Leita í fréttum mbl.is

Sviss vill ekki ganga í EES. Af hverju?

Svisslendingar tóku skynsamlegustu ákvörðun þeirra þjóða sem vildu eiga gott samband og samstarf við Evrópusambandið en voru ekki tilbúin að ganga í Evrópusambandið.  Þeir gerðu tvíhliða samning við Evrópusambandið á meðan við gengum í EES

EES var í raun ekki hugsað til annars en að vera undirbúningferli fyrir fulla aðild að Evrópusambandinu. Öll ríkin sem mynduðu EES með okkur hafa gengið í Evópusambandið þannig að bara við Norðmenn og Lichtenstein erum eftir.  Á sínum tíma skrifaði hið virta rit "The Economist" um EES sem fordyri Evrópusambandsins og sagði eitthvað á þá leið að það þjónaði í sjálfu sér engum tilgangi að fara í EES nema fyrir þjóðir sem ætluðu að ganga síðar eða fljótlega í Evrópusambandið.

Með því að ganga í EES þá samþykktum við að framselja verulegan hluta fullveldis okkar m.a. hluta löggjafarvaldsins í raun.  Við féllumst m.a. á opinn vinnumarkað sem varð til þess að magna upp spennuna á árunum 2005-2008 og valda síðari tíma atvinnuleysi og dýpka kreppuna meir en ella hefði verið. Öllum aðvörunarorðum varðandi innflutnings þúsunda erlendra starfsmanna var vísað frá sem röngum og jafnvel rasískum eins gáfulegt og það nú var.

Því miður tókum við ekki þann kost sem Svisslendingar tóku að gera tvíhliða samning við Evrópusambandið, en það hefði haft verulega kosti í för með sér fyrir okkur, hefðum við farið að dæmi Svisslendinga.  

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2010/08/19/svisslendingar_vilja_ekki_adild_ad_ees/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Einmitt vegna þess að harla verður séð að Ísland sé samkeppnifært í tækni og fullvinnslu.  Einnig er samkeppnigrunnur EU lágvaxta grunnur undir verðlagseftirliti og boðin út og kvótaskiptur. Stækkar hann ef eitthvað er með hverjum degi. Nú er líka ljóst að Ísland verður ekkert alþjóðlegt fjármálavíti í framtíðinni. Allir vita að EES er með stjórnlagaheimild og fellur að útvíkkunar stefnu EU. Ávinningur er líka nefndur  að sé full innlimun að loknum lánafyrirgreiðslu þroskaferli til að gera okkur hæfi fyrir lokað innri samkeppi um evrur í umferð á Íslandi eða innrihagvöxt.

Hversvegna er ekki hægt að gera tvíhliða samning í dag? Í ljósi reynslunnar og vaxandi markaða utan EU?  

Júlíus Björnsson, 19.8.2010 kl. 23:43

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og í framhaldi eigum við nú að afturkalla umsóknaraðild að ESB og segja okkur frá EES bullinu.

Jafnframt og samtímis eigum við að ganga út úr Schengen.

Ég vildi geta bætt við: "Og ákvörðun þessi tekur gildi þegar i stað!" 

Árni Gunnarsson, 20.8.2010 kl. 00:32

3 Smámynd: Jón Magnússon

Já það er spurning Júlíus með tvíhliða samninginn. Ég held að við verðum úr því sem komið er að ganga samningaferli umsóknarinnar á enda og sjá síðan til. Alltaf er spurning um að velja bestu kosti fyrir íslendinga.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 10:20

4 Smámynd: Jón Magnússon

Ég held Árni að við eigum að ljúka samningaferlinu og taka síðan okkar ákvarðanir á grundvelli þess sem út úr því kemur úr því að við erum byrjuð á þessu.  Varðandi Schengen og opnu landamærin þá erum við alveg sammála. Það var glapræði fyrir Ísland að opna landamærin svo sem gert var og við súpum á hverjum degi seyðið af því.  En eins og ég sagði í svarinu til Júlíusar. Spurningin er að gera það sem íslendingum er fyrir bestu þegar til lengri tíma er litið en ekki láta skammtíma hagsmuni ráða för.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 10:22

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón það er engin spurnin hvort ESB og EES sé gott eða slæmt fyrir Íslendinga þar sem málið er það að við sem heild viljum hvorugt og eins og alltaf þá voru það pólítiskir menn sem komu þessu á í óþökk okkar og eru enn að gera. Þeir munu skrifa undir ESB í krafti ráðherra vald án þess að spyrja kóng né prest og láta svo reyna á það í dómstólum. Já eins og Magma menn. Semsagt svífast einskis til þess að koma sínum gælu málum í gegn.

Valdimar Samúelsson, 20.8.2010 kl. 11:25

6 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Mér finnst afstaða bloggara afar skynsamleg.

Stjórnmál eru svolítið einsog skák. Þegar maður hefur leikið leik þá er raunverulega ekki í stöðunna að taka upp leikinn. Það kemur hinsvegar alltaf upp ný staða og nýir leikir bjóðast. Þannig gera menn á endanum gott úr hlutunum. Ef í framtíðinni verður knýjandi þörf fyrir að segja sig frá EES samningnum þá gerist það bara.

Þjóðin mun á endanum velja eða hafna. Það er ekki andlýðræðislegt.

Gísli Ingvarsson, 20.8.2010 kl. 11:51

7 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Tvíhliða samningur Svisslendinga var ekki ókeypis og mun dýrari en EES samningurinn.  Litla Ísland hefði aldrei haft burði til að gera tvíhliða samninga við ESB og óvíst að ESB hefði haft áhuga. 

Ein ástæða þess að Svisslendingar hafa ekki áhuga á ESB og evrunni er að þeir hafa betri gjaldmiðil.  Þeir mundu þurfa að hækka vexti ef þeir færu inn í ESB og það er lítil stemning fyrir því hjá svissneskum iðnaði.

Þetta eru ekki vandamál sem við þurfum að hafa áhyggjur af

Andri Geir Arinbjarnarson, 20.8.2010 kl. 13:01

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það mun vera grein í stjórnlögum Evrópsku Sameiningarnnar, þar sem kemur fram að Meðlima-Ríki getur leitað til Umboðsins um heimild til að gera efnahagsögu-landamæri sín aftur sýnileg gagnvart almenningi ef það þykir nauðsynlegt. EU vegabréfið/passinn bætist við þjóðar passann en kemur ekki í staðinn fyrir hann. Bretar mun ekki aðilar að Schengen, og það er alveg óskiljanlegt hversvegna Íslendingar eru það, í ljósi mannslífanna og mannsalsins sem það kostar.  Bjartsýni og græðgi er hættulega blanda og einkennir reynslulausa.   

Júlíus Björnsson, 20.8.2010 kl. 14:19

9 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Ég held Árni að við eigum að ljúka samningaferlinu og taka síðan okkar ákvarðanir á grundvelli þess sem út úr því kemur úr því að við erum byrjuð á þessu.

Eini gallinn við það er, að þetta er í raun ekki samningaferli, þetta er aðlögun Íslenskrar stjórnsýslu að stjórnsýslu ESB (Semsagt breyta því hvernig við gerum hlutina til að þóknast ESB)

Halldór Björgvin Jóhannsson, 20.8.2010 kl. 19:04

10 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Og við íslendingar eigum að snúa okkur að NAFTA..og fá til viðræðna Noreg, Kanada og Bandaríkin og vera með fríverslunarbandalag..og þurfum ekki að afsala sjálfstæði þjóðar.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 20.8.2010 kl. 21:01

11 Smámynd: Jón Magnússon

Valdimar því miður er staðreyndin sú að íslenskir stjórnmálamenn voru svo langt á eftir í hugsun varðandi ýmis mikilvæg löggjafarmálefni sem varða réttindi almennings að það varð veruleg breyting til batnaðar á mörgum sviðum vegna þess að við gengum í EES.  Það nægir að nefna t.d. að við fengum þokkalega neytendalöggjöf, sem við höfðum ekki áður og hefðum sennilega ekki enn ef við hefðum ekki neyðst til vegna EES.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 23:22

12 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er alveg sammála þessari nálgun Gísli. Spurning ábyrgra stjórnmálamanna er alltaf á endanum hvað er mögulegt í stöðunni sem getur þokað málum til betri vegar.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 23:23

13 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta eru réttar ábendingar Andri að sjálfsögðu var tvíhliða samningur Svisslendinga við Evrópusambandið ekki ókeypis, en þeir héldu þó t.d. stjórn á landamærum sínum. Svo er það alveg rétt með gjaldmiðilinn, en þar er raunar einn stærsti vandinn okkar að vera með ónýta mynt til langframa. Það er mikil nauðsyn á að við tökum upp fjölþjóðlega mynt sem allra fyrst. Ég fór fram á það meðan ég sat á þingi að kannaðar yrðu leiðir til samstarfs við Norðmenn sem og aðrar leiðir.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 23:26

14 Smámynd: Jón Magnússon

Bretar töldu Júlíus að það væri betra fyrir þá að vera utan Schengen af því að þeir eru eyja eins og Ísland. Hér töldu ráðamenn að það væri betra að vera í Schengen vegna upplýsinga í gegn um það samstarf um glæpasamstarfsemi. En þær upplýsingar hefðum við hvort eð er fengið tel ég.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 23:28

15 Smámynd: Jón Magnússon

Halldór. EES samningurinn er slík aðlögun og þess vegna talaði Economist um það á sínum tíma að EES væri eingöngu anddyri þeirra þjóða sem ætluðu sér að ganga í Evrópusambandið.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 23:29

16 Smámynd: Jón Magnússon

NAFTA er ekki valkostur fyrir okkur. Viðskipti okkar og Norðmanna eru með þeim hætti. Hins vegar tel ég mjög mikilvægt að við sem og Norðmenn eflum sem mest tengsl okkar við vini okkar í vestri þ.e. Kanada og Bandaríkjamenn og reynum að koma sem mestu sambandi þar á milli. En Nafta er ekki valkostur fyrir okkur.

Jón Magnússon, 20.8.2010 kl. 23:31

17 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég fór fyrsta skipti ein út í heim 15 ára til EU, þá vissu allir tollarar heimsins að Íslenski passinn merkti engin á skrá hjá INTERPOL. Oft var ég tekinn fram fyrir einmitt vegna Íslenska vegabréfsins. 

Júlíus Björnsson, 21.8.2010 kl. 00:36

18 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

EES samningurinn er slík aðlögun

Mikið rétt, munurinn á aðlögunarferlinu ásamt EES og ESB er aftur á móti sá að við getum sagt nei við breytingum þegar kemur að EES og aðlögunarferli, en ef við segjum nei þar þá er hætta á að missa EES samninginn eða ekki komast í ESB.

Innan ESB er ekkert hægt að segja, þá eru hlutir teknir upp hvort sem við viljum eða ekki!

Halldór Björgvin Jóhannsson, 21.8.2010 kl. 01:49

19 Smámynd: Valdimar Samúelsson

takk Jón en það hefði nú mátt nota þessi lög EES ESB sem viðmið frekar en að innleiða hann blindandi. Það hefði líka mátt taka amerísku stjórnarskránna og Bill og right se em komin enn meiri reynsla á en ESB lögin.

Valdimar Samúelsson, 21.8.2010 kl. 16:05

20 Smámynd: Jón Magnússon

Já Júlíus það þekki ég líka. En það gildir ekki lengur því miður

Jón Magnússon, 21.8.2010 kl. 21:55

21 Smámynd: Jón Magnússon

Innan EES Halldór höfum við nánast enga möguleika á að hafa afskipti af lagasetningu Evrópusambandins sem við verðum síðan að viðlagðri ábyrgð að innleiða í lög hjá okkur. Innan Evrópusambandsins höfum við þó málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á öllum stigum löggjafarstarfs Evrópusambandsins. Með tvíhliða samningi mundum við ekki þurfa að taka við vörubílshlössum af nýjum reglum án þess að hafa nokkuð um það að segja. Sama gildir um aðild.

Jón Magnússon, 21.8.2010 kl. 21:57

22 Smámynd: Jón Magnússon

Ég átta mig ekki alveg á því hvað þú ert að fara Valdimar með bandarísku stjórnarskránni og bill of rights.

Jón Magnússon, 21.8.2010 kl. 21:59

23 identicon

Þessi umræða um tvíhliða samning við ESB og uppsögn EES er afar illa ígrunduð. Það er látið að því liggja að slíkir samningar yrðu auðfengnir. Svo er ekki og fullyrða má að tvíhliða viðræður yrðu flóknari og erfiðari við að eiga en aðildarviðræður. Það er eins og menn haldi að það væri hægt að falast bara si svona eftir tvíhliða viðræðum og svo yrði gengið frá málinu í snatri! Hvað hafa Íslendingar t.d. upp á að bjóða gagnvart ESB í  TVÍHLIÐA viðræðum? Ef menn halda að erfiðu málin - eins og t.d. sjávarútvegsmál - hverfi í tvíhliða viðræðum þá er það stórkostlegur misskilningur. Sjávarútvegsmál yrðu rædd í tvíhliða viðræðum og fullyrða má að ESB yrði mun harðara í horn að taka á þeim vetvangi í tvíhliða- heldur en í aðildarviðræðum. Þess má geta að afstaða valdastéttarinnar í Sviss gagnvart ESB er að hluta til komin til út af því að við aðild þyrftu þeir - amk að hluta - að losa böndin um bankaleynd. Og það vilja þeir ekki.

Úlfar Hauksson (IP-tala skráð) 22.8.2010 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 95
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 4331
  • Frá upphafi: 2291350

Annað

  • Innlit í dag: 85
  • Innlit sl. viku: 3991
  • Gestir í dag: 70
  • IP-tölur í dag: 65

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband