Leita í fréttum mbl.is

Röng sjálfsásökun Ingibjargar. Það var Samfylkingin í heild sem brást.

 Ingibjörg Sólrún brást ekki Samfylkingunni miðað við  stefnuna sem Samfylkingin markaði árið 2007 og þeim áherslum og athugasemdum sem kynntar voru í Borgarnesi af hennar hálfu.

Samfylkingin brást þjóðinni.

Forusta Samfylkingarinnar hamaðist á þeim sem rannsökuðu mál hrunfyrirtækjanna og talaði um pólitískar ofsóknir og þyrlaði upp pólitísku moldviðri til að verja hrunfyrirtækin og sáði þannig þegar í lok árs 2006 og byrjun árs 2007 þeim fræjum sem gáfu brjóstmylkingum Samfylkingarinnar í fyrirtækja- og fjármálaþjónustu greiðari leið til áframhaldandi svikastarfsemi.  Samfylkingin á að viðurkenna sök í stað þess að skella skuldinni á samstarfsflokk sinn eða fyrrverandi formann.

Ingibjörg Sólrún ber ekki meiri sök en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Þær mótuðu stefnuna saman og störfuðu saman.

Í stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir kosningar 2007 er sett fram sú stefna að

"skapa hagstætt rekstrarumhverfi fyrir fyrirtæki í fjármálaþjónustu....."

Í Borgarnesræðu fyrri sagði Ingibjörg m.a.:

"Í efnahags- og atvinnumálum hljótum við líka að leiða til öndvegis leikreglur hins frjálslynda lýðræðis. Okkur kemur ekkert við hvað þeir heita sem stjórna fyrirtækjum landsins eða hvaða flokki þeir fylgja að málum. Gamlir peningar eru ekkert betri en nýir. Ef ketti er ætlað að veiða mýs þá má einu gilda hvort hann er svartur eða hvítur – svo lengi sem hann gegnir sínu hlutverki. Í atvinnu- og efnahagslífinu eru það umferðarreglurnar sem gilda og þær eiga að vera skynsamlegar og í þágu alls almennings. Stjórnmálamennirnir bera ábyrgð á leikreglunum en leikendur bera ábyrgð á því að fara eftir þeim. Það má leiða að því rök að afskiptasemi stjórnmálamanna af fyrirtækum landsins sé ein aðalmeinsemd íslensks efnahags- og atvinnulífs. Þannig má segja að það sé orðstír fyrirtækja jafnskaðlegt að lenda undir verndarvæng Davíðs Oddssonar eins og það er að verða að skotspæni hans. Ég vil þannig leyfa mér að halda því fram að það hafi skaðað faglega umfjöllun um Íslenska erfðagreiningu, bæði hérlendis og erlendis, að sú skoðun er útbreidd að fyrirtækið njóti sérstaks dálætis hjá forsætisráðherranum. Það vekur upp umræðu og tortryggni um að gagnagrunnur fyrirtækisins og ríkisábyrgðin byggist á málefnalegum og faglegum forsendum en ekki flokkspólitískum. Sama má segja um Baug, Norðurljós og Kaupþing. Byggist gagnrýni og eftir atvikum rannsókn á þessum fyrirtækjum á málefnalegum og faglegum forsendum eða flokkspólitískum? Ertu í liði forsætisráðherrans eða ekki – þarna er efinn og hann verður ekki upprættur nema hinum pólitísku afskiptum linni og hinar almennu gegnsæju leikreglur lýðræðisins taki við. Þetta er verkefni Samfylkingarinnar. Samfylkingin á að vera óháð öllum helstu eignahópunum í samfélaginu, hún á að gæta almannahagsmuna, ekki sérhagsmuna." http://www2.samfylking.is/Forsida/Umraedan/Raedur/LesRaedu/12

Síðari Borgarnesræða Ingibjargar er almennari en þeir sem áhuga hafa á geta fundið hana hér: http://www2.samfylking.is/Forsida/Umraedan/Raedur/LesRaedu/13

Ingibjörg brást ekki kjósendum sínum eða Samfylkingunni miðað við þessa tilvitun í fyrri Borgarnesræðu hennar. Hún hélt áfram að vinna að hagsmunum Íslenskrar erfðagreiningar sem nú er gjaldþrota, Baugs sem nú er gjaldþrota, Kaupþings sem nú er gjaldþrota og Norðurljósa sem náðu nauðasamningum við lánadrottna sína og var búlkurinn í því sem síðar varð 365 miðlar ehf.

Þáverandi stjórn Norðurljósa var þannig skipuð:  Skarphéðinn Berg Steinarsson, formaður, Pálmi Haraldsson, varaformaður, Kristinn Bjarnason, Halldór Jóhannsson og Gunnar Smári Egilsson. Framkvæmdastjóri: Sigurður G. Guðjónsson.

Þessi fyrirtæki sem Ingibjörg og Samfylkingin báru sérstaklega fyrir brjósti árið 2007 og veittu Samfylkingunni ríflegastan fjárstuðning og fóru öll í þrot  þrátt fyrir pólitískan stuðning Samfylkingarinnar. Allt eru þetta  fyrirtæki sem hafa ríflega sáð  til efnahagshrunsins í október 2008.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mín sýn á þessa atburði er mjög á aðra lund en flestra annara. Flestir bíða í ofvæni eftir iðrun og afsögnum pólitískra ábyrgðarmanna við aðdraganda þessa voða sem við öll skynjum.

Fulltrúalýðræðið hefur ekki virkað á Íslandi og ábyrgðarleysi kjósenda er samþykkt. Kjósendum hefur verið mokað inn á kjörstaði ámóta og malarhlössum á bíla. Og þetta fólk hafði meðvitund.

Í áraraðir hefur fólk í þessu upplýsta samfélagi verið að karpa um það sín á milli hvaða flokkur sé bestur! Þetta er ámóta og þegar góðir vinir skiptast á kjaftshöggum vegna þess að enskt fótboltalið sem annar þeirra styður tapaði fyrir liði hins. Pólitísk vitund flestra er engin en í staðinn kominn keppnisandi á heldur lágum brautum dómgreindar.

Það er mikilvægt að svikulir vaktmenn axli sín skinn og biðji fólkið í landinu afsökunar en ekki flokkinn sinn. Það er jafn mikilvægt að þeir sem sendu þetta fólk á vaktina skoði sína ábyrgð og axli hana.

Biðji í það minnsta sjálfa sig afsökunar og skammist sín dálítið í leiðinni.

Árni Gunnarsson, 18.4.2010 kl. 16:04

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er hárrétt Árni. En er það ekki skrýtið að þrátt fyrir að allir séu sammála um að höfuðábyrgðina á hruninu beri stjórnendur bankanna og þeir sem tóku ofurlánin án þess að geta greitt, þá koma þeir fæstir og biðjast afsökunar og skammist sín dálítið í leiðinni. Hvað þá að nokkrum þeirra detti í hug að segja af sér eða hætta afskiptum svo fremi sem þeir eru ekki knúnir til þess.

Jón Magnússon, 18.4.2010 kl. 18:21

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Var það furða að hún grenjaði á fundinum yfir því hvernig allt hefur fokkast upp pólitískt sem hún hefur gert ?  Var það furða þó hún táraðist yfir því sem Jón Baldvin sagði, að flokksformaður gæti ekki verið stikkfrí í neinum málaflokki, öll mál væru á borði flokksformanns. Það er annað að reyna að stjórna þjóð og heimshruni í efnahaagsmálum heldur en að henda stöðugt kjötbitum í gin ljónsins Alfreðs til þess að það éti þig ekki og kalla það stjórnvisku.

Halldór Jónsson, 18.4.2010 kl. 22:34

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Öööö, ertu þarna líka Árni með með ræðuna þína um anarkismann sem leið Íslands útúr ógöngunum.

Halldór Jónsson, 18.4.2010 kl. 22:36

5 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæll Jón

Það er rannsóknarefni hvering þið sjálfstæðismenn getið lesið út úr Borgarnesræðunni allt annað en það sem í henni stendur í raun. Þú er þó undantekning að einu leiti - þú ert sá fyrsti sem vitnar í hana beint eftir því sem ég veit best. Kíktu á það sem ég skrifaði um Borgarnesræðuna (í 4 hlutum): http://gorgeir.blog.is/blog/gorgeir/?offset=80

Hjálmtýr V Heiðdal, 18.4.2010 kl. 22:37

6 Smámynd: Jón Magnússon

Já Halldór hann Árni er þarna líka en leiðin út úr ógöngunum getur einmitt verið með minni stjórnun og minni ríkisafskiptum í stað þess að auka þau.  Með minni ríkisafskiptum hefðu skattgreiðendur t.d. aldrei þurft að taka á sig byrðar vegna einkafyrirtækja hvort heldur það eru bankar eða annað sem fara í þrot. Án vottorða ríkisins hægri vinstri hefðu íslensku bankarnir aldrei náð að byggja upp þá starsemi sem þeir gerðu.  Ingibjörg hefur aldrei verið stjórnvitringur frekar en Steingrímur J. en þau eiga það bæði sameiginlegt að nýtast vel til ræðuhalda sérstaklega í stjórnarandstöðu.

Jón Magnússon, 19.4.2010 kl. 12:57

7 Smámynd: Jón Magnússon

Hjálmtýr ég er með link á Borgarnesræður Ingibjargar inni í færslunni þannig að það geta allir farið inn á það og lesið ræðurnar og dæmt sjálf.  Ég er ekki að lesa neitt annað út úr henni en það sem hún sagði enda er ég með beina tilvitnun í ræðu hennar.  Ég les bloggið þitt reglulega en þetta hefur farið fram hjá mér og skal ég verða við því að lesa það.

Jón Magnússon, 19.4.2010 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 127
  • Sl. sólarhring: 840
  • Sl. viku: 2513
  • Frá upphafi: 2294064

Annað

  • Innlit í dag: 122
  • Innlit sl. viku: 2289
  • Gestir í dag: 122
  • IP-tölur í dag: 121

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband