Leita í fréttum mbl.is

Bretar eiga ekki að fá að koma með hertæki sín inn í landið.

Það er með öllu óásættanlegt að utanríkisráðherra og meðreiðarsveinar hennar í ríkisstjórn skuli ætla að kalla herlið Breta yfir þjóðina til að stunda gagnslaust loftrýmiseftirlit á kostnað íslensku þjóðarinnar.

Bretar hafa farið gegn íslenskum hagsmunum með mjög alvarlegum hætti og sótt að okkur harðar en nokkur önnur þjóð hefur áður gert. Þeir hafa ekkert að gera hér.  Mér er satt að segja ofboðið að ríkisstjórnin skuli fara sínu fram í þessu þrátt fyrir að skýr vilji þingmanna hafi komið fram gegn þessu Bretadekri á Alþingi í gær.

Það er eitt að klippa ekki á öll bönd við Breta eftir það níðhögg sem þeir greiddu okkur. En að kalla þá til að sinna vörnum landins er að leggjast flatur fyrir ofbeldinu.

Þetta var ljóta ákvörðunin Ingibjörg Sólrún


mbl.is Kostnaðurinn 25 milljónir - ekki 50 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta smarta

Rétt, rétt.

Skil ekki alveg þessa ákvörðun.    Það má búast við látum þegar þeir bresku láta sjá sig hér.    Það verður ekki skemmtilegt, og ekki kenna okkur sem engu stjórna hér á landi, um þau læti.     Það geta þau átt við sig Ingibjörg og "hennar sveinar".

Marta smarta, 12.11.2008 kl. 17:21

2 Smámynd: Atli Hermannsson.

Þetta er ótrúlegur vesaldómur hjá Ingibjörgu Sólrúnu. Þar sem það ætti líka að vera hverjum manni ljóst að þessar svo kölluðu loftvarnir er hrein og klárar sýndarmennska án nokkurs tilgangs annars en að skapa flugmönnunum tilbreytingu, þá skilur maður bara ekki svona undirlægjuhátt. Þetta er í raun gróf móðgun við þjóðina eftir allt sem á undan er gengið. Ég held að það sé full ástæða á að kanna hvort læknarnir hafi tekið rangan hlut úr höfðinu á henni og skilið æxlið eftir.   

Atli Hermannsson., 12.11.2008 kl. 17:33

3 identicon

Að sjálfsögðu hafa Bretar ekkert hingað að gera. Við þurfum ekki á vörn þeirra að halda, miklu fremur vörn GEGN þeim. Þeir hafa valdið okkur ómældu tjóni, Icesave-peningarnir eru hreinir smáaurar í samanburði við það tjón sem Bretar hafi valdið Íslandi og Íslendingum.

Gaius (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 17:35

4 Smámynd: Karl Jónas Thorarensen

Ætlar háttvirtur þingmaður að beita sér fyrir því á alþingi að afþakka komu bretana. og hversvegna hefur þingheimur ekki brugðist harðar við, notkunn hryðjuverkalaganna , með því td að slíta stjórnmálasambandinu við þá.

Karl Jónas Thorarensen, 12.11.2008 kl. 17:51

5 identicon

Ég er ekki sammála þessari skoðun þinni Jón. Það þarf að skoða málið í því samhengi sem það er komið úr. Við erum í NATO og þess vegna eru Bretarnir að koma hingað. Varast ætti að gera enn flóknara vandamál úr því klúðri sem í upphafi er ekki Bretum að kenna heldur okkur Íslendingum sjálfum.

Í stuttu máli er þessi þverpólitíska skoðun sem kom fram á þingi um að neita þeim að koma hingað í æfingaferð, kjánaleg og alls ekki til þess fallin að flýta fyrir því að samskipti þjóðanna verði eðlilegt á ný. Við skulum bera ábyrgð á því sem við höfum gert rangt og gera eitthvað til þess að bæta það, en varast að yfirfæra vandræðaganginn á alls óskyldan vettvang.

Það er engin pólitísk upphefð í þessum undarlegu skoðunum ykkar þingmanna um að neita Bretum um þessa æfingaheimsókn, jafnvel þó hún kosti okkur 50 milljónir.

Nökkvi (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 18:59

6 identicon

Gefur Bretunum sjálfdæmi og þorir ekki að hafa skoðun!!!

Þetta er bara ögrun við þjóðina.  Ingibjörg er bara að staðfesta enn frekar að við séum ennþá í hópi "hinna viljugu þjóða".

Það er eins og við séum á fimmtánda ári Halldórs Ásgrímssonar í stól utanríkisráðherra.

Þetta bara versnar.

101 (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 20:44

7 identicon

Sammála Jón. og aðrir meðmælendur. Atli gamli félagi alltaf góður

 Nökkvi af hvaða plánetu kemur þú?

Það er þetta aðgerðarleysi Ríkisstjórnar, og það að þora ekki að vera leiðtogar og segja sínar skoðanir umbúðalaust, sem er að.      Tæpitunga og undirlægjuháttur hefur aldrei gagnast gegn bretum, en dugur Landhelgisgæslu og fastheldni og harka stjórnvalda í fyrri deilum skilaði árangri.

Væri ekki nær að segja okkur úr NATÓ strax og nota peningana í Gæsluna og leifa Íslenskum Gæslumönnum að æfa sig, og endurnýja úreltan búnað hennar, heldur enn að borga fyrir æfingar þjóða sem breta. Sem enn á ný beita okkur ofbeldi sem bræðra þjóð í NATÓ. Og öll hersingin stendur og horfir í hina áttina. Nei takk nóg er nóg. Eru allir búnir að gleyma hversu vel Gæslan hefur staðið sig í gegnum tíðina? Hve mörgum mannslífum hún hefur bjargað. Hún er að grotna niður eftir góðærið.

Nei nú eru breyttir tímar, og okkar vera í NATÓ er bull, Þeirra þjóðir eins og bretar og Bandaríkjamenn eru of uppteknir í olíuhagsmunastríðum um allan heim. Við eigum ekki samleið lengur.

Nú er kominn tími til að við Íslendingar lýsum aftur yfir sjálfstæði og tökum upp hlutleysisstefnu og lýsum okkur sem óháðri, friðelskandi þjóð. Public relations batteríið er jú önnur stór brotalöm hjá Stjórninni.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 21:15

8 identicon

Í framhaldi kæri Jón. Væri það ekki góð fyrirspurn á okkar háa Alþingi. 

Að fá á hreint heildarkostnað okkar, sundurliðaðan á síðustu árum vegna veru okkar í NATÓ. Og hversu mikið loftrýmiseftirlit hinna þjóðanna hér hefur kostað. Hvert og eitt.

Heyrst hefur alt frá 200 miljónum í hvert skipti, og nú er ISG komin niður í 25.

Kveðjur Arnór Valdimarsson.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 21:49

9 identicon

Landhelgisgæslan, lögreglan og fleiri viðbragðsaðilar á Íslandi eru að verða óstarfhæfir vegna fjárskorts um þessar mundir.  Þessar stofnanir sinna raunverulegu öryggishlutverki á Íslandi, en ekki leikaraskap á fyrirfram auglýstum tímum.  Það eru slæm skilaboð til þeirra sem starfa við að tryggja öryggi almennings á Íslandi að hægt sé að sólunda hundruðum milljóna í rugl.  Bretum sem og öðrum þjóðum gæti ekki verið meira sama um íslenskt þjóðaröryggi - en hér er fyrirtaksaðstaða til lágflugsæfinga, sem búið er að banna víðast í Evrópu.  Látum ekki breta fá samviskubit yfir því að þurfa að verja hryðjuverkamenn!

Sigurður Ásgeirsson (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 22:39

10 identicon

Þvílíkur andskotans undirlægjuháttur í kerlingunni. Fyrst brosir hún bara út í annað, þegar breta helvítin lýsa yfir stríði á hendur okkur, síðan segir hún veskú, komið með öll ykkar stríðstól og drullið yfir íslenska þjóð.ÞETTA ERU LANDRÁÐ. Svo er að sjálfsögðu hlegið að okkur út um allann heim.
Kv. Kristján.

Kristjan (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 23:55

11 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég hef áður bent á fánýti þess að vera hér með svonefnt loftrýmiseftirlit lítinn hluta af árinu úr því að landið er án þess á auglýstum tíma mestallt árið.

Ég hef líka bent á það að við sjálf gætum verið með mun betra loftrýmiseftirlit með eigin flugvélum.

Ómar Ragnarsson, 13.11.2008 kl. 00:25

12 identicon

Kerlinguna misminnti ekki neitt!!!!!

Þegar rætt var um loftrýmiseftirlit í vor eða sumar var kostnaðurinn sagður áætlaður 50 milljónir - síðan hefur krónan fallið mikið í verði og kostnaðurinn við þetta eftirlit (þess vegna) lækkað um helming!   Hvað hefur þá kostnaður við varnarmálaskrifstofuna (1,5 milljarðar) lækkað mikið!     Hvar eru nú stærðfræðingarnir????

 Ragnar 

ragnare (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 00:28

13 identicon

Sæll Jón ! Mig langar að spyrja þig, sem stuðningsmaður þinn, og kjósandi. HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA TIL ÞESS AÐ KOMA Í VEG FYRIR AÐ BRETAR KOMI HINGAÐ MEÐ SÍN HERTÓL OG SVEIMI YFIR LANDINU Í ÓÞÖKK ALLRA ÍSLENDINGA ? Ætlar þú að láta NIÐURLÆGJA  okkur  án þess að hreyfa legg eða lið ?

Er ekki kominn tími til þess að þið FRJÁLSLYNDIR berjið í borðið og látið í ykkur heyra, og ÖSKRIÐ á Alþingi og segið að nú sé nóg komið ?

Kv:   Kristján

Ps. Ég vænti svars. 

Kristján Helgason (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 01:14

14 identicon

Ég vil endilega taka undir með Ómari Ragnarssyni, hvers vegna að vera með svokallað loftrýmiseftirlit frá öðrum þjóðum ef að við getum annast það sjálf ?  Væri ekki andskotans  nær að borga okkar eigin flugmönnum fyrir loftgæslu heldur en að borga okkar helsta ÓVINI fyrir sama verk ?Ég bara spyr.

Kristján Helgason (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 01:43

15 identicon

Æti Ómar viti ekki meir um loftrýmiseftirlit en ég.

Því læt ég hann um að orða hlutina fyrir mig í þeim efnum.

En hvað varðar vesaldóminn og aumingjaskapinn hjá stjórnvöldum og þá sérstaklega utanríkisráðherra sem vissulega á að tækla kringumstæðar sem þessar. Þá á ég engin svör því mér er svo gjörsamlega misboðið.

ISG drullastu til að gera eitthvað eitt rétt á þínum ferli!!!!!

Ekki einn einasta Breta á vegum Breskra stjórnvalda hér á landi nema þá með afsökunarbeiðni.

Svo einfalt er það og búið mál.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 02:03

16 Smámynd: Berglind Berghreinsdóttir

     Já  ég er öskureið......

Aumingjaskapur er þetta að segja bara ....

"þið megið ráða þessu ---en það má ekki kosta mikið --

við erum blönk..." 

Maður hélt að hún hefði  bein í nefinu en það virðist ekki vera ...

Vitað er að þjóðin vill ekki sjá bretana og það er hunsað ....

Ég held það ætti að setja þessa gagnslausu stjórn af .... það er niðurlægjandi fyrir þjóðina að hafa þessa bjána í stjórn....

Það er búið að eyðileggja allt sem heitir traust á íslendinum erlendis og það er alltaf talað um að Islendingar séu búnir að ræna og tapa peningum fólksins í hinum og þessum löndum ...

Það vill enginn stjórnmálamaður né auðmaður taka ábyrgð á neinu og þetta pakk er með lágmark milljón Á MÁNUÐI  ekki ári eins og alltof margir.......

Þetta fólk ætti að skammast sín.....

   ENGA BRETA TAKK!!!!!!!!

 Berglind

Berglind Berghreinsdóttir, 13.11.2008 kl. 08:47

17 identicon

Ég er ekki sammála þér Jón! Ég reyndar er sammála Ómari um að þetta loftrýmisbrölt erlendra aðila er óþarfi og þarf að skoða en það að leggjast sérstaklega í stríð við breta er bull á okkar tímum. Við þurfum auðvitað að komast að samkomulagi um okkar skuldir við breta og aðra sem við höfum valdið skaða, það gerir siðmenntað fólk. Vonandi getum við samið þannig að ekki verði eins mikið sem við þurfum að greiða eins og verstu spár telja.

Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 10:25

18 identicon

Auðvitað er þetta stopula eftirlit með "loftrými" ekki mikið meira en partur ef hinu geigvænlega stærilæti íslenskra stjórnvalda, ásamt með draumum þeirra um setu í öryggisráði SÞ og því að gera sig gildandi á alþjóðavettvangi - þessi líka þjóðarpíslin.

Er ekki staðreynd málsins sú að við séum bundin af samningi um að Bretar komi hér til gæslu og fá fyrir það tiltekna greiðslu? Er þetta eitthvað öðruvísi en aðrir samningar og eigum við að geta hrokkið frá honum vegna einhverrar móðgunargirni? Eru ekki samningar bindandi að lögum landsins og alþjóðasamfélagsins?

Í því ljósi má skoða hin kjánalegu viðbrögð Ingibjargar Sólrúnar. Hún veit að samningnum verður ekki rift án vandræða. Yppir því öxlum og segir Bretum að þeir geti svosem alveg komið, þeir eigi ekki að gera ráð fyrir hlýjum móttökum...og jú, okkur þætti vænt um að þurfa ekki að standa skila á öllum þessum peningum fyrir þjónustuna!

Fimmta valdið (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 11:37

19 identicon

Fyrir mér eru aðgerðir breta að flokka okkur terrorista stríðsyfirlýsing!

Enda ríkir hér nú stríðsástand af stórum hluta vegna aðgerða þeirra. Þar með erum við ekki bundin neinum samningi við þá og hefðum átt að slíta við þá stjórnmálasambandi, til að aðrar þjóðir geri sér grein fyrir ástandinu og skaðanum sem hlotist hefur.

Ríkisstjórnin er ekkert að beita sér á alþjóðavettvangi gegn bretum, hvorki í fjölmiðlum, NATÓ eða annarstaðar. Og fyrst það líðst innan Nató svona skeppnuskapur. (Ég vil mynna á að þetta er ekki fyrsta skiftið sem bretar beita okkur valdi, og NATÓ gerir ekkert) Eigum við að senda skýr skilaboð að svona teklúbbur ríkari þjóða, þar sem við fáum bara að borga, er ekki fyrir okkur.

Enda ef stríð yrði hér í Evrópu kæmu hvort eð er þeir sterkustu, sem vildu. Rétt eins og bretar gerðu í seinni heimsstyrjöld að okkur forspurðum. 

Nei nú er rétti tíminn til að gerast:

  Óháð, sjálfstætt, hlutlaust, friðelskandi! Ísland.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 12:27

20 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sammála Jón, en þú ert ekki sammála þessari túlkun á þessu rugli. Ég tók mig til og gerði skopmynd af þeim Össuri og Ingibjörgu! tíhí!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.11.2008 kl. 14:23

21 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

"ert þú ekki sammála" vildi ég sagt hafa!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.11.2008 kl. 14:24

22 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jóin..þú verður ásamt öllum á alþingi að leggjast gegn þessu af öllum þunga. Svona niðurlægingu getum við ekki tekið þeygjandi og hljóðalaust!!!  Og munum ekki gera. Bara alls ekki. Sjaldan hefur mér verið eins misboðið og við það að heyra þessar fréttir.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.11.2008 kl. 15:17

23 identicon

Það má segja að lausnin sem komin er í þetta mál sé góð að öllu leyti. Við þurftum ekki að gera okkur að enn meiri fiflum. Ef við sem þjóð ætlum að bæta ímynd okkar þá riftum við ekki samningum, ekki flóknara en það.

Upphrópendur ættu að skoða málin frá fleiri sjónarhornum en útsýninu úr þeirra eigin bakgarði.

Nökkvi (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 18:56

24 identicon

EKKERT SVAR !

Kristján Helgason (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 01:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 70
  • Sl. viku: 876
  • Frá upphafi: 2291642

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 774
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband