Leita í fréttum mbl.is

Skipulögð glæpastarfsemi?

Hrunbankarnir, Kaupþing, Landsbankinn og Glitnir voru umboðsaðilar um 90 fjármálafélaga sem skráð eru á Tortola eyju í Karíbahafi. 

Af hverju þurftu bankarnir að skrá þessi félög á Tortola eyju? Var fjármálaumhverfið á Íslandi ekki nógu gott þrátt fyrir að fjármagnstekjuskattur og skattar á fjármálafyrirtæki séu með því lægsta sem gerist.

Fróðlegt verður að sjá ef hægt verður hvaða millifærslur fóru milli bankanna og þessara félaga og með hvaða hætti þau höfðu áhrif á bókhald og eignauppgjör bankanna. Þeim mun meira sem fýkur af starfsemi hrunbankanna þá kemur meira og meira eitur í ljós og eignastaða þeirra reynist vera ótrúlega léleg þrátt fyrir að þeir hafi árum saman skilað methagnaði og verið með góða eiginfjárstöðu samkvæmt bókhaldi sem þeir birtu í ágúst 2008 tæpum tveim mánuðum fyrir hrun.

Mér finnst kominn tími til að fjölmiðlamenn elti uppi bankastjóranna í hrunbönkunum og bankaráðsmenn og hlýði þeim rækilega yfir hvað þeir voru að gera.  Spurningin er líka af hverju hafa fjölmiðlarnir ekki gert það? Hvað hefur hindrað þá í því?


mbl.is Félög skráð á Tortola eru 136 talsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Hvernig væri frekar að sérstök þingnefnd yrði til þess að fá þessa menn til að svara til saka svipað og aðrar siðaðar þjóðir hafa það?

Þór Ludwig Stiefel TORA, 12.2.2009 kl. 08:25

2 identicon

Það er ekki hægt að bjóða almenningi upp á þetta hér. 

Venjulegt launafólk er skyldugt til að gefa upp hverja krónu.

Staðgreiðsluhlutfall er hátt í 40%.  Virðisaukaskatt þarf fólk m.a. að greiða af matvöru og annarri nauðsynjavöru. 

Yfirdráttavextir eru hátt í 25% sem fólk þarf að greiða, og hafa verið svo árum saman - líka í góðærinu - í boði Seðlabankans sem hélt hér uppi ofurháum stýrivöxtum - til að hemja neyslu almenning m.a. í glórulausri flatskjárvæðingu heimila .

Hér er áberandi fákeppni - langur listi þar - á markaði  sem rýrir líka verulega tekjur fólks.  Og svo framvegis.

Fólk sem skuldar tekjuskatt er hundelt uppi og ef það það greiðir ekki er því hótað útburði.

Það væri afskaplega ánægjulegt - og nauðsynlegt reyndar - að allir sætu hér við sama borð.

Að sjálfsögðu ber skattayfirvöldum hér að rannsaka rekstur og bókhald þeirra fyrirtækja ítarlega sem störfuðu erlendis eða voru með / geymdu fjármuni úr rekstri erlendis og krefjast skatta af tekjum þeirra. Er það ekki síður nauðsynlegt fyrir þessa aðila, svo að þeir geti varið mannorð sitt ef allt er í góðu lagi.

Hitt er sérlega ánægjulegt, að nú eftir að "rykið hefur sest" að þá kemur betur í ljós hvað skeði og auðveldara verður fyrir eftirlitsaðila m.a. skattayfirvöld að athafna sig.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 10:36

3 identicon

Auðvitað veist þú Jón útá hvað þetta gengur.  Að spyrja af hverju?

Þetta snýst allt um að koma peningum á þá staði þar sem engar skattareglur eða pligtir eru á fjármagnið.  Þetta eru hryðjuverk gangvart  þjóðfélagsstrúkturnum sem þú ert sjálfurí forsvari fyrir.

Af hverju spurðu menn ekki að þessu fyrr, spyr ég.

Til hvers er þetta alþingi ef ekki til að vernda þjóðfélagstrúkturinn gagnvart svona hryðjuverkum. Ég spyr....

Magnus Jonsson (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 10:38

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Auðvitað er þarna í bland skipulögð glæpastarfsemi, held engum blandist um það hugur lengur. Það þarf hinsvegar að koma böndum á glæpalýðinn, er nægur vilji til staðar í það verk? Ég held að svo verði, þegar rykið er almennilega sest, hljóta réttsýnir menn að berja það í gegn.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.2.2009 kl. 11:29

5 identicon

Listi yfir félögin og fréttirnar tvær má finna hér:

http://tidarandinn.is/felogin-a-tortola

abba (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 11:57

6 identicon

Tad er ekki hægt ad hafa svona nefnd,  tvi ad vid flokkumst ekki undir sidada thod, tvi midur

sigthor (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 12:52

7 identicon

Klikkaði stofnun sem heitir FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ,Jón hafðu samband við þá,og athugaðu hvað klikkaði í kerfinu.Sjálfstæðisflokkurinn bíður eftir þér.  FJÁR-MÁLA-EFTIRLIT.mundu það Jón.

Númi (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 13:22

8 Smámynd: Halla Rut

Algjörlega sammála þér Jón. Þetta er gjörsamlega með ólíkindum.

En þessir menn fá algjörlega að vera í friði á meðan hálf þjóðin hamast í Davíð. Ég held að fólk þurfi aðeins að fara að hugsa sjálfstætt og líta á málin frá skynsemissjónarmiði en það er komin tími til. Ekki vorum við skynsöm er við mærðum þetta fólk og rákum þá niður er reyndu að vara okkur við Davíð þar á meðal.

Halla Rut , 12.2.2009 kl. 22:15

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Það er góð spurning, hvað hafi hindrað fjölmiðlana?

kv.Guðrún María.

ps. þakka þér fyrir gott samstarf og gangi þér vel.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2009 kl. 01:26

10 identicon

Jón.

Þú ert alþingismaður!

Þú hlýtur að vera í aðstöðu til að koma einhverri hreyfingu á þetta mál ekki satt.

Þú getur t.a.m. boðað fjölmiðlafund og upplýst þessi mál þar.

Hvernig væri það?

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 08:51

11 Smámynd: Rannveig H

Ég er sammála auðvita var þetta skipulagt, með aðstoð stjórnvalda hverju sinni.

Númi! þú ert orðin svo fyrirsjáanlegur nú þarftu ekki lengur að standa vaktina allir orðnir fyrrverandi flokksfélagar.

Rannveig H, 13.2.2009 kl. 14:56

12 identicon

Það er nokkuð ljóst hvað stjórnendum bankana gekk  til.  Að flytja fjármagn til Tortola eyju er til þessa að koma  fjármagni  undan.  þetta  kallast þjófnaður á íslensku.  Það er búið að mjólka nánast allt út úr fjármálakefinu hér heima.  Þegar  það  vantaði meira fjármagn   gert   strandhögg í evrópu.  Sennilega á margt undarlegt eftir að koma í ljós ef málið verður rannsakað áfram.  Sennilega er þetta rétt hjá Boris Berezovsky um peningaþvætti rússneskra auðmanna  hér á  landi.  Það þarf að rannsaka þessi mál frá grunni.  Sölu bankana , annara ríkisfyrirtækja, sameining sparisjóðana .....Líklega láta Íslendingar þetta yfir sig ganga eins og annað.  Loka augum, eyrum og gleyma.

Friðrik Ólafsson (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 85
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 4321
  • Frá upphafi: 2291340

Annað

  • Innlit í dag: 75
  • Innlit sl. viku: 3981
  • Gestir í dag: 62
  • IP-tölur í dag: 57

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband