Leita í fréttum mbl.is

Svartur sjómannadagur.

Ég óska sjómönnum til hamingju með hátíðisdag sinn. Þar sem ég ólst upp á Akranesi þá var sjómannadagurinn helsti hátíðisdagurinn og féllu önnur hátíðarhöld í skuggann. Sjómannadagurinn hefur þess vegna alltaf skipað ákveðinn sess í mínum huga sem hátíðisdagur þeirra sem umfram aðra hafa skapað þjóðarauðinn.

Kolsvört skýrsla Hafrannsóknarstofnunar var birt daginn fyrir sjómannadaginn og varpar skugga á hann.  Spurning er nú hvernig á að bregðast við. Þessar niðurstöður staðfesta það sem við Frjálslynd höfum haldið fram.  Ég hef spurt hvort kvótastýrðar fiskveiðar hafi nokkursstaðar í heiminum skilað árangri. Þá er ljóst að ástandið er það alvarlegt að óhjákvæmilegt er að leita víðtækustu ráðgjafar sem unnt er og leita og  nýrra leiða til að afrakstur af Íslandsmiðum geti aukist. 

Við Frjálslynd gætum barið okkur á brjóst og slegið pólitískar keilur en þjóðarhagur skiptir meira máli. Hvernig nálgumst við það vandamál sem við er að eiga og hvaða úrlausn er best fallin til að koma okkur úr því ástandi sem við nú erum í.  Afrakstur á Íslandsmiðum var um 500 þúsunda tonna jafnstöðuafla af þorski um 50 ára skeið á árunum 1920-1970. Helmingi meira en heimilt hefur verið að veiða þá áratugi sem kvótakerfið hefur verið við lýði. Ráðgjöfin nú er að einungis verði veitt um 25% þess sem var veitt á um 50 ára tímabili fyrir kvótastýrðar fiskveiðar.

Þetta eru ekki meðmæli með kerfinu. Liggur ekki fyrir að það verður að bregðast við og breyta um stefnu? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Dagur okkar sjómannanna er aldrei svartur. Þetta er hátíðardagur okkar hvað sem á bjátar og öllu svarsýnis rausi líður.

Jens Sigurjónsson, 3.6.2007 kl. 12:50

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það verður að breyta þessari stjórnun því fyrr því betra.

Sigurjón Þórðarson, 3.6.2007 kl. 15:01

3 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Jón, sammála þér. Vandamálið er að löggiltir landkrabbar eins og ég skilja ekki vandamálið. Við eigum erfitt með allar þessar tölur og mismunandi fisktegundir. Því þarf virkilega að vanda til við framsetningu á göllum kvótakerfisins. Ég hef í sjálfu sér enga patent lausn því miður.

Gunnar Skúli Ármannsson, 3.6.2007 kl. 21:08

4 identicon

Kvótakerfið virkar fínnt hins vegar eru þaðlögbrjótarnir sem eru að svindla á kerfinu sem eru að skemma fyrir öllum hinum það ætti að taka þessa kvótasvindlara og fangelsa þá og fleygja lyklinum enda eru þeir að´setja svarta bletti á sjómannastettina. og aðra heiðviðra íslendinga.

Kvótakerfið virkar vel ef leikreglurnar eru virtar.....

jon sig (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 23:53

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Hversvegna á ég að kosta starfsemi Hafró ? Þeir eru að rannsaka auðlind sem aðeins hluti þjóðarinnar á. Hversvegna á ég að kosta hafnabætur fyrir þessa menn ? Hversvegna á ég að reka sjómannaskóla fyrir unga menn til að verða þrælar hjá þessum aðli ?

Upphaflegi og yfirlýsti tilgangur kvótakerfisins var að byggja upp fiskistofnana undir eftirliti Hafró. Hvernig finnst mönnum árangurinn vera  frá 1984 ? Jú Samherji er orðið alþjóðlegt fyrirtæki sem getur gert það sem honum sýnist hvar sem er og hvenær sem er. Ekki hafði hann mikinn móral þegar hann keypri Gugguna og sveik allra fallegu yfirlýsingarnar. Eru Flateyringar eitthvað hissa ? Af hverju senda þeir ekki Einari Oddi bænarskjal ? Eða Einari K ? Fá þá til að útskýra hvervegna kvótakerfið sé besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi . Eða bara Hannes Hólmstein ? Þessir kallar vita allt um teóríuna fyrir því að byggðir eigi bara að vera þar sem kvótaeigendunum hugnast.

Halldór Jónsson, 4.6.2007 kl. 00:20

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Jónsson.: Ertu ekki alveg að tapa heildarmyndinni? Á Ströndum  má enn finna staði sem "féllu" í tímans þungu vá af ýmsum ástæðum.. Ef sama gerist í dag er það kallað .....þú bara kallar það, það sem þú vilt. Hlutir gerast, byggðir hverfa, eða eyðast.....þetta er ekkert nýtt. Vestfirðir eru til að mynda að stórum hluta byggðir ERLENDU vinnuafli í dag.  BYGGÐARSJÓNARMIÐ!.....common! Vaknaðu karl, lífið er ekki það sama og það var sjötíu  og eitthvað.Ef þú ekki vaknar....þá bara ....jaso,.

Halldór Egill Guðnason, 4.6.2007 kl. 04:18

7 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Halldór Egill, þú ert greinilega vaknaður, a.m.k. miðað við tímasetningu skrifa þinna.

Þú segir "hlutir gerast" eigum við ekki að sýna manndóm og taka á móti í stað þess að láta taka okkur í....... Eigum við bara fljóta með straumnum, eigum við ekki að sýna ábyrgð og styrkja fólk sem á um sárt að binda sökum kvótaflakks. 

Þú segir "erlendu vinnuafli", eru þeir minni Íslendingar en við hin. Höfum við ekki óskað eftir nærveru þeirra. Hafa þau minni rétt til að búsetja sig og vinna í fiski en aðrir.

Að lokum, það hefur ekki orðið neinn eðlismunur á lífinu og tilverunni s.l. 5000 ár. Við viljum lifa hamingjusömu lífi, á þeim stað sem við kjósum og án allt of mikilla afskipta annarra.

Gunnar Skúli Ármannsson, 4.6.2007 kl. 20:54

8 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Það sagði einn XD maður við mig um daginn:"Vandamál á Flateyri??Maðurinn seldi bara businessinn.Ég held að þessir útlendingar geti bara hundskast heim".Svona er nú viðhorfið hjá flokksbræðrum sjávarútvegsráðherra.

Ólafur Ragnarsson, 4.6.2007 kl. 23:17

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að stýra sjávarútvegsráðuneytinu í 16 ár samfleytt. Nú þegar þeim hefur tekist, þrátt fyrir aðvaranir að koma öllu í kaldakol kalla þeir eftir samráði eins og druknandi maður, en streitast í raun á móti og svamla á haf út í óráði.

Sigurður Þórðarson, 5.6.2007 kl. 08:39

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kvótakerfið er orðið svo óvinsælt að jafnvel framsóknarmenn heykjast á að verja það og munu brátt ganga í lið með okkur. Ef EKG biður um samráð eigum við að taka hann á orðinu og leggja til nauðsynlegar breytingar.  Að leggja til einungis til að ekki verði farið eftir tillögum Hafró er svipað og að hvísla bíðlegum orðum að hita- og óráðssjúklingi og gefa honum magnýl svo hann komist út, jafnvel þó maður viti að honum muni slá niður aftur.  

Sigurður Þórðarson, 5.6.2007 kl. 08:47

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er mikið notað sem röksemd fyrir kvótakerfinu að nú eigi kvótann menn sem hafa keypt hann á markaði. Það eruðvitað rétt. Nú þegar blasir við að þarf að minnka kvótann verulega, þá hefur heildarverðið rýrnað og hlutur hvers og eins.

Ef ráðherra tæki nú þessa stofnun sína Hafró einu sinni hátíðlega og gerði nú einu sinni eitthvað raunhæft fyrir þorskinn, léti hann njóta vafans og skæri kvótann niður í 60000 tonn eða minna. Þá kæmi nú hljóð úr horni, þetta væri hætt að borga sig osfrv.  menn yrðu að komast útúr kerfinu , byggðirnar væru að farast.

Verð á kvótanum myndi trúlega lækka þar sem þorskveiðar á stórskipum myndu minnka verulega. Gætu menn þá ekki boðið Seðlabankanum að innleysa kvótann fyrir sanngjarnt verð .

Þanig kæmist kvótinn aftur í eigu ríkisins eins og margir vilja. Ríkið gæti þá sent byggðakvóta til Bolungavíkur og Flateyrar.  Þannig er hægt að komast útúr þessu kvótakerfi aftur á ódýran hátt, fá þjóðina kaupa eign sína marglofuðu til baka og borga kvótagreifunum með pappír eftir nánari úrfærslu. Eða hvað ?



Halldór Jónsson, 8.6.2007 kl. 08:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 391
  • Sl. sólarhring: 1282
  • Sl. viku: 6036
  • Frá upphafi: 2276674

Annað

  • Innlit í dag: 371
  • Innlit sl. viku: 5609
  • Gestir í dag: 364
  • IP-tölur í dag: 360

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband