Leita í fréttum mbl.is

Fyrrum formaður Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún dæmir sjálfa sig úr leik

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur uppgötvað að frjálshyggjustefna Sjálfstæðisflokksins hafi valdið efnahagshruninu.  Ekki veit ég hvort þetta er hluti af varnarræðu hennar fyrir rannsóknarnefnd Alþingis, en hvað sem því líður þá er þetta jafnvitlaust.

Bankahrun varð í Bretlandi þar sem flokksbræður Ingibjargar hafa verið við völd lengur en Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi. Bankahrun varð líka á Írlandi og víðar í Evrópu. Gildir eitthvað annað í þeim löndum? Eða var e.t.v. frjálshyggjustefnu Sjálfstæðisflokksins líka um að kenna hvernig fór hjá Bretum og Írum?

Fólk er fljótt að gleyma og óminnisheilkennið er landlægt í Samfylkingunni. Flokksmenn muna ekki að þeir sátu í ríkisstjórn frá 2007 til 1. febrúar 2009 með Sjálfstæðisflokknum. Ingibjörg var utanríkisráðherra árið fyrir bankahrun og í hruninu en fyrir hrunið fór hún um víða veröld til að tala fallega um íslenska efnahags- og bankaundrið.

Ef til vill er Ingibjörg Sólrún búin að gleyma því að hún var á bólakafi allt sumarið og fram á haust árið 2008 við að tala við einræðisherra og fremjendur mannréttindabrota vítt og breitt um veröldina til að fá þá til að kjósa Ísland í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ef til vill er Ingibjörg Sólrún líka búin að gleyma því að hún reyndi eftir mætti að halda viðskiptaráðherranum úr eigin flokki frá öllum ákvörðunum um banka- og efnahagsmál en annast um þau sjálf þar til að hún gat ekki meir vegna heilsubrests.

Mikið hefði ég viljað sjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur reyna að lyfta pólitískri umræðu á hærra plan og  fjalla um efnahagshrunið þannig að einhver vitræn glóra sé í.  Þessi ummæli Ingibjargar eru af sama toga og þau að vængjasláttur milljón fiðrilda í Kína  orsaki fellibyl á Kyrrahafi.

Hvernig var það annars. Var ekki helsti skuldari þjóðarinnar Jón Ásgeir Jóhannesson á hægra brjóstinu á Ingibjörgu Sólrúnu alla tíð og var það ekki þessi þúsund milljarða skuldari sem styrkti Samfylkinguna um tugi ef ekki hundruð milljóna. 

Hvað með það. Af hverju ekki að tala greina einfalda hluti með eðlilegum hætti. Það var ekki stjórnmálastefna sem olli efnahagshruninu. Allt of margar upplýsingar liggja fyrir sem sýna fram á allt annað. Furðulegt að Ingibjörg Sólrún skuli ekki hafa áttað sig á þeim staðreyndum.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefðir þú lesið sjálfa grein Ingibjargar Sólrúnar í TMM í stað útdráttar á netinu væri meiri glóra í gagnrýninni.

Hið hlýja brjóst sem nærði Jón Ásgeir var líka á þínum gamla flokki enda varð hann aðnjótandi stærstu einstöku styrkja stjórnmálasögunnar frá fjármálaveldi Baugsmanna, FL Group fyrir milligöngu hægri Jóns Ásgeirs í viðskiptum, Þorsteins M. Jónssonar. Í stjórn FL Group við risastyrkjaveitinguna sátu bæði Jón Ásgeir sjálfur og Pálmi Haraldsson í Fons. Svo hefur komið á daginn að Landsbankinn þar sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins sat sem varaformaður bankaráðs frá einkavæðingu fram að hruni fjármagnaði Bretlandsævintýri Baugs.

"Margur heldur mig sig" er viðeigandi máltæki nema þetta sé meðvitaður spuni og endurritun sögulegra staðreynda.

Arnar (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 20:46

2 identicon

Styrkti Jón Ásgeir Samfylkinguna um tugi ef ekki hundruð milljóna?

Hvaða þavaður er þetta - hvaðan þykist þú hafa þetta? Ættir kannski að grafast fyrir um 44 milljónirnar sem Sjálfstæðisflokkurinn segir ekki til um hvaðan koma, en var beinn styrkur til flokksins frá einu fyrirtæki að öllum líkindum Landsbankanum.

Raunar er ekki orðum eyðandi á þig og aðra af þínu sauðarhúsi, rasista og taglhnýting. Þegar þú varst búinn að sprengja frjálslynda flokkinn (sem flugumaður Davíðs, enda skýrir vart anap þjónkun þína við náhirðina og þann viðsnúning annað) tekurðu til við að opna á sorann sem, ef eitthvað er er verri en það sem frá Davíð kemur, enda verða menn að sýna hollustu sýna ef þeir ætla að fá að setjast að fótskörinni.

davíð (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 20:48

3 Smámynd: Gústaf Níelsson

Þessi niðurstaða Ingibjargar Sólrúnar kemur mér á óvart og ég hefði talið hana stærri í sniðinu en þetta. Ef mér skjátlast ekki myndi ég ætla að þetta væri aðferð hennar til að koma aftur í stjórnmálin. Í stjórnmálunum er stundum gott að eiga sér blóraböggla. Frjálshyggjan, boðberi hins opna og frjálsa þjóðfélag, skal nú lögð yfir hné vinstriaflanna og rassskellt, hugmyndafræði frelsins refsað að ósekju. Hér þarf enga sök að sanna. Kommarnir alltaf samir við sig. Enginn vafi.

Gústaf Níelsson, 25.2.2010 kl. 21:01

4 Smámynd: Jón Magnússon

Arnar vissulega ætla ég að lesa grein Ingibjargar í heild þannig að ég leiðrétti þá sem missagt kann að vera en þetta sem ég er að skrifa um er í samræmi við frétt og úrdrátt úr greininni.

Varðandi pólitíska styrki þá er ég þér sammála með það að það ber að fordæma það með hvaða hætti svokallaðir "milljarðamenn" sem reyndust eftir allt vera milljarðaskuldarar óðu um allt og styrktu flokka og einstaklinga með milljónum og milljónir á milljónir ofan. Það var vissulega þvert á flokkslínur og fjarri því að vera fínt af Sjálfstæðisflokknum á sínum tíma að taka við ofurstyrkjum frá tveim aðilum svo sem núverandi forusta flokksins hefur raunar viðurkennt.

Það haggar hins vegar ekki því að helsti stuðningsaðili Samfylkingarinnar í formannstíð Ingibjargar Sólrúnar var Jón Ásgeir og þeir Baugsmenn beittu bæði fjármagni og fjölmiðlaveldi sínu til að koma Samfylkingunni í ríkisstjón og fella ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.

Það er mikilvægt Arnar að taka á spillingunni hvar sem hún er í stað þess að fara í skotgrafir á flokkslegum forsendum. Það er röng nálgun. Innan allra flokka er gott og heiðarlegt fólk en innan þeirra er líka fólk sem naut óeðlilegra styrkja og fyrirgreiðslu auðmanna.  Við eigum ekki að vera  hrædd við að ræða það. Annars komumst við ekkert áfram upp úr því spillingar og forardýki sem þjóðin er komin í. Ekki vegna þess að stjórnmálin hafi komið málum svo fyrir heldur vegna þess að stjórnmálamennirnir áttuðu sig ekki á því frekar en margir aðrir við hvaða öfl var að etja.

Jón Magnússon, 25.2.2010 kl. 23:07

5 identicon

Það er rétt sem þú segir Jón að það var ekki stjórnmálastefnan sem olli efnahagshruninu hér á Íslandi en það var hins vegar stjórnmálastefnan sem olli því hversu hátt fallið var og hversu skelfilegar afleiðingarnar eru fyrir okkur Íslendinga. Frjálshyggjan (eins og hagfræðin) er sannfærandi "á pappírnum" en reynslan hefur nú sýnt okkur að mannlegt eðli ræður ekki við óhefta frjálshyggju. Það getur ekki verið réttlætanlegt, hvernig sem á málið er litið, að takmarkalaus græðgi einstaklinga geti verið á ábyrgð samfélagsins, að gróðinn sé einkavæddur en tapið sé á ábyrgð ríkisins. Eftir stendur spurningin: Hvað olli efnahagshruninu ? Var það stjórnmálastefnan eða var það mannlegt eðli ? Svari hver fyrir sig. Við getum breytt stjórnmálastefnunni en við getum ekki breytt mannlegu eðli. Frelsi til athafna er nauðsynlegt en það verður að vera á eigin ábyrgð. Stjórnmálastefnan verður að taka mið af því !

Helgi Sigurðsson (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 23:12

6 Smámynd: Jón Magnússon

Davíð hvaða Davíð svo sem þú ert þá virðist mér þú vera í tilfinningalegu ójafnvægi þegar þú skrifar þessa færslu þína. En sannleikanum verða menn oft sárreiðastur.  Ég hef hvorki verið eða er  rasisti eða taglhnýtingur Davíðs og þá áttu sennilega við nafna þinn Oddsson.  Ég hef oft og einatt gagnrýnt Davíð Oddsson en það gildir það sama um hann og aðra að ég rís upp til varnar fólki sem verður fyrir óréttmætum árásum og ásökunum. Það mundi ég líka gera fyrir þig ef þannig stæði á.

Jón Magnússon, 25.2.2010 kl. 23:13

7 Smámynd: Jón Magnússon

Gústaf, Ingibjörg er þá að velja vitlausa leið til endurkomu inn í stjórnmálin. Þessi orð hennar hitta alltaf hana sjálfa fyrir. 

Hér á landi var aldrei frjálshyggjuríkisstjórn. Þvert á móti voru ríkisútgjöld aukin til muna ásamt skattheimtu alla þessa öld. Hefði verið gætt aðhalds í ríkisrekstrinum þá væri staðan mun betri en hún er í dag. Það má ekki gleyma því að samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar jók ríkisútgjöldin fyrir fjárlagaárið 2008 um rúm 20% í tómu glóruleysi eins og ég og Bjarni Harðarson þáverandi þingmaður Framsóknarflokksins og fleiri bentum réttilega á.

Jón Magnússon, 25.2.2010 kl. 23:20

8 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

ISG er ekki sannleiksunnandi og hefur aldrei verið. Hún er ættuð frá Haugi þaðan sem hugtakið Haugalygi er komið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.2.2010 kl. 04:14

9 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Mér finnst þessi greining Ingibjargar Sólrúnar nokkuð fyndin því að ég og fleiri teljum að hluti af því sem aflaga fór í Sjálfstæðisflokkinum hafi verið sú staðreynd að hann sló slöku við ákveðnum prinsipplögmálum flokksins s.s. stétt með stétt og rétti og frelsi einstaklingsins þegar hann fór í tilvistarkreppu um 2003. Hvers vegna fundum við okkur í einhverskonar tilvistarkreppu eftir á að hyggja? Jú hægri hluti Samfylkingarinnar var kominn hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn með þjónkun sinni og áherslum á frelsi, frjálshyggju og hvatningu til rýmkunar reglna. Frjáls markaðshyggja er góð og gild en hún má ekki fara út í öfgar og fórna grundvallarhugsjónum. Næst vöndum við okkur betur en til þess þurfum við að kryfja hvað fór úrskeiðis hjá okkur. Ingibjörg og félagar telja sig enn alveg stikkfrí. Engin naflaskoðun þar.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 26.2.2010 kl. 07:05

10 Smámynd: Jón Magnússon

Það er alveg hárrétt hjá þér Helgi það verður allt að vera á eigin ábyrgð og það var ekki stjórnmálastefna sem olli efnahagshruninu á Íslandi

Jón Magnússon, 26.2.2010 kl. 08:39

11 Smámynd: Jón Magnússon

Ekki veit ég það svo gjörla Heimir. En þarna er alla vega um undarlega hluti að ræða hjá henni.

Jón Magnússon, 26.2.2010 kl. 08:40

12 Smámynd: Jón Magnússon

Alveg sammála Adda

Jón Magnússon, 26.2.2010 kl. 08:40

13 identicon

Ingibjörg Sólrún lýsti því sem fyrirhyggjulausu flandri þegar Halldór Ásgrímsson hóf kapphlaupið inn í Öryggisráð UN. Tók upp stjórnmálasamband við Burkina Faso og fleiri þróunarlönd. Það vafðist hinsvegar ekki fyrir ISG að taka við þessum kyndli Halldórs þegar hún komst í sæti utanríkisráðherra. Hún sló á gagnrýnisraddir og sagði að Íslendingar ættu ekki að vera með minnimáttarkennd þótt þjóðin væri smá.

Eftir að hafa verið kjörin Borgarstjóri í Reykjavík fyrir R-listann, fullyrti hún aðspurð að hún hyggðist ekki bjóða sig fram á þing næsta ár. Viti menn, að ári var ISG komin í framboð til Alþingis og búin að gleyma fyrri yfirlýsingum.

Ingibjörg Sólrún er ekki samkvæm sjálfri sér, hún er ekki hugsjónamanneskja, hún er ekki trúverðug. Hún endurspeglar í raun allt hið slæma í fari Íslendinga, einstaklingshyggja, hroki, ekki vottur af sjálfsgagnrýni og ekki nokkur efi um erindi sitt hvar og hvenær sem er. Verst er að þessi einkenni eru ríkjandi í þjóðarsálinni og það er m.a. þessvegna sem Íslenska hagkerfið hrundi til grunna.  Ef Ísland á að eiga sér viðreisnar von þurfa önnur hollari gildi að ná yfirhöndinni, þau er til staðar, en það er djúpt á þeim.

Ingimar Traustason (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 09:17

14 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Ingimar. Ég er svo hjartanlega sammála þér með það að það þurfa önnur og hollari gildi að ná yfirhöndinni.

Jón Magnússon, 26.2.2010 kl. 11:14

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Jón,

Það eru svona upprifjanir sem eru nauðsynlegar þegar menn fara að búa til geislabauga á höfuð genginna stjórnmálamanna.Hefur ekki .jópin gott af því um þesar mundir að hugsa til baka til kosningabaráttu ISG og milljarðanna í Öryggisráðið, nú þegar þetta sama stjórnmálafl setndur fyrir Brusselviðræðum sem meirihluti þjóðarinnar  kærir sig ekkert um frekar en Icesave?

Gersamleg fyrirlitning á skoðunum fólks og opinberu fé, það er útbreitt skapgerðareinkenni hjá alltof mörgum stjórnmálamönnum. Mér finnst þetta þó mun algnegara í vinstriflokkum en öðrum.

Haltu áfram svona sögulehum upprfjunum, við hin gleymum alltof fljótt.

Kveðjur héðan ó Floridasólinni.

Halldór

Halldór Jónsson, 1.3.2010 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 406
  • Sl. sólarhring: 997
  • Sl. viku: 6150
  • Frá upphafi: 2277901

Annað

  • Innlit í dag: 379
  • Innlit sl. viku: 5685
  • Gestir í dag: 371
  • IP-tölur í dag: 363

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband