Leita í fréttum mbl.is

Tillögum stjórnlagaráðs hafnað. Aðförin að stjórnarskránni X

Minni hluti kjósenda taldi ástæðu til að kjósa í skoðanakönnuninni um tillögur stjórnlagaráðs.  Þrátt fyrir það að ekki hafi verið talið upp úr kjörkössunum er ljóst að þjóðin hefur hafnað að leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá.

Kjósendur voru spurðir að því hvort þeir vildu leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar og það er ljóst af kosningaþáttökunni að þeir vilja það ekki. Meiri hluti kjósenda hafnar tillögunum. 

Stjórnlagaráðsmaðurinn Eiríkur Bergmann er kokhraustur og sagði í fréttum á stöð 2 (sá eini sem fékk að tjá sig) að þeir sem heima sátu; "hafi verið að leyfa öðrum að taka fyrirliggjandi ákvörðun í sinn stað"

Þetta er rangt. Þess vegna eru sett ákvæði, þar sem þjóðaratkvæðagreiðslur eru um lágmarksþáttöku, hvað margir þurfa að greiða atkvæði með að lágmarki o.s.frv.. Þar sem beint lýðræði er  túlka menn hjásetu kjósenda með öðrum hætti en  Eiríkur Bergmann.

Atlagan að stjórnarskránni mistókst í þetta sinn. Spurning hvort Jóhanna Sigurðardóttir axlar ábyrgð á þessu ferli og fjáraustrinum í sambandi við það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilberg Helgason

minnihluti þjóðarinnar tók þátt og hafnaði þar með þjóðaratkvæðagreiðslum og þar með munu ríkjandi öfl segja að þjóðin vlll ekki fá að hafa skoðanir og Jón þú átt þinn þátt í því.

Vilberg Helgason, 20.10.2012 kl. 22:58

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Já, það má greinilega beita ýmsum aðferðum við búa sig undir tapið

hilmar jónsson, 20.10.2012 kl. 23:15

3 identicon

Einmitt. Og nú kusu tæplega 60% gegn Icesave III lögunum í kosningum með um 75% þátttöku, eða um 45% atkvæðisbærra manna. Getum við þá ekki með sömu rökum sagt að meirihluti þjóðarinnar hafi viljað að lögin héldu gildi sínu?

Baldur (IP-tala skráð) 20.10.2012 kl. 23:16

4 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ertu að gefa í skyn að til séu lög um lágmarksþátttöku í atkvæðagreiðslum á Íslandi?

Ef svo er, hvar?

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 20.10.2012 kl. 23:44

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Í hvaða draumi ert þú staddur Jón?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.10.2012 kl. 00:09

6 Smámynd: Atli Hermannsson.

Eiríkur Stefánsson, vinur þinn, hvatti þig Jón í pistli á Útvarp Sögu í vikunni að þú segðir þig úr Sjálfstæðisflokknum, að þú ættir þar ekki heima. Ég er ósammála Eiríki og það hlaut að koma að því. Þú átt hvergi annars staðar heima.

Atli Hermannsson., 21.10.2012 kl. 00:29

7 identicon

Sæll Jón.

Held að ég verði að lýsa því yfir að þú sért með tapsárari mönnum sem ég veit um.

Þetta eru í það minnst veik röksemdarfærsla hjá þér.

Það getur ekki stemmt að því að x fjöldi kjósi að taka ekki þátt þá sé vilji hinna sem taka þá ótvíræður.  Ef þessi sami fjöldi var svona ákveðinn í að tillögur Stjórnlagaráðs séu jafn slæmar og þú vilt vera þá hlaut sá sami hópur að mæta að kjósa. Það gerði hann ekki. Ég geri ráð fyrir því að þú hafir hlýtt skipun þíns FLokksleiðtoga og sagt nei ? Þá mættir þú, hinir gerðu það ekki. Það má þá alveg eins túlka að þeir séu sammála. Var ekki sagt að þögn væri sama og samþykki ?

Sigfus (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 00:56

8 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þú veist að þessi pistill er tóm della og er ekkert annað en fýlutota 

Jón Ingi Cæsarsson, 21.10.2012 kl. 01:08

9 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Samkvæmt þessum skilningi þínum, Jón, hafa Bandaríkjamenn hafnað öllum Bandaríkjaforsetum sem þar hafa setið frá upphafi vega!

Ómar Ragnarsson, 21.10.2012 kl. 01:19

10 identicon

Er ekki rétt og sæmandi að hæstaréttarlögmaðurinn Jón Magnússon fari rétt með staðreyndir?

Rúmlega tveir/þriðju virkra kjósenda telja ástæðu til að leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar löngu tímabærum breytingum á nítjándualdar plaggi.

Þetta hlutfall telst nánast aukinn meirihluti á Alþingi.

Það er nefnilega svo, Jón minn góður, að virkt lýðræði byggist á þátttöku þeirra sem nenna að kjósa/mæta á kjörstað.

Jóhanna og Steingrímur ráku líka harðan áróður fyrir því að menn sætu heima í Icesave-kosningunum, en þjóðin veitti þeim verðuga ráðningu.

Nú hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn kosið að tala niður tilraun til að koma á nýrri stjórnarskrá á Íslandi og almenningur sýnir þeim eðlilega puttann.

Reyndi að skilja staðreyndir Jón og hættu að streytast við að afvegaleiða sannleika málsins.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 01:51

11 identicon

Aðeins um 15% kjósenda sá ástæðu til að hafna tillögu stjórnlagaráðs. Vilji þjóðarinnar er skýr.

Gísli (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 02:56

12 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Formaður Sjálfstæðisflokksins margítrekaði þá ósk sína til stuðningsmanna flokksins, sem hafa í skoðanakönnunum mælst vera um 40% kjósenda, að þeir færu á kjörstað og höfnuðu þar frumvarpi stjórnlagaráðs.

Greinilegt er að stuðningsfólkið annað hvort hundsaði tilmæli flokksforingjans eða það krossaði ekki við nei. Hvernig hægt er að túlka þetta þannig að allir sem ekki kusu, hafi með fjarveru sinni verið að hafna frumvarpinu er mér illskiljanlegt.

Ómar Ragnarsson, 21.10.2012 kl. 09:24

13 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það er á engan hátt hægt að túlka það að menn mæti ekki á kjörstað með þeim hætti að þeir hafi tiltekna skioðun. Við vitum ekkert hver er skoðun þeirra sem ekki mættu á kjörstað. Um 2/3 hltar þeirra sem kusu sögðu já og því er hér um afgerandi stuðning við tilögur stjórlagaráðs að ræða.

Það er þvílíkt kjaftæði að það háfla væri nóg að tala um þessar kosningar sem "atlögu að stjórarskránni". Þetta er einfalelga liður í því að bæta stjórnarskránna sem var sett til bráðabyrða árið 1944 og hefur alla tíð síðan staðið til að lagfæra hana.

Hér er um glæsilga niðurstjöðu að ræða fyrir þetta ferli og því Jóhönnu til sóma. Ef Sjálstæðifmönnum tekst ekki að eyðileggja þetta ferli með málþófi og koma þannig í veg fyrir nauðsylgar og löngu tímabærar lagfæringar á stjórnarskránni þá er þeim peningum vel varið sem í þetta fóru.

Það eru fyrst og fremst sjálstæðisenn sem mega skammast sín í þessu máli. Þeir gerðu allt sem þeir gátu til að skemma fyrir þessu ferli. Þeir vilja greinielga ekki að þjóðin fái að koma að samningu nýrrar stjórnarskrár heldur vilja handa þeim völdum hjá Alþingi þar sem þvímiður fyr hagsmuni þjóðarinnar er Sjálstæðiflokkurnn allt of stór.

Í þessu máli eins og öðrum hefur Sjálfstæðiflokkurnn unnið gegn þjóðarhag til hagsbóta fyrir tiltekna klíku sem hefur völdin í flokknum Þannig hefur Sjálstæðisflokkurimnn alltaf starfað og núna eru það kvótagreifarnir sem ráða málum flokksins og því mun Sjálfstæðifsflokkurnnn taka hagsmuni þeirra fram yfir almanahagsmuni. Það er fyrst og fremst hugmyndin um að allar auðlindir sem ekki eru nú þegar í einkaeign skuli ávallt vera í þjóðareign sem er helsta ástæðan fyrir barátu Sjálstæðisflokksins gegn þessu ferli.

Sigurður M Grétarsson, 21.10.2012 kl. 09:35

14 Smámynd: Elle_

Jón, takk fyrir öll skrifin þín gegn þessu fáráði.  Nú geta þau sem eyddu peningunum í þetta, farið að borga okkur til baka í ríkiskassann (líka fyrir Brussel-umsóknina frá júlí, 09) svo nota megi peningana í lækningatæki.  Og stjórnarflokkarnir farið frá völdum og verði haldið þaðan. 

Vonandi kemur Hæstiréttur í veg fyrir að þetta ofbeldi Jóhönnu, Eiríks, Þorvalds og ÚSögu gegn Hæstarétti og þrískiptingu valdsins (og þar með gegn þjóðinni), verði misnotað gegn stjórnarskránni.

Elle_, 21.10.2012 kl. 10:39

15 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Elle ég verð víst að bíða með að svara mörgum af þessum ágætu athugasemdum þar sem ég er að fara í Silfur Egils. Reyni að klára það í kvöld. En mér finnst rétt að svara öllum málefnalegum athugasemdum.

Jón Magnússon, 21.10.2012 kl. 11:42

16 identicon

Sæll Jón

„Sérhver nýr þingmaður skal vinna drengskaparheit að stjórnarskránni, þegar er kosning hans hefur verið tekin gild.

Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.“ – Þetta á líka við um skoðanakannanir, hver svo sem skoðun Þorvaldar Gylfasonar, blaðamanns, kann að vera. Hins vegar þykir mér við hæfi að þingmenn taki nokkurt tillit til skoðana þessa tæpa þriðjungs þjóðarinnar sem studdi tillögur stjórnlagaráðs. Jafnvel þótt líklegast sé að það fólk, flest, þekki hvorki haus né sporð á grundvallarlögum.

EINAR S. HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 11:45

17 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Kannski maður horfi nú bara einu sinni á silfrið

Haraldur Rafn Ingvason, 21.10.2012 kl. 12:10

18 Smámynd: Elle_

Skrýtið að lesa nokkra að ofan láta eins og NEI við Jóhönnuráðinu hafi snúist um Sjálfstæðisflokkinn og þá sem eru í honum.  Eins gott að taka fram að ég er óflokksbundin og aldrei verið í stjórnmálaflokki, úr því Sjálfstæðismenn mega ekki hafa skoðun og ættu bara að þegja, miðað við skæting Atla, Axels, Jón Inga og Hilmars J. 

Það er ofbeldið gegn Hæstarétti og þrískiptingu valdsins sem fjölda manns finnst óþolandi og alltaf sama sagan með núverandi stjórn.  Það var stór hópur þeirra sem sat heima til að gefa skít í þetta flýtis- og offara-brölt gegn núverandi stjórnarskrá.  Og í hópáróður Þorvalds og co. um landið.  Mikill misskilningur að hann tali fyrir þjóðina sem bað ekkert um þetta.

Vert að benda aftur á Hæstaréttarlögmanninn Reimar Pétursson og lagaprófessorinn Sigurð Líndal:
Reimar Pétursson gegn Þorvaldi Gylfasyni. 
Þarna er frétt um Reimar:
Leikur að fjöreggi þjóðarinnar:

„Hópur fólks hefur nú um nokkurt skeið handleikið fjöregg þjóðarinnar, stjórnarskrá lýðveldisins, með glannalegri hætti en áður hefur sést. Nú er mál að linni“, segir Reimar Pétursson, hæstaréttarlögmaður, í grein í Morgunblaðinu í dag.

 Þá segir Reimar m.a. í grein sinni: „Fyrir liggur tillaga frá hópi sem kallar sig stjórnlagaráð. Tillagan er ónothæf og óboðlegt er að breyta öllum atriðum stjórnskipunarinnar í einu. Vissulega er eitt og annað í stjórnarskránni sem má færa til betri vegar, en ómögulegt er að gjörbylta kosningafyrirkomulaginu, störfum þings og framkvæmdavalds og ákvæðum um mannréttindi í einni svipstundu. Með því er núverandi stjórnskipun kastað fyrir róða og ófyrirsjáanleg áhætta tekin með framhaldið“.
 
Sigurður Líndal, lagaprófessor, sagði:
Samkvæmt lögum um stjórnlagaþing skal Hæstiréttur skera úr um gildi kosninga fulltrúa á þingið. Þetta gerði Hæstiréttur með ákvörðun 25. janúar 2011 og lýsti kosningu til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 ógilda.Nú liggur fyrir þingsályktun um að skipa 25 manna stjórnlagaráð og binda skipun þeirra og varamanna við þá sem hlutu kosningu til stjórnlagaþings eða með öðrum orðum binda kjörið við hóp manna sem hlutu ógilda kosningu og eru því umboðslausir.
Með þessu er Alþingi í reynd að fella ákvörðun Hæstaréttar úr gildi og ganga inn á svið dómsvaldsins.
Jafnframt virðir Alþingi ekki þrískiptingu ríkisvaldsins og brýtur þannig gegn stjórnarskránni, eða að minnsta kosti sniðgengur hana. Um leið ómerkir þingið eigin ákvörðun um að fela Hæstarétti endanlegt ákvörðunarvald.
Ekki bætir úr þótt einhverjar málamyndabreytingar séu gerðar á hlutverki stjórnlagaráðs frá því sem ákveðið var um stjórnlagaþing.
Það má svo sem segja að þetta sé í samræmi við það sem nú tíðkast í umgengni við lög og reglur, jafnt í stjórnmálum sem atvinnulífi.
En gott væri að þeir sem hyggjast taka sæti í stjórnlagaráði hugleiddu stöðu sína og þá jafnframt hvort þetta sé gæfuleg byrjun á því að setja nýja stjórnarskrá.

Elle_, 21.10.2012 kl. 12:30

19 identicon

Þeir sem ekki mæta á kjörstað og kjósa í kosningum sem boðið er upp á í lýðræðisþjóðfélögum hafa ekkert með kosningarétt að gera. Í það minnsta eru þér einir sem höfnuðu tillögum stórnlagaráðs sem kosið var um í gær þér sem mættu á kjörstað, kusu og sögðu nei. Það að þú skulir túlka niðurstöðuna með þeim hætti sem þú gerir segir meira um þig heldur um niðurstöðu kosningunnar. Ég sleppi því hér að skrifa þau lýsingar orð sem eru mér efst í huga og lýsa áliti mín á þér herra Jón Magnússon.

Björn J. Guðjohnsen (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 14:42

20 Smámynd: Jón Valur Jensson

Glæsilega stóðstu þig í Silfri Egils í dag, nafni.

Heilar þakkir fyrir skrif þín í þessum greinaflokki. Þú ert sannkallaður verjandi góðra stjórnlaga.

Jón Valur Jensson, 21.10.2012 kl. 14:47

21 identicon

"Tillögum stjórnarráðs hafnað" - hvernig dettur þér í hug að skrifa svona þegar meirihlutinn kaus "Já".

En þessi málflutningur kemur ekkert mjög mikið á óvart ...Hræðsluáróður sjálfstæðisflokksins var að mestu leyti hunsaður. 

Og meirihlutinn ræður.

Nú er þessi kjörsókn í samræmi við þjóðaratkvæðagreiðslur hér og erlendis. 45-50% +-

...reyndar að undanskilinni Icesave atkv.greiðslunni þar sem mun stærri hópur mætti á kjörstað.

Sættu þig við þetta Jón. :)

Einar (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 15:01

22 identicon

Jón. Ég held samt að allir megi vel við una, og þ.m.t. þú líka, eða er það ekki :)

Kristinn j (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 16:46

23 identicon

Og þjóðkirkju var þá afdráttarlaust hafnað líka.

Valgarður Guðjónsson (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 17:02

24 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þér Jón og þakka þér Elli.  Nú fengu klaufdýrin fætur og baula og bölva niður alla skinsemi.   Sé boðið uppá að kjósa um líf eða dauða, þá kjósa menn sem hafa áhuga á lífi.  En sé boðið uppá að kjósa um dauða eða dauða þá láta menn það eiga sig því þeir ætla að lifa hvað sem líður öðrum fíflaskap.  

Hrólfur Þ Hraundal, 21.10.2012 kl. 17:18

25 identicon

Þetta er því miður veruleikinn.  Sumir mæta á kjörstað en aðrir kjósa að gera það ekki.  Því miður þá sé ég ekki hvernig er hægt að ljá þeim sem sitja heima einhverja rödd í niðurstöðunni.  Það eina sem við getum unnið eftir er það sem kom upp úr kjörkössunum.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 21.10.2012 kl. 18:14

26 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Þessi "glæsilega" niðurstaða er ekkert annað en næst lélegasta þjóðaratkvæðagreiðsla í rúmlega 100ára sögu þeirra á Íslandi, aðeins afnám innflutningshafta á áfengi 1933 fékk verri úttreið. Niðurstaðan getur ekki verið grunnur að sátt um svona mikilvægt mál.


Eggert Sigurbergsson, 21.10.2012 kl. 19:42

27 Smámynd: Einar Karl

Sæll Jón.

Vildi benda þé á meinlega innsláttarvillu í þessum pistli þínum. Þú skrifar:

Meiri hluti kjósenda hafnar tillögunum.

Þetta er augljóslega rangt, ég reikna með að þetta hafi skolast til hjá þér í innslættinum í flýti.

Með góðri kveðju,

Einar Karl

Einar Karl, 21.10.2012 kl. 20:09

28 Smámynd: Óli Már Guðmundsson

Þér finns rétt að svara öllum málefnalegum athugasemdum, en hvernig er hægt að svara svo ómálefnalegum pistli sem þinn er. Í lýðræðisþjóðfélagi ræður meirihluti þeirra sem kjósa, vilt þú fara eftir einhverjum öðrum reglum.

Óli Már Guðmundsson, 21.10.2012 kl. 20:58

29 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Hvað sem líður túlkun manna á niðurstöðum þessara kosninga, þá ráða þingmenn (Alþingis) því hvort þeir taka tillit til þeirra eða ekki  - ef þeir á annað borð treysta sér í þá vinnu að afgreiða nýja stjórnarskrá.

Hvaða hljómkviða er það sem þú heyrir og ómar frá hinum þöggla hluta þjóðarinnar sem ekki tók þátt í kosningunum. Ég heyri ekkert.  Jón, heyrir þú eitthvað?  Hvað vill þetta fólk? Ég held að það viti ekki hvað það vill.  Þess vegna á ekki að taka það með inn í umræðuna.

Kjartan Eggertsson, 21.10.2012 kl. 23:22

30 Smámynd: Jón Kristján Þorvarðarson

Ólafur Ragnar Grímsson vann mjög sannfærandi sigur í forsetakosningunum, en einhverjir fundu það út að meirihluti þjóðarinnar stæði ekki að baki honum! Mér finnst röksemdafærslur þínar af sama toga, því miður.

Hvað getum við fullyrt um þann helming kjósenda sem ekki tók þátt? Í sjálfu sér getum við ekkert fyllyrt, en stærðfræðileg yfirburðalíkindi liggja til þess að þeir hefðu greitt atkvæði með mjög hliðstæðum hætti, þ.e.a.s. þjóðaratkvæðagreiðslan gaf nokkuð skýra mynd af vilja þjóðarinnar.

Jón Kristján Þorvarðarson, 22.10.2012 kl. 04:21

31 Smámynd: Jörundur Þórðarson

Þótt margir hafi kosið að vera heima þá liggur fyrir niðurstaða sem allir verða að sætta sig við. Sjálfur var ég tvístígandi í afstöðu til fyrstu spurningarinnar. Mér finnst hins vegar slæmt þegar hraunað var yfir alla þá sem höfðu neikvæða afstöðu eða sýndu efasemdir gagnvart tillögunum. T.d. hef ég alltaf verið hrifinn og hlynntur Útvarpi Sögu, nú brást hún gersamlega væntingum mínum. 2-3 pistlahöfundar með óheppilegar skoðanir voru látnir taka pokann sinn. Gestir í síðdegisþáttunum á föstudögum voru eingöngu stjórnarráðsmenn. Eitt blað (mbl) með enga útbreiðslu hleypti efasemdarröddunum að. Voru þessar kosningar sigur fyrir lýðræðislega umræðu?

Jörundur Þórðarson, 23.10.2012 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 50
  • Sl. sólarhring: 1202
  • Sl. viku: 5794
  • Frá upphafi: 2277545

Annað

  • Innlit í dag: 50
  • Innlit sl. viku: 5356
  • Gestir í dag: 50
  • IP-tölur í dag: 49

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband