Leita í fréttum mbl.is

Alvörugjaldmiðil

Umræður á Alþingi um þingsályktunartillögu mína um að kanna möguleika á  myntsamstarfi við Noreg eða taka upp fjölþjóðlega mynt stóð meginhluta af deginum. Vissulega greindi fólk á hvort betra væri að leita eftir myntsamstarfi við Noreg eða taka upp Evru eða jafnvel athuga með Bandaríkjadal eða jafnvel aðrar fjölþjóðlegar myntir. Eitt voru þó allir sammála um sem tóku til máls en það var að til frambúðar yrði ekki búið við íslensku krónuna.

Illugi Gunnarsson flutti athygliverðar ræður þar sem hann rakti m.a. peningamálastefnu liðinna ára. Valgerður Sverrisdóttir gerði grein fyrir hugmyndum um svipaði efni sem hún setti fram fyrir nokkrum árum.

Mér fannst það athyglivert að víðtæk samstaða skuli vera á Alþingi um það að nauðsynlegt sé að taka upp fjölþjóðlega mynt og ekki verði búið við krónuna á floti til frambúðar. Með tillkomu fjölþjóðlegrar myntar mætti líka henda hækjum krónunnar eins og verðtryggingu.

Nú er spurningin hvort að taka á upp Norska krónu

Danska krónu

Dollar

Evru (með eða án samninga)

Eða jafnvel Enskt pund eða Yen eða svissneskan franka.

En krónan gengur ekki ein og sér á floti í ólgusjó spekúlanta og pappírsbaróna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dollar.  Hann er sterkastur.

EE elle

EE (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 10:27

2 identicon

Ég tel að nýr gjaldmiðill, og sérstaklega dollar, sé aðgangsmiði í annað hrun.  Dollarar eru prentaðir ótakmarkað og hent á afleiðubálið, ekkert gagnast það samt til að hjálpa efnahagnum.  Það kemur að skuldadögum hjá þeim, og það verður fljótlega.

sjá http://www.trendsresearch.com/

Gullvagninn (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 10:55

3 Smámynd: Vilhjálmur Þorsteinsson

Fagna umræðunni og niðurstöðu þinni, Jón, sem er rökrétt.

En vandinn við að taka upp annan gjaldmiðil er sá að það þarf samstarf við viðkomandi land og aðgang að öflugum gjaldeyrisforða.  Ekki er nóg að skipta út seðlum og mynt (M0) eins og sumir virðast halda, heldur þarf annað hvort trúverðugleiki að vera svo mikill að engum detti í hug að færa peninga úr íslenskum bönkum, eða gjaldeyrisforðinn að vera nægur til að duga fyrir talsverðum hluta allra innistæðna, bundinna og óbundinna, og auðseljanlegra skuldabréfa að auki. Þarna er ákveðin leikjafræði að baki: ef trúverðugleiki og gjaldeyrisforði er nægur, kemur ekki til þess að það reyni á hann.  En ef gjaldeyrisforði er ónógur og ekki gengið tryggilega frá lausum endum, mun fólk flýja innlenda banka umvörpum.

Meðal annars af þessum sökum virðist raunhæfasti möguleikinn í dag vera innganga í ESB, og upptaka evru eftir aðlögun skv. ERM II.  En ef aðrir raunhæfir kostir finnast, er sjálfsagt að skoða þá líka.

Vilhjálmur Þorsteinsson, 17.2.2009 kl. 11:30

4 identicon

en af hverju er ekki talad um alvöru bankamenn? eda alvöru hagstjórn og alvöru Fjármálaeftirlit? Íslenska krónan var algert fórnarlamb í öllu hruninu, hún hafdi dugad Íslendingum vel fram til 2003 thegar menn fóru í útrás og heimilin fóru í erlend lán til ad sleppa vid okurvexti Sedlabankans, svo thegar lánadrottnar vilja peninga sína til baka er enginn gjaldeyrir eftir. Hann fór út og sudur, í flatskjái, tortola eyjarnar ofl. Krónan var berstrípud fyrir spákaupmönnum út af ónýtri hagstjórn. Krónan getur enn haldid sínu ef menn bakka fimm ár aftur til 2003 og reyna nú af öllum maetti ad laga efnahagsmálin. Kvedja Hannes

Hannes (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 15:14

5 identicon

Má ég biðja um norska krónu takk og það sem fyrst. Ég vil ekki sjá helvítis EU. Við eigum enga samleið með því hiski. Hinsvegar eigum við góða viðskiptalega hagsmuni með Norðmönnum. Þeir munu bakka okkur upp í myntsamstarfi af einhverju tagi. Þetta þolir í raun enga bið. Alþingismenn þurfa að fara að taka á þessu með röggsemi hætta þessu kjaftæði út og suður um eithvað sem skiptir engu málil.

Haraldur A. Haraldsson (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 20:51

6 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Eru menn enn á því frumstæða stigi, að tala um að taka upp erlenda mynt ? Þetta er ekki nauðsynlegt, því að við getum tekið upp innlendan gjaldmiðill og gert hann sterkan með notkun erlendrar stoðmyntar. Á þennan hátt erum við ekki að taka upp erlenda mynt, heldur einungis að notfæra okkur hana til bak-stuðnings.

Þessu fyrirkomulagi er stjórnað af Myntráði og nær ekkert getur haggað stöðugleika svona fyrirkomulags. Ef við notuðum US Dollar sem stoðmynt og sæum eftir 1 ár eða 10 ár, að hann hentaði ekki, myndum við einfaldlega skipta yfir í annan gjaldmiðil sem væri betri.

Við getum jafnvel tekið í notkun sterkan innlendan gjaldmiðil undir stjórn Myntráðs og lofað Íslendsku Krónunni að lifa áfram undir stjórn Seðlabankans. Þetta myndi ekki kæta mig, en er samt algjörlega mögulegt og ásættanlegt.

Gullvagninn er með gamlar hrakspár um fall US Dollars, en hvaða gjaldmiðill er þá betri ? Hann þarf að vera:

  1. Alþjóðlegur gjaldmiðill.
  2. Raungengi hans stöðugt.
  3. Vera gjaldmiðill sem almenningur þekkir.

Sumir kjánar sjá ekkert nema Evruna og inngöngu í ESB, en almenningur er farinn að sjá í gegnum málflutning þeirra. Nauðsynlegur varasjóður fyrir Myntráðið er jafnvirði 30 milljarða Króna, sem er um 15% umfram grunnfé hagkerfisins, einnig nefnt M0, eða seðlar og mynt í umferð. EKKI er þörf á stærri höfuðstól.

Ég er með ítarlegri umfjöllun á blogginu mínu !

Loftur Altice Þorsteinsson, 17.2.2009 kl. 21:46

7 identicon

Kærar þakkir, Loftur.

EE elle

EE (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 22:50

8 identicon

Ég hef haldið því hér fram í nokkrar vikur á síðu Jóns,að hann eigi eftir að ganga aftur í Sjálfstæðisflokkinn,það gerðist í dag 18 febrúar´Hann Jón Magnússon er komin heim,í Sjálftökuflokkin.

Númi (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 19:54

9 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þú sagðir hér að ofan "Mér fannst það athyglivert að víðtæk samstaða skuli vera á Alþingi um það að nauðsynlegt sé að taka upp fjölþjóðlega mynt og ekki verði búið við krónuna á floti til frambúðar. Með tillkomu fjölþjóðlegrar myntar mætti líka henda hækjum krónunnar eins og verðtryggingu"

Getum eflaust notað marga gjaldmiðla, en ég tel að fyrst þurfum við að ná jöfnuði og síðast en ekki síst að kenna fólki að spara / fara vel með eignast sparnað / sparifé - kanski að bæta þannig námsefni á námsefnaskrá - annað eins er nú gert

Velkominn í Sjálfstæðisflokkinn Jón Magnússon 

Jón Snæbjörnsson, 18.2.2009 kl. 23:04

10 identicon

Það er misskilningur að eftir upptöku á nýjum gjaldmiðli þá fari fólk með fé sitt úr landi, hreinlega rangt. Það jafngildir einungis vantrausti á bankakerfið og er engin ástæða til þess.

Krónan er hættulegust með þetta flöktandi gengi sem einungis ýtir undir áhættufjárfestingar. Hún hefur í fyrsta lagi aldrei flotið og er misskilningur að tala um flot með þá stýrivaxtastefnu sem hér hefur tíðkast. Það eru engar forsendur fyrir því að nokkurn tíma verði hægt að setja hana á flot af viti.

Vandamálið við upptöku nýs gjaldmiðils eru skuldir í krónum. Ef að upptakan fer fram á hagstæðu gengi þá verður gengistap hjá vissum aðilum sem búa við þær skuldir miðað við núverandi gengi.

Þetta eru þó ekki rök gegn upptöku.

Íslendingar verða að tileinka sér eðlilega viðskiptahætti með upptöku sterks gjaldmiðils sem notaður er á stóru svæði. Einnig er ótækt að alltof stór hluti rekstrarfé stórfyrirtækja sé ekki fært til bókar hér á landi og er stór hluti ástæðurnar krónan.

Gengishagnaður erlendra og innlendra aðila á markaði hér verður úr sögunni með þeim formerkjum sem við þekkjum. Það verður samt að hrista af sér þá aðila við þessa ákvarðannatöku.

Upptaka gjaldmiðils kallar á umbætur sem eru nú margar á leiðinni, bankalöggjöf og eftirlit, sterk skattalöggjöf ect. Algjört gagnsæi og að dregið verði saman í afskiptum hins opinbera af rekstrarmálum einkafyrirtækja. Ríkisábyrgð þarf að varast utan hins eðlilega stoðkerfis heilsugæslu, skólakerfis ect.

En helstu umbæturnar felast í jöfnun í atvinnuuppbyggingu. Þar sem að við munum hverfa frá því að láta krónuna vega upp halla en þess í stað búa við hina einu og sönnu fastgengisstefnu sem fylgir því að stýra ekki eigin gjaldmiðli, þá kallar það á í fyrsta lagi að jöfnuð verði hlutföll í útflutningsvegum okkar. Þetta þíðir að ekki má byggja fleiri álver, heldur verða að koma atvinnuvegir til sögunnar sem vega upp gagnvart lægðum á álmarkaði. Það verður að fjölga eggjum í körfunni og taka upp fleiri atvinnuvegi.

Mér líst einna best þessa dagana á að lagt verði kapp á að fara í myntsamstarf við Norðmenn. Best væri að gera það með samvinnu Norska Seðlabankans þar sem að einhliða upptaka er þrautalending.

Hitt er annað mál að ef ekki er gripið í hnakkadrambið á þessu máli strax þá lendum við mögulega í því innan skamms að taka upp dollar eða Evru einhliða þar sem að enginn önnur leið verður eftir. Sem sagt þá verður skútan sokkin.

Því lengur sem drollað er yfir þessu máli því meiri verður hættan. Þess vegna á að lenda samningum við Norðmenn og það í einum grænum

sandkassi (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 01:09

11 Smámynd: ThoR-E

Norska krónu??

Bíddu nú við Jón, ert þú ekki yfirlýstur stuðningsmaður Evrópusambandsaðildar? Tengist ekki fráhvarf þitt frá Frjálslyndaflokknum það að flokksmenn höfnuðu aðildarviðræðum??

Og síðan ferðu í Sjálfstæðisflokkinn sem er yfirlýstur andstæðingur ESB... hvað gengur þér til?

Eða er fráhvarf þitt úr FF vegna stöðu flokksins í skoðannakönnunum?? þannig að hægt er að segja að þú sért ein af rottunum sem flýja sökkvandi skip í stað þess að styðja við flokkinn og þá kjósendur sem komu þér á þing.

Ég held að ég hafi aldrei séð eins mikið eftir atkvæði og nú.

Takk fyrir Jón Magnússon!

ThoR-E, 19.2.2009 kl. 14:49

12 identicon

Það er engin skylda að taka upp Evru þótt menn gangi í ESB.

sandkassi (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 15:58

13 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

held að við ættum að ganga alla leið - við virðumst ekki ráða við þetta þe að hér eru svo mikil valdapólitík að hálfa væri nóg og því best að láta slag standa áður en stefnir í enn verrra og ganga í austrið  - eða hvað

Jón Snæbjörnsson, 20.2.2009 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 738
  • Sl. sólarhring: 1083
  • Sl. viku: 2268
  • Frá upphafi: 2293736

Annað

  • Innlit í dag: 671
  • Innlit sl. viku: 2062
  • Gestir í dag: 642
  • IP-tölur í dag: 628

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband