Leita í fréttum mbl.is

Að vilja Lilju kveðið hafa

Fyrrum formaður Framsóknarflokksins sá mæti maður Guðni Ágústsson hvetur fólk í Morgunblaðsgrein í dag til að kjósa Lilju Alfreðsdóttur alþingismann hvar svo í flokki sem það stendur eftir því sem skilja má og segir hana eiga mikið erindi í íslenskum stjórnmálum. 

Hægt er að taka undir það sem Guðni segir varðandi Lilju Alfreðsdóttur, sem hefur komið fram á sínum stutta pólitíska ferli af háttvísi og kurteisi, en verið á sama tíma einörð og málefnaleg í sínum málflutningi.

Nú er það svo að kosningakerfið okkar heimilar okkur ekki að greiða nema eitt atkvæði listabókstaf flokks.

Sem flokksbundinn Sjálfstæðismaður, meðmælandi með lista flokksins í kjördæminu og baráttumaður fyrir góðri kosningu Sjálfstæðisflokksins, get ég því ekki greitt Lilju atkvæði mitt. Það skiptir einnig miklu máli að Sigríður Andersen dómsmálaráðherra, sem á ekki síður erindi í íslenskri pólitík en Lilja fái góða kosningu, hún hefur heldur betur sýnt það í störfum sínum. 

Grein Guðna vakti mig hins vegar til umhugsunar um það hvað kosningakerfið okkar er gallað. Mörg vildum við sjá gott fólk úr öðrum flokkum en okkar eigin á Alþingi. Ég hef t.d. áhuga á að Ólafur Ísleifsson og Halldór Gunnarsson úr Flokki fólksins komist á þing og tel þá eiga þangað fullt erindi. Þannig get ég einnig talið upp fólk úr fleiri flokkum.  En við höfum bara eitt atkvæði þó kjósa eigi 63 alþingismenn.

Kosningakerfið okkar er gallað af því að það veitir kjósandanum ekki eðlilegt vald á kjördegi. Til að kjósandinn hefði raunverulegt vald á kjördegi þá ætti hann að hafa 63 atkvæði til ráðstöfunar þar sem hann gæti greitt fólki úr mismunandi flokkum atkvæði eða greitt frambjóðendum eigin flokks öll atkvæðin. Þá væri lýðræðið virkara og vilji kjósandans kæmi skýrar í ljós.

Til að setja kjósandann í öndvegi í stað stjórnmálaflokka og flokksræðis ættum við því að sameinast um að breyta kosningalögunum og stjórnarskránni þannig að kjósandinn færi með jafnmörg atkvæði og þeim fjölda fulltrúa nemur sem kjósa á. Þá gætum við kosið allar okkar Liljur og Sigríðar sem og annað hæft fólk en sleppt hinum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Verst að hún er í  vitlausum helmingi.

Haukur Árnason, 17.10.2017 kl. 16:34

2 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Sæll Jón

 Mér er annt um persónufrelsi og er ekki á facebook. Í ilefni ummæla þinna þar um ritfrelsi langar mig að vitna til laga um persónufrelsi. í lögum segir að lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga  gildi um sérhverja rafræna vinnslu persónuupplýsinga. Lögin gilda m.a.s. um vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila!

Nú gilda lög greinilega ekki um formann Sjálfstæðisflokksins ef marka má vinstrimenn. Ekki taka undir með þeim. Lög haf verið brotin á þúsundum manna og vinstrimenn láta sér vel líka. Nema hvað? Holræsin eru opin.

Hvenær ber að fara að lögum og hvenær ekki. – Jón, hverjir eiga Stundina og hvaðan koma þeirra fjármunir? Svo lengi sem þeir eru löglega fengnir kemur engum það við nema eigendum Stundarinnar (og fjölmiðlanefnd) og þeir upplýsi það, aðspurðir.

 

 

Einar Sveinn Hálfdánarson, 17.10.2017 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 1662
  • Frá upphafi: 2291552

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1491
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband