Leita í fréttum mbl.is

Hvar eruð þið núna Jón Gnarr og Össur?

Fyrirbrigði á tónlistarsviðinu sem kallar sig "Pussy Riot" ákvað að vekja á sér athygli með því að litilsvirða helga dóma í höfuðkirkju rússnesku réttrúnaðarkirkjunnar fyrir nokkru. Uppákoma þessara þriggja kvenna í Rússlandi leiddi til þess að þær voru handteknar og hlutu nýverið dóm fyrir athæfi sitt.

Lönd í okkar heimshluta hafa ákvæði í refsilöggjöf sinni sem varða athæfi eins og það sem þessi sönghópur í Rússlandi gerðist sekur um.  Þannig er ákvæði í 125.gr almennra hegningarlaga á Íslandi sem mælir fyrir um refsingu allt að 3. mánaða fangelsi þeirra sem opinberlega draga dár að eða smána trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags. Konurnar í "Pussy Riot" hefðu því þurft að sæta ákæru og refsingu hér á landi fyrir svipað athæfi og þær gerðust sekar um í höfuðkirkjunni í Moskvu.

Allt í einu rís upp hópur hér á landi sem telur það hið  alvarlegasta mannréttindabrot að dæma þessar konur í Rússlandi í fangelsi. Fyrirbrigðið í stól borgarstjóra fannst tilvalið á þeim eina vettvangi sem hann getur sinnt sæmilega að setja á sig hettu til að hylja andlit sitt og krefjast þess að félagar í "Pussy Riot" yrðu látnar lausar. Í kjölfarði fylgdi Bandalag listamanna og "garmurinn hann Ketill", Össur Skarphéðinsson sem sagði Rússa brjóta öll mannréttindi með þessu og fór mikinn eins og aðrir af hans sauðahúsi sem hafa tjáð sig um málið.

Rússnesk refsilöggjöf tekur mun harðar á brotum af þessu tagi en gert er víða á Vesturlöndum en mun vægar en gert er í mörgum öðrum löndum. Um það hefur Össur ekki séð ástæðu til að fjalla. Í Saudi Aarabíu og Pakistan hefði fólk sem hefði brotið af sér eins og konurnar í "Pussy Riot" gerðu verið teknar af lífi og það jafnvel strax.

Sunnudaginn var handtók Pakistanska lögreglan 11 ára stúlku með Downs heilkenni sem er sökuð um að hafa misfarið með síðu eða síður úr Kóraninum. Við því broti liggur lífstíðarfangelsi í Pakistan. Ekki fer sögum af því að Össuri Skarphéðinssyni hafi fundist tilefni til að fjalla um málið hvað þá fyfirbrigðinu sem situr í stóli borgarstjóra með fulltingi og í skjóli varaformanns Samfylkingarinnar. Það mál kemur þeim ekki við frekar en Bandalagi listamanna eða öðrum slíkum pótintátum.

Þá fer ekki sögum af því að það fólk sem mótmælir nú meðferðinni á "Pussy Riot" hafi látið í sér heyra vegna refsinga Julíu Timosjenko í Úkraínu eða það alvarlegasta sem nokkur ríkisstjórn getur gert gagnvart borgurum sínum að virða ekki rétt borgaranna til lífs eins og um var að ræða í Suður-Afríku fyrir skömmu og gerist í mörgum löndum nánast daglega.

Vel má fallast á að rússnesk löggjöf sem samsvarar 125.gr. almennra hegningarlaga á Íslandi sé of hörð, en það leiðir ekki sjálfkrafa til réttlætingar á ummælum utanríkisráðherra eða annarra sem sjá flísina í löggjöf Rússlands en ekki bjálkana sem eru út um allt í heiminum varðandi samsvarandi brot. 

Borgarstjórinn viðhafði að venju takmörkuð ummæli um málið þegar hann fullnægði sýniþörf sinni vegna þess.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kári Harðarson

Mér sýnist þú vera að segja að ef einhver mótmælir einhverju þá verði hann líka að mótmæla öllu öðru sem þarf að mótmæla, til að vera sjálfum sér samkvæmur. Þú nefnir þrjú önnur dæmi um verðug verkefni. Þetta er rökleysa af því hver maður má nota sinn tíma til að sinna sínum hugðarefnum og málefnum. Þú getur ekki ákveðið fyrir aðra hvaða slagi þeir velja að taka.

Ef ég ætla að forgangsraða öllum málefnum eftir forgangi

og ráðast svo bara á þau mikilvægustu gæti ég aldrei byrjað að láta gott af mér leiða.

Kári Harðarson, 22.8.2012 kl. 15:22

2 identicon

you got to pick your battles...

Hvað ert þú annars að gera í málinu ? Annað en að benda öðrum á hvað þeir eigi að gera ?

Hvar varst þú og þitt fólk þegar Pussy Riot málið fór sem hæðst ?

Afhverju bendir þú ekki á flest alla aðra landsmenn sem mótmæltu engu. Afhverju þessir tveir ? Pólitíkin ofar öllu að vanda...

steinar (IP-tala skráð) 22.8.2012 kl. 16:05

3 Smámynd: Jón Magnússon

Kári, borgarstjórinn í Reykjavík og utanríkisráðherra eru ekki prívatpersónur.  Ég bendi á að sá sem getur talað fyrir sig Össur, gagnrýnir sérstaklega rússnesk stjórnvöld fyrir mannréttindabrot það er töluvert mál þegar um utanríkisráðherra þjóðar er að ræða. Að sjálfsögðu geta allir mótmælt því sem þeir vilja, en ég bendi á hvað þetta er hollt að innan Kári miðað við svo mörg tilefni. Ef þú síðan vilt vandræðast með mig persónulega þá hef ég mótmælt mannréttindabrotum um áratugaskeið vítt ob breitt um veröldina á forsendum Amnesty International þegar um það hefur verið beðið.

Jón Magnússon, 22.8.2012 kl. 16:45

4 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er ákkúrat ekkert að gera í málinu gagnvart Pussy Riot steinar og það stendur ekki til. Það eru svo mörg margfalt fleiri og alvarlegri mál sem ég leyfi mér að skipta mér af og mótmæla á grundvelli Amnesty International. Síðan leyfi ég mér að vekja sérstaklega athygli á kristnu stúlkunni í Pakistan með Down´s heilkennið sem var handtekin og getur átt yfir sér lífstíðardóm vegna þess að hafa hugsanlega misfarið með síður úr Kóraninum. Mér finnst mikilvægara að taka þá baráttu.

Dómnum yfir Pussy Riot hefur verið áfrýjað þannign að endanlegur dómur hefur ekki verið kveðinn upp - eigum við ekki að bíða með fordæmingar þangað til það liggur fyrir hvaða dóm þær fá.

En Steinar ég er að vekja athygli á því fyrst og fremst hvernig ákveðið fólk velur sér alltaf vígvöll með stjórnleysi og upplausn en lætur sér fátt um finnast þó mannréttindi milljóna séu fótum troðin t.d. í Pakistan, Saudi Arabíu og Suður Afríku eftir að stjórnin þar fór úr höndum hvíta minnihlutans.

Jón Magnússon, 22.8.2012 kl. 16:51

5 Smámynd: Kári Harðarson

Ég efast ekki um að þú hefur staðið þína pligt. Hafðu þakkir fyrir!

Ég veit ekki hvort Jón Gnarr og Össur mega segja sínar skoðanir á Pussy Riot -- kannski er lagahefð fyrir því að þeir eigi að halda sig til hlés. Hjartað segir mér samt að ef einhverjum er siðferðislega misboðið þá eigi hann að tjá sig. Þá frekar þeir sem eru í valdastöðum af því á þá er hlustað.

Kári Harðarson, 22.8.2012 kl. 16:53

6 identicon

Þessi gjörningur hjá stelpunum ristir mun dýpra en einföld skrílslæti inni í kirkju, eins og sjá má af lokaræðum þeirra við réttarhöldin (sjá t.d. http://nplusonemag.com/pussy-riot-closing-statements). Svo ég vitni í lokaræðu einnar þeirra:

"Why did Putin feel the need to exploit the Orthodox religion and its aesthetic? After all, he could have employed his own, far more secular tools of power—for example, the state-controlled corporations, or his menacing police system, or his obedient judicial system. It may be that the harsh, failed policies of Putin’s government, the incident with the submarine Kursk, the bombings of civilians in broad daylight, and other unpleasant moments in his political career forced him to ponder the fact that it was high time to resign; that otherwise, the citizens of Russia would help him do this. Apparently, it was then that he felt the need for more persuasive, transcendent guarantees of his long tenure at the pinnacle of power. It was then that it became necessary to make use of the aesthetic of the Orthodox religion, which is historically associated with the heyday of Imperial Russia, where power came not from earthly manifestations such as democratic elections and civil society, but from God Himself."

Ég held það sé engin tilviljun hvað málið hefur blásið út í fjölmiðlum; gjörningurinn var táknræn árás á valdakerfi Pútíns og sókn þess í réttlætingu frá Rétttrúnaðarkirkjunni, og þessi harkalegu viðbrögð setja spillingu, réttarríkisleysi og ritskoðun yfirvalda þar í landi í sviðsljósið.

Þórarinn Sigurðsson (IP-tala skráð) 22.8.2012 kl. 17:11

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Gott mál hjá þér Jón Magnússon og þarft, þakka þér fyrir.

Hrólfur Þ Hraundal, 22.8.2012 kl. 17:57

8 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Takk fyrir þetta Jón, hjartanlega sammála þér. Það þarf yfirleitt ekki hetjur til að samsinna "tíðarandanum"  

Kristinn Ásgrímsson, 22.8.2012 kl. 18:57

9 identicon

Gott hjá þér að vekja athygli á þessu.

Miðað við myndir úr sjónvarpi, þá gat ég ekki betur séð en þær hafi ráðist þarna inn í kirkjuna með ofbeldi og látum. Reyndar er nafnið eitt sér svolítið svona vafasamt, Pussy Riot! Svolítið ofbeldislegt, en stjórnleysingar eins og Gnarrinn verða náttúrulega mjög upphrifinir.

að lokum þá eru fleiri en Gnarrinn hrifinn af stelpunum en hann Berlusconi mun víst líka þetta vel.

http://www.facebook.com/photo.php?fbid=10151045448148542&set=a.440624938541.240217.27489628541&type=1

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 22.8.2012 kl. 20:12

10 identicon

Tek heilshugar undir með þér, Jón Magnússon.

 Ég vék að þessu á bloggi mínu á dögunum: 

http://blogg.visir.is/gb/2012/08/20/her-er-vist-ekkert-pakistanskt-sendira%c3%b0/

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 22.8.2012 kl. 21:26

11 Smámynd: Jón Magnússon

Þeim Össuri og Jóni Gnarr er ekkert siðferðislega misboðið vegna "Pussy Riot" Kári. Þeir eru að geypa um mál af því að þeir halda að það sé til vinsælda fallið.

Jón Magnússon, 22.8.2012 kl. 22:52

12 Smámynd: Jón Magnússon

Þórarinn hefði svo verið þá gátu þær komið fram mótmælum án þess að misbjóða trúarsannfæringu fólks. Þegar þú ræðst á kirkju eins og þær gerðu þá eru þær fyrst og fremst að ráðast gegn kirkjunni og trúðarskoðunum þeirra sem aðhyllast þá trú. Þær höfðu ótal tækifæri til að vekja athygli á andúð sinni á Pútin og því sem þær telja hann standa fyrir. Vafalaust gætu ýmsir vakið athygli á málstað sínum með því að fara yfir siðferðileg mörk en fæstir gera það og þeir sem gera það vita að þeir muni sæta refsingu fyrir.

Jón Magnússon, 22.8.2012 kl. 22:58

13 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka ykkur fyrir Hrólfur og Kristinn.

Jón Magnússon, 22.8.2012 kl. 22:58

14 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Rafn ég er sammála þér. En ég held samt að það séu ekki sömu hvatir sem liggja að baki hrifningu Berlusconi og Össurar af "Pussy Riot".  Það er hárrétt ábending að nafnið segir ansi mikið um þessa hljómsveit, sem ég veit ekki til að hafi unnið neina sigra á tónlistarsviðinu.

Jón Magnússon, 22.8.2012 kl. 23:00

15 Smámynd: Jón Magnússon

Takk Guðmundur og takk fyrir þitt innlegg um málið fyrr og nú.

Jón Magnússon, 22.8.2012 kl. 23:01

16 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Það er stefna vinstrimanna að gagnrýna ekki mannréttindabrot í múslimaríkjum. Feministar og Amnesty láta lítið í sér heyra varðandi réttindi kvenna í þessum löndum. Hvers vegna ekki er mér hulin ráðgáta. Unga stúlkan í Pakistan er ekki feministi, hún býr þar að auki í múslimaríki (þótt kristin sé og sætir af þeim sökum ofsóknum og hennar fjölskylda) og þess vegna finnst íslenskum vinstimönnum (og feministum) óþarfi að eyða í hana mannréttindum.

Guðmundur St Ragnarsson, 22.8.2012 kl. 23:32

17 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ég tek einnig heilshugar undir með þér Jón Magnússon og mér hefur fundist algjörlega vanta umræðuna um virðingarleysið sem mér finnst þær hafa haft þarna frammi, en hafðu þökk fyrir góðan pistil.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 22.8.2012 kl. 23:48

18 identicon

Merkilegt að fyrrverandi alþingismaður tali um "fyrirbrigði" í stóli borgarstjóra (sem hann myndi aldrei segja ef borgarstjórinn væri sjálfstæðismaður) og segir að hann hafi mótmælt "á þeim eina vettvangi sem hann getur sinnt" og bara verið að fullnægja sýniþörf.  Er þetta málefnalegt?  Ég er alveg sammála Kára með að þetta sé rökleysa og að allir geta ákveðið það fyrir sig sjálfir hverju þeir  mótmæla.  Annars er ég sammála með að málið í Pakistan sé hörmulegt og Össur o.fl. ættu að láta í sér heyra með það.  Það gerir dóminn yfir Pussy Riot ekki sanngjarnan.

Skúli (IP-tala skráð) 23.8.2012 kl. 03:18

19 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

i pussy riot

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 23.8.2012 kl. 04:32

20 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Það kann vel að vera að viðbrögð dómsstóla í Rússlandi séu óþarflega hörð gagnvart kússu uppþotinu í kirkjunni en dómsstólar verða að dæma eftir þeim lögum sem ríkja í landinu.  Það er fráleitt að krefjast þess að valdhafar skipti sér af störfum dómsstólanna en hér hafa heyrst raddir þess efnis að Pútín eigi að láta sig málið varða, þ.e. að framkvæmdavaldið eigi að segja dómsvaldinu fyrir verkum. Gagnrýnin á að beinast að löggjafavaldinu fyrir að setja svo stífan lagaramma fyrir brot af þessu tagi. Sú gagnrýni á víðar við.

Máli kússanna er ekki lokið og því galið að fara út límingunum vegna þess meðan miklu alvarlegri mannréttindabrot eru látin óátalin. Mannréttindin í öllum hinum múslímska heimi eru fótum troðinn daglega án þess að heyrist hér hóstur eða stuna. Kristnir menn, gyðingar og raunar allir sem ekki aðhyllast rétta deild í Islam á hverjum stað eru myrtir, hraktir á fótta og smánaðir á hverjum einasta degi án þess að ráðamenn eða kirkjan láti sig málið varða. Það er því vægast sagt vemmilegt að fylgjast með hræsni og yfirdrepskap manna eins og Jóns Gnarr og Össurs.

Valdimar H Jóhannesson, 23.8.2012 kl. 09:43

21 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður Guðmundur þá hefur þú rétt fyrir þér.

Jón Magnússon, 23.8.2012 kl. 09:55

22 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Ingibjörg. Það gleymist nefnilega í umræðunni að athæfi eins og þetta er alls staðar refsivert.

Jón Magnússon, 23.8.2012 kl. 09:56

23 Smámynd: Jón Magnússon

Skúli sem betur fer höfum við haft marga mjög góða borgarstjóra sem ég mundi aldrei kalla fyrirbrigði á þeim vettvangi. Steinunn Valdís og Dagur voru borgarstjórar og ég mundi aldrei kalla þau því nafni.  Jón Gnarr kemur þannig fram því miður að það er lítið hægt að kalla hann annað en fyrirbrigði sem borgarstjóra.  Jón Gnarr hefur hins vegar marga aðra hæfileika og það er synd að hann skuli ekki gera það sem hann er góður í.

Jón Magnússon, 23.8.2012 kl. 09:59

24 Smámynd: Jón Magnússon

Ég efast um að þú hafir vitað hvaða fyrirbrigði "Pussy Riot" var Anna áður en þær frömdu helgispjöllin. Ekki hafa þær unnið sigra á tónlistarsviðinu.

Jón Magnússon, 23.8.2012 kl. 10:00

25 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir gott innlegg í umræðuna Valdimar. Það gleymist nefnilega að Össur og Jón Gnarr eru að fara fram á að stjórnvöld í Rússlandi taki fram fyrir hendur á dómstólum.  Einnig þörf áminning varðandi æpandi þögn mannanna með sýniþörfina, Jóns Gnarr og Össurar, um hræðileg mannréttindabrot og morðum á saklausu fólki.

Jón Magnússon, 23.8.2012 kl. 10:03

26 Smámynd: Mofi

Þetta er hárrétt hjá þér Jón Magnússon og góð færsla.

Mofi, 23.8.2012 kl. 10:31

27 Smámynd: Einar Karl

Sæll Jón.

Finnst þér að sú íslenska lagagrein sem þú vitnar til, "sem mælir fyrir um refsingu allt að 3. mánaða fangelsi þeirra sem opinberlega draga dár að eða smána trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags"

eigi fullan rétt á sér?

Einar Karl, 24.8.2012 kl. 22:08

28 Smámynd: Jón Magnússon

Já Einar það finnst mér.

Jón Magnússon, 25.8.2012 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 29
  • Sl. sólarhring: 894
  • Sl. viku: 2415
  • Frá upphafi: 2293966

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 2195
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband