Leita í fréttum mbl.is

Svona getur ríkið ekki gert.

LandspítaliLandsspítali Háskólasjúkrahús skuldar birgjum sínum hátt í milljarð. Þessar skuldir eru margar orðnar mjög gamlar. Margir þeirra sem hafa selt sjúkrahúsinu tæki og vörur hafa orðið að þola verulegt gengistap á tímabilinu auk þess að vera í fullkominni óvissu um það hvenær skuldir spítalans þ.e. ríkisins fást greiddar. Aðspurður um málið segir heilbrigðisráðherra að skuldirnar verði greiddar. Í sjálfu sér ekki frétt. Spurningin er hins vegar hvenær ríkið leggur spítalanum til fjármuni til að hann geti greitt óreiðuskuldirnar.

Það er óhæfa að ríkisvaldið skuli ekki sinna fjárþörf stærsta spítala þjóðarinnar betur. Það er óhæfa að ríkisvaldið skuli láta hrannast upp óreiðuskuldir. Það er óhæfa að ríkisvaldið skuli valda einstaklingum og félögum sem selja ríkinu vörur og þjónustu gríðarlegum vanda vegna mikilla vanskila.

Svona stjórn er ekki ásættanleg. Ríkið verður að standa við skuldbindingar sínar. Ríkið verður að sýna gott fordæmi og sýna að það vilji gott viðskiptasiðferði og greiði því óumdeildar skuldir sínar á gjalddaga. Vanskil ríkisins við birgja spítalans hefur keðjuverkun og leiðir til vanskila þeirra sem eiga gudlaugurthormiklar fúlgur inni hjá spítalanum.  Svona gerir maður ekki eins og maðurinn í Seðlabankanum sagði.

Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra. Þér ber skylda til að hlutast til um að fjármálaráðherra leggi nú þegar fram þá fjármuni sem þarf til að tryggja skammlausan rekstur Landsspítala Háskólasjúkrahúss. Finnst þér það boðlegt að ríkisvaldið greiði birgjum spítala ekki fyrir sölu og þjónustu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gústaf Níelsson

Auðvitað er það ekki gott að ríkisstofnun skuli ekki greiða skuldir sínar á réttum tíma, en hverjum öðrum en LSH og opinberum sjúkrastofnunum geta birgjarnir selt vöru sína? Engum, trúlega. Heldur þú að birgjarnir séu ekki fyrir margt löngu búnir að gera ráð fyrir greiðsludrætti í verðlagningu sinni, enda er vandamálið ekki nýtt af nálinni, eða hvað? Búa opinberar heilbrigðisstofnanir við heilbrigt verð á aðföngum sínum? Ég er ekki viss. Kann að vera að það sé okrað á þeim undir drep?

Gústaf Níelsson, 17.7.2008 kl. 20:35

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Það þarf kanski að "fella gengið "svo stjórnvöld séu þess umkominn að takast á við skuldir heilbrigðisþjónustunnar ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.7.2008 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1135
  • Sl. sólarhring: 1137
  • Sl. viku: 1549
  • Frá upphafi: 2292925

Annað

  • Innlit í dag: 1033
  • Innlit sl. viku: 1405
  • Gestir í dag: 984
  • IP-tölur í dag: 960

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband