Leita í fréttum mbl.is

ASÍ ber ábyrgð á hruninu

ASÍ og lífeyrissjóðir í vörslu forkólfa verkalýðsrekenda bera mikla ábyrgð á hruninu. Fróðlegt verður að sjá með hverju forseti ASÍ ætlar að afsaka ábyrgðarlausa þátttöku ASÍ og lífeyrissjóðanna í gróðabralli banka og fjármálasukki síðustu ára. Launafólk sem og aðrir landmenn eiga heimtingu á að Gylfi Arnbjörnsson geri heiðarlega úttekt á aðgerðum og aðgerðarleysi verkalýðshreyfingarinnar og lífeyrissjóðanna varðandi efnahagshrunið og hrunadansinn frá aldamótum fram að hruni.

Forusta ASÍ og lífeyrissjóðafurstarnir berjast eins og grenjandi ljón gegn því að launafólki í landinu verði skilað til baka hluta þess ránsfengs sem lífeyrissjóðirnir hafa haft af launafólki með óréttmætri og siðlausri verðtryggingu lána. Gylfi Arnbjörnsson þarf að gera þjóðinni grein fyrir því á ársfundi ASÍ sem hefst á morgun hvernig sú afstaða hans og forkólfa verkalýðshreyfingarinnar samræmist hagsmunum launafólks.

Lífeyrissjóðirnir hafa tapað hundruðum milljarða á banka-sjóða- og verðbréfasukki og forustumenn þeirra höguðu sér með sama hætti og þeir útrásarvíkingar og bankamenn sem verkalýðsforustan ásakar nú um að bera ábyrgð á hruninu. Verkalýðsforustunni væri hollt að horfa á eigin spegilmynd til að sjá bjálkann í eigin augum.

Fróðlegt verður að sjá hvort verkalýðsforkólfarnir sem hittast á ársfundi ASÍ klappa á bak hvers öðrum og finna leiðir til að kenna öllum öðrum en sjálfum sér um.  Þá verður fróðlegt að sjá hvort þeir ætla að afsaka sig með innantómum marklausum Samfylkingarfrösum um frjálshyggju, einkavæðingu og spilavíti. Sé svo þá  ættu þeir í leið að huga að því að það voru þeir sjálfir sem spiluðu hvað djarfast með lífeyrissjóðina. Það voru þeir sem helltu peningaolíunni á spilavítiseld útrásarvíkinganna og það voru þeir sem sátu í stjórnum fjármálafyrirtækja og hentu hundruðum milljarða í fjármálafyrirtæki og önnur fyrirtæki sem og erlent verðbréfabrask.

Gylfi Arnbjörnsson og félagar í ASÍ og lífeyrisfurstarnir ættu að horfast í augu við sjálfa sig eigin ábyrgð og segja af sér og leyfa raunverulegum fulltrúum fólksins að komast að.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Fróðlegt verður að fylgjast með kæru Jóhanns Páls Símonarsonar og þeim stjörnulögmönnum sem að því máli verða kallaðir.

Árni Gunnarsson, 20.10.2010 kl. 16:03

2 Smámynd: Jón Magnússon

Já það segir þú alveg satt Árni.

Jón Magnússon, 20.10.2010 kl. 16:06

3 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Þetta er einn sá albesti og sannasti pistill sem ég hef lesið lengi.

Forysta ASÍ hagsar sér á nákvæmlega sama hátt og Samfylkingin, enda er náið samband þar á milli. Þá meina ég, að þessir aðilar bera stóra ábyrgð á því hvernig fór, en kenna öðrum um.

Vitanlega á að krefjast rannsóknar á starfsemi lífeyrissjóðanna og láta forsvarsmenn þeirra svara til saka

Jóhann Páll á heiður skilinn fyrir sína framgöngu í þessu máli og vonandi fær hann her góðra lögfræðinga í lið með sér.

Jón Ríkharðsson, 20.10.2010 kl. 17:26

4 Smámynd: Elle_

Og þessir sömu forkólfar vilja ENDILEGA að við tökum á okkur ICESAVE og hafa barist eins og ljón fyrir því líka.  Ætli það sé ekki löngu orðið rannsóknarefni út af fyrir sig, Jón, hverjir nákvæmlega það eru sem það vilja og hvað nákvæmlega liggur á bak við það?

Elle_, 20.10.2010 kl. 19:17

5 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir nafni. Já ég er sammála þér með það að Jóhann Páll á heiður skilið.

Jón Magnússon, 20.10.2010 kl. 23:24

6 Smámynd: Jón Magnússon

Jú ég er sammála þér Elle það er löngu orðið rannsóknarefni.

Jón Magnússon, 20.10.2010 kl. 23:25

7 Smámynd: Hamarinn

Hvað með vini þína hjá SA.

En eins er það hjá þér og öðrum sjöllum, að hinn GUÐDÓMLEGI og SYNDLAUSI flokkur er ALSAKLAUS af öllu sem tengist hruninu.

Þetta var öllum öðrum að kenna.

Í stjórn hvaða stjórn sjóðs situr félagi þinn Vilhjálmur Egilsson?

Hverjir settu lögin frá 1991-2009? Var það ASÍ?

Hamarinn, 21.10.2010 kl. 00:40

8 Smámynd: Hamarinn

Í hvaða stjórn sjóðs situr félagi þinn Vilhjálmur Egilsson?

Hverjir settu lögin frá 1991-2009? Var það ASÍ?

En eins og hjá öðrum sjöllum, þá er hinn GUÐDÓMLEGI og SYNDLAUSI flokkur alsaklaus af öllu sem tengist hruninu. Þetta var allt öðrum að kenna.

Þurfið þið nú ekki að fara að taka til í skítahaugnum ykkar?

Hamarinn, 21.10.2010 kl. 00:45

9 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er ekki það sem ég er að segja Hamar í minni færslu. Ég er ekki að halda því fram að ASÍ og lífeyrissjóðirnir beri höfuð- eða meginábyrgð á hruninu. En þessir aðilar geta ekki fríjað sig ábyrgð. Þeir tóku þátt í dansinum og voru sumir innstu koppar í búri. Þá er það mikill misskilningur þinn að ég haldi því fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé alsaklaus af hruninu.  Spurning er hins vegar í hverju lá sök hans. Ég held að hún hafi aðallega legið í því að gæta ekki að því að halda ríkisbákninu í skefjum og láta alla á markaðnum bera ábyrgð á sjálfum sér og gæta að því að markaðskerfið væri mannúðlegt eins og ég skrifaði um löngu fyrir hrun greinar sem hétu "Mannúðlegt markaðskerfi"  Þú ættir að kynna þér það.

Jón Magnússon, 21.10.2010 kl. 09:31

10 Smámynd: Hamarinn

Gylfi Arnbjörnsson og ASÍ skipa ENGA fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóða, það gera hins vegar félögin sjálf, þannig að þáttur Gylfa er ekki mikill.

Hamarinn, 21.10.2010 kl. 18:50

11 Smámynd: Hamarinn

Er verðtrygging eitthvert vandamál?

Eru það ekki aðrir hlutir en verðtryggingin sem eru vandamálið?

Hamarinn, 21.10.2010 kl. 18:53

12 Smámynd: Jón Magnússon

Hamar. Ég geri mér grein fyrir því hvernig stjórnkerfi lífeyrissjóðanna er. Það er þó þannig að verkalýðshreyringin og ég er að tala til hennar og Gylfi er forustumaður hennar fara með mesta valdið í lífeyrissjóðunum.

Verðtryggingin er gríðarlegt vandamál og búin að vera lengi og það er útilokað að hægt sé að halda áfram með þetta óréttláta kerfi. Kerfi sem veldur því að lán á Íslandi eru þau óhagkvæmustu í heimi. Vinur minn sem starfar í Danmörku var að segja mér frá að hann hefði fengið nýan lánssamning við sinn banka þar sem vextir voru innan við 2% og engin verðtrygging.  Slík ávöxtun er meira að segja undir viðmiðun lífeyrissjóðanna hvað þá meira Hér virðast menn ekki átta sig á að raunávöxtun umfram 2% til langtíma gengur ekki upp og hefur ekki gert ef þú skoðar arðsemi eigin fjár til langs tíma.

Jón Magnússon, 22.10.2010 kl. 09:15

13 Smámynd: Hamarinn

Er það ekki lélegur gjaldmiðill, og árásir fjárgræðgismanna sem valda því að það verður að verðtryggja lán.

Það var ekki svo lítið væl fyrir 1979, vegna þess að sparnaður gamla fólksins brann upp.

Esb er lausnin, þá losnum við við handónýta stjórnmálamenn og krónuna í framhaldinu,.

Hamarinn, 22.10.2010 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 19
  • Sl. sólarhring: 115
  • Sl. viku: 4609
  • Frá upphafi: 2267753

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 4254
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband