Leita í fréttum mbl.is

Var þetta ekki Davíð að kenna?

Nýar fréttir af starfsemi Glitnis banka benda til að æskilegt hefði verið að ríkisvaldið gripi fyrr inn í rekstur og stjórn bankans en gert var.

Í september 2008 gat Glitnir ekki staðið við skuldbindingar sínar og leitaði til Seðlabankans. Í framhaldi varð ríkið aðaleigandi bankan. Sumir helstu hluthafar héldu því þá fram að þetta væri vegna haturs Davíðs Oddssonar á þeim.  Nú hefur annað komið í ljós. Þarna fór fram starfsemi sem varð að stöðva og rekstri bankans sjálf hætt vegna óstjórnar.

Vilhjálmur Bjarnason aðjúknt við HÍ hefur verið óþreytandi við að leita réttar litla hluthafns og náð fram mikilvægum upplýsingum í þeirri baráttu um vafasama starfsemi í bankakerfinu fyrir bankahrunið. Hann á heiður skilið fyrir það. Með þeim upplýsingum sem Vilhjálmur hefur aflað og duglegir fréttamenn hefur smám saman verið að koma í ljós að umræðan hér hefur verið á verstu villigötum. Í stað þess að ákæra þjófinn hafa þeir orðið illa úti sem stolið var frá.

Nú er spurningin hvort stjórnvöld og bankar ætla að halda hrungengjunum við völd í fyrirtækjunum  með því að  afskrifa milljarða skuldir þeirra.  

http://www.dv.is/frettir/2010/1/26/glitnir-daeldi-peningum-i-fons-rett-fyrir-hrun


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Sæll kæri vinur og nafni.

Þetta er góð færsla og þarft innlegg í umræðuna. Það er merkilegt með dómstól götunnar, hann þykist geta kveðið upp dóm án rannsóknar, á meðan fagmenn þurfa langan tíma til rannsóknar, áður en dómur er upp kveðinn.

Jón Ríkharðsson, 27.1.2010 kl. 11:39

2 Smámynd: Guðmundur Kristinn Þórðarson

Þettað er allt rétt hjá þér Jón ,og vel skrifað

Guðmundur Kristinn Þórðarson, 27.1.2010 kl. 13:31

3 Smámynd: Guðmundur Kristinn Þórðarson

Þettað er allt rétt hjá þér jón,og vel skrifað

Guðmundur Kristinn Þórðarson, 27.1.2010 kl. 13:34

4 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Nei hvernig bankarnir voru reknir var kannske ekki Davíð að kenna enda af nógu að taka þegar kemur að afglöpum hans. Þóttist allt hafa vitað og séð fyrir en hélt samt áfram að henda í þá hundruðum milljarða án veða -frammá síðustu stundu- og setti með því Seðlabankan í gjaldþrot.

Jón Bragi Sigurðsson, 27.1.2010 kl. 13:58

5 Smámynd: Vilhjálmur Þorsteinsson

Það er reyndar rangt að ríkið hafi einhvern tíma eignast Glitni.  Það stóð til að ríkið keypti 75% í bankanum (það var díllinn sem Davíð gerði) en af því varð svo ekki, því FME setti bankann í greiðslustöðvun áður en til hluthafafundar í bankanum kom.  Nýi Glitnir var svo stofnaður af ríkinu/FME og yfirtók eignir og skuldir frá gamla Glitni.  Nýi bankinn er nú aftur kominn að mestu leyti í eigu kröfuhafa, eftir síðustu vendingar.

Vilhjálmur Þorsteinsson, 27.1.2010 kl. 14:07

6 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka ykkur fyrir Jón Kristjánsson og Guðmundur.

Jón Magnússon, 27.1.2010 kl. 14:40

7 Smámynd: Jón Magnússon

Jón Bragi það sem hefur verið að koma í ljós að undanförnu varðandi starfsemi ýmissa fjárfestingafélaga og banka vissi engin um nema æðstu lykilmenn í þessum fyrirtækjum. Það er svo annað mál hvort eitthvað hafi verið uppi á borðinu fyrr sem réttlæti það að stjórnvöld gripu fyrr inn í málið það er annað. Með slíku inngripi hefði bankakerfið fallið um leið. Það var öllum ljóst. Þetta verður að hafa í huga.

Jón Magnússon, 27.1.2010 kl. 14:42

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er allt saman satt og rétt hjá þér Vilhjálmur eins og þín er von og vísa.

Jón Magnússon, 27.1.2010 kl. 14:44

9 identicon

Þið sjálfstæðismenn og þá sérstaklega Davíð Oddsson og Geir Haarde komuð íslandi á kaldasta klaka sögunnar.

Þegar þið, ykkar fjölskyldur, vinir og vandamenn voru búnir að fullnýta lánstraustið og blóðmjólka bankana "sína"... peningarnir komnir inn á feita reikninga... þá koma Davíð og Geir og bjarga innistæðunum ÖLLUM HUNDRUÐMILJARÐA-INNISTÆÐUNUM.

FULLKOMIÐ PLOTT.

Ég held að megi kalla ykkur með sanni tvöfalda föðurlandssvikar fyrst vegna fjölskyldu- og einkavinavæðingu bankanna.. og síðan hvernig ykkur tókst að láta ríkið ábyrgjast ykkar illa fengnu innistæður.

Þetta er allt saman frekar viðbjóðslegt.

Vonandi fáið þið dóma eftir ykkar glæpum.

Jón Guðmundsson (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 15:06

10 Smámynd: Jón Magnússon

Ég veit ekki hvar þú hefur verið að undanförnu Jón Guðmundsson, en þú hefur greinilega ekki fylgst með fréttum. Undanfarið hefur komið í ljós að þeir sem bera ábyrgð á bankahruninu eru aðilar úr bönkum og viðskiptalífi en ekki pólitíkinni.  Þeir aðilar voru síður en svo allir eða að meiri hluta tengdir Sjálfstæðisflokknum. Hitt er svo annað að ég tek undir með þér um að vonandi fái þeir dóma sem gerst hafa sekir um glæpsamlegt athæfi.

Jón Magnússon, 27.1.2010 kl. 18:06

11 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Nei auðvitað bera pólitíkusar einga ábyrgð á bankahruninu og allra síst Sjálfstæðisflokkurinn.

Ekki kom Sjálfstæðisflokkurinn nálægt því að selja Landsbankann til þekktra fjárlglæframanna sem síðan höfðu ekki einu sinni fyrir því að borga hann.

Og auðvitað er Kjartan Gunnarsson fyrrum bankaráðsmaður algerlega ótengdur Sjálfstæðisflokknum. Ég efast um að nokkur á þeim bæ hafi einu sinni heyrt hans getið.

Og auðvitað var yfirmaður Seðlabankans sem er æðsta stjórntæki efnahagskerfis landsins -og var settur í gjaldþrot- ekki á nokkurn hátt á vegum Sjálfstæðisflokksins.

Og yfirmaður Fjármálaeftirlitsins sem sinnti sínu hlutverki af festu? Ég á ekki heldur von á að nokkur innan Sjálfstæðisflokksins kannist við hann.

Jón Bragi Sigurðsson, 27.1.2010 kl. 21:30

12 Smámynd: Jón Magnússon

Bankahrunið á Íslandi árið 2008 varð ekki vegna einkavæðingar bankanna árið 2003 Jón Bragi.  Hrun Glitnis banka, Kaupþings eða Spron var ekki kaupendum Landsbankans eða einstökum bankaráðsmönnum í þeim banka að kenna. Þar komu allt aðrir að. Það verður hver að eiga það sem hann á skilið en ekkert umfram það. Því miður endurómar þú Jón Bragi þá sérkennilegu umræðu sem hefur verið hér á landi, þar sem talað er um að bankahrunið hafi verið stjórnmálamönnum, Seðlabanka og Fjármálaeftirliti að kenna. Hvar sem er annarsstaðar í heiminum þar sem svipaðir hlutir gerðust dylst engum að það voru bankamenn og áhættusæknir fjárfestar sem gátu ekki borgað sem urðu þess valdandi að bankahrun varð.

Jón Magnússon, 27.1.2010 kl. 23:22

13 Smámynd: Árni Gunnarsson

Leitin að sannleikanum í álitamálum er endalaus og hluti af ævilöngum viðfangsefnum okkar margvíslegum. Niðurstaðan á það til að vera sár ef hann kemur okkur illa og þessvegna leitast margir við að finna einhverja aðra niðurstöðu sem kemur þeim betur. Ef þinn sannleikur fellur að mínum sannleika þá finnst mér það góður sannleikur. Þá verður sannleikur einhvers annars - og öðruvísi í laginu, vondur sannleikur.

Og enn getur málið flækst. Hugsum okkur að sannleikur sé orðinn okkur árátta og við finnum hóp sem hefur sameinast um okkar sannleika. Við sláumst í þennan hóp því þar líður okkur vel. Með tímanum þróast þetta inn á leiðir einhvers þess sannleika sem foringi hópsins hefur tekið að sér að finna. Smám saman sljóvgast okkar eigin snerpa í þessari leit.

Þá erum við komin að vandamáli dagsins í dag. Allt í einu stóðum við frammi fyrir helköldum sannleika sem brýtur niður allan okkar fyrri sannleika í deilum um ástand og þróun sem að lokum fékk fullnustu í þessum hræðilega sannleika dagsins.  

Tekst okkur að ráða við þetta grábölvaða viðfangsefni og halda haus?

Það er stóra spurningin.

En ekki vildi ég sjá fyrir mér það samfélag sem hætti þessari leit.

Árni Gunnarsson, 28.1.2010 kl. 12:47

14 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir frábæra færslu Árni

Jón Magnússon, 28.1.2010 kl. 12:54

15 identicon

Það eru bara vitlausir og spilltir baugsmenn sem halda því fram að Davíð hafi tekið Glitni af Jóni í hefndarskini. 

En bankahrunið var Davíð að kenna, það var hann sem hefði átt að grípa inní fyrir löngu. Á meðan Dabbi, og reyndar fleirri, sváfu á verðinum, fékk bankakerfið að þenjast út, stundum með hjálp seðlabankastjóra.

Heimurinn hefur alltaf verið þannig að bankamenn reyna að gera allt það sem þeir geta þangað til það kemur eitthver og slær á fingurna á þeim. Dabbi var allt of seinn að slá á fingurna á þeim, hann sló ekki fyrr en bankakerfið var að hruni komið. Hann hefði geta gert fullt til að koma í veg fyrir að þetta allt saman gerðist.  

Bjöggi (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 14:00

16 identicon

Hjá öllum siðmenntuðum þjóðum er það hlutverk Seðlabankastjóra og fjármálaeftirlits að hafa eftirlit með starfsemi bankastofnanna. Fjármálaeftirlitið og Seðlabankastjóri brugðust algjörlega og eiga jafnstóran hlut í hruninu og spilltir bankamenn.

Þeir sem fatta það ekki eru blindir eða bara spilltir. 

Bjöggi (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 14:05

17 Smámynd: Jón Magnússon

Bankakerfið þandist ekki mikið út frá árinu 2006 í Evrum talið.  Þá er líka spurningin ef átti að taka á málinu fyrr, hvenær átti að gera það. Í apríl frekar en maí 2008 varaði ég sérstaklega við yfirvofandi kreppu og erfiðleikum í umræðum á Alþingi um efnahagsmálin.  Því var heldur betur vísað út í hafsauga af talsmönnum allra stjórnmálaflokka sem þá sátu á Alþingi.

Jón Magnússon, 28.1.2010 kl. 14:09

18 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Það er sorglegt Jón Magnússon þegar menn komast ekki lengra þegar þeir þykjast vera að skilgreina bankahrunið en að halda með "eigin" skúrkum á móti "hinum" skúrkunum.

Það er rétt hjá þér að eigendur og bankaráðsmenn Landsbankans bera ekki ábyrgð á því hvað gerðist í hinum bönkunum. Þeir bera hins vegar ábyrgð á til dæmis Icesave sem er ærið nóg. Og Icesave kom vel að merkja til eftir 2006.

Einkavæðingin er orsök þeirrar stöðu sem Ísland er í í dag. Bankarnir voru einkavæddir, og bindisskylda þeirra afnumin af seðlabankastjóra Davíð Oddssyni (sem er óþekktur innan Sjálfstæðisflokksins), af sömu stjórnvöldum sem ekki höfðu getu eða vilja til þess að hafa eftirlit með því að þeir færu ekki sjálfum sér og öllu landinu að voða.

Þér finnst að sjálfsögðu allt sem á minnsta hátt bendlar Sjálfstæðisflokkinn við það sem gerst hefur "sérkennileg umræða".

Ólafur Ragnar Grímsson hefur hingað til ekki verið talinn sérlega auðmjúkur maður en hann er þó sá maður að gangast við þvi að hann hafi tapað dómgreind sinni þegar góðærið stóð sem hæst og gert og sagt hluti sem í ljósi stöðunnar í dag orka vægast sagt tvímælis.

Og það eru til góðir og gegnir Sjálfstæðismenn sem geta horfst í augu við staðreyndir og vilja gjarnan taka ábyrga afstöðu og rannsaka og gera upp hlutina.

En svo höfum við menn í þínum flokki (og sjálfsagt fleiri flokkum) sem ekki komast uppúr skotgröfunum: "Aldrei að viðurkenna einu sinni minnstu mistök eða yfirsjónir. Ef bent er á Landsbankann þá bendum við á Baug. Ef seðlabankinn er gagnrýndur þá bendum við á viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar og Ingibjörgu Sólrúnu. Ef bent er á Fjármálaeftirlitið þá bendum við á eitthvað annað. Hvað sem er, bara ekki okkur eða Sjálfstæðisflokkinn."

Heldur þú að þessi afstaða sé landinu til góðs og til þess fallin að einhver breyting/siðvæðing verði í þjóðfélaginu?

Er það virkilega mikilvægara fyrir þig að hvítþvo sjálfan þig, Sjálfstæðisflokkinn og þá Sjálfstæðismenn, sem augljóslega eiga þátt í því hvernig komið er, en að vera/verða þjóð þinni til einhvers gagns á erfiðum tímum?

Jón Bragi Sigurðsson, 28.1.2010 kl. 20:45

19 Smámynd: Jón Magnússon

Bjöggi það er mikill misskilningur að eftirlitsaðilar og stjórnkerfi hafi verið orsakavaldar efnahagshrunsins. Hvort sem þér eða mér líkar það betur eða verr þá voru það fyrst og fremst agalausir bankamenn og óráðssíumenn sem voru milljarðaskuldarar. Svo við tölum ekki um helstu gerendurna sem notuðu bankana sem peningaprentunarvél fyrir sig og sína. Það eru orsakavaldarnir en ekki stjórnkerfið eða eftirlitsaðilar.

Jón Magnússon, 28.1.2010 kl. 22:51

20 Smámynd: Jón Magnússon

Jón Bragi því fer víðs fjarri að ég haldi með nokkrum skúrki og ég á engan skúrk og held ekki með neinum slíkum. Einkavæðingin hefur ekkert með bankahrunið að gera. Hins vegar má nefna önnur atriði sem hafði bólumyndun í för með sér eins og t.d. frameljanlegur fiksveiðikvóti, hækkun húsnæðislána og húsnæðisverð. Það var þó ekkert á móts við peningaprentun bankanna sem umfram annað varð til þess að bankarnir urðu ógjaldfærir vegna þess að þeir sem fengu digru lánin gátu ekki borgað. Mennirnir sem nú er verið að fella niður milljarðana hjá í ríkisbönkum vinstri stjórnarinnar.

Ég er ekki í neinum hvítþvotti Jón Bragi og sjálfur ber ég ekki ábyrgð á því sem hér gerðist  og varðaði ítrekað við bólumyndun á hlutabréfamarkaði, húsnæðismarkaði og með hvaða hætti bankarnir störfuðu allt frá árinu 2002. Til viðbótar því þá talaði ég um það þegar fyrstu jöklabréfin komu að það væri nauðsynlegt að bregðast við því fári sem nú veldur því að við erum með gjaldeyrishöft en leiddi hins vegar til þess á sínum tíma að fölsk þennsla varð í landinu með tilheyrandi innflutningi erlends vinnuafls sem ég gagnrýndi líka m.a. með tilliti til ástandsins á vinnumarkaðnum sem mundi verða í framhaldi en þá var því mætt af Samfylkingarliðinu og VG með því að saka mig um rasisma. 

Jón Bragi það er nauðsynlegt að þú skoðir hlutina í samhengi en byggir ekki allt á veru einstaklinga í ákveðnum stjórnmálaflokkum. Við erum jú fyrst og fremst einstaklingar ekki satt en ekki hópsálir og innan hóps geta verið einstaklingar sem þú átt ekki samleið með. Þú hefur sjálfsagt reynt það á eigin skinni.

Jón Magnússon, 28.1.2010 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 255
  • Sl. sólarhring: 1092
  • Sl. viku: 5999
  • Frá upphafi: 2277750

Annað

  • Innlit í dag: 245
  • Innlit sl. viku: 5551
  • Gestir í dag: 243
  • IP-tölur í dag: 238

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband