Leita í fréttum mbl.is

Vonandi gengur þér vel Sveinn.

Sveinn Rúnar er ódrepandi baráttu- og hugsjónamaður. Ég vona að honum gangi vel á Gasa svæðinu. Það þarf áræði til að fara inn í þetta fjölmenna risastóra fangelsi Ísraelsmanna. Íbúar Gasa fá hvork að koma né fara nema með leyfi herraþjóðarinnar. Sveinn Rúnar á heiður skilið fyrir að leggja sig í stór hættu ítrekað til að bjarga mannslífum og styðja mannréttindi
mbl.is Sveinn Rúnar á leið inn á Gasasvæðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sammála, Jón. Apartheid-stefna er ekki af hinu góða, múrar eða girðingar sem loka fólk inni. Bandaríkjamenn reyndu í upphafi Vietnamstríðsins að girða umhverfis þorpin til að vernda þorpsbúa fyrir árásum Vietkong.

Þetta hafði þveröfug áhrif, - þorpsbúum fannst þeir lokaðir inni í fangelsi.

Ég sá í fróðlegri erlendri bók að í upphafi síðustu aldar hafi verið uppi hugmyndir um að styðja Ísraelsmenn í að gera Uganda að heimalandi sínu.

Þá hefði Idi Amin sennilega aldrei komist til valda og ekkert Palestínuvandamál risið og þar með allt önnur samskipti vestrænna manna við Arabaheiminn.

En Ísraelsríki í Uganda hefði engu breytt um það að það getur ekki verið rétt að taka land af þjóð til að hleypa þangað annarri þjóð vegna þess að sú þjóð hafi verið flæmd úr landinu fyrir rúmum 1800 árum.

Væri svo myndum við Íslendingar geta krafist þess að fá aftur landið sem Haraldur hárfagri flæmdi okkur úr og þar með olíulindirnar út af Vestur-Noregi.

Ég tek það fram að ég dáist að dugnaði Gyðinga og mörgu af því sem þjóðskipulag þeirra hefur upp á að bjóða.

Ef nasistar hefðu verið í þeirra sporum væru þeir búnir að útrýma öllum Palestínumönnum fyrir löngu með aftökusveitum og gasklefum.

Og héðan af er líklega ekki raunhæft að tala um að Palestínumenn fái aftur það land sem Íslraelsmenn höfðu fyrir 1967.

Ómar Ragnarsson, 15.11.2007 kl. 22:49

2 identicon

Ómar, ertu að líkja Ísraelsmönnum við Nasista?

Gisli Freyr Valdórsson (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 23:10

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þarna sér maður bara. Hitler var ekki hér á jörðinni til einskis.

Ómar Ragnarsson, nasistar hafa aldrei verið í sporum gyðinga. Þeir hafa eingöngu reynt að afmá spor þeirra. Meðal annar þess vegna eru gyðingar nú í Ísrael og þess vegna verðið þið, sem ekki eruð gyðingar, þú, læknirinn og hinn frjálslyndi pólitíkus Jón Magnússon að leysa málin. 

Jón telur örugglega best að vísa öllum gyðingum burt eins og útlendingunum á  Íslandi? Sveinn Rúnar hefur þegar sýnt sitt rétta andlit og hefur líkt Ísrael við Þýskaland nasismans á ósmekklegan hátt eins og formanni vinarfélags hryðjuverkasamtaka sæmir. Það segir víst allt um Svein Rúnar sem ég þarf að vita.

Ómar, Íslendingar voru ekki flæmdir frá Noregi, þeir fóru í fússi - ég hélt að menn vissu þetta.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.11.2007 kl. 09:00

4 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Vilhjálmur enn samur við sig. Alltaf að reyna að troða einhverjum slæmum stimpli á þá, sem styðja frelsisbaráttu Palestínumanna. Hérna er hann að ýja að því að félagið Island Palestína sé eitthvert sérstakt vináttufálag hryðjuverkamanna. Það er fjarstæða og engin innistæða fyrir slíkum ummælum.

Á heimasíðu Vilhjálms er Sveini Rúnari Haukssyni borið á brýn að vera gyðingahatari. Hann hefur aldrei látið neitt fram hjá sér fara í ræðu eða riti, sem gefur tilefni til slíkrar uppnenfingafr. Tekið er dæmi um gyðingahatur hjá honum á heimasíðu Vilhjálms þar, sem byrt er grein eftir hann. Orðið gyðingur kemur hvergi fram í þeirri grein og því er það út í hött að tala um þá grein, sem eitthvert gyðingahatur. Þessi grein er hörð ádeila á þjóðríki Ísrale en ekki á gyðinga. En í gegnum öll ummæli Vilhjálms um Svein og marga aðra virðist Vilhjálmur ekki skilja munin á ádeilu á þjóðríkioð Ísrael og fordómum í garð trúfélags gyðinga. Það er með ólíkindum að háskólemenntaður maður skuli ekki skilja að þarna er um sitthvorn hlutin að ræða.

Og svo Gísli Freyr. Það er margt í meðferð Ísraela á Palestínumönnum, sem minnir á meðferð Nastista á íbúum hernámssvæða sinna. Það er allt í lagi að segja það.

Sigurður M Grétarsson, 16.11.2007 kl. 12:55

5 Smámynd: Gústaf Níelsson

Ég  held að hann Sveinn Rúnar hafi bara ekkert gott af því andlega að vera alltaf að þvælast þarna niður á Gaza. Hann kemur alltaf æstari heim en hann var fyrir og svo smá rjátlast æsingurinn af honum þar til hann fer næst suðrúr. Þessar Gaza-strip ferðir hans eru líkastar einhvers konar pólitísku adrenalíni.

Gústaf Níelsson, 20.11.2007 kl. 16:52

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Það er alveg ótrúlegt hvað starfsmenn Tryggingarstofnunarinnar (Siggi Maggi) geta verið að blogga í miðjum vinnutíma og það oft fyrir málstað hryðjuverkasamtaka. Kannski er Hamas kominn á fjárlög hjá Tryggjó?

Hér geta menn lesið hvað Sveinn Rúnar skrifar þegar hann er í ham: http://www.palestina.is/greinar/archive/gr021.htm 

Samkvæmt skilgreiningu alþjóðastofnanna og fremstu sérfræðinga heims í því ógeði sem Sigurður telur að Palestínumenn og vinir þeirra geti stundað án afleiðinga, er þessi samlíking formanns vinafélagsins gyðingahatur.

Ísraelsríki er fyrst og fremst ríki gyðinga, en aðrir búa þar líka meðan þeir stunda ekki hryðjuverk og fjöldamorð. Í Ísrael er ekki stunduð Aparteitstefna eins og í Palestínu, þar sem gyðingar mega ekki búa og eru réttdræpir.

Sigurður M. Grétarsson, ég er jafnvel á því að þú sér dálítil antisemít sjálfur.  Hvað veist þú um Helförina og hagi gyðinga fyrst þú telur þig geta sett samasemmerki við það og svo sjálfskaparvítið í Hamastan. Þú ert kominn langt út fyrir öll velsæmismörk og það líka í miðjum vinnutíma.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.11.2007 kl. 15:13

7 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Já þessi vandræðamál fyrir botni Miðjarðarhafsins eru ekki auðveld úrlausnar. Kannski þarf að hugsa allt þetta upp á nýtt.

Við þurfum einnig að gefa sjálfstæðisbaráttu Kúrda gaum. Hef bloggað dálítið um þá og undarlegt að ekki skuli meira verið skoðað þeirra mál.

Hugsið ykkur:  fyrir nær 90 árum voru 1.500.000 Kúrdar drepnir af Tyrkjum. Ef minnst er á þetta þá verða þeir æfir að einhverjum skuli detta sú fásinna að minna á svona lagað. En þetta er um 25% af gyðingamorðunum í næstu heimstyrjöld á eftir!

Nú eru Tyrkir að dangdala á Kúrdum með samþykki Bandaríkamanna. Kúrdar eru á landamærum Íraks, Íran, Armeníu og Tyrklands. Í austurhluta Tyrklandi er Impregíló, já þetta sama fyrirtæki og hefur verið að braska á hálendinu á Austurlandi, að byggja stíflur og virkjanir undir tyrkneskri hervernd. Er það tilviljun að þessi verktaki sérhæfi sig í að starfa við efiðar ytri aðstæður - eins og þeir skilgreina verktakastarfsemi sína. Þ.e. þeir taka að sér torveld verkefni á mjög torveldum stöðum sem aðrir verktakar hliðra sér við að taka að sér.

Mosa þætti eðlilegt að skoðað væri hvort ekki væri jafnvel grundvöllur að styðja við sjálfstæðisbaráttu Kúrda og viðurkenna þá. Annað eins hefur gerst, fyrst 1948 þegar Íslendingar voru fyrsta þjóðin sem viðurkenndi sjálfstæði Ísrael og síðan rúmlega 40 árum síðar þegar við viðurkenndum sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Hvenær er komið að Kúrdum?

Kúrdar eru múslimar en fylgja mjög frjálslegri stefnu. Réttindi kvenna er t.d. mun meiri en í þeim löndum þar sem bókstafstrúarmenn ráða löndum og lýðum. Því miður hafa þeir verið mjög einangraðir og hafa fyllstu ástæðu að vera tortryggnir enda hafa þeir oft verið sviknir. En þeir eiga margt sameiginlegt með Evrópubúum og það er auðvitað sem Evrópuþjóðir ættu að gefa betri gaum. 

Það gæti hugsanlega valdið einhverri ólgu þarna austur frá í byrjun en öllum þessum þjóðum sem þessi lönd búa á næstu grösum væri vissulega hollt að heimsbyggðin sæi aumur á þessari langkúguðu þjóð og að smám saman yrði að taka tillit til þeirra.

Palestína er aðeins örlítið brot á mannréttindabrotum í þessum heimshluta. Leyfi mér að skora á þig Jón að gefa þessu gaum. Ögmundur hefur einnig fengið erindi varðandi þetta og færi vel að stjórnarandstöðuflokkarnir sem e-ð  kveður að á þingi um þessar mundir leggi fram róttæka þingsályktun í þessa átt. Eftir því yrði vissulega tekið. Við eigum að sýna frumkvæði í þessu máli og sýna þessum öflugu herveldum á borð við Bandaríkjamenn og Tyrki að vopnlaus þjóð hafi heilmikið að segja í alþjóðastjórnmálum svo framarlega sem hún sýnir að hún sýnir þessum herveldum enga minnstu undirhyggju og lágúruhátt.

Með bestu kveðjum úr Mosfellsbænum

Mosi - alias

Guðjón Sigþór Jensson, 22.11.2007 kl. 21:58

8 identicon

(Fyrst skrifað sem viðbrögð við SRH, 21.11 á öðru bloggi)

Hlutleysi?? Dr. Sveinn Rúnar Hauksson er jafnan kynntur til leiks í fréttum sem talsmaður Félagsins Ísland-Palestína. Eins og nafnið og orðspor félagsins (sem hefur verið starfrækt í 20 ár) gefur til kynna berst það fyrir réttindum Palestínumanna á grundvelli alþjóðalaga og samþykkta Sameinuðu þjóðanna.

Það ætti að gefa lesandanum/hlustendandum hugmynd um hvað viðmælandinn stendur fyrir. Sveinn er auk þess staddur í Palestínu, að hitta samtök Palestínumanna, gistir meðal fólks á herteknu svæðunum. Ég sé ekki að það sé verið að plata neinn með því að ræða við hann um ástandið. Alveg eins og það er ekki verið að plata neinn með því að leyfa sendiherra Ísraels að komast í íslenska fjölmiðla.

En af hverju þarf umræðan um Ísrael / Palestínu alltaf að fara í rugl? Af hverju að fara niðrá það plan að tala um þá sem eru á móti stefnu Ísraelsstjórnar sem gyðingahatara? Að forðast það að ræða hlutina af skynsemi og alvöru.

Öllum er eflaust ekki vel við Félagið Ísland-Palestína (sem ég er meðlimur í) - en af hveru að vera með rangmæli. Mér finnst Zion - Vinir Ísraels ekkert sérlega hressandi félagskapur, en er þörf á að sverta félagið? Það eru hátt í 500 meðlimir í FÍP - fólk víða að, á öllum aldri, eflaust með ýmsar skoðanir (t.a.m. fyrrverandi og núverandi alþingismenn, fv ráðherrar úr mismundandi stjórnmálaflokkum - sem eru auðvita ekki sammála um allt)

En allir sem eru í félaginu starfa innan félagsins út frá lögum þes, sem má finna hér

OK, ég geri mér grein fyrir að einhverjir munu vilja meina að þessi lög segi ekkert, þetta séu skúrkar og gyðingahatarar. En hvaðan koma þessi meintu tengsl við Hamas? Er þeim hent fram af því þetta eru ein stærstu samtök Palestínumanna? Væri verið að tala um tengingu við Hezbollah ef þau væru nú í fréttum?

PS Ekki eru allir Ísraelsmenn gyðingar (stór hluti innflytjenda eru kristnir, fyrir eru um 20% arabar). Ekki eru allir gyðingar samþykkir hernámi Palestínu eða stefnu stjórnvalda. Fjölmargir gyðingar í heiminum eru á móti stefnu Ísraels. Palestínumenn eru að stærstum hluta múslimar og kristnir - en finna má Palestínumenn sem játa gyðingatrú. Þeir hafa lengi átt fulltrúa í PLO og Palestínsku heimastjórninni og þingsæti á palestinska þinginu. Smá útúrdúr.

Ragnar (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 76
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 2561
  • Frá upphafi: 2291544

Annað

  • Innlit í dag: 65
  • Innlit sl. viku: 2327
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 47

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband