Guđni Ágústsson tekur viđ. Hann er fulltrúi gamla Framsóknarflokksins. Ef til vill munu ţau merki sjást fljótlega. Ţess er ekki ađ vćnta ađ Guđni sćkist eftir eđa vinni ný lönd á Suđvesturhorni landsins en ţađ mundi Sif hins vegar reyna ađ gera yrđi hún formađur. Fróđlegt verđur ađ sjá hvernig Framsóknarmenn vinna úr ţeim vanda sem ţeir eru í.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Framsóknarflokkurinn er loksins búinn ađ laxéra Halldóri Ásgrímssyni út međ afsögn hans Jóns Sigurđssonar.  Bara fnykurinn eftir. Mikiđ ömurlega lét hann Halldór ţennan fara međ sig. Og mikiđ ömurlega fór Halldór međ flokkinn sinn. Hugsiđ ykkur, ađ fara úr forsćtisráđuneytinu fyrir kosningar í vinsćlli ríkisstjórn ! Hvađ var hann ađ flýja ? Ég hélt ađ mađurinn vćri dauđveikur og fćri ţessvegna. Svo er hann bara sprellifandi og hefur ţađ fínt á okkar kostnađ.

Ég hreinlega finn til međ flokknum ađ hafa ţurft ađ ţola allar ţćr misgerđir. Mér hefur nefnilega alltaf veriđ heldur vel til Framsóknarmanna enda á ég í ţeim marga stórgóđa vini.

En um flokkinn og formanninn góđa má líklega syngja á ţessu kjörtímabili ; "Nú er hún gamla Grýla dauđ, gafst hún uppá rólunum.

Ekki hef ég trú á ađ Guđni finni upp einhverjar nýjar hugsjónir fyrir ţennan Framsóknarflokk  ţeirra Sturlunga og Haukdćla. Svo fornt er ţetta allt saman.   Ef ţeir hafa ekki hendurnar ofaní kjötkötlunum, hvernig ćtla ţeir ţá ađ fóđra liđiđ ? Hvađ hafa ţeir ađ bjóđa nýju fólki ?  Er ţetta ekki bara andlega steingeldur flokkur án hugsjóna, rislítill og getulaus međ öllu í stjórnarandstöđunni.

Halldór Jónsson, 25.5.2007 kl. 01:21

2 Smámynd: Atli Hermannsson.

Ţađ verđur eftirsjá af Jóni Sigurđssyni, litríkur persónuleiki sem fórnađi miklu fyrir lítiđ. Manni međ hans menntun og starfsreynslu er hafnađ í kosningum. Ţá er fiski-fiskeldis og búfrćđingi einnig hafnađ eins og viđ ţekkjum. Sá hefđi sómt sér betur sem ráđherra sjávarútvegs og landbúnađar en stjórnmálafrćđingur... ţađ er ég nokkuđ viss um..     

Atli Hermannsson., 25.5.2007 kl. 08:23

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Sćll Jón

 

Hvernig skyldum viđ höndla málin ţegar kemur ađ ţví ađ ráđast á Íran ?

 

Mér finnst brýna nauđsyn bera til ađ hreinsa upp eftir framsókn sem er búin ađ hreiđra um sig alltof víđa. Nota tćkifćriđ. 

 

Nú er Framsókn kominn frá kjötkötlunum fitug eyrna á milli. Óli bróđir segir ađ ţeir hafi veriđ ađ rađa sínum mönnum á síđustu árum í allskonar nefndir og ráđ. Hann nefnir Pál Magnússon til dćmis í formennsku Landsvirkjunar, Alfređ Ţorsteinsson í bygginganefnd Háskólasjúkrahúss, Hjálmar Árnason og Runólf kennara í ráđstöfun kanaeignanna á Keflavíkurflugvelli  og fleira og fleira. Hann spyr af hverju viđ rekum ekki ţessa framsóknarmenn alla strax og setjum okkar stjórnarfólk inn. Hann býđst til ađ verđa sjálfur stjórnarformađur Landsvirkjunar í stađ Palla Magg. Viđskiptafrćđingur fyrir guđfrćđing og sjálfstćđismađur fyrir Framsóknarmann. Og til ţess ađ gera ţetta attraktívt ţá býđur hann sig fram á helmingi lćgra kaupi en Páll er ađ fá.

 

Og af ţví ađ  Páll  er í vinnu hjá mér og öđrum skattgreiđendum í Kópavogi sem bćjarritari,  ţá finnst mér bara ágćtt ađ hann  sé bara í jobbinu sínu ţar og sé ekki ađ sitja á fundum međ Friđriki  uppi í Landsvirkjun. Og verđi  Alfređ rekinn og ég settur í hans jobb, ţá  býđ ég ţađ sama og Óli bróđir, helming  af ţví sem Alfređ tekur. Einhvernveginn held ég ađ ég sé minna en helmingi vitlausari en Alfređ ţannig ađ ţađ sé ekkert sjálfsgefiđ ađ ţjóđin tapi á skiptunum. En ţetta getur veriđ ofmat á sjálfum mér auđvitađ. En ţó ađ ég sé bara vesćll byggingaverkfrćđingur á móti verđleikum Alfređs og stjórnunareynslu,  ţá er ţađ spurning hver heildarútkoman verđur fyrir skattgreiđendur.  Og ef ţetta er ekki hćgt , ţá get ég líka tekiđ ađ mér ađ sitja í  Öryggisráđi  Sameinuđu ţjóđanna fyrir hálft kaup framsóknarmanns, tel mig alveg kunna  nóg í útlenzku til ţess.

 

Af hverju eru framsóknarmenn ađ stofna nýjan Háskóla suđur í Keflavík međan á sama tíma á ađ fara ađ eyđileggja Reykjavíkurflugvöll međ ţví ađ fara ađ byggja yfir Háskólann í Reykjavík niđur í Vatnsmýri. Af hverju má ekki hafa ţann Háskóla ţarna suđurfrá ? Ţar er allt tilbúiđ fyrir hann, stúdentagarđar hvađ ţá meira..Nei ţađ skal byggt fyrir milljarđa ofaní sprungiđ umferđarkerfiđ á Miklubraut.

 

Ţađ er sama hvar boriđ er níđur, ţađ blasir viđa viđ manni ađ  framsóknarmenn eru ađ spređa út opinberu fé í sig og sína.  Byggja sendiráđ og Guđ veit ekki hvađ. Óli bróđir heimtar stopp á ţetta allt ekki seinna en strax. Nú geti nýjir stjórnarflokkar tekiđ viđ og skipađ sína menn í nefndir og ráđ.

 

Og svei mér ţá,  ég held ađ viđ Óli  bróđir getum  alveg sparađ ríkinu  mikla peninga og jafnvel grćtt sjálfir  á ţví líka. Hann er bara ríkisstarfsmađur á of lágum launum auđvitađ ađ honum sjálfsagt finnst og ég er eiginlega án fastrar atvinnu og lífeyrisţegi í ţokkabót.. Er ţađ ekki taliđ gott núna ađ láta ţá dúlla viđ eitthvađ međan ţeir geta. Ţví ekki ađ láta ţá leysa eitthvađ af  Framsóknarmönnum af ?

 

Er ekki kominn tími til ţess ađ laxéra Framsókn almennt ?

 

 

 

 

Halldór Jónsson, 28.5.2007 kl. 23:35

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 443
  • Sl. sólarhring: 967
  • Sl. viku: 6187
  • Frá upphafi: 2277938

Annađ

  • Innlit í dag: 416
  • Innlit sl. viku: 5722
  • Gestir í dag: 406
  • IP-tölur í dag: 396

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband