Leita í fréttum mbl.is

Eru vinstri grænir að klofna?

Yfirlýsingar Jóns Bjarnasonar um að fresta beri aðildarviðræðum að Evrópusambandinu fundust mér með miklum ólíkindum frá ráðherra í framhaldi af ályktun Alþingis um að farið skyldi í aðildarviðræður.

Nú hefur samflokksmaður Jóns Bjarnasonar, formaður utanríkismálanefndar Árni Þór Sigurðsson blásið á þessa yfirlýsingu Jóns og telur hana réttilega skaðlega fyrir hagsmuni Íslands jafnframt að hún sé ómarktæk þar sem hún sé ætluð til heimabrúks í Norðvesturkjördæmi. Ekki liggur ljóst fyrir hvað Árni Þór á við með þessu hvort hann  er að tala um að Jón sé að reyna að blekkja eða reyna að slá ryki í augu kjósenda sinna og hugur fylgi ekki máli eða þá eitthvað annað.

Ég get verið sammála Árna Þór Sigurðssyni um það að ummæli Jóns Bjarnasonar eru óheppileg. En þeir eru samflokksmenn og það sem hefur verið að birtast landsmönnum er víðtækt sundurlyndi og ósamkomulag innan Vinstri grænna.  Fjórir þingmenn Vinstri grænna þar af einn ráðherra flokksins hafa t.d. ekki hikað við að hjóla í formann flokksins Steingrím J. Sigfússon vegna Icesave samninganna. Einn þingmaður vegna aðildarumsóknarinnar að Evrópusambandinu. Þá virðist sem Steingrímur sé orðinn ansi þreyttur á því að bera af sér spjótalög pólitískra andstæðinga og þurfa síðan að bregðast við með jafnvel enn meiri leikni vegna spjótalaga samflokksmanna sinna.

Sundurlyndið í Vinstri grænum birtist m.a. með yfirlýsingu Jóns Bjarnasonar gegn Evrópusambandinu og viðbrögðum Árna Þórs Sigurðssonar við því. Með yfirlýsingu Atla Gíslasonar um fullveldi og sjálfstæði Íslands í kjölfar ummæla flokksformanns síns um að engin vildi heitu kartöfluna og vægast sagt afar sérkennilegum ummælum Ögmundar Jónassonar við ýmis tækifæri þar sem hann í raun lýsir yfir andstöðu við formanninn. Hvað er eiginlega á seyði í Vinstri grænum? Er flokkurinn að klofna eða er verið að reyna að koma formanninum frá?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ég held að fólk sé bara einfaldlega hundfúlt yfir þeim lendingum sem var farið í ESB og Icesave málum.

Héðinn Björnsson, 27.7.2009 kl. 14:23

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Mjög gott að vinstri græn styðjist mörg hver við dómgreindina þegar þau taka afstöðu til mála þó Steingrímur og Árni þór styðjist við eitthvað annað.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 27.7.2009 kl. 17:02

3 identicon

....eða pólitískt kvikuskot? Greining þín rétt.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 17:44

4 Smámynd: Jón Magnússon

Hvað ætlar það þá að gera Héðinn fyrst það er hundfúlt. Halda áfram að vera fúlt eða fara eða reka formanninn?

Jón Magnússon, 27.7.2009 kl. 19:23

5 Smámynd: Jón Magnússon

Ég átta mig ekki á þessari athugasemd Jakobína. Færslan snýst um hugsanlegan klofning í Vinstri grænum en ekki hvort þessi eða hinn hefur rétt fyrir sér en þar ruglar það dómgreind þína að þú ert ósammála þeim Steingrími og Árna Þór. 

Af gefnu tilefni vegna spurningar þinnar þá loka ég á athugasemdir sem eru með sóðalegu orðbragði eða að mínu mati algert rugl eða vega persónulega að aðilum sem kemur málinu ekki við. Mér finnst það þurfa að vera lágmarkssiðareglur á blogginu og reyni að viðhafa þær og vil ekki inn á mína síðu orðbragð eða aðdróttanir sem hæfa ekki siðuðu fólki.

Jón Magnússon, 27.7.2009 kl. 19:28

6 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Gísli. Það verður spennandi að sjá hvort að Steingrímur heldur þetta út.

Jón Magnússon, 27.7.2009 kl. 19:30

7 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

svo sem umhugsunarver en, viið skulum einbeita okkur að okkar verkum - látum aðra "klúðra" hjá sér

Jón Snæbjörnsson, 27.7.2009 kl. 20:25

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Jón.

Þessi tilgáta er alls ekki út í hött. Það er mun meira sundurlyndi milli armanna en milli flokka.   Ég spái því að Steingrímur sé farinn að hugsa lengra fram í tímann. Jóhanna verður ekki lengi formaður og enginn kandídatanna nógu sterkur til að vera augljós valkostur. 

Sigurður Þórðarson, 27.7.2009 kl. 22:40

9 Smámynd: Jón Magnússon

Góð tilgáta Sigurður.

Jón Magnússon, 27.7.2009 kl. 23:00

10 identicon

ég held að það fari að sjóða upp úr hjá Vinstri Grænum og má því segja að stjórnin standi ekki sérlega föstum fótum heldur. Það var athyglisverð grein hjá Hjörleifi Guttormssyni um daginn og segir mér hugur að þarna tali grasrótin.

sandkassi (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 00:06

11 Smámynd: Elle_

Jón, ég skil ekki þann flokksaga sem bæði þú og nokkrir styðjið.   Lengi hefur fjöldi fólks verið andvígur flokksaga/flokksvaldi.   Og bloggið í vetur var fullt af slíkum umræðum, fyrir kosningar.   Núna hefur þú komið  með 2 pistla í röð sem lúta að flokksvaldi VG og/eða "brotum" alþingismanna á slikum aga.   Og þú álítur það óhæfan stjórnmálamann sem fer gegn flokksaga/flokksvaldi og þó maðurinn sé 100% samkvæmur sjálfum sér og stálheiðarlegur.   Og það á við bæði um Atla Gíslason og Jón Bjarnason.  Nú endurtek ég:  Það er óheiðarlegt af alþingismanni að kjósa og vinna gegn sinni sannfæringu.   Það er líka held ég brot á stjórnarskránni og þ.a.l. svik.   Flokkavald og flokksagi er gersamlega úrelt í landinu og mál að stoppi.   Flokksagi og flokksvald er óæskilegt og spillingarvaldandi.

Elle_, 28.7.2009 kl. 00:08

12 Smámynd: Jón Magnússon

Er þá Steingrímur J. í einhverri annarri rót en grasrótinni Gunnar.  Alla vega þá hika forustumenn í flokknum ekki við að hjóla í Steingrím án þess að jafnvel tilefni virðist vera fyrir hendi.

Jón Magnússon, 28.7.2009 kl. 11:11

13 Smámynd: Jón Magnússon

EE í þeim pistlum sem þú ert að vitna til þá er ég að tala um samninga sem fólk hafði gert. Það hefur ekkert með flokkavald eða flokksaga að gera.  Þeir hjá Vinstri grænum sem vildu ekki greiða fyrir þinglegri meðferð á tillögunni um aðildarviðræður að Evrópusambandinu hefðu þá átt að gera strax grein fyrir því áður en stjórnarsáttmálinn var samþykktur. Ég veit ekki til þess að Jón Bjarnason t.d. hafi annað en samþykkt hann.

Því fer víðs fjarri að ég telji það óhæfan stjórnmálamann sem fer gegn flokksaga. Ég held að okkur hefði farnast betur ef fleiri hefðu gert það á ýmsum tímum m.a. á þeim tíma þegar Davíð Oddsson bar ægishjálm yfir öllu í Sjálfstæðisflokknum. Ég virði þá menn sem taka málefnalega afstöðu og standa við hana. Ég get ekki sagt hið sama um menn sem samþykkja samkomulag og fara ekki eftir því.

Hins vegar er þessi færsla um spurninguna hvort Vinstri grænir séu að klofna. Þú varast EE að taka það  til umræðu.

Jón Magnússon, 28.7.2009 kl. 11:16

14 Smámynd: Elle_

Jón, ég varast ekki að taka það til umræðu hvort VG er að klofna, ég bara veit ekkert hvort þeir eru að klofna eða ekki.  En skrifaði þarna um flokkavald þar sem mér finnst það koma inn í það sem þú  skrifaðir og lykil-mál.    

Elle_, 28.7.2009 kl. 11:58

15 identicon

honum þykir líklega grasið gott í sínum gömlu heimahögum. Mín skoðun er reyndar sú að þeir hafi næg tilefni til þar sem að hann virðir meira forfeður sína heldur en afkvæmið.

En fyrst og fremst held ég að Steingrímur sé bestur við Steingrím sjálfan.

sandkassi (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 12:29

16 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ætli Gunnar Waage hafi ekki hitt naglann á höfuðið. Grasrót V.g er farin að efast um sína pílitísku samstöðu með foringjanum. Steingrímur J. er farinn að leika einhverja pólitíska refskák en gleymdi að þjálfa sig í leiknum eða lærði hann öllu heldur aldrei. Það kom rækilega í ljós eftir alþingiskosningarnar 2007.

Árni Gunnarsson, 28.7.2009 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 59
  • Sl. viku: 1703
  • Frá upphafi: 2291593

Annað

  • Innlit í dag: 39
  • Innlit sl. viku: 1529
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband