Leita í fréttum mbl.is

Okkar eigin Osló eða hvað?

Við höfum þá staðalímynd af Osló að þar búi nánast eingöngu innfæddir Norðmenn.  Það er rangt.

Meir en einn af hverjum fjórum Oslóarbúum er innflytjandi. Með sama áframhaldi verða innflytjendur einn af hverjum 3 Oslóarbúum árið 2015.

Í Noregi er nú  tekist á um það með hvaða hætti á að taka á vandamálum sem komið hafa upp í skólum þar sem nemendum hefur verið skipt í bekki eftir því hvort þeir eru af norsku bergi brotnir eða innflytjendur. Gagnrýnendur segja að þetta sé aðskilnaðarstefna eða Apartheit, en skólayfirvöld í viðkomandi skólum benda á að þetta sé nauðsyn vegna þess að svo mikið af norskum nemendum skipti annars um skóla.

Norðmenn eru komnir í mikinn vanda með aðlögun innflytjenda að norsku samfélagi. Stórir hópar innflytjenda sérstaklega Múslímar vilja ekki aðlagast neinu en halda sínum siðum og helst eigin lögum og dómstólum. 

Á árunum 1990-2009 fluttu yfir  420.000  innflytjendur  til Noregs eða nánast ein og hálf íslenska þjóðin.

Þeir sem halda að það sé ekki vandamál að taka á móti stórum hópum innflytjenda ættu að kynna sér hvernig norskt samfélag er að þróast.

Hér á landi er háum fjárhæðum skattgreiðenda varið til að reka áróður fyrir fjölmenningarstefnunni. Bækur eru gefnar út á kostnað skattgreiðenda, Háskólinn og fræðafélög gefa út rit eða halda ráðstefnur á kostnað skattgreiðenda þar sem lögð er áhersla á jákvætt gildi innflutnings útlendinga til landsins. Á sama tíma er gert lítið úr sjónarmiðum þeirra sem vilja ganga rólega um þessar dyr. Samt sem áður hefur allt komið fram, sem þeir sem vöruðu við miklum innflytjendastraumi hafa sagt.

Af hverju er andstæðum skoðunum hvað varðar fjölmenningarstefnuna ekki gert jafnhátt undir höfði af stjórnvöldum?

Sem betur fer hefur flestum innflytjendum gengið vel að aðlagast íslensku samfélagi og einnig sem betur fer hefur mikið af góðu og harðduglegu fólki komið hingað sem innflytjendur.

Við þurfum samt að gæta varúðar og hafa stjórn á landamærunum annars lendum við innan 5 ára í sömu vandamálum og Norðmenn eru núna. 

Það skiptir líka máli hvaðan innflytjendurnir koma hvort sem okkur líkar betur eða verr.  Aðlögunin gengur betur og vandamálin verða minni, þeim mun líkari okkur sem innflytjendurnir eru hvað varðar trú og mannréttindi.

Þessar staðreyndir verða alltaf til staðar hversu miklu fé skattgreiðenda er varið til að koma á framfæri röngum og einhliða áróðri fjölmenningarsinna.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Þetta er þörf umræða sem þarf að vera laus við öfga í báðar áttir. Góður pistill hjá þér.

Sumarliði Einar Daðason, 28.11.2011 kl. 13:19

2 identicon

Já þetta er orðið stórvandamál í v-Evrópu og hægt að tala um þjóðfluttninga frá löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins þ.e. arabalöndunum þar sem Islam er 99% og menningin gjörólík þeirri evrópsku. Annað vandamál er svo þessu samvaxið að það er ekki menntafólkið og fólkið með þekkingu sem er að flytja heldur fólkið sem ekki hefur efni eða tækifæri til að mennta sig og sína og hefur lítinn eða engann vilja til að aðlagast nýrri menningu og menntunarstigi. Til eru mörg dæmi þar sem heilu þorpin í fjallahéruðum t.d. Tyrklands og víðar standa svotil tóm því allir eru fluttir til Evrópu, fólk sem hefur lifað við nánast steinaldarstig mann fram af manni og er eins og það sé statt á tunglinu skilur ekki upp né niður í hinum nýju heimkynnum. Þetta fólk dregur sig tilbaka inn í kreddur trúarbragða og rígheldur í gamla siði gömlu heimahagana til að spilling trúleysingjanna kristnu ná ekki tökum á þeim og fjölskyldu þeirra.

Þetta er mjög vont mál fyrir alla og innflytjendagettó farin að myndast í mörgum borgum Evrópu og einna verst er þetta á norðurlöndum.

Sveinn Úlfarsson (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 13:35

3 Smámynd: Guðmundur Paul

Sumarið 1974 var umræða um þessi mál í Berlisketidende og því spáð að um aldamót yrði annarhver íbúi Osló af erlendu bergi brotinn. Sem betur hafa þær spár ekki ræst. Hér á landi má ekki ræða þessi mál af yfirvegun án þess að verða dæmdur af samfélaginu sem rasisti. Ég þekki þessi mál að eigin raun þar sem móðir mín kom til landsins eftir stríð. Ég mátti oft heyra misfallegar athugasemdir um uppruna móður minnar og jafnframt ætlaðar stjórnmálaskoðanir hennar og jafnvel mínar. Það þarf harða brynju til að taka slíku sem barn og vera flokkaður með mest hataða fólki veraldar. Það er því miður þannig að fólk af sama menningaruppruna hópast saman í hverfum og þannig myndast Ghettó og öðrum verður vart vært þar. Ég bjó á Österbro 1974 og kom svo við þar 30 árum síðar og var allt menningar umhverfið gjörbreytt og enn ólíkari aðstæður á Vesterbro. En eðli mannsins er í grunninn falskt. Ég sagði eitt sinn að enginn væri rasisti fyrr en það kæmi við hann. 

Guðmundur Paul, 28.11.2011 kl. 13:41

4 identicon

Ég held að "öllum" sé ljóst að þetta er búið að vera "vandamál"(allavega stefnir í það) lengi. Málið er bara að fólk reynir í hvert skipti sem er að einhverju leyti talað um þetta,öskrar "rasisti", alveg sama á hvern hátt er talað um þetta.

Fólk er orðið ansi sjóvað í pólitískum rétttrúnaði. Það er búið að læra að sum sjónarmið eru algjörlega óboðleg, og jafnvel saklausasta umræða, virðist "særa" það. Þetta er náttúrulega lært atferli, því fólk veit að það kemst upp með moðreyk í samfélagi þar sem sambland af moðreyk og pólitískum réttrúnaði er allt umliggjandi.

Það er eins og fólk haldi að vandamálin hverfi ef það bara nógu oft endurtekur sömu vitleysuna, trekk í trekk.

Norðmenn með alla sína peninga, og gríðarlegu reynslu af samskiptum við þjóðir um allan heim, eiga í frekar miklum "erfiðleikum" með að "aðlaga innflytjendur". Segi ekki meira.

Málið er að ef fólk bítur eitthvað í sig, og er búið að drulla yfir mann og annan, og búið að verja eitthvað sjónarmið fram í rauðan dauðann, þá er það ekkert að fara breyta um skoðun svona einn tveir og þrír. Það mun rembast á móti, hvað það getur.

Það er kominn tími til að fólk hætti að láta örfáa háværa vitleysinga(sem geta náttúrulega verið á sitt hvorum kantinum), stjórna umræðunni.

Bíddu en hvert viðfangsefnið. Íslensk þjóð...LOL, ekki sjens í helvíti, sorry, ég er greinilega í einhverju bjartsýniskasti......

Ragnar Guðmundsson (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 17:13

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Fjölmenning og menningar afkimar hljómar allt mjög rasistalega að mínu mati. Menning í mínum huga vex í sjálfum sér.  Múhameð fór til fjallsins. Í Róm hegðar maður sér eins og Rómverji og í Napólí eins og einn frá Napólí.  Til að vera ekki talinn rasisti. Menning er jákvætt eintölu sameiningarorð í mínum huga. Frakkar segja allt sem er með frönskum orðum vera Franska menningu. Það er mjög dýrt fyrir 300.000 að hafa marga aðskilda menningarheima.

Júlíus Björnsson, 28.11.2011 kl. 18:27

6 identicon

Guð hjálpi þér drengur! ! !

Er þér alveg sama um mannorðið?

Ef þú myndir skrifa svona grein í

Noregi eða Svíþjóð, þá værir þú ekki bara

rasisti. Þú yrðir sálgreindur sem islamafób,

(sem þýðir á hreinni íslensku múslimahatari)

svo eitthvað þaðan af verra.

Nei, Ísland á eftir að súpa sömu sælu og hin norðurlöndin. Því miður ríður sænska maffían

hér húsum og hefur gert síðustu 40-50 ár. Hver man ekki eftir "Menginu" reikningsaðferð sem sló heilu árgangana út úr skólunum. Við verðum bara að bíta á jaxlinn og vonast til að kratafáb..... hrökklist sem

fyrst frá völdum.

Jóhanna (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 19:58

7 Smámynd: Einar Karl

Hér á landi er háum fjárhæðum skattgreiðenda varið til að reka áróður fyrir fjölmenningarstefnunni. Bækur eru gefnar út á kostnað skattgreiðenda...

Hvað eru þetta miklir peningar? Geturðu nefnt einhverja af þessum bókum?

Samt sem áður hefur allt komið fram, sem þeir sem vöruðu við miklum innflytjendastraumi hafa sagt.

Hvað er það sem hefur gerst á Íslandi, sem "varað var við"?

Einar Karl, 28.11.2011 kl. 21:16

8 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Varla óttastu þó að í "okkar eigin Osló" muni það sama gerast hér og gerðist þar, að íslenskur Breivik láti til sín taka? 

Ómar Ragnarsson, 28.11.2011 kl. 21:40

9 identicon

Þú ert djarfur ,Jón Magnússon, en þetta er þörf ábending og í tíma töluð. Ég les Skandinavísku blöðin að staðaldri og þar er einmitt mjög mikill "censur" ritskoðun, þegar þessi mál bera á góma. Þessi þöggun vinstri stjórnarflokka hefur kostað samfélögin ómældan skaða og harmleik. 11. des. s.l. í Stockholmi, terrorhótanir gagnvart fjölmiðlum og einstaklingum í Danmörku og Svíþjóð og ekki síst fjöldamorðin í Noregi, sem Sósíaldemókratar ÞYKJAST ekki skilja, hvers vegna átti sér stað, sem er þöggun út af fyrir sig og pólutísk skömm. Þróunin í fjölmenningarstefnuni á Norðurlöndum er að sjálfsögðu orsökin, með Krata í fararbroddi. Þetta er sorglegt. Kveðja.

En það má víst ekki nefna þetta svona opinberlega.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 23:20

10 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Sumarliði.

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:22

11 Smámynd: Jón Magnússon

Er það svo Sveinn að það sé einna verst á Norðurlöndunum. Ég held að ástandið sé verra sums staðar annarsstaðar eins og t.d. í Suður Frakklandi. En vandamál Norðmanna eru ný af nálinni.

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:24

12 Smámynd: Jón Magnússon

Ragnar mér hefur fundist margt hjá Norðumönnum varðandi innflytjendur vera ágætt, en þeim virðist ganga erfiðlega að láta þær reglur sem þeir hafa sett ganga upp.

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:26

13 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta getur allt verið rétt Júlíus nema það að Múhameð var á fjallinu þegar hann fékk fyrstu vitrunina og hélt að hann væri genginn af göflunum.

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:27

14 Smámynd: Jón Magnússon

Já Jóhnna ef það væri bara svo auðvelt. Ég  held að þetta sé flóknara en það.

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:28

15 Smámynd: Jón Magnússon

Í fyrsta lagi Einar Karl þá eru það bækur og rit sem hafa verið styrkt og ritgerðir jafnvel kostðar í ritum eins og síðasta Skírni svo ég taki dæmi. Ég veit ekki hvað þetta eru háar fjárhæðir en það væri verðugt verkefni fyrir þig að eyða tíma í að finna það út. Kristin trú þvælist alla vega ekki fyrir þér eða tekur tíma þinn.

Ég sagði m.a. árið 2006 að við gætum ekki tekið á móti svona mörgu fólki og gætt mannréttinda þeirra sem skyldi vegna þess að álagið væri of mikið. Það kom í ljós að ákveðinn hópur innflytjenda var misnotaður til vinnu og látinn búa í húsnæði sem ekki var mannsæmandi og ekki tókst að uppfylla kröfur um heilbrigði eða menntun á ákveðnu tímabili. Þessu var samt öllu neitað og jú rétt kallað rasismi þó verið væri að kalla eftir réttindum fyrir innflytjendur.

Sagt var þegar þenslunni lýkur og atvinnuleysi verður hér þá mun ekki nema lítill hluti innflytjendanna fara. Það var hlegið að þessu og því mótmælt. Hver er reynslan núna Einar? Stærsti hluti innflytjenda er hér enn og þannig er það allsstðar og það er í sjálfu sér allt í lagi ef fólk aðlagast því samfélagi sem það býr í. En það breytir því ekki að við þurfum að ganga hægt um þessar dyr því annars er hætta á að eitthvað láti undan t.d. að mannréttinda sé ekki gætt og lífskjör verði lakari en þau ella gætu verið.

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:34

16 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er ósmekkleg athugasemd hjá þér Ómar.

Því miður er víða til truflað fólk. Breivik er einn þeirra. Ódæðið sem hann vann er fordæmt af öllum. Það er engin þjóð eða hópur sem fagnar ódæði Breivik. Það er hins vegar því miður annað upp á teningnum varðandi  ódæðið sem unnið var 11. september 2001 þegar miklu fleira fólk var myrt af trufluðum öfgamönnum. Þá dansaði fólk á götunum og fagnaði "hetjunum" sem flugu á tvíburaturnana, í mörgum Arabalöndum m.a. á Gasaströndinni.  Þeim morðum er enn víða fagnað. Er það afsakanlegt?

Sem betur fer bera Evrópubúar almennt það mikla virðingu fyrir réttindum annars fólks óháð kynþætti, litharhætti eða trúarbrögðum að það fordæmir svona árásir truflaðs fólks eins og Breivík.

Það breytir hins vegar ekki því Ómar Ragnarsson að það verður að vera hægt að ræða málefnalega um hluti eins og innflytjendamál og trúmál. En ég reikna með að þú sért á sama báti og vinkona þín Margrét Sverridsóttir sem úthýsti kristninni úr Reykvískum skólum. Finnst þér það ekki flott framtak hjá þessari vinkonu þinni óskabarni Samfylkingarinnar?

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:44

17 Smámynd: Jón Magnússon

Það er því miður rétt hjá þér Valdimar að  það er mikil þöggun í gangi varðandi þessi mál.  Margir þeir sem voga sér að ræða málin málefnalega eru kallaðir rasistar, nasistar og fasistar. Hinir raunverulegu fasistar eru hins vegar fólk sem reynir að þagga niður málefnalegar umræður.

En Breivik getur engin afsakað ekki frekar en þá sem flugu á tvíburaturnana eða sprengdu stjórnarráðsbygginguna í Oklahoma.

Jón Magnússon, 28.11.2011 kl. 23:53

18 identicon

Þetta er hárrétt hjá þér Jón.

Í hvert sinn sem umræða um þennan málefnaflokk hefst þá rís upp fámennur, en hávær, hópur PC liðs sem kæfir alla heilbrigða umræðu með rasistastimplinum.

Sem betur fer sýnist mér að farið sé að draga úr áhrifum þessarra öfgamanna.

Menn verða að átta sig á því að það er oftast nær frjór jarðvegur fyrir fjöllitasamfélag, en jarðvegurinn fyrir fjölmenningarsamfélag verður aftur á móti alltaf þyrnum stráður.

PC liðið virðist ætíð rugla þessu saman.

runar (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 00:12

19 identicon

 Er það "málefnalega umræði" sem byggjast á hræðsluáróður? Hvernig er að aðlagast? Getur einhver fræða mig um það. Er ég "aðlagaður" ef ég breyta um trú? Eða hætta borða Kebab ? Er ég ekki "aðalgaður" og kannski réttdræpur ,einsog það var gert í þyskaland, ef ég vill ekki borða svínakjöt eða drekka vín?

Salmann Tamimi (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 04:20

20 identicon

Hér er ágæt síða um islam í Noregi. Þekking er af hinu góða og eyðir fordómum;http://www.islam.no/

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 08:18

21 identicon

Hér er síða norsks guðfræðing. Hér má finna ágætt yfirlit um stöðu rannsókna á íslam í Noregi. Gott er að kynna sér málin og þekking útrýmir forddómum;http://folk.uio.no/leirvik/tekster/IslamiNorge.html#bibliografi

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 08:26

22 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Norðmenn eins og vel flestar þjóðir Evrópu eru að vakna upp við vondan draum sem því miður verður seinna hrein martröð þegar múslímum fjölgar áfram. Við verðum að horfast í augu við það að Islam samræmist ekki vestrænni hugmyndafræði. Í Islam ríkir ekki jafnræði eða einstaklingsfrelsi. Lýðræði er andstætt Islam sem byggir á guðræði. Shariah-lög eru lög unnrunnin frá guði. Mannanna lög eru andstyggð að þeirra mati. Vandi Norðmanna af innflytjendur stafar fyrst og fremst frá því að leiðandi öfl múslíma banna þeim að aðlagast vestrænum gildum.

Skylda múslíma er að heyja heillagt stríð, Jihad, gegn öllum þeim sem ekki ganga á vegum Islam. Hátt í 300 milljónir manna liggja í valnum vegna Jihad á þessum 1400 öldum síðan Muhammeð blandaði þennan bannvæna hrylling. Islam er frumstæð  eyðimerkur ofstækistrúarbrögð sem svindlað var inn á fáfrótt og illa upplýst fólk. Við verðum að bregðast við Islam eins og við brugðumst við komúnisma og fasisma áður, enda sams konar hugmyndafræði nema hættulegri því trúmálum er ruglað inn í fræðin. Það flokkast ekki undir umburðarlyndi að þegar. Það jafngildir fáfræði og gunguskap.

Valdimar H Jóhannesson, 29.11.2011 kl. 09:59

23 identicon

Sammála að það er ekki endilega besta lausn að hrúga inn innflytjendum með ólíkann menningarbakgrunn. En ég held að þú farir rangt með þegar þú segir Palestínumenn hafa dansað á götum í fögnuði yfir árásinni á tvíburaturnana(væntanlega með vísan í fréttamyndir sem voru sýndar í fjölmiðlum). Mig minnir að fram hafi komið að myndirnar af þessum "götudansi" þeirra hafi verið áróðursbragð af hálfu Ísrael. Ég man að í fréttum sagði palestísk kona " Við hötum ekki Bandaríkjamenn jafnvel þó það séu herþyrlur frá þeim sem eru að drepa börnin okkar"  Þetta þótti mér merkilegt ekki síst miðað við þann órétt sem Ísrael beitir Palestínu með fullum stuðningi Bandaríkjanna.  Það er í raun ekkert skrítið að arabaheimurinn og múslímar hafi ýmigust á Vesturlöndum með tilliti til fortíðar og nútíðar.   Ég held að þarna þurfi að draga úr öfgum á báða vegu, það sé raunar bráðmál því annars fer illa.  Öfgar kalla á öfgar.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 10:10

24 Smámynd: Einar Karl

Jón, ég ætla ekki að eltast við að kanna hvort fullyrðingar þínar eigi við rök að styðjast. Ég hélt bara að þú vissir kannski um hvað þú værir að tala.

V. Jóhannesson segir:

orsökin,

ÞETTA finnst Jóni Magnússyni ekki ósmekklegt, að Valdimar kenni skandinaviskum vinstriflokkum um fjöldamorðin í Osló, en Jón skammast út í einfalda spurningu Ómars Ragnarssonar.

Einar Karl, 29.11.2011 kl. 10:37

25 Smámynd: Jón Magnússon

Já Rúnar það getur verið.

Jón Magnússon, 29.11.2011 kl. 11:18

26 Smámynd: Jón Magnússon

Salmann ég held að þú sért ágætlega aðlagaður. Ég er ekki að tala um trúarbrögð. Ég er að tala um getu samfélags til að taka á móti innflytjendum þannig að það þeir njóti mannréttinda og sömu lífskjara og aðrir þjóðfélagsþegnar og það myndist ekki minni hluta hópar í samfélaginu  eftir þjóðerni  t.d.  Af því sem ég hef heyrt til þín þá virðist þú vera sammála þessu.

Jón Magnússon, 29.11.2011 kl. 11:20

27 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir þitt innlegg Hrafn.

Jón Magnússon, 29.11.2011 kl. 11:21

28 Smámynd: Jón Magnússon

Ég ætla mér ekki út í trúmálaumræður Valdimar. En það er öllum frjálst að koma að málefnalegum sjónarmiðum hér.

Jón Magnússon, 29.11.2011 kl. 11:21

29 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er alveg sammála þér Bjarni. Bretar og Bandaríkjamenn hafa gert hver mistökin á fætur öðrum í Mið-Austurlöndum fyrst eftir stríð þegar Eisenhower og Churchill stóðu að því með CIA í fararbroddi að eyðileggja lýðræði í Íran og koma keisaranum aftur til valda. Síðan hafa mistökin verið hvert af öðru og vestræn ríki stutt einræðisherra og morðingja í þessum löndum hægri og vinstri. Alveg sammála þér það hafa verið hræðileg mistök.

Jón Magnússon, 29.11.2011 kl. 11:25

30 Smámynd: Jón Magnússon

Ég veit alltaf um hvað ég er að tala. En hvaða bull er þetta. Ég segi Breivik getur engin afsakað einmitt við þessa athugasemd. Lestu það sem stendur og vertu ekki að gera fólki upp aðrar skoðanir en það hefur Einar.

Jón Magnússon, 29.11.2011 kl. 11:27

31 Smámynd: Einar Karl

Tilvitnun mín í orð Valdimars Jóhannessonar datt, út, þar sem hann kennir vinstriflokkum um fjöldamorðin Noregi. Þetta segir Valdimar hér nokkru ofar:

Þessi þöggun vinstri stjórnarflokka hefur kostað samfélögin ómældan skaða og harmleik. [...] ekki síst fjöldamorðin í Noregi, sem Sósíaldemókratar ÞYKJAST ekki skilja, hvers vegna átti sér stað, sem er þöggun út af fyrir sig og pólutísk skömm. Þróunin í fjölmenningarstefnuni á Norðurlöndum er að sjálfsögðu orsökin,

Einar Karl, 29.11.2011 kl. 12:45

32 Smámynd: Jón Magnússon

Þú ert að rugla saman Valdimar H. Jóhanessyni og  V. Jóhannsson sem er allt annar maður Einar Karl.

Jón Magnússon, 29.11.2011 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 654
  • Sl. sólarhring: 680
  • Sl. viku: 1068
  • Frá upphafi: 2292444

Annað

  • Innlit í dag: 588
  • Innlit sl. viku: 960
  • Gestir í dag: 564
  • IP-tölur í dag: 557

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband