Leita í fréttum mbl.is

Kaldhæðni náttúruaflanna

Er það ekki með ólíkindum að þegar trúboðar hnattrænu hlýnunarinnar sem setið hafa á rökstólum í Kaupmannahöfn í heila viku til að velta upp hugmyndum um með hvaða hætti menn geti takmarkað hlýnun jarðar við 2 gráður að þá skuli þeir Gordon Brown og Sarkozy koma heim þar sem lestarsamgöngur á milli landanna eru frosnar og meiri kuldi en mælst hefur í langan tíma.

Obama Bandaríkjaforseti snýr til höfuðborgar sinnar Washington DC þar sem snjór er nú meiri en elstu menn muna.

Hvernig skyldu trúboðar hnattrænu hlýnunarinnar skýra þetta?

Verður jörðin ekki bara vistvænni ef það hlýnar um 2 gráður eða rúmlega það? 

Hvað svo sem hin pólitíska veðurfræði segir um það þá held ég að við höfum ekkert eða sára sára lítið með það að gera.

Hitt er svo annað mál að við eigum að takmarka óþverra og óþrif sem mest og þess vegna eigum við að gæta að okkur og sýna náttúrunni sem mesta tillitsemi, en ekki með því að setja á kvótakerfi losunar eða borga einræðisherrum eða spilltum stjórnvöldum út og suður milljarða á altari trúarbragðanna um hnattrænu hlýnunina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Sæll Jón.

Flott grein hjá þér. Þessi rétttrúnaður er alveg út úr öllu korti. Sjálfur bý ég nú hér á Costa Blanca á Spa´ni og hér fór frostið í mínus 4 gráður s.l. nótt og snjór er hér víða á jörð. Margt af þessum óhlýnindum hér hefur ekki skeð í 30 eða 40 ár.

ESB apparatið hleður einmitt undir svona rétttrúnað og sértrúarbrögð á gerfivísindin !

Skoðaðu það aðeins í fullri vinsemd !

Góðar stundir.

Gunnlaugur I., 21.12.2009 kl. 01:36

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Láttu ekki svona, veður sveiflast alltaf.

Bæði skemmri tíma og lengri tíma.

Oftast nær, eru skemmri tíma sveiflur að finna, inan lengri tíma - sbr. Ísland hefur haft hagvöxt að meðalatali síðan 1904, en það hafa komið kreppu- og samdráttarár, inn á milli. Jafnvel, samdráttartímabil er stóðu yfir um eitthver árabil. Samt, er meðaltal alls tímabilsins mjög greinilega upp á við.

Þannig séð, skemmri tíma sveiflur, hafa annan hrynjanda en lengri tíma, og oftast nær hafa ekkert með þá lengri tíma að gera. 

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 21.12.2009 kl. 02:08

3 identicon

Langar bara að benda á smá staðreyndir, veit ekki hvort það er tilviljun eður ei, en öfgarnar í veðurfari hafa farið vaxandi undanfarin ár. T.d. óvenjumiklir kuldar í N-Ameríku, óvenju miklar rigningar á Bretlandi. Flóð, ofsaveður og aurskriður í V-, A,  og Suður Evrópu.

Þetta eru bara dæmi sem hægt er að nefna nálægt okkur, hvernig verður þetta á næstu árum. Maður vill helst ekki hugsa svo langt, því miður.

Viskan (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 11:17

4 identicon

Öfgar í veðri er hluti af þessu dæmi krakkar mínir.

DoctorE (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 14:22

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Já hvernig verður veðrið næstu árin. Það hefir engin geta spáð það langt. Verðum við ekki bara að bíða og sjá til eða þurfum við virkilega að vita það. 

Valdimar Samúelsson, 21.12.2009 kl. 16:40

6 Smámynd: Gústaf Níelsson

Man einhver hvenær hún kom fram þessi hugmynd um hnattræna hlýnun af mannavöldum? Núna er þetta orðinn milljarða bisness með mengunar- og útblásturskvóta, sem eru óefnisleg gæði, í reynd algerlega huglæg. Svona eins og viðskptavildin fræga í efnhagsbólunni íslensku. Hún lætur ekki að sér hæða pólitíska veðurfræðin og ekki þegar hún er orðin góður vísindabísness og stjórnmálabísness ofaní kaupið. Ég held að mannskepnan ætti bara að hætta að leika guð og sættast við smæð sína og taka því sem að höndum ber. Að ætla sér að stjórna veðurfari eru meiriháttar oflæti. Ég held þeim sé bara ekki sjálfrátt þessum veðurfarsbísnessmönnum.

Gústaf Níelsson, 21.12.2009 kl. 16:53

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Gunnlaugur. Ég er sammála þér um það að stjórnmálamenn í Evrópusambandinu hafa farið framarlega í flokki helstu réttrúnaðarsinnanna í loftsslagsmálum en það gerir líka umhverfisráðherrann íslenski. Það er merkilegt að það skuli verða svona kalt einmitt eftir að loftslagsráðstefnunni um hlýnun jarðar lýkur. Einhver sagði að þetta sýndi að almættið hefði góðan húmor.

Jón Magnússon, 21.12.2009 kl. 22:36

8 Smámynd: Jón Magnússon

Það er alveg rétt Einar veður sveiflast alltaf og það hefur ekki verið að hlýna á jörðinni síðasta áratug. Hvaða vitleysa er þetta þá. Af hverju á að leggja hundraða milljarða skatta á og setja losunarkvóta hægri vinstri þannig að það verður nánast ofviða að halda uppi flugsamgöngum í núverandi mynd þegar engin þörf er á þessum aðgerðum.

Jón Magnússon, 21.12.2009 kl. 22:38

9 Smámynd: Jón Magnússon

Með því að beita viskunni og skoða söguna þá kemur í ljós að það hafa alltaf verið ákveðnar öfgar í veðrinu. Það verður líka að skoða að fólki hefur fjölgað gríðarlega mikið á undanförnum áratugum og nú búa margir á stöðum sem voru taldir varhugaverðir og hættulegir. Fréttamenn hafa aldrei velt þeirri staðreynd fyrir sér. 

Af hverju var Vopnafjörður talinn óbyggilegt svæði á Íslandi árið 1870? Af hverju var það eitt veðursælasta svæðið á landinu árið 1970? Ekki var það vegna hnattrænnar hlýnunar.

Jón Magnússon, 21.12.2009 kl. 22:42

10 Smámynd: Jón Magnússon

Doktor það eru ekki meiri öfgar í veðrinu núna en voru 1967 svo dæmi sé tekið.

Jón Magnússon, 21.12.2009 kl. 22:44

11 Smámynd: Jón Magnússon

Nei Valdimar en við þurfum ekkið að henda hundruðum milljarða og búa til örbirgð framtíðar vegna helvítisspádóma sem engin fótur er fyrir.

Jón Magnússon, 21.12.2009 kl. 22:45

12 Smámynd: Jón Magnússon

Gæti ekki verið meira sammála ágæti Gústaf. 

Jón Magnússon, 21.12.2009 kl. 22:46

13 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þú missir alveg af punktinum, sem var sá að sveiflur um t.d. einn áratug, skipta ekki endilega máli - sbr. dæmið um Ísland, þ.e. það hefur gengið í gegnum nokkurra ára tímabil efnahagslegrar kyrrstöðu, tímbabundnar kreppur - en, samt hefur heildarstefnan verið upp á við síðan 1904.

Einn áratugur af hlutfallslegri kyrrstöðu í hitastigi, breytir engu um lengri tíma þróun hitastigs.

Mér sýnist þú, hafa læst þig sjálfan inni í þeirri hugmynd, að þetta sé vitleysa og að þú neytir að líta út frá því, og skoða málið án fyrirfram mótaðra skoðana.

Þetta er voðalega einfalt, þ.e. mesta magn af CO2 í lofthjúpnum, síðustu milljón ár.

Ég skil ekki hvernig fólk, lítur framhjá slíku. Því, tölfræðilegur samaburður á öllum þeim tímabilum, sem fram koma í ískjörnunum sýna mjög skýrt samband, milli hitastigs og CO2 magns í lofthjúpi.

Þetta, er e-h fanatík hjá þér, því miður.

------------------------------

Setjum hluti aftur í annað samhengi, þ.e. skuldir.

Síðustu 2. áratugi, hefur sá skilningur verið uppi á Vesturlöndum, að allt í lagi sé að hafa hallarekstur og safna skuldum. Lengi vel, virtist þetta vera satt, þ.e. hækkandi skuldir skiluðu sér ekki í hærri lántökukostnaði og fyrir mörgum, virtist partýið geta haldið áfram.

Nú, virðast menn, þegar kreppa er skollin á, þ.e. skuldakreppa sem sífellt er að vinda upp á sig, enda stefna skuldir fjölmargra ríkja yfir 100 af GNP; að eftir allt saman er rekstrarhalli og skuldasögnun í reynd vandamál.

---------------------------------------

Eins og ég sé þetta, er mannkynið að hegða sér nákvæmlega eins gagnvart lofthjúpnum, þ.e. safna skuldum og vonast til þess, að það verði enginn kostnaðarhækkun því samfara.

Mér sýnist, að partý-hugsunar hátturinn, þ.e. að aldrei komi að skuldadögum, sem var viðloðandi síðustu 20 árin, í hagkerfunum ætli að deyja erfiðum dauðdaga - hvernig sem litið er á mál.

En, mannkyn virðist eiga mjög auðvelt að telja sér trú um þ.s. það vill trúa, þ.e. akkúrat að allt í lagi sé að halda áfram, að taka út og að skuldadagar séu enn langt framundan.

-------------------------------

Ég er hissa á að íhaldsmaðurinn, skuli ekki átta sig á þessu samhengi.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 21.12.2009 kl. 22:57

14 Smámynd: Jón Magnússon

Einar Björn ég tek fram að við eigum að sýna náttúrunni virðingu og umgangast hana sem slíka. Það er annað en hin meinta hnattræna hlýnuna af manna völdum. Skuldadagar koma alltaf af skuldum en það gildir ýmislegt annað í veröldinni varðandi aðra og óskylda hluti. Svo er ég ekki íhaldsmaður og hef aldrei verið.

Jón Magnússon, 22.12.2009 kl. 10:30

15 Smámynd: Reputo

Ég hef reyndar ekki náð að mynda mér afgerandi afstöðu í þessum málum ennþá. Það eru mörg góð og gild rök í hjá báðum fylkingum, báðum til stuðnings, sem ekki er hægt að hunsa. Ég hafði svona frekar hugsað mér að hlusta á rök beggja til lengri tíma litið í stað þess að breyta þessu í einhver trúarbrögð þar sem erfitt verður að telja mönnum hughvarf.

Þetta með CO2 magnið, að það er rétt að þetta er mesta magn sem verið hefur í langan langan tíma, en á móti kemur að þegar skoðaðar eru minni hitasveiflur að þá virðist hitinn fyrst breytast og svo CO2 magnið með, en alltaf aðeins eftir á. Það er semsagt hitastigið sem breytist fyrst og svo fylgir CO2 magnið á eftir hvort sem um ræðir hita- eða kuldasveiflur.

Mengun almennt, síðan iðnbyltingin hófst, hefur reyndar "kælt" (dregið úr hækkun hita) Jörðina. Rykagnir í skýjunum endurspegla margfalt meira sólarljósi í dag en fyrir 100 árum sem lýsir sér t.d. í minni uppgufun á vatni.

Ekki veit ég hinsvegar hvort það er svona einskær tilviljun að hitastigið skuli stíga í samræmi við aukinn útblástur manna, en eitt er víst að hitastigið er að hækka og það MUN hafa gríðarlega mikil áhrif á mannfólkið.

Reputo, 22.12.2009 kl. 14:01

16 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Reputo - þú ert að vísa til gagnrýni á greiningu á niðurstöðum sína, sem sum hver ná allt að milljón ár aftur í tímann.

Þ.s. menn m.a. hengja sig í, að þ.e. alltaf ákveðin óvissa í aldursgreiningum sína, þannig að þú getur horft á einstaka mælingarpunkta og þ. verður að viðurkennast, að fyrir hvern fyris sig, er ekki hægt að slá því föstu með 100% vissu, hvað kom á undan "hænan eða eggið".

Aftur á móti, þegar allt dæmið er skoðaða, virðast sveiflur á histastigi og sveiflur á CO2 haldast bísna vel að.

Að sjálfsögðu er hægt að hártoga, hvort einhver annar þáttur geti mögulega verið e-h þriðja orsök. En, þegar hafðar eru í huga allar þekktar orsakir, þá virðist fylgnin vera sterk.

Svokallað "timelag" hefur þó komið fram í heildarniðurstöðum; en það virðist ekki raska útreikningum á fylgni. Þetta er skýrt þannig, að fleiri en einn orsakaþáttur sé fyrir hendi - þ.e. hitunaratburður hefjist af öðrum orsökum, en síðan er hitastig hefur hækka nokkuð, virðist eiga sér stað umtalsverð aukning á CO2 innihaldi lofthjúpsins. Það er vanalega skýrt með því t.d. að freðmýrar þiðni - annars vegar- og - hins vegar - að aukin íslaus svæði heimshafa skili aukinni uppgufun CO2 úr höfunum. Sterk fylgni, er svo skýrð með þeim hætti, að þegar CO2 bætist við hafi það sjálfstæð áhrif er bætist við þau áhrif sem fyrir eru.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.12.2009 kl. 16:30

17 Smámynd: Reputo

Í gegnum árþúsundin hefur CO2 laggið verið ca 800 árum á eftir hitabreytingunum sem gefur sterklega til kynna að CO2 magnið aukist með auknum hita en ekki öfugt. Hins vegar sína allar mælingar að hitastig og CO2 magn haldast í hendur og í svipuðum hlutföllum síðustu 500 þúsund ár og það er einmitt það sem gerir mælingar síðustu 100 ára áhugaverðar. Þar sést greinilega hvað CO2 magnið hefur aukist lang umfram eðlilegt hlutfall við hitastigið, og því er ekki hægt að neita því að CO2 "mengunin", sem nú er í hæstu stöðu, er af mannavöldum. Þá er það spurningin um hitastigið. Stýrist það af hnattrænum áhrifum, eða er einhver stærri heildarmynd sem hefur meira að segja?

Reputo, 23.12.2009 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 69
  • Sl. viku: 856
  • Frá upphafi: 2291622

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 755
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband