Leita í fréttum mbl.is

80 ára afmæli innrásar, sem innrásaraðilinn kannast lítið við

1. september s.l. var minnst að 80 ár voru liðin frá  innrás Þjóðverja í Pólland. Þar með hófst síðari heimstyrjöldin. Forseti Þýskalands bað Pólverja afsökunar fyrir hönd þjóðar sinnar en áður hafa kanslarar Þýskalands ítrekað beðið Pólverja afsökunar á innrásinni fyrir 80 árum og grimmdarverkum í kjölfar hennar. 

En það er önnur innrás, sem heimurinn kannast lítið við. Fyrir 80 árum í dag þ.17 september gerðu Sovétríkin (Rússland og co) innrás í Pólland í samræmi við samning Stalíns og Hitlers um hvaða hluta Póllands félli í hlut Sovétríkjanna. 

Hersveitir Rauða hersins allt að 5 milljónir hermanna studdir a.m.k. 5000 skriðdrekum og 2000 sprengju- og flutningaflugvélum réðust inn í austurhluta Póllands. Þeir sögðust vera að hjálpa sínum slavensku bræðrum og sumir Pólverjar féllu fyrir þessum áróðri, en Sovéski herinn var ekkert betri en sá þýski. Hópum Pólverja m.a. landeigendur, prestar, hermenn og já Gyðingar var smalað saman og þeir drepnir. Harðýðgi Rauða hersins sýndi sig t.d. vel með morðunum á pólskum hermönnum í Katyn skógi þar sem þúsundir pólskra hermanna voru murkaðir niður af sovéska hernum. Sömu sögu var að segja frá öðrum löndum sem Hitler og Stalín höfðu samið um að Kommúnistarnir í Sovétríkjum mættu ráðast inn í lönd eins og Baltnesku löndin, Finnland og Rúmenía

Fyrstu 22 mánuði síðari heimtyrjaldarinnar voru þeir Hitler og Stalín vinir og Kommúnistar og nasistar áttu mikil viðskipti sín á milli, m.a. matvörum, efnavörum, vopnum og skipum jafnframt lýstu þeir yfir sameiginlegri fordæmingu gegn frjálslyndri hugmyndafræði og þýsku sprengjuflugvélarnar sem réðust á Bretland voru fylltar af eldsneyti frá kommúnistunum í Sovétríkjunum.  Kommúnistar um allan heim afsökuðu innrás nasista og Sovétríkjanna í Pólland sem dæmi Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxnes.

Þegar herir Þjóðverja og Rússa náðu saman í borginni Brest var sameiginleg hersýning Wehrmacht og Rauða hersins og foringjar herjanna skiptust á kveðjum og heimboðum eftir að endanlegu markmiði hefði verið náð "að sigra kapítalistanna." Kommúnistar og nasistar voru vopnabræður fyrstu 22 mánuði heimstyrjaldarinnar og það breyttist ekki fyrr en með vanhugsaðri innrás Hitlers Þýskalands í Sovétríkin. Stalín neitaði að trúa því að Þjóðverjar hefðu rofið samkomulagið og ráðist á Sovétríkin. 

Búast hefði mátt við að forustumenn Rússlands og þessvegna Úkraínu og Hvíta Rússlands sem öll tilheyrðu Sovétríkjunum á sínum tíma, bæðu Pólverja afsökunar á innrásinni fyrir 80 árum og þeim hermdarverkum sem unnin voru af Rauða hernum. En það er ekki gert. Rússar vilja lítið kannast við þetta 80 ára afmæli og telja það raunar ekki koma sér við.

Fyrir nokkru dæmdi rússneski hæstiréttur bloggarann Vladimir  Luzgin fyrir að skrifa þessa setningu: "Kommúnistar og Þýskaland gerðu sameiginlega innrás í Pólland sem varð til þess að seinni heimstyrjöldin byrjaði." Luzgin gerði ekkert annað en að segja frá því sem gerðist sagnfræðilega fyrir 80 árum, en það má ekki. Jafnvel ekki í "lýðræðisríkinu" Rússlandi.

Engar fréttastofur sem ég hef skoðað í dag minnast á þetta innrásarafmæli. Engin minningarathöfn er haldin vegna þessa og engar afsakanir frá arftökum sovésku kommúnistanna þó að stjórnendur víða í löndum hinna gömlu Sovétríkjanna séu mun hugmyndafræðilega skyldari en stjórnendur Þýskalands nasistunum á sínum tíma. En um þátt Rússa er þagað og svo merkilega vill til að vinstri menn um allan heim hafa ekki gleymt tryggð sinni við málstaðinn um alræði öreiganna og þegja þunnu hljóði og kannast jafnvel ekkert við að þetta hafi gerst. 

Með sögufölsunum og vegna gleymsku hefur kommúnistum tekist að láta sem þeir hafi verið eitthvað betri en naistarnir. En það voru þeir því miður ekki. Þessvegna er óskiljanlegt að nútímafólk skuli ekki fordæma jafnt gamla kommúnista sem gamla nasista. En það er ekki gert og m.a. fékk einn gamall kommúnisti við sig drottningarviðtal í Morgunblaðinu um síðustu helgi. En nánar að þeirri skömm Morgunblaðsins á morgun. 


Bloggfærslur 17. september 2019

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1077
  • Sl. sólarhring: 1263
  • Sl. viku: 6722
  • Frá upphafi: 2277360

Annað

  • Innlit í dag: 1011
  • Innlit sl. viku: 6249
  • Gestir í dag: 950
  • IP-tölur í dag: 923

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband