Leita í fréttum mbl.is

Á að banna að ljósmyndir séu teknar í húsakynnum dómstóla?

Fyrir nokkru neitaði sakborningur að mæta við þingfestingu máls nema ljósmyndarar færu úr húsinu. Saksóknari sagðist þá mundu færa hann fyrir dóminn með lögregluvaldi. 

Víða um heim er bannað að taka ljósmyndir í húsakynnum dómstóla. Ljósmyndarar verða að bíða fyrir utan dómhús í Bretlandi og Bandaríkjunum svo dæmi séu tekin. Af hverju? Til að veita aðilum máls sérstaklega sakborningum lágmarksvernd.

Það er óneitanlega hvimleitt og óviðeigandi að grunaður maður þurfi að brjóta sér leið í lögreglufylgd framhjá her ljósmyndara þegar hann er færður fyrir dóm. Iðulega er um saklausa menn að ræða sem þannig eru myndaðir og fá ákveðna brennimerkingu almenningsálitsins algjörlega að ástæðulausu.

Væri ekki eðlilegt að banna aðgang ljósmyndara að dómhúsum eins og gerist víða í réttarríkjum? Er ekki sjálfsagt og eðlilegt að sakað fólk njóti þeirra mannréttinda að fá að teljast saklaust þangað til sekt þess er sönnuð?

Dómsmálaráðherra ætti þegar í stað að gera ráðstafanir til að banna aðgang ljósmyndara að dómhúsum. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já.  Hef lengi undrast að ekkert skuli hafa verið gert í þessu máli, þar sem sagt er að menn séu saklausir uns sekt er sönnuð. En ætli grímubúnaður sé heimill á almanna færi? 

Hrólfur Þ Hraundal, 18.1.2010 kl. 18:12

2 identicon

Engin spurning.Menn eru saklausir uns sekt þeirra er sönnuð. Íslendingar virðast eiga erfitt með að skilja það Basic concept.

Jón Gunnarsson (IP-tala skráð) 18.1.2010 kl. 18:46

3 Smámynd: Jón Magnússon

Alla vega er grímubúningur heimill ef þú ert mótmælandi Hrólfur og kastar drullu eða grjóti í lögreglu, Alþingi eða Stjórnarráð. En mér finnst þetta skortur á mannréttindum að heimila ljósmyndurum aðgang að dómhúsum. Við erum greinilega sammála um það.

Jón Magnússon, 18.1.2010 kl. 22:02

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir nafni.

Jón Magnússon, 18.1.2010 kl. 22:03

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála þér Jón - býður bara upp á enn frekari "æsi" fréttamennsku nóg er um slíkt fyrir

Jón Snæbjörnsson, 20.1.2010 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 66
  • Sl. sólarhring: 1274
  • Sl. viku: 1596
  • Frá upphafi: 2293064

Annað

  • Innlit í dag: 59
  • Innlit sl. viku: 1450
  • Gestir í dag: 59
  • IP-tölur í dag: 59

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband