Leita í fréttum mbl.is

Á Evrópusambandið loftið og loftrýmið?

Í janúar á næsta ári taka gildi nýar reglur Evrópusambandsins sem leggur sérstakt gjald á flug og flugfarþega. Gjaldið er vegna útblásturs fulgvéla.

Álagning gjaldsins mun hækka verð á flugi fyrir neytendur og áætlað er að það muni valda samdrætti í flugi um a.m.k. 3%  og fækka störfum við flug að sama skapi.

Þessi gjaldtaka Evrópusambandsins bitnar síst á meginlandsþjóðunum sem ráða Evrópusambandinu, af því að þar getur fólk  nýtt sér annan farkost t.d. hraðlestir og bíla. Íslendingar og Bandaríkjamenn eiga ekki annan valkost en að fljúga og kolefnisgjaldtakan bitnar  harðast á okkur.

Evrópusambandið neitar að taka tillit til sérstöðu okkar og Commissionin í Brussel telur sig ráða lofti og loftrými hvar sem er. Flugfélög sem  innheimta ekki og greiða ekki kolefnisgjaldið verða sektuð og jafnvel bannað að fljúga til Evrópu.

Evrópusambandið tekur ekkert tillit til þess að alþjóða flugmálastofnunin er að þróa alþjóðlegar reglur varðandi útblástur flugvéla. Evrópusambandið fer sínu fram.

Nú hefur Bandaríkjaþing neitað að láta þennan yfirgang Evrópusambandsins yfir sín flugfélög ganga og samþykkt lög þess efnis. Þar benda menn á að flugleiðin milli Chicago og Londin séu 3.963 mílur og einungis um 200 mílur tilheyri loftrými Evrópusambandsins. Í Brussel segja menn að það skipti engu máli ekkert frekar en hvað varðar íslensk flugfélög þar sem meginhluti flugs til London er í íslensku flugrými.

Sú gríðarlega gjaldtaka sem möppudýrin í Brussel hafa ákveðið á flugfélög og flugfarþega er fráleit einkum þegar haft er í huga að heildarútblástur flugvéla á svonefndum gróðurhúsalofttegundum nemur innan við 3% af heildarútblæstri slíkra lofttegunda.

En hvað segja íslensk stjórnvöld við þessu?  Eigum við ekki að neita þessari ósvífnu gjaldtöku sem bitnar harðast á okkur af öllum Evrópuþjóðum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta ekki bara í anda Össurar og Steingrimms, eru þeir ekki þessa dagana að setja á allskonar skatta og voru ekki samtök ferðaþjónustu að mótmæla tvísköttun á útblástur?

http://mbl.is/frettir/innlent/2011/11/21/utblasturinn_tviskattadur_verdi_innlent_gjald_ekki_/

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 16:49

2 Smámynd: Jón Magnússon

Nú veit ég ekki svo gjörla hvað samtök ferðaþjónustunnar voru að gera eða mótmæla en þetta flugútblástursdæmi er alveg gjörsamlega fráleitt fyrir okkur.

Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:37

3 Smámynd: Ívar Pálsson

Svo er árslosunin þessarra flugvéla álíka og viðbótardagur af síðasta Grímsvatnaeldgosi.

Þessi gjaldtaka er gerð til þess að samkeppnisfærni okkar sé slakari en Evrópuflugfélaga. Munum Sabena.

Ívar Pálsson, 21.11.2011 kl. 18:54

4 Smámynd: Haraldur Hansson

Eru þessar reglur hluti af ETS kerfinu (Emission Trading Scheme) um losunarheimildir á koltvísýringi? Í frétt Stöðvar 2 var talað um að flugfélög þyrftu að afla sér losunarheimilda.

Magnús Jónsson, fyrrum veðurstofustjóri, ritaði mjög góða grein um ETS í fyrra. Eiginlega alveg frábæra grein. Hún er um umhverfisskatta; aðdraganda, sögu, stöðu og horfur.

Ég setti þá saman þessa bloggfærslu af því tilefni og birti úr henni þá einkunn sem EUROPOL gefur kerfinu og umfjöllun Magnúsar um það. Það er sannkölluð falleinkunn sem ESB fær í þeirri úttekt.

Mæli með að þú gluggir í grein Magnúsar (hér, bls. 14).

Haraldur Hansson, 21.11.2011 kl. 20:28

5 Smámynd: Ómar Gíslason

Mér finnst þessi gjaldtaka ósvífið að við skulum láta svona yfir okkur ganga án þess að mótmæla. Sérstaklega þar sem flugið er okkar aðal samgöngutæki við evrópu.

Hætt er á því að ferðir til evrópu munu fækka en fjölga til þeirra landa sem ekki hafa þetta gjald.

Ómar Gíslason, 21.11.2011 kl. 21:32

6 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Það virðist vera alveg saman hvað er, ef einhver minnist á bruna á eldsneyti þá koma kolefnissérfræðingarnir með gapandi ginið og heimta að skattleggja herlegheitin, í nafni einhvers ímyndaðs réttlætis.

Það virðist vera réttlætanlegt að skattleggja hluti í krafti náttúrunnar... Hvað ætli verði fundið upp næst?

Sindri Karl Sigurðsson, 21.11.2011 kl. 23:09

7 Smámynd: Jón Magnússon

Já það væri alvarlegt Ívar ef við þyrftum að borga losunargjald vegna eldgosa.

Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 23:35

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir þessa ábendingu Haraldur. Ég sá þessa umfjöllun í sambandi við umræður og atkvæðagreiðslu á Bandaríkjaþingi. Ég skoða tilvísunina.

Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 23:36

9 Smámynd: Jón Magnússon

Já ég er sammála þér Ómar. Ég er hræddur um að verð á flugmiða hér hækki meira en víðast annarsstaðar með þessari skattlagningu.

Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 23:37

10 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála Sindri. Einmitt þetta sem ég velti fyrir mér líka.

Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 23:38

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

EU hefur ekki efni á öðru en draga úr almennri innri neytenda eftirspurn og viðhalda reiðufé Miðstýringar. EU flytur inn helling af orku.

Júlíus Björnsson, 22.11.2011 kl. 11:28

12 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Svona til leiðréttingar vegna þess að Ívar fer með algerlega rangt mál þegar hann fullyrðir að "Svo er árslosunin þessarra flugvéla álíka og viðbótardagur af síðasta Grímsvatnaeldgosi" - þá er það kolrangt...

Þess má geta að losun CO2 í eldgosum á heimsvísu er innan við 1% af losun mannanna, sjá http://www.loftslag.is/?page_id=1242 (þannig að eldfjöllin valda ekki aukningu gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu). Og það er líka nokkuð ljóst að aukning gróðurhúsaloftttegunda hefur áhrifa á hitastig í heiminum, þannig að ef einhverjum finnst skattur ekki málið (ég er ekki að taka afstöðu til þess í sjálfu sér), þá væri kannski ráð að heyra þær lausnir sem viðkomandi finnast þá vera nothæfar?

Sveinn Atli Gunnarsson, 22.11.2011 kl. 14:09

13 identicon

Gaman væri að vita hvort "flugher" í í viðkomandi löndum sé undanþeginn þessum skatti. Mér skilst nú að þær flugvélar gefi nú farþegavélum ekkert eftir í orkufreku starti og lendingu.

Jóhanna (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 16:05

14 Smámynd: Jón Magnússon

Já Júlíus og virðist vilja að það séu bara útvaldir sem geti flogið í farþegaflugi.

Jón Magnússon, 23.11.2011 kl. 00:05

15 Smámynd: Jón Magnússon

Merkilegara upplýsingar Sveinn. Af hverju ekki að leita frekar að öðrum orkugjöfum í staðinn fyrir að skattleggja allt sem hönd á festir.

Jón Magnússon, 23.11.2011 kl. 00:06

16 Smámynd: Jón Magnússon

Flugherirnir eru örugglega undanþegnir Jóhanna.

Jón Magnússon, 23.11.2011 kl. 00:07

17 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Jón, af hverju reyna þeir sem eru svona mikið á móti skattlausnum að leggja sitt á vogarskálarnar til að koma í veg fyrir skattlagningu, t.d. með því að finna alvöru lausnir t.d. í öðrum orkugjöfum? Svo ég snúi spurningunni þinni aðeins við...

Sveinn Atli Gunnarsson, 23.11.2011 kl. 00:59

18 Smámynd: Jón Magnússon

Já ég er alveg inn á því Sveinn Atli.

Jón Magnússon, 24.11.2011 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 67
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 1728
  • Frá upphafi: 2291618

Annað

  • Innlit í dag: 63
  • Innlit sl. viku: 1553
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband