Leita í fréttum mbl.is

The real thing

 Fjölmennasta og íburðarmesta veisla ársins, er og verður lúxus loftslagsráðstefnan í Egyptalandi Cop27. Þangað komu um 40 þúsund manns nánast allir kostaðir af skattgreiðendum og neytendum. Meir en 400 einkaþotur lentu með þáttakendur á ráðstefnunni og ótölulegur fjöldi risaþotna sá um að flytja restina. 

Þáttakendurnir eiga það sameiginlegt,að hafa stórkostlegar áhyggjur af kolefnissporinu þínu en engar af sínu.

Hin nýja stétt, nomen klatura, nýaldarinnar þarf ekkert að spara enda borgaði Kóka Kóla fyrir herlegheitin.

Auglýsingaskilti Kóka Kóla eru iðulega reisulegustu mannvirkinn í fátækustu hlutum heimsins. "The real thing" gnæfir yfir opnum klóökum í borgum og bæjum þriðja heimsins. Hjálpin mikla. Þá skiptir heldur máli að geta gripið í flösku sem hefur að geyma "the real thing".

Þáttakendum á Cop27 fannst ekkert að því að Kóka Kóla borgaði undir rassinn á þeim, þó það hafi lengi verið talið einkennismerki hins óhefta kapítalisma. Ekki þarf lengur að vandræðast yfir því þegar þeir ofurríku eru gengnir í lið með bullinu, sem þeir hafa að sjálfsögðu fundið leið til að græða á.

Svandís Svavarsdóttir og trúarsystkini hennar í loftslagskirkjunni brostu breitt og slógu taktfast, að heimurinn væri að farast ef ekki yrði gripið til þess að rýra lífskjör fólks í Evrópu og N-Ameríku.

Hin nýja stétt umhverfisverndarsinna gerði engar athugasemdir við það,að árlega framleiðir Kóka Kóla 120 milljarða einnota plastik flaskna. Þesar einnota plastik flöskur 120.000.000.000 valda mikilli eyðileggingu, mengun og  eyðileggingu á lífríkinu, ekki síst þar sem auglýsingaskiltin um "the real thing" gnæfa yfir mannlífinu.

Fyrirheitið á auglýsingaskiltinu um hinn sanna unað og velferð, sem falin er í einnota plastflösku er álíka vitlaust og annað sem gerðist á þessari ráðstefnu hinnar sjálfhverfu nýju stéttar loftslagskirkjunnar. 

Síðustu línurnar í kvæði Steins Steinars um Kommúnistaflokk Íslands, in memoriam með lítilli breytingu eiga jafnvel við  um gildi tildurráðstefnunnar Cop27

Á gröf hins látna blikar drykkjartunna frá Kóka Kóla Company.

 

 


Bara fyrir ólöglega.

Hér færðu 300 þúsund krónur á mánuði og heilbrigðisþjónustu ef þú þarft á að halda þó þú megir skv. lögum ekki dvelja hérna. Þetta er það sem íslensk stjórnvöld bjóða ólöglegum hælisleitendum, sem hefur verið vísað úr landi. 

Ó hve landinn yrði sæll og elska mundi landið heitt, ef hann fengi kr. 300.000 um hver mánaðarmót frá Ríkinu inn á bankareikninginn sinn eins og ólöglega hælisleitendur,fá, sem eru í felum fyrir lögreglunni. 

Einhver leiðindaskjóða mundi sjálfsagt benda á, að það gengi aldrei upp, Ríkið færi lóðbeint á hausinn ef það leyfði sér að gera jafnvel við íslenska ríkisborgara og þessa ólöglegu hælisleitendur.

Ríkið er rekið með bullandi halla. Greiðslurnar til ólöglegu hælisleitendanna, sem eru í felum fyrir réttvísinni er kostnaður sem börnin okkar og barnabörn þurfa að greiða í framtíðinni. 

Ekki nóg með þetta. Jafnvel þó  að Ríkið greiði fargjald ólöglegu hælisleitendanna, fararkostnað og allt að kr. 450.000 í aðlögunarstyrk, þá eru þeir samt í felum og þiggja mánaðarlegan tékka frá íslenskum  skattgreiðendum upp á kr.300.000.

Þetta er ekkert nýtt. Svona hefur þetta bull verið í meira en áratug og heldur verið bætt í en dregið úr.

Talandi um mannúð. Þá er kostnaðurinn við einn ólöglegan hælisleitenda svo mikill að þeir peningar sem eytt er í  hvern einstakan duga til að fæða og klæða 100 manns í brýnni þörf á átaka- og ófriðarsvæðum. Fólk sem á raunverulega bágt. 

Það er nóg komið af því að stjórnmálaelítan í landinu misfari svona með opinbert fé og geri svona hrikalega upp á milli fólksins í landinu og ólöglegu innflytjendanna. Það verður að hætta þessu rugli og sýna þeim stjórnmálaflokkum,sem ætla að halda því áfram, að þeir eigi ekki lengur erindi við kjósendur í landinu. 


Ekki fyrir þig bara ólöglega hælisleitendur

Útlendingalögin eru ein vitlausasta lagasmíð  sem ungað hefur verið út á Alþingi síðasta áratuginn enda frumvarpið unnið af þverpólitískri nefnd allra þingflokka á Alþingi undir yfirstjórn dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins,sem fékk Óttarr Proppé no border sinna til að vera formann nefndarinnar.

Öll sönnunarbyrði var lögð í ríkisvaldið. Hlaupastrákarnir  sem höfðu falið passana sína og önnur skilríki nutu þess, að ríkið þurfti að sýna fram á hverjir þeir væru eða væru ekki og afsanna fullyrðingar þeirra ef svo bar undir. Skattgreiðendur þurftu að ala önn fyrir þeim og greiða þess utan fyrir tannlækna, sálfræði, geðlæknis og aðra heilbrigðisþjónustu. Íslenskum borgurum er ekki boðið upp á sama lúxus og hælisleitendum.

Steininn tekur þó úr,að þegar búið er að vísa fólki úr landi og það dvelur ólöglega í landinu og felur sig fyrir réttvísinni, þá fær það samt greiðslur  fyrir húsnæði  og uppihald í hverjum mánuði.

Vafalaust mundi öllum finnast fráleitt, að strokufangi af Hólmsheiðinni fengi greitt fæði og uppihald meðan hann væri í felum. 

Sú staðreynd, að ólöglegir hælisleitendur skuli fá greiðslur af almannafé eftir að þeim hefur verið vísað úr landi og fela sig fyrir réttvísinni sýnir algjört glóruleysi í meðferð opinbers fjár og ríkisstjórnum allt frá setningu útlendingalaganna til þessa dags til mikils vansa. 

Er það nokkur furða að hlaupastrákar skuli hópast hingað til að sækja um alþjóðlega vernd, þegar þeir hafa það hvergi betra. En hvað ætlar fólk að sætta sig lengi við þetta.

Var einhver að tala um stríð gegn glæpastarfsemi. Á það bara við um suma eða alla?

 

 


mbl.is Mega búast við niðurfellingu heilbrigðisþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Megum við fá meira að heyra?

Borðsálmur listaskáldsins góða Jónasar Hallgrímssonar þótti athygliverður þar var tæpt á hlutum án þess að greina ítarlega frá. Þeir sem hlustuðu segja: "Hvað er að tarna /Hvað sagðirðu þarna / Mættum við fá meira að heyra.

Í frábæru Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag segir höfundur m.a. 

"Minnihlutinn í Reykjavík hefur einstakt lag á að fjalla eingöngu um óskiljanleg smáatriði. Forystumaður listans tekur meira að segja þátt í leynifundum við borgarstjórann um að koma lóðum, sem ekki lengur eru notaðar í upprunalegum tilgangi, í hendur vafasamra. Slíkum lóðum ber að skila. En í staðinn er verið að pukrast með eitt versta brask í sögu borgarinnar."

Nokkru síðar segir: 

"Sjálfstæðisflokkurinn hefur falið af sinni hálfu borgarfulltrúanum sem er vanhæfastur allra til að gegna þeim trúnaði fyrir félaga sína að fá að fylgjast með í lokuðum herbergjum hvað Dagur er að braska. Sveitarfélag gerir ekki þúsunda milljóna gjafagerninga á bak við luktar dyr."

Að lokum segir: 

"En það færi vel á að setja vandaða menn utan borgarstjórnar í að rannsaka það sem þarna fer fram í þaula."

Hér er vísað til grafalvarlegra hluta og pólitískrar spillingar,pólitískra og persónulegra hrossakaupa, þar sem borgarstjóri og forustumaður Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur standa sameiginlega að því að gefa ákveðnum aðilum þúsundir milljóna. Taka verður undir með bréfritara, að í slíku tilviki færi vel á að utanaðkomandi aðilar rannsökuðu þessi mál í þaula. 

Þá væri fróðlegt að sjá hvort að fjölmiðlar t.d.meginstraumsfjölmiðillinn RÚV sem hleypur aftur og aftur upp með meinta pólitíska spillingu, þó hún sé engin, áttar sig á því að hér er verðugt rannsóknarefni sem þarfnast umfjöllunar í fréttatímum, Kveik og Kastljósi. Þúsunda milljóna gjafagerningur til ákveðinna útvaldra er mun stærra og alvarlegra mál en hnökrar við framkvæmd sölu hluta í Íslandsbanka.

En þá er spurning hvort RÚV telur við hæfi að atast út  í vin sinn borgarstjórann jafnvel þó að það mundi þýða afhjúpun spillingar sem tæki einnig til forustu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.

Fróðlegt verður að sjá hvort að fréttaelítan og stjórnmálamenn þ.m.t.  borgarstjórnarfulltrúar í Reykjavík láti til skarar skríða eða þegi þetta grafalvarlega mál í hel. Fari svo, þá á við lokastefið í Borðsálmi listaskálsdins góða og nauðsyn brýn að þagga niður í höfundi Reykjavíkurbréfs: 

"Hættu nú herra/ Hér mun koma verra/ sem þér er betra að þegja um en segja um."


Allt í plati ekkert að marka. En við erum samt flottust.

Svandís Svavarsdóttir atvinnumálaráðherra mætti á 27. loftslagsráðstefnu SÞ ásamt 44 fulltrúum íslenskra stjórnvalda. Engum datt í hug að takmarka kolefnisspor t.d. með því að þáttakendur væru á Zoom. Fyrirgefið það er fyrir venjulegt fólk en ekki stjórnmála- embættis- eða fréttaelítuna.

Fyrsta loftslagsráðstefna SÞ um hnattræna hlýnun var haldin árið 1992 í Rio de Janeiro. Í Río ákváðu leiðtogarnir að stofna sjóð þar sem lönd sem yrðu verst úti mundu fá bætur. Engin hefur greitt í þann sjóð. Í Ríó arið 1992 var haldið fram að allt væri að fara til andskotans og fólk mundi stikna í vítislogum innan áratugs.

Nú þrjátíu árum síðar er gert samkomulag í Sharm el-Sheik um sérstakan bótasjóð, sbr. samkomulagið í Rio 1992. En hvar eru vítislogarnir og hvað hefur breyst á þessum þrjátíu árum?

Svandís Svavarsdóttir hefur lýst því yfir að íslenskir skattgreiðendur eigi að greiða í þennan bótasjóð, þó að engin fjárveiting liggi fyrir og engin fjárheimild, þannig að yfirlýsingar hennar eru álíka innantómar eins og botnin sem var suður í Borgarfirði í sögunni um Bakkabræður. Raunar er líklegt að sama gildi um aðra sem samþykktu þetta makalausa rugl.

Helstu mengunarvaldar og kolefnisútbíjunarþjóðir heims Indland og Kína láta sér ekki detta í hug að taka þátt í þessu enda var þetta alltaf hugsað til að færa peninga frá Evrópu  til Asíu og Afríku. Indland og Kína hafa ekki samþykkt að taka þátt í einu eða neinu hvort heldur að greiða í bótasjóð eða draga úr útblæstri koltvísýrings í samræmi við samþykktir Parísarsamkomulagsins.

Allt er þetta fyrir gapuxa eins og Svandísi Svavarsdóttir og framkvæmdastjóra SÞ. sem hefur sagt á síðustu 4 loftslagsráðstefnum SÞ.að við værum að stikna í helvíti þó ansi langt sé í að þeir sem  gopa í hita við frostmark verði þess varir.

Svo ætlar heilagasta landið í loftslagsmálum af öllum heilögum, Þýskaland að opna aftur kolaorkuver á næstu dögum. Skyldi Svandís Svavarsdóttir vita af því?

En framkvæmdastjóri SÞ. kommúnistinn Guteres  lýsti því enn einu sinni yfir við opnun ráðstefnunnar þegar hann bauð velkomna þau 3000 sem komu til ráðstefnunnar á einkaþotum ásamt öðrum, að við mættum engan tíma missa þar sem að heimurinn væri að stikna í vítislogum hamfarahlýnunar. Hann hafði ekki enn uppgötvað fjarfundartæknina enda er það ekki í boði fyrir aðra en minnipokafólk.

Síðan klöppuðu allir við lok ráðstefnunnar og lýstu yfir miklum fönguði með árangurinn þó engin væri. 

Við erum epli sögðu hrútaberin.

 


Sigurvegarinn og Donald Trump

Ríkisstjóri Flórída Ron DeSantis var sá Repúblikani, sem jók fylgi sitt mest í nýliðnum kosningum. Lengi hefur verið mjótt á mununum milli Repúblikana og Demókrata í Flórída, en ekki lengur.

DeSantis er baráttumaður fyrir frelsi. Í Kóvídinu, var frelsið haft að leiðarljósi, en skírskotað til almennings að gæta sín. Það skilað betri árangri innilokanir, höft, boð og bönn. 

DeSantis hefur tekið stórfyrirtækin á löpp þegar þess hefur þurft og hafnað því að samtökin 78 önnuðust kynfræðslu í skólum svo fátt eitt sé nefnt.

Margir Repúblíkanar segja, að ný pólitísk stjarna sé fædd.

Að öðru leyti voru kosningarnar vonbrigði fyrir Repúblíkana. Frambjóðendur, sem standa næst Donald Trump,vegnaði sérlega illa. Margir segja því að tími Trump sé liðinn. 

Trump kennir öllum öðrum en sjálfum sér um úrslitin og er búinn að uppnefna DeSantis og segist vita meira um hann en konan hans og segist ætla að opinbera það. Greinilegt að Donald Trump telur hann ógna sér og getur ekki í sjálfselsku sinni horft til þess hvor þeirra sé líklegri til að sigra Demókrata í næstu kosningum. Miðað við úrslitin er það DeSantis en ekki Trump.


Þjóðnýting vinstrimennskunar.

Vinstra fólki mistókst að þjóðnýta efnahagskerfið eins og hugmyndir sósíalismans ganga út á. Þess vegna breyttist barátta vinstra fólks í þá átt að reyna að þjóðnýta fólkið. 

Orðið kyn og notkun þess og skilgreiningar í dag er eitt dæmi um sigur vinstri mennskunnar. Það orð var lengst af notað um karl og konu og mismun á þeim. Vinstra fólkið hóf fyrir allmörgum árum að halda því fram, að þetta væri eitthvað sem þú værir ekki fæddur með, heldur væri þessu troðið upp á þig af karlaveldinu, til að knýja á um kynbundna mismunun. 

Frá þessari hugmyndafræði var stutt í að halda því fram, að kyn væri eitthvað sem væri óeiginlegt og skilgreiningin væri vandabundin. Í framhaldi af því fóru ýmsir háskólaspekingar vinstri öfgahyggjunnar ekki síst í háskólum Vesturlanda að halda því fram, að það væri ekki nógu gott að nota orðin hann og hún þar sem þessi orð væru kyngreind og þessvegna slæm betra væri að nota t.d. furðuorðskrípið "hán" eða á ensku "ze" eða "hir" Baráttan snerist síðan upp í það að allir opinberir staðir yrðu að hafa fjölkynja klósett.

Fólk hló sig margt máttlaust yfir þessu bulli eða hryllti við þessum öfgum, en það var ekki lengi. Vinstri elítan réði því hverjir fengju að tjá sig um þessi mál í háskólasamfélaginu og gera enn og orð þeirra tóku yfir eins og Gyðinganna forðum sem kröfðust þess að Jesús yrði krossfestur. 

Breski Verkamannaflokkurinn telur sér ekki lengur unnt að skilgreina orðið "kona" og það varð uppi fótur og fit þegar metsöluhöfundurinn J.K. Rowling sagði að það væru bara konur sem færu á túr. Yfir þessum orðum ærðist vinstri háskólaelítan. Enda berst hún eilíflega gegn því að fólk bendi á einfaldar staðreyndir lífsins, af því að það passar henni ekki. Reynt var að útiloka Rowling og aðra sem leyfðu sér að bera sannleikanum vitni. En það tókst ekki og vitundarvakning og andstaða við bullfræði vinstrimennskunar er nú í fullum gangi í Bretlandi.

Hér á landi samþykkti Sjálfstæðisflokkurinn að tengjast vinstri bullfræðinni að þessu leyti og styðja hugmyndafræði Katrínar Jakobsdóttur um kynrænt sjálfræði (eins og raunar flest annað) og þegar makalaust furðufrumvarp um "kynrænt sjálfræði" var lagt fram á Alþingi þá fór það svo að allir stjórnmálaflokkar greiddu því atkvæði svo gjörsamlega vitifirrtir af hugmyndafræðilegum doða samþykktu þingmenn allra flokka öfgar og ranghugmyndir vinstri elítunnar. Alþingi Íslands samþykkti með þessu rangtúlkun á staðreyndum lífins og andstöðu við einstaklinginn konu og karl og fjölskylduna sem grunneiningu í þjóðfélaginu. 

Hvar var brjóstvörn borgaralegra og hægri sjónarmiða á þeim tíma? Hún var ekki til á Alþingi. Engin skilningur eða yfirsýn var um að það þyrfti að grípa til varna gegn öfgavinstrinu. Ekki bara í þessu máli heldur svo fjölmörgum öðrum.

Stundum er betra að fórna stjórnarsamstarfi en leggja endalaut steina til að byggja hugmyndafræðilega dýflissu sína. 


40 manns

Sagt er að fulltrúar Íslands á loftslagsráðstefnu SÞ á sólarbaðstaðnum í Egyptalandi séu yfir 40. Vafalaust er það í anda ráðdeildar og sparnaðar að hafa sendinefndina ekki fjölmennari.

Það skiptir máli fyrir land eins og Ísland að leggja sitt að mörkum til að sýna dáð og dug í baráttunni gegn því að þjóðin megi njóta meiri hlýindi, betra og fjölbreyttara mannlífs og betri lýðheilsu.

Til að sporna við bættum hag þjóðarinnar að þessu leyti, má ekkert minna vera en að senda 40 valinkunna sómamenn og konur til að vinna sem mest og best gegn hagsmunum þjóðarinnar í bráð og lengd á alþjóðlegum vettvangi. 

Helsta framlag Íslands á loftslagsráðstefnum sem þessum hingað til, hefur verið að fjalla um kynræna loftslagshlýnun, sem hlítur að vera afar merkilegt fyrirbæri. Vafalaust er þar kominn einn helsti orsakavaldur þess, sem ógnar nú lífríkinu.

Það er þá aldrei að rödd Íslands fái ekki að heyrast á alþjóðavettvangi og þjóðir heims sjái hversu mikið og merkilegt rökrænt framlag þjóðin hefur fram að færa.

Að sjálfsögðu geta skattgreiðendur verið stoltir af því að eiga slíka og þvílíka fulltrúa á alþjóðavettvangi eða hlutfallslega langstærstu sendinefnd allra þjóða á þessari "mikilvægu" ráðstefnu, þar sem hver reynir að toppa hinn í frásögnum af því hvílíka hörmungartíma þjóðir heims lifi nú, þar sem allir eru að stikna til bana, ef ekki strax þá bráðum.

Samt deyja margfalt fleiri úr kulda en hita? 


Þið skuldið okkur

Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í Sharm El Sheik, sem nú stendur yfir reynir hver ræðumaðurinn að yfirbjóða annan við að lýsa hörmulegu ástandi vegna manngerðrar hlýnunar. 

Hin meinta manngerða hlýnun hefur aldrei verið sönnuð heldur er um getgátu að ræða. Þá liggur fyrir að allar spár hlýnunarsinna hafa reynst rangar og engar þær breytingar hafa orðið á undanförnum 40 árum á loftslagi, sem geta talist marktækara langtímabreytingar.

Sjávarborð hefur ekki hækkað og þau lönd og borgir sem áttu að vera sokkin í sjó vegna meintrar hamfarahlýnunar hafa ekki gert það og engar breytingar á tilveru þeirra sjáanlegar. Þá hafa engar þær veðrabreytingar orðið sem hlýnunarsinnar hafa spáð. 

Samt sem áður koma forustumenn ákveðinna ríkja saman á loftslagsráðstefnum Sameinuðu þjóðanna öðru hvoru og hamast við að reyna að yfirbjóða hvern annan í fullyrðingum um það hrikalega ástand sem á að vera í heiminum.

Pakistan hefur forustu fyrir ríkjum, sem gera kröfu til að Vesturlönd greiði þeim og fjölmörgum öðrum ríkjum bætur vegna meintrar loftslagshlýnunar. Fyrir þessi ríki hefur þetta alltaf verið spurning um að ná peningum frá Vesturlöndum og þau hafa því barmað sér sem mest má vera. 

Af hverju ættu Vesturlönd að greiða bætur vegna meintrar hlýnunar af mannavöldum, sem engar sannanir liggja fyrir um. Það getur ekki verið nema þau viðurkenni sök. Eiga skattgreiðendur á Íslandi að fara að borga peninga skattgreiðenda til þursaríkisins Pakistan. Gerðum við þeim eitthvað einhverntímann? Væri ekki réttara fyrir þá að gaumgæfa að vandamál þeirra stafa fyrst og fremst af þeim trúarbrögðum sem þeir aðhyllast nánast allir, sem hafa bundið þjóðfélagið í klafa hjátrúar, hindurvitna og öfga.

Að sjálfsögðu er leiðtogi Kína,Xi Jinping, forsætisráðherra Indlands,Narendra Modi fjarverandi, eins og Justi Trudeau forsætisráðherra Kanada og foræstisráðherra Ástralíu Anthony Albanese fjarverandi, en síðari ríkin tvö flytja út gríðarlegt magn af olíu og kolum. Leiðtogar þessara ríkja eru að hugsa um að bæta lífskjör eigin borgara í stað þess að rýra þau eins og þeir stjórnmálamenn eru að gera sem eru hlaupatíkur loftslagstrúboðsins.

Við skulum sitja hjá í þessu og gefa þeim stjórnmálamönnum hér á landi frí, sem ætla sér að skattleggja borgarana úr hófi vegna þessa og stuðla að hærra vöruverði til neytenda. Nóg er samt.

 

 


Eigum enga vini nema fjöllin

Kúrdískt máltæki segir. "Kúrdar eiga enga vini nema fjöllin." Kúrdar hafa mátt reyna það um aldir, að vera sviknir af þeim, sem þeir töldu vini sína.  

Kúrdar eru merkileg þjóð, sem talar sérstakt tungumál af indóevrópskum uppruna og telja um 35 milljónir, stærsta ríkisfangslausa þjóðin í heiminum. Kúrdar búa aðallega í fjallahéruðum Tyrklands, Íans, Íraks og í Sýrlandi. 

Varnarsveitir Kúrda í Sýrlandi, börðust hatrammlega gegn hryðjuverkaher Isis  í samvinnu við Bandaríkin. Kúrdar voru þar í fremstu víglínu. Þegar Kúrdar í Sýrlandi höfðu sigrað Ísis höfðu Bandaríkjamenn ekki not fyrir þá lengur og yfirgáfu þá, þegar Erdogan Tyrkjasoldán hóf að herja á þá og taka land og borgir Kúrda. 

Það eru varnarsveitirnar, sem sigruðu Ísis, sem Svíar slíta nú öll tengsl við að kröfu Tyrkja. Lítið leggst þar fyrir mannúð og réttlætiskennd Svía, sem fórna hagsmunum "vina" sinna til að Tyrkir samþykki að þeir fái inngöngu í NATO. 

Það er svo sérstakur kapítuli út af fyrir sig, að NATO þjóðir skuli telja sig eiga samleið með Tyrkjum og Evrópusambandið skuli gæla við að taka þá inn í sambandið. 

Tyrkir hafa á síðustu árum staðið fyrir innrás í Sýrland og hernumið landssvæði Kúrda og Idlib hérað. Á því verndarsvæði Tyrkja eru leifar af hryðjuverkasveitum Isis, Al Kaída, Al Nusra o.fl. Tyrkir veita þeim vernd. Við því segja NATO þjóðir ekkert. Hvernig skyldi standa á því? Hernaður Asera á hendur Armenum og landvinningar voru líka að undirlagi og með aðstoð Tyrkja. 

Evrópusambandið og NATO sjá ekkert athugavert við að Tyrkir herji á lönd og þjóðir og virði ekki "heilög" landamæri. Á þeim bæjum sjá menn enga ástæðu til að beita Tyrki refsiaðgerðum með sama hætti og Rússa. Þannig að það rætist enn og aftur sem kerlingin sagði. "Það er sitthvað Ólafur Pá eða Ólafur uppá."

Við Íslendingar eigum að standa með réttlætinu og taka upp samskipti við Kúrdísku samtökin, sem Svíar eru nú að svíkja, fyrir aðgöngumiða að NATO. Með því mundum við leggja réttlætinu lið eins og við gerðum og erum stolt af þegar Baltnesku þjóðirnar, Eistland, Lettland og Litháen voru að brjótast undan oki Sovétríkjanna. 

Við eigum líka að fordæma aumingjaskap Svía og fordæma árásir Tyrkja á nágrannalönd sín, sem og þjóðarmorð þeirra á Armenum í fyrri heimstyrjöld. 

Þær stöllur Katrín Jakobsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir eru þó ekki líklegar til að standa að slíku. Þá gæti kusk komið á bryddaða kjólinn og þær kjósa heldur að halda áfram að faðma Erdogan Tyrkjasoldán á NATO fundum og mæra hann sem fulltrúa mannréttinda og lýðræðis svo galið svo sem það nú er. 

Það er gott að tala um mannúð og mannréttindi þegar ekkert þarf á sig að leggja. En þar skilur á milli feigs og ófeigs hvort fólk er tilbúið í raun til að standa með þeim gildum í verki.


mbl.is Svíar beygja sig undir kröfur Erdogan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2022
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 80
  • Sl. sólarhring: 854
  • Sl. viku: 2466
  • Frá upphafi: 2294017

Annað

  • Innlit í dag: 77
  • Innlit sl. viku: 2244
  • Gestir í dag: 77
  • IP-tölur í dag: 77

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband