Leita í fréttum mbl.is

Ráðast Rússar á Úkraínu á miðvikudaginn?

Bandaríkjamenn halda því fram, að Rússar ætli að gera innrás í Úkraínu á miðvikudaginn og segjast hafa pottþéttar sannanir. Ekki er ljóst hvort þær eru af sama toga og  færðar voru fram í aðdraganda Íraksstíðsins um gereyðingarvopn Saddam Hussein.

Bandaríkin og Evrópa hafa stutt Úkraínu frá því að bylting var gerð gegn sitjandi forseta og súkkulaðibarón var kosinn í hans stað og síðar grínleikarinn sem nú er forseti. Lífskjör eru bág og minnsta þjóðarframleiðsla þeirra fyrrum sovét lýðvelda sem eru í Evrópu e.t.v. með Moldovu sem undantekningu. 

Eftir því sem fleiri þjóðarleiðtogar og utanríkisráðherrar þyrpast til Moskvu til að hitta Pútín gerir hann sér grein fyrir,að varnarsamvinna Evrópuríkja er í molum og fæst ríki eru tilbúin til að færa fórnir. Bandaríkin greiða 75% af kostnaði NATO og Evrópuríkin hafa komið sér hjá að greiða sinn skerf jafnvel þó að varnarviðbúnaður í Evrópu snúi mest að þeim. Mörg þeirra hræðast meira að Rússar skrúfi fyrir gasið til þeirra en innrás í Úkraínu.  

Biden forseti er auk þess ekki andstæðingur sem nokkur óttast. 

Bretar og Frakkar sögðu Þjóðverjum 1939, að innrás í Pólland þýddi stríð við þau. Hitler hafði takmarkaða trú á því. En þá voru menn tilbúnir að berjast gegn einræðinu. 

Vegna yfirvofandi innrásarhættu í Úkraínu að mati Bandaríkjamanna hafa þeir stráð hermönnum vítt og breytt í nágrenni Rússlands, en þeim er ekki ætlað að gera neitt varðandi innrás í Úkraínu. 

Þýskaland var efnahagslegt stórveldi árið 1939 þegar síðari heimstyrjöld hófst, með mikinn mannafla og mikla þjóðarframleiðslu á þess tíma mælikvarða. Staða Rússa í dag er sú, að þjóðarframleiðsla Rússlands er álíka og Malasíu og efnahagur Rússlands er minni en Ítalíu og fólksfjöldinn er álíka og fólksfjöldi Þýskalands og Frakklands til samans og meira en milljón manns fluttu frá Rússlandi árið 2021. Þegar þessar staðreyndir eru skoðaðar hversu líklegt er þá að Rússar geri innrás í Úkraínu og kæmi til þess, hvernig stendur á því að sameinuð Evrópa og Bandaríkin eru ekki tilbúin til að verja landamæri stjórnarinnar í Kíev, sem þeir bjuggu til? 

Nú hafa vestrænir leiðtogar opinberað vanmátt sinn og aumingjahátt og sannfært einræðisöflin í Rússlandi og Kína um að þau þurfi ekki að óttast þó Rússar taki Úkraínu eða Kínverjar Taiwan.  

Það gæti kallað á enn meiri fórnir síðar en þær sem Vesturlönd þurfa að færa nú með því að sýna staðfestu og bjóða á sama tíma Rússa til samvinnu svo sem hefði átt að gera um síðustu aldamót. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að reyna að frysta úti stórveldi jafnvel þó það megi muna fífil sinn fegri.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Smá athugasemd Jón:

Það voru Bretar og Frakkar sem sögðu Þjóðverjum 1039, að innrás í Pólland þýddi stríð við þau, en ekki Bretar og Bandaríkjamenn.

Daníel Sigurðsson, 14.2.2022 kl. 23:00

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Þessi hráskinnaleikur um Úkraínu er mikið sjónarspil, þar sem eymingjaháttur Vesturlanda er dreginn fram í dagsljósið, og "panslavisminn" nær þeim árangri, að Rússland hefur nú ráð Hvíta-Rússlands í hendi sér.  Fáir hafa veitt því sérstaka athygli.  Hins vegar mun innrás í Úkraínu kalla gerningaverður yfir Evrópu, þótt ekki verði með sama hætti og eftir innrás Þjóðverja í Pólland 1939.  (Hvers vegna sögðu Bretar og Frakkar ekki Sovétríkjunum stríð á hendur eftir innrás þeirra í Pólland 1939 ?)  Orkuskortur mun hafa lamandi áhrif á Evrópusambandið, ef skrúfað verður fyrir gasið, og líklega mun úkraínski herinn berjast hetjulegri baráttu gegn ofureflinu, og síðan verður stofnuð þar andspyrnuhreyfing.  

Bjarni Jónsson, 15.2.2022 kl. 08:54

3 Smámynd: Jón Magnússon

Það er rétt hjá þér Daníel. Búinn að lagfæra það. Þetta voru pennaglöp eins og það heitir. Takk fyrir ábendinguna.

Jón Magnússon, 15.2.2022 kl. 10:39

4 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála Bjarni. Það er spurning stór af hverju Bretar og Frakkar sögðu ekki Rússum stríð á hendur þegar þeir gerðu innrás í Pólland. Skv. yfirlýsingum þeirra um að ábyrgjast landamæri Póllands hefði verið rökrétt að þeir gerðu það. 

Jón Magnússon, 15.2.2022 kl. 10:40

5 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Yugoslavira var sprengd i loft upp í 3 mánði stanslaust, og nýtt ríki sem heitir Kososo var stofnað undir þvi sprengju regni og herstöð sett upp þar strax í kjölfarið. 

Allt sprengju regnið miðaðist við SERBNESKA HLUTA

Í þvi samhengi, að þá ætti fólk að kynna sér útrýmingar búðir sem að héta JASENOVAC ,, útrúmingar búir sem að hafa fallið í skuggan fyrir gyðingunum,en þær búðir miðuðust við SERPA OG ROMARFÓLK !!! 

þARNA VORU NATO RÍKIN AÐ HALDA ÁFRAM VERKEFNINU FYRIR FRAMAN NEFIÐ Á RUSSUM. 

Undir yfirskini friðar, rétt eins og í SÝRLANDI, YEMEN, IRAQ, OG LIBIU, sem öll hafa átt það sameiginlegt að hafa orðið rjúkandi rúst fyrir framan nefið á alþjoðasamfélagainu, að viðbættri UKRAINU !!!!

Hverir hafa grætt á Ukrainu. Svar, allir aðrir en Ukrainska þjðin !! það ferli á nefnilega að halda áfram, að bloðmjólka þjoðina, af Esb elítunni, rétt eins og átti að gera með island, í banka hruninu, með inngöngu islands i Esb, i kjölfarið á bankahruninu.

árið 2000, sirka að þá byrjaði island aðilarviðræur við Esb, en varð gjaldþrota 2008 , 8 árum seinna.

Heldur fólk að það hafi verið tilviljun ????

Nato ríkkn sjálf byrjuðu 3 heimstyroldina í Evropu með þessum aðgerðum, i YGOSLAVIU og hun er enn að vinda upp á sig. 

Ekki var að sjá að Nato töluðu fyrir Diplomatískum samræðum á þeim tíma, heldur nýttu þeir sér sprengju regnið, og létu það drynja á yugoslaviu, eins og engin væri morgundagurinn. 

þetta er þeir sömu og eru að hneykslast á framferði Russa !!

Um hvað snýst Ukrainu málið ????

Svar.. 20014 valdránið, þar sem að 13,000 mans af russnesku bergi brtnir voru stradrepnir i austurhlutanum, með Joe Biden í farar broddi, voru hluti af þvi að þjoðernis hreinsa Ukrainu af Grisk kaþolsku kirkjunni, enda er hinn hlutinn Romversk kaþolksa kirkjan. þetta er 1. 

Annað og það stóra er, að í Ukrainu, þá er eins stærsta náma í heimi, hvað varðar lítinm !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

90 prosent af öllu líthium sem að örgjörva fyrirtækin í Usa nota, kemur frá Ukrainu  !!!!!!!!!!!!!!!

þetta snýst um yfirráð yfir LÍTHIUM NÁMUNUM. !!!!!!!!!

USA ER NEFNILEGA EKKI SJÁLFU SÉR NOGT MEÐ NOKKURN SKAPAÐAN HLUt. 

Dæmi, Usa flytur inn Oliu frá Kanada, mexico, Arabiu, og reyndar Russlandi líka. Usa stendur hvergi nokkurnstaðar undir sjálfu sér ,, þarf að STELA AF ÖÐRUM !!!! UKRAINA ER GOTT DÆMI UM ÞAÐ. 

KV

lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 15.2.2022 kl. 11:11

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er ekki mjög sannfærandi ef Þjóðverjar eru að  hóta stríði við Rússa verandi  algerlega háðir þeim um grunnorkuna sem er gasið. 

Ekkert Bravado tal núna breytir því.

Þýskaland verður að semja við Rússa

Halldór Jónsson, 15.2.2022 kl. 16:27

7 Smámynd: Grímur Kjartansson

Heyrði í Þórdísi ..................... í fréttunum rétt áðan
Hún sagði að við Íslandingar stæðum með vinum okkar
Hvað eru vinir?
Hafa Rússar einhvern tíma reynst okku illa?

Grímur Kjartansson, 16.2.2022 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 678
  • Sl. sólarhring: 1368
  • Sl. viku: 6323
  • Frá upphafi: 2276961

Annað

  • Innlit í dag: 636
  • Innlit sl. viku: 5874
  • Gestir í dag: 615
  • IP-tölur í dag: 601

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband