Leita í fréttum mbl.is

Segir viðskiptaráðherra af sér?

Spurning er hvort viðskiptaráðherra mun axla ábyrgð og segja af sér.  Í nokkurn tíma hefur flogið fyrir að Vinstri grænir vilji losna við hann. Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna ber viðskiptaráðherra og ríkisbankana þungum sökum.

Lilja Mósesdóttir er formaður Viðskiptanefndar Alþingis. Hún sagði á Alþingi að Viðskiptanefnd hafi komist að raun um að bankarnir fari ekki að samræmdum lögum og reglum sem gilda varðandi endurskipulagningu fyrirtækja og hefur boðað viðskiptaráðherra á fund nefndarinnar á morgun.

Ummæli Lilju Mósesdóttur sýna fram á óþol gagnvart viðskiptaráðherra.  Það er alvarlegt þegar formaður Viðskiptanefndar Alþingis segir að bankarnir starfi ekki eftir lögum og reglum.  Ábyrgðina á því ber viðskiptaráðherra en hann eins og ríkisstjórnin hafa vanrækt að móta samræmdar reglur um starfsemi bankanna og gæta þess að þar sé farið að lögum. Þegar formaður Viðskiptanefndar segir nefndina hafa komist að raun um lögbrot bankanna þá liggja slíkar upplýsingar fyrir hjá Viðskiptaráðherra sem greinilega gerir ekkert í málinu. Viðskiptaráðherra var sá sem talaði hvað hæst um það á sínum tíma að aðrir tækju sinn poka og öxluðu ábyrgð. Hvað segir hann nú um sína ábyrgð?

Það verður óneitanlega fróðlegt að sjá hvernig þetta mál verður leyst á kærleiksheimili ríkisstjórnarinnar og stuðningsflokka hennar.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/11/25/bankar_fara_ekki_ad_reglum/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Orð og efndir hafa ekki farið saman hjá þessari ríkisstjórn.  Hann á ekki eftir að fara frá fyrr en eftir næstu kosningar eða ríkisstjórnarskipti.  Það er allavega mín spá.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 25.11.2009 kl. 23:08

2 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Kærkominn og góður pistill Jón. Ég hef trú á Lilju og ég vona að hún láti ekki valta yfir sig. Kveðja úr Grundarfirði.

Þráinn Jökull Elísson, 25.11.2009 kl. 23:17

3 Smámynd: Jón Magnússon

Það gæti orðið uppstokkun í ríkisstjórninni um áramótin Gísli. En sennilega hefur þú rétt fyrir þér.

Jón Magnússon, 26.11.2009 kl. 08:29

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Þráinn. Það verður alla vega fróðlegt að vita hvað út úr þessum viðskiptanefndafundi kemur í dag.

Jón Magnússon, 26.11.2009 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 69
  • Sl. sólarhring: 1203
  • Sl. viku: 5813
  • Frá upphafi: 2277564

Annað

  • Innlit í dag: 68
  • Innlit sl. viku: 5374
  • Gestir í dag: 68
  • IP-tölur í dag: 67

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband